Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988 33 40% lagmetis fer á Þýskalandsmarkað: Engir nýir markaðir geta komið í staðinn - segir Theódór S. Halldórsson Morgunblaðið/Guðlaugur Sigurgeirsson Skátar safiia gosdósum Vestmannaeyjum. Félagar í Skátafélaginu Faxa í Vestmannaeyjum tóku sig til á dögunum og hreinsuðu Heimaey af tómum gosdósum. Hreinsun þessi var liður í átaki, sem Bandalag islenskra skáta stendur nú fyrir, til hreinsunar landsins. Dósunum söfnuðu þeir síðan saman og töldu þær inn í gám sem sendur var til Reykjavíkur. Dósirnar reyndust vera 11.100. -G.G. Þorlákshöfii Tíu hjón missa vinnuna við uppsagnir Meitilsins ÍSLENDINGAR fluttu út lagmeti fyrir rúmar 1.100 milljónir króna í fyrra, sem voru rúm 2% af heÚdarútflutningnum. Þýska- land er langstærsti markaðurinn fyrir islenskt lagmeti, en þangað fór nær 42% af framleiðslunni, miðað við verðmæti. Theódór S. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sölustofiiunar lagmetis, segir að það myndi taka mörg ár að byggja upp nýjan markað fyrir lagmeti ef Þýskalandsmarkaður lokaðist vegna andstöðu þýskra Borgarnes: Aðalfimdur SSVK á morgun SAMTÖK sveitarfélaga í Vestur- landskjördæmi halda aðalfúnd sinn í Hótel Borgarnesi á föstu- dag og laugardag, 28.-29. októ- ber. Fundurinn hefst klukkan 10.30 á laugardag með fundarsetningu og ávörpum gesta. Síðan flytur Gunnar Már Kristófersson formað- ur skýrslu stjómar, Guðjón Ingvi Stefánsson skýrslu framkvæmda- stjóra, Marteinn Valdimarsson skýrslu gjaldheimtunefndar og Guðjón Ingvi Stefánsson reikninga og fjárhagsáætlun. Eftir matarhlé verður ræða Jóhönnu Sigurðardótt- ur félagsmálaráðherra og síðan taka við umræður um fræðslumál, heilbrigðismál, málefni Fjölbrautar- skóla Vesturlands, störf svæðis- stjómar um málefni fatlaðra og vegamál. Nefndir taka til starfa um kvöld- ið og síðari fundardaginn skila þær áliti. Þá verður afgreiðsla mála. fyrirtækja við hvalveiðar íslend- inga. Theódór sagði að Sölustofnunin fljrtti út til 20 landa og væri stöð- ugt að vinna að markaðsmálum, en það væri augljóst að ekki væri hægt að færa vömr á milli markaðs- svæða eins og taflmenn á skák- borði. Það tæki mörg ár að byggja upp nýjan markað, en mjög vel hefði gengið í Þýskalandi undanfar- in ár með aðstoð dótturfyrirtækis Sölustofnunarinnar þar. Þjóðveijar borguðu 465 milljónir íslenskra króna fyrir íslenskt lagmeti í fyrra og þrír íjórðu hlutar þess kom frá fyrirtækinu Aldi, sem óskað hefur eftir upplýsingum um hvalveiðar íslendinga. Næststærsti markaðurinn fyrir lagmeti er Frakkland, en þangað var selt fyrir 252 milljónir króna, eða tæp 23% af verðmæti útflutn- ingsframleiðslunnar. Til Sovétríkj- anna var selt fyrir 181 milljón króna, eða 16% af útflutningnum, til annara Evrópuríkja fyrir 127 milljónir króna, eða rúm 11%, og til Bandaríkjanna fyrir 76 milljónir króna, eða tæp 7% af verðmæti útflutts lagmetis. Theódór sagði að ekki væri útlit fyrir að nýir markaðir fyrir íslenskt lagmeti gætu opnast á næstunni. Sölustofnunin hefði til dæmis at- hugað .Iapansmarkað, en þær vörur sem íslendingar framleiddu nú hentuðu þeim markaði ekki. Því þyrfti að byija á að þróa nýjar vöru- tegundir áður en hægt væri að reyna markaðsátak þar eystra, en sala lagmetis til Austurlanda fjær nam í fyrra aðeins þremur milljón- um króna. Heildarverðmæti íslenskra sjáv- arafurða sem seldar voru til