Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
Guðríður Arna-
dóttir - Minning
Það er lítið mál að hringja fregn-
ir milli landa, sorgarfregnir jafnt
sem aðrar, meira mál að komast
sjálfur á milli. Og af því ég get
ekki fylgt Guðríði föðursystur minni
síðasta spölinn langar mig að minn-
ast hennar í fáum orðum.
Ég held ég hafi verið með annan
fótinn á heimili Gurrýjar frænku frá
fæðingu og framundir tvítugt. Hún
bjó með fjölskyldu sinni á Berg-
staðastræti, við í Þingholtsstrætinu.
Og þetta er ekki langur gangur
þegar maður er einu sinni búinn
að læra umferðarreglumar. Við
Nanný, elsta dóttir hennar, erum
líka jafnaldrar og urðum fljótt vin-
konur. Seinna bekkjarsystur og enn
meiri vinir. Maður valsaði um stof-
umar á Bergstaðastrætinu rétt eins
og manni sýndist, og kunni því vel.
Skemmtilegast var á laugardögum,
þótt þá giltu einu boðin og bönnin
sem ég man eftir á því heimili. Þá
var nefnilega enska knattspyman
sýnd í sjónvarpinu og þá mátti ekki
undir nokkmm kringumstæðum
tmfla Guný. Maður gerði sér sér-
stakar ferðir upp á Bergstaðastræti
til að horfa á Gurrý frænku horfa
á fótboltann. Keppnisskapið var
óskaplegt og hvatningarhrópin bár-
ust um öll Þingholtin, — manni
fannst æðislegt að verða vitni að
þessu. Hvunndags vom Billie
Holiday og Bítlamir sungin við
raust, og það var ekki ónýtt að eiga
föðursystur sem kunni meira í
Bítlunum en allir unglingar sem
maður þekkti.
Snemma varð mér ljóst að líf
frænku minnar hafði ekki verið
neinn dans á rósum undir Billie og
Bítlum. Löngu áður en ég varð til
hafði hún horft á eftir ástvinum.
Hún ræddi þetta aldrei sjálf, ég
frétti það hjá öðram. Með aldrinum
jókst virðing mín fyrir þessari
frænku minni, og mér varð ljóst
að hún var gerð úr þessu fína efni
sem bognar stundum en brotnar
aldrei.
Svo helltist unglingaveikin yfír
mann og þá varð það venja að rölta
með Nanný heim eftir skóla, bugað-
ur af heimsósóma, og setjast inn í
stofu hjá Guný. Hún hafði alltaf
tíma fyrir okkur, og með háði og
húmor var ráðist á málefnin, en
sorg, sút og biturð látin lönd og
leið. Ég er henni ævinlega þakklát
fyrir þessa eftirmiðdaga, því þeir
em hluti af veganesti mínu út í lífíð.
Kæm Jóhannes, Nanný, Alda og
Jóa, ég sendi ykkur með þessum
línum samúðarkveðjur sunnan úr
Frakklandi. Við eigum öll áfram
minningamar um Guðríði Ámadótt-
ur.
Aggý
Föstudaginn 21. þ.m. lést á heim-
ili sínu hér í bænum Guðríður Áma-
dóttir. Foreldrar hennar vom hin
ógleymanlegu hjón Ragnheiður
Jónasdóttir frá Brennu við Berg-
staðastræti og Ámi Jónsson frá
Múla.
Þegar ég kjmntist íjölskyldunni,
ung að ámm, hafði ég ekki hug-
mynd um hve lífíð gat verið litríkt -
í blíðu og stríðu. Tiyggðin við mig
var með þeim eindæmum að ekki
verður með orðum lýst. Við Gurrí
urðum fljótt miklar vinkonur, ákaf-
lega samiýndar og bar aldrei
skugga þar á. Við skemmtum okkur
líka oft saman og spiluðum það sem
við kölluðum „gömlu lögin okkar".
Sungum við þá, hún með sinni
músikölsku björtu rödd og ég með
minn strigabassa og að sjálfsögðu
allt tekið með sveiflu. Það var góð
skemmtun og mikið var þá hlegið
og gert að gamni sínu. Já, það var
svo margt sem við sáum broslegt
við þá, já, ótrúlegustu hluti.
Gurrí mín gekk ekki heil til skóg-
ar hin síðari árin. Stundum var hún
hætt komin. Hún vann utan heimil-
is síns eins lengi og heilsan lejrfði.
Seiglan og ekki síst húmorinn var
hennar veganesti. Um tvítugt gift-
ist hún Kristjáni Jóhannessyni.
Vom þau samvistum aðeins í
nokkra mánuði, því hann fórst með
togaranum „Guðrúnu" frá Boston.
Nokkmm ámm síðar giftist Gurrí
ágætismanninum Jóhanni Sigur-
jónssyni. Hann féll frá óvænt og
langt fyrir aldur fram. Þau eignuð-
ust dreng, Helga, sem lifði aðeins
skamma hríð. Atti þá Gurrí von á
dóttur sinni: Jóhönnu Ámheiði
Helgu.
