Morgunblaðið - 27.10.1988, Síða 43

Morgunblaðið - 27.10.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988 43 efni. Til hans var alltaf hægt að leita. Oft rak mig í rogastans yfír því, hversu hugmyndaríkur hann var og vel heima í öllu. Var þá sama hvort um var að ræða heims- bókmenntir eða það nýjasta á sviði læknavísindanna. Hann kom manni sífellt að óvörum. Það er alveg sérstakur kafli útaf fyrir sig, hversu vel hann tók veik- indum sínum undanfarin ár. Mig undraði oft stórum hversu óhemju- mikinn viljastyrk og atorku hann hafði þrátt fyrir allt. Hann afí minn lét fátt aftra sér og lagði út í flesta hluti. Ógleymanlegt verður það mér alltaf, þegar við vorum saman eitt sinn. Hann vildi endilega fara niður á „Hressó", sinn gamla kaffistað, þar sem hann hitti kunningjana iðu- lega forðum daga. Erindi hans þangað nú, var að kaupa alveg sér- staka tjómaköku handa ömmu Grétu, sem var náttúrlega alveg bannvara fyrir hana. Ég ók auðvitað inn í göngugöt- una, Austurstræti, svo hann þyrfti sem minnst að ganga. Afí fékk konunglegar móttökur á „Hressó", þar sem afgreiðslustúlkumar þekktu hann flestar. Á leið út fór nærri því illa, afí gat allt í einu varla hreyft sig. En þetta sýnir betur en flest annað, hversu mikill hugurinn var og þegar vel gekk, fannst honum hann geta gert alla hluti. „Afí Óli“ var heimsmaður í þess orðs fyllstu merkingu. Ég hefí alltaf verið stoltur af honum. Elsku ömmu minni, Grétu, sendum við Rannsý okkar innilegustu samúðarkveðj ur. Hugur okkar er hjá ykkur öllum á þessari sorgarstundu. Sigurður Kveðja frá nemanda Við frétt um lát Ólafs H. Einars- sonar kennara fylltist hugur minn góðum minningum um hann og þakklæti, fyrir að hann kenndi mér er ég var í gagnfræðaskóla. Ólafur var minn uppáhaldskenn- ari, og bar ég mikla virðingu fyrir honum og í þeim fögum er hann kenndi mér stóð ég mig bezt, því honum vildi ég ekki bregðast, jafn- IMOKIA jyx A1IKLIG4RDUR MARKAÐUR VID SUND (§) TÚLVUSKEYTING MEÐ CROSFIELD ■ MYNDAMÓT HF vel í mannkynssögu. í enskutíma hjá honum er kom að orðinu Gentle- man = Heldri maður, góður dreng- ur, stóð í orðasafni í ensku kennslu- bókinni, fannst mér það eiga við Ólaf Einarsson, kennarann okkar. Því hann var glæsilegur, hafði sér- staklega fágaða framkomu og var svo indæll. Skil ég enn betur í dag þvílíkt lán það er nemendum að hafa jafn góðan kennara sem Ólafur var. Eiginkonunni, Grétu Sigurborgu, dætrunum Elínu og Eddu og fjöl- skyldunni allri samhryggist ég inni- lega. Svava Siguijónsdóttir Ólafur Hafsteinn Einarsson kennari lést 16. október sl. Þannig fregnir berast okkur dag hvem, þó nöfn séu breytileg. Og þeir, sem eru á mínu aldursskeiði, eiga alloft samferðamenn sína í þeim hópi, sem hverfur af sviði. Og minningar eru margbreytilegar. Það vildi svo til að ég var fyrir skömmu uppi á Reykjalundi. Það var nokkuð um liðið síðan ég var þar síðast á ferð. Og þegar ég sá hve skógræktin hefur tekið vel við sér varð mér að orði: „Þegar ég sé þennan fallega gróður hér dettur mér alltaf fyrst í hug Ólafur Einars- son kennari, og hans ötula starf við gróðursetninguna. “ Við Ólafur urðum tímakom samtíða á Reykjalundi og var ástæðan sú, að bæði höfðum við komist í kynni við berklana. Ég var þar aðeins sumargestur, en Ólafur gerðist þar upp frá góður liðsmað- ur, bæði sem kennari og ræktunar- maður. Hann stóð