Morgunblaðið - 27.10.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
29
Frakkland:
Hætta sölu fóst-
urlátspillunnar
París. Reuter.
FRANSKT lyflafyrirtæki, sem
setti nýlega á markað fyrstu
fósturlátspiiluna, hefiir ákveð-
ið að hætta að selja hana vegna
mikilla mótmæla þeirra, sem
andvígir eru fóstureyðingum.
í tilkynningu frá Roussel Uc-
laf-fyrirtækinu sagði, að sölu pill-
unnar yrði hætt tafarlaust vegna
ákafra mótmæla jafnt í Frakkl-
andi sem erlendis en með pillunni
er unnt að framkalla fósturlát.
Hafði hún verið leyfð í Frakklandi
og Kína og búist var við, að fleiri
ríki gerðu það einnig.
Eftir starfsmönnum fyrirtækis-
ins er haft, að pillan hafi vakið
heiftarleg viðbrögð hjá ýmsum
trúarhópum og andstæðingum
fóstureyðinga og hafi mótmæla-
bréfunum rignt yfir þá. „Við get-
um ekki teflt framtíð fyrirtækisins
í tvísýnu. Almenningur er augljós-
lega ekki tilbúinn til að meðtaka
þessa aðferð við fóstureyðingu,"
sagði einn þeirra.
Höfundur pillunnar, Jean-
Michel Alexandre prófessor, sagði
þegar notkun hennar var leyfð
fyrir einum mánuði, að hún væri
95% örugg væri hún notuð á
fyrstu sjö vikum þungunar. Þá
kváðust læknar binda vonir við,
að pillan gæti dregið verulega úr
fóstureyðingaraðgerðum á
sjúkrahúsum en í Frakklandi eru
þær 150.000 á ári. Búist hafði
verið við, að Hollendingar, Bretar,
Spánvetjar og Norðurlandaþjóð-
imar legðu einnig blessun sína
jrfir notkun pillunnar.
Óvissa ríkir um við-
ræður pólsku stjóm-
arrnnar og Samstöðu
Varsjá. Reuter. I
WOJCIECH Jaruzelski, leiðtogi pólska kommúnistaflokksins, hitti
kaþólska erkibiskupinn Jozef Glemp að máli í Gniezno fyrir vest-
an Varsjá, í gær. Óvissa ríkti þá um viðræður stjórnvalda og
stjórnarandstæðinga um framtíð Póllands. Ekki varð af fúndi
Lechs Walesas, leiðtoga Samstöðu, og Czeslaws Kiszczaks inn-
anríkisráðherra, en ríkisstjómin hafði sett þann fúnd sem skil-
yrði fyrir frekari viðræðum við Samstöðumenn. Stjórnin vildi að
fundurinn yrði haldinn i gær.
Litlar líkur virtust vera á því að
af viðræðunum um framtíð Pól-
lands yrði eftir að Jaruzelski úti-
lokaði í síðustu viku að Samstaða
yrði viðurkennd. Stjómmálaráð
kommúnistaflokksins sendi þó frá
sér yfirlýsingu á þriðjudagskvöld
þar sem lýst var yfir vilja til að
he§a viðræður við- stjómarand-
staeðinga sem fyrst.
Pólska stjómin vill að viðræð-
umar hefjist á fostudag.. Stjómin
krefst þess þó að Walesa dragi tvo
andófsmenn, Adam Michnik og
Danmörk:
Nýr yjBrmaður
Konunglega
leikhússins
Kaupmannahöfh. Fr& Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
DANSKA sijórnin skipaði í gær
46 ára gamla konu, Boel Jörgens-
en, rektor í Hróarskelduháskóla,
til að gegna stöðu leikhússtjóra i
Konunglega leikhúsinu i Kaup-
mannahöfh.