Eftirlifandi maður hennar er
sómadrengurinn Jóhannes Valdi-
marsson. Hann kemur til sögunnar
nokkmm ámm síðar. Þau eignuðust
tvær dætur: Öldu og Jóhönnu. Jó-
hannes hefur rejmst Amheiði Helgu
sem hinn besti faðir. Allar em dæt-
ur Gurríar mjög vel gerðar mann-
eskjur og indælar í alla staði.
Það má með sanni segja að ör-
lagavaldurinn á lífsferli Gurríar
hafí haft nóg að gera.
Mér verður hugsað til dætranna
og Jóhannesar. Enginn veit nema
sá sem þekkir, hve mikið þau hafa
öll misst.
Að lokum þakka ég Gurrí ljúfar
endurminningar. Hennar samrýndu
og góðu fjölskyldu bið ég Guðs
blessunar.
Þórunn
Fiskverkunarstöð í Garði
Til sölu eru húseignir við Gerðaveg, Garði,
Gullbringusýslu með vélum ojg tækjum,
áður eign fiskverkunarstöðvar Asgeirs hf.
Tilboðum ber að skila til undirritaðra fyrir 10.
nóvember nk. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboðum sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
okkar.
Fyrir hönd Útvegsbanka íslands hf.,
Lögmenn Garðar Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
Haf nargötu 31, Kelfavík,
sími 92-11733.
Hraðfrystihús í Njarðvíkum
Til sölu eru húseignir við Njarðvíkurhöfn,
með vélum og tækjum, áður eign hrað-
frystihúss Sjöstjörnunnar hf.
Tilboðum ber að skila til undirritaðra fyrir 10.
nóvember nk. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboðum sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
okkar.
Fyrir hönd Útvegsbanka íslands hf.,
Lögmenn Garðar Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
Hafnargötu31,Kelfavík, '
sími 92-11733.
YViðtalstími borgarfulltrúa ^
Sjálfstœðisflokksins í Reykjavik 'f
BorgarfulltrúarSjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur f rá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurn-
um og ábendingum.
Allir borgarbúar eru velkomnir.
Laugardaginn 29. október eru til viðtals Katrín Fjeldsted, annar varaforseti borgarstjómar, í borgarráði
og formaður heilbrigðisráðs, Sigurjón Fjeldsted, formaður stjórnar SVR, í stjórn skólamálaráðs og
fræðsluráðs, og Þórunn Gestsdóttir, formaðurjafnróttisnefndar, varaformaður ferðamálanefndar og í
stjóm umhverfismálaráðs.
W W W W W W W W! W V W
js ^ | f ^ ^
t
Sambýlismaður minn,
RAGNAR GISLI KJARTANSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans 25. október.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristín E. Sigurðardóttir.
t
Faðir minn og tengdafaðir,
ÁGÚST INDRIÐASON,
Álfaskeiði 121,
Hafnarflrðl,
er látinn.
Guðbjörg Ágústsdóttir, Ólafur Ingimundarson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MAGNÚSÍNA JÓNSDÓTTIR,
Njálsgötu 54,
lést í Landakotsspítala 26. október.
Sigurður Runólfsson, Fjóla Ágústsdóttir,
Runólfur Runólfsson, Margrét Jóna Finnbogadóttir,
Vilborg Runólfsdóttir, Guðmundur H. Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR G. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavfk,
áður til heimilis á Óldugötu 2,
Hafnarflrði,
andaðist 22. október.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju, Reykjavík, föstudaginn 28.
október kl. 13.30. Jarðsett verður f Hafnarfjarðarkirkjugaröi.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA LAUFEY HANNESDÓTTIR,
Brekkukotl,
Reykholtsdal,
lést á heimili sínu 22. október. Jarðarförin fer fram frá Reykholts-
kirkju laugardaginn 29. október kl. 14.00.
Guðmundur Guðjónsson,
Ólöf Guðmundsdóttir, Þorvaldur Jónsson,
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttír, SiguröurÁrni Magnússon,
Guöjón Guðmundsson, Hulda Laxdal Hauksdóttir,
og barnabörn.
t
Þann 25. október sl. lóst í sjúkrahúsi Keflavíkur okkar hjartkæri
eiginmaöur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR ÁGÚSTSSON
smiður,
Framnesvegi 16,
Keflavfk.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Elrfka Haraldsdóttir,
Aldfs Haraldsdóttir,
Sólveig Haraldsdóttlr,
Haraldur L. Haraldsson,
Ágúst Lfndal Haraldsson,
Hreinn Lfndal Haraldsson,
Sveinbjörg Haraldsdóttir,
Fjóla Eirfksdóttir,
Steinþór Eyþórsson,
Sigurður Guðnason,
Arnbjörn Óskarsson,
Ólöf Thorlacius,
Edda Olgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Móðursystir okkar,
SIGURVEIG GUÐBJARTSDÓTTIR,
Sólvangi,
áöurtil heimilisf Köldukinn 17,
Hafnarfirði,
sem andaðist 22. október sl., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 28. október kl. 15.00.
Guðrfður Guðmundsdóttlr, Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Sólveig Guðmundsdóttir, Guðmundur S. Guðmundsson
og fjölskyldur.