Vest- ur-Þýskalands var 2,6 milljarðar króna á síðasta ári. Þorlákshöfn. TÍU hjón, sem vinna í Meitlinum í Þorlákshöfn, missa vinnuna þegar uppsagnir starfsfólks taka gildi um næstu mánaðamót. Ein hjónanna eru Hertha Ágústs- dóttir og Ingimar Guðnason sem hafa bæði unnið lengi hjá Meitlin- um. Ingimar hefiir starfað þar í rúm 30 ár, lengst af í tækjasal en einnig á sjó og í saltfiski, en Hertha í 10 ár. Þau missa nú bæði vinnuna um mánaðamótin og verður heimilið því tekjulaust þar til atvinnuleysisbætur taka við. Starfsfólk í vinnslusal, sem fréttaritari tók tali í vikunni, sagði að ekkert væri framundan hjá því nema atvinnuleysi. Hér væri enga vinnu að hafa fyrir allt þetta fólk og fyrirvarinn það stuttur að ekki hefði verið tími til að leita vinnu annars staðar. í bréfi frá stjórn Meitilsins til starfsfólksins segir meðal annars svo: „Á fundi stjórnar Meitilsins hf. var eftirfarandi bókun samþykkt: „Stjómin samþykkir að rekstur fiskvinnslufyrirtækisins verði stöðvaður næstu tvo til þijá mán- uði. Uppsagnir starfsmanna muni því koma til framkvæmda þann fyrsta nóvember næstkomandi, ef frá eru taldir þeir starfsmenn, sem starfa við þann rekstur, sem haldið verður áfram á vegum fyrirtækis- ins. Þrátt fyrir þær efnahagsað- gerðir, sem fram em komnar, er fískvinnslan enn rekin með tapi. Fjárhagsstöðu Meitilsins hf. verður Leiðrétting Villa slæddist í frétt, á blaðsíðu 2 í gær, um greiðslustöðvun hluta- félagsins Guðbjörns Guðjónssonar, sem á og rekur Holiday Inn-hótelið við Sigtún. Sagt var að félagið héti Guðbjöm Guðbjömsson hf og leið- réttist það hér með. ekki íþyngt frekar en orðið er með taprekstri í fiskvinnslu. Að því er stefnt að rekstur fiskvinnslufyrir- tækisins geti hafizt að nýju í janúar næstkomandi enda hafi henni þá verið sköpuð viðunandi rekstrarskil- yrði.“ Eins og fram kemur í ákvörðun stjórnarinnar verður vinnslan stöðv- uð 31. október næstkomandi. Það er von okkar að við getum hafið störf að nýju í byijun næsta árs og að starfsfólki verði þá boðin at- vinnan að nýju hjá fyrirtækinu." Páll Jónsson, framkvæmdastjóri Meitilsins, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að úr handraða ríkis- stjómarinnar hefði ekkert komið, sem bætt gæti rekstrarmöguleika STEFÁN Valgeirsson þingmaður hefúr flutt þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem ráðgert er að stöðva framkvæmdir við ráðhús borgarinnar. Á meðan gefist Al- þingi tækifæri til að kanna hvort löglega hafi verið staðið að fram- kvæmdum við húsið. í bréfi sem Stefán sendi Magn- úsi L. Sveinssyni forseta borgar- stjómar um þetta mál segir Stefán að hann hafi miklar efasemdir um að réttilega og löglega hafí verið staðið að málum tengdum stað- festingu Kvosarskipulags og ákvörðunum um byggingu ráð- hússins. Tillagan miði að því að kannað verði ítarlega öll lagaleg atriði sem tengjast byggingunni með sérstöku tilliti til réttinda sem tengjast fasteignum Alþingis við norðurenda Tjamarinnar. í bréfi sínu lætur Stefán í ljós frystingarinnar nema 5% úr Verð- jöfnunarsjóði, sem Landsbanki ís- lands hefði tekið beint vegna hækk- ana á erlendum afurðalánum. „Þar sem búið er að framleiða upp í hagstæðustu samningana, við Rússa og Japani, er ekkert eftir að framleiða nema í ódýrar pakkning- ar. Karfi á Japansmarkað hefur lækkað um 25% að undanfömu, þannig að ekki er gæfulegt að halda þessum taprekstri