m.a. fyrir iðn- skóla og annarri framhaldsfræðslu. Og þegar ungir Reykvíkingar í Vinnuskóla Reykjavíkur voru sendir til Reykjalundar til að leggja drög að nýjum skógi, var Ólafur vinsæll og vellátinn leiðbeinandi og muna nemendur hann enn. Var það sér- stakt lán fyrir starfsemi Reykja- lundar að jafn hæfur maður sem Ólafur skyldi helga svo mikið af hæfni sinni og kröftum starfínu þar. Ólafur var orðinn heilsubilaður hin síðari ár og hafði fengið inni í Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Vinir og ættingjar gerðu sér vonir um að hann gæti átt þar góða dvöl. En sú dvöl- varð skammvinn. Ólafur lokaði augum sínum án þjáninga í síðasta sinn þann 16. október sl. Grétu, eftirlifandi ekkju Ólafs, og skeleggum dætrum og öðrum í fjölskyldunni sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Valborg Bentsdóttir Konur sem reka lítil fyrirtæki eða hyggjast stofna fyrirtæki: Námskeiðið Stofnun og rekstur fyrir- tækja verður haldið 30.okt.-5. nóv. Meðal efnis: frumkvöðullinn, stofnáætlun, markaðsmál, fjármál, form fyrirtækja og réiknisskil. Námskeiðið fer f ram í kennslusal Iðntæknistof nunar í Keldnaholi. Þátttaka tilkynnist í síma 687000. nlÐNT/EKNISTOFNUN ÍSLANDS rekstrartæknisvið. Nokkur dæmi um hvemig VIB gætir hagsmuna viðskiptavina sinna: Verdbólga: Hjá VIB helst sparifé alltafverðtryggt með 7-12% ávöxtun umfram verðbólgu. Ahœtta: Hæstu ávöxtun fylgir alltafeinhver áhætta. VIB selur aðeins örugg verð- bréf með góðri ávöxtun. Skattlagiiing: Hlutabréf og skuldabréf geta verið eignarskattsfrjáls. Starfsfólk VIB bendir viðskiptavinum sínum á góöar leiðir í skatta- málum. Upplýsingar: Viðskipta- vinirVIB fá 8 síðna frétta- bréf mánaðarlega og eig- endur „Verðbréfareikninga VIB" fá sentyfirlit 7 sinnum á ári. LEYFUM SPARIFÉNU AÐ VAXA! VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF. Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími68 15 30 Eigi sparifé dd bera ríkulegan ávöxl verðurad hlúa að því eins og trjágródrinum í okkar uppblásna landi. VIB frá upphafi leitast viö að gerajarðveginn fyrir sparifé landsmanna sem frjósamastan. Fjölbreytt þjónusta VIB býður viðskiptavinum sínum marga góða kosti í verðbréfaviðskiptum. Sem dæmi má nefna „Söfnunar- reikning" fyrir þá sem eru að safna fyrir útborgun í bíl eða íbúð, eða „Eftirlaunareikn- ing" fyrir þá sem leggja fyrir reglulega í sjóð til eftirlauna- áranna. „Verðbréfareikn- ingur VIB" er alhliða reikn- ingur fyrir þá sem vilja ávaxta sparifé í verðbréfum á hag- kvæman og öruggan hátt. Viðskiptavinir VIB ákveða sjálfir ásamt ráðgjöfum sínum hvaðareikningureða verðbréf henta þeim best. Ráðgjafar VIB hafa nýjar upplýsingar um verðbréf, vexti, vísitölur og skattamál á reiðum höndum. Fastir vextir yfir verðbólgu í 3-12 ár eða skemmri tíma Orugg ávöxtun umfram verðbólgu kemur sér best þegar til lengri tíma er litið. Bankabréf, spariskírteini ríkissjóðs, skuldabréf Glitnis hf. og opinberra fjárfesting- arlánasjóða eru meö vöxtum til margra ára sem ekki breytast fyrir gjalddaga bréfanna. Þannig er unnt að tryggja fasta 8-10% vexti ylir verðbólgu í 3-12 ár eða skemmri tíma. Þetta er staðreynd sem vert er að hafa í huga nú jiegar vextir í'ara lækkandi. Meiri upplýsingar? Komið í heimsókn og taliö við okkur um hvernig hlúa megi að sparifénu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.