Boel Jörgensen er þjóðfélags-
fræðingur og tekur hún við nýja
embættinu 1. júlí á næsta ári, þegar
Henrik Bering Liisberg, sem verið
hefur leikhússtjóri hjá Konunglega
frá 1979, hættir hjá stofnuninni
vegna óánægju með, hversu leik-
húsinu er þröngur stakkur skorinn
fjárhagslega. Starfsmannafjöldi er
um 800 manns.
Poul Schliiter forsætisráðherra
sagði eftir ríkisstjórnarfundinn í
gær, að 23 hefðu sótt um stöðuna.
Miklir erfíðleikar hafa verið í starfi
leikhússins, ekki síst vegna sam-
starfserfíðleika milli yfirstjómar
stofnunarinnar og listamanna, sem
þar starfa og eru í 16 mismunandi
stéttarfélögum.
Menningarmálaráðherra dönsku
stjómarinnar, Ole Vig Jensen, segir,
að nýi forstöðumaðurinn fái hálft ár
til að hreinsa til og koma lagi á hlut-
ina. Takist það ekki, leggi hann til,
að leikhúsinu verði lokað um tíma,
svo að unnt verði að skipuleggja
starfsemina þar upp á nýtt alveg frá
grunni.
Jacek Kuron, til baka sem fulltrúa
Samstöðu í viðræðunum og ræði
sjálfur við Kiszczak innanríkisráð-
herra. Walesa hefur hafnað þess-
um kröfum og talsmenn Samstöðu
sögðu að fundur innanríkisráð-
herrans og Walesa yrði ekki hald-
inn.
Talsmenn kirkjunnar í Varsjá
sögðu að fundur Jaruzelskis og
Glemps hefði verið haldinn að
frumkvæði Jaruzelskis. Kaþólskir
biskupar hafa haft milligöngu um
viðræðumar um framtíð Póllands.
Ekki var vitað með vissu hvað
rætt var á fundinum en talið var
að fjallað hefði verið um hugsan-
legt stjómmálasamband Póllands
og Páfagarðs og lög sem myndu
gera pólsku kirkjuna löglega í
fyrsta sinn eftir heimsstyrjöldina
síðari.
60 fórust í Nicaragua
Reuter
Á myndinni sést hluti þorpsins Lama, sem er skammt frá Managua, höfúðborg Nicaragua, eftir
að fellibylurinn Jóhanna hafði geisað í landinu. Flest húsin í þorpinu eyðilögðust í fellibylnum.
Að minnsta kosti 60 manns fórust af völdum fellibylsins í Nicaragua og talið er að sú tala eigi eftir
að hækka þótt óveðrinu hafl slotað. Um þriðjungur landsins er nú einangraður vegna flóða og
hafa björgunarsveitir ekki komist til þeirra svæða sem verst urðu úti.
Stjórnunarfélðg íslands
Ánanaustum 15 Sími 6210 66
Athugið!
VR og starfs-
menntunarsjóður
BSRB styrkja fé-
lagsmenn sína til
þátttöku í nám-
skeiðum SFÍ.
62&
Hér kynnast ritarar háum,
alþjóðlegum staðli I starfi
sínu
Samtök ritara og íslandsdeild Evrópu-
samtaka ritara (EAPS) standa að nám-
skeiðinu. Nokkur starfsreynsla er
nauðsynleg til þátttöku í námskeiði
þessu.
Meðal efnis:
• Skipulagning og timastjórnun
• Starfssvið ritara
• Samskipti á vinnustað
• Efling sjálfstrausts
• Tölvukynning
Leiðbeinendur:
Snjólaug Sigurðardóttir, Guðrún Snæ-
björnsdóttir og Kolbrún Þórhallsdóttir.
Tími og staður:
3.-4. nóvember ki.
8.30-17.30 fyrri
daginn, kl. 8.30-
12.30 seinnidag-
inníÁnanaustum
15.
'
BELDRAY
STRAUBORÐIN ERU LÉTT OG
MEÐFÆRILEG
og standast kröfur um
góða aðstöðu fyrir þig
og straujámið.
Þannig eiga
góð strauborð að vera.