áfram. Það eru um 100 manns, sem nú missa at- vinnuna, en hjá fyrirtækinu starfa áfram 15 til 20 manns, sem sjá um að þjónusta togarana og vélstjórar, sem halda frosti á klefum," sagði Páll. J.H.S. undrun sína yfir því hve lítil gögn og upplýsingar Alþingi hefur fengið af þessu máli. Hefur hann því ósk- að eftir því við borgarstjóm að fá í hendur ljósrit af öllum formlegum skjölum sem borgarstjórn og stofn- anir hennar hafa gert um það. Athugasemd ADOLF J. Bemdsen, stjómarfor- maður skipasmíðastöðvarinnar Mánavarar á Skagaströnd, segir að vélsmiðja Karls Bemdsens og Hall- björn Bjömsson rafvirki á Skaga- strönd hafi unnið sjálfstætt við Þóri Jóhannsson GK fyrir eigendur hans. Því sé ekki rétt eftir sér haft í Morgunblaðinu á þriðjudaginn að þeir hafi verið undirverktakar Mánavarar við smíði bátsins. Fiskverö á uppboösmörkuöum 26. október. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 45,00 38,00 42,90 13,699 587.756 Þorskur(óst) 38,00 38,00 38,00 0,755 28.690 Undirmál 15,00 15,00 15,00 0,473 7.095 Ýsa 58,00 27,00 43,52 16,066 699.283 Ýsa(óst) 44,00 42,00 43,00 2,682 115.348 Undirmálsýsa 20,00 20,00 20,00 0,266 5.321 Ufsi 15,00 15,00 15,00 1,109 16.635 Karfi 26,00 23,00 24,47 16,314 399.258 Koli 25,00 25,00 25,00 0,745 18.638 Steinbítur 24,00 24,00 24,00 0,158 3.792 Lúða 300,00 105,00 187,42 0,743 139.269 Samtals 38,12 53,012 2.021.085 Selt var aðallega úr Sólfara AK, Þresti KE og Haferni BA. f dag verða seld 65 tonn af þorski, 8 tonn af ýsu, 4 tonn af steinbít og 3 til 4 tonn af öðrum tegundum úr Keili RE og frá Færabaki hf. á Stöðvarfirði, Hraungerði hf. á Bakkafirði og Utveri hf. á Bakka- firði. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 39,50 30,00 37,91 52,659 1.996.509 Þorskur(óst) 24,00 24,00 24,00 0,060 1.440 Ýsa 51,00 30,00 43,17 10,675 460.827 Ýsa(óst) 53,00 53,00 53,00 0,613 32.489 Karfi 26,50 24,00 25,26 89,888 2.270.864 Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,600 9.000 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,085 1.275 Hlýri 24,00 24,00 24,00 1,180 28.314 Hlýri+steinb. 15,00 15,00 15,00 1,452 21.780 Langa 15,00 15,00 15,00 0,050 750 Blálanga 27,00 27,00 27,00 1,912 51.624 Skarkoli 37,00 37,00 37,00 0,025 925 Lúða 300,00 115,00 198,39 1,083 214.850 Skötuselur 135,00 135,00 135,00 0,049 6.615 Blandað 22,00 22,00 22,00 0,195 4.290 Samtals 31,78 160,525 5.101.561 Selt var aðallega úr Hegranesi SK og Þorláki ÁR. ( dag verður meðal annars seldur þorskur, ýsa og karfi úr ýmsum skipum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 47,00 30,00 39,91 91,638 3.657.696 Ýsa 70,00 43,00 55,78 8,500 474.140 Ufsi 16,00 16,00 16,00 4,409 70.543 Karfi 19,00 5,00 18,20 10,249 186.565 Lúða 130,00 100,00 102,12 0,070 7.210 Steinbítur 28,00 9,00 26,79 0,862 23.090 Hlýri+steinb. 15,00 15,00 15,00 0,091 1.365 Langa 28,50 22,00 27,10 0,824 22.330 Blálanga 15,00 15,00 15,00 1,476 22.140 Skarkoli 29,00 27,00 27,82 1,018 28.322 Keila 15,00 12,00 13,28 2,171 28.823 Skötubörð 149,00 149,00 149,00 0,019 2.831 Skötuselur 100,00 100,00 100,00 0,205 2.500 Samtals 37,40 121,533 4.545.555 Selt var aðallega úr Gnúpi GK, Eldeyjar-Hjalta GK og Eldeyjar- Boða GK. ( dag verða meðal annars seld 8 tonn af karfa úr Áskatli ÞH. Selt verður úr dagróðrabátum ef á sjó gefur. Stefán Valgeirsson vill gögn um ráðhúsið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.