Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
Fjármálaráðherra
kannar áfengískaup
forseta Hæstaréttar
Hefttr sem handhafí forsetavalds keypt
1.440 flöskur af sterku áfengi á árinu.
Fjármálaráðherra, Ólafiir Ragnar Grímsson, hefur ákveðið að
rannsókn fari fram á áfengiskaupum forseta Hæstaréttar flögur
ár aftur í tímann. Magnús Thoroddsen forseti Hæstaréttar hefiir
sem handhafi forsetavalds keypt 1.440 flöskur af sterku áfengi það
sem af er árinu. Áfengið fékk hann á kostnaðarverði eða krónur
160 fyrir flöskuna. Samtals eru þetta 120 kassar af áfengi sem
Magnús greiddi 230.000 krónur fyrir. Út úr búð kostar þetta áfengi
hinsvegar rúmlega 2 milljónir króna. Um er að ræða rúmlega 1.000
flöskur af vodka og um 400 viskíflöskur.
á áfengi á kostnaðarverði eru erlend
sendiráð, ráðuneyti sem stofnanir,
Alþingi sem stofnun, embætti for-
seta Islands og handhafar forseta-
valds í fjarveru forseta."
Ólafur Ragnar sagði, að málið
hefði hann fengið til meðferðar í
gær frá forseta sameinaðs þings,
Guðrúnu Helgadóttur, en Ríkisend-
urskoðun hefði haft samband við
Guðrúnu og gert athugasemd við
þessi áfengiskaup Magnúsar. Hún
hafði svo aftur sgmband við Ólaf
Ragnar, þar sem ÁTVR heyrir und-
ir hans embætti. Ólafur sagðist
hafa óskað eftir ítarlegri skýrslu
frá Höskuldi Jónssyni, forstjóra
áfengisverzlunarinnar, um áfengis-
kaup handhafa forsetavalds fjögur
ár aftur í tímann.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af Magnúsi Thoroddsen í gær-
kvöldi, en í fréttum ríkisútvarpsins
var eftir honum haft að þetta væri
hans réttur og hans einkamál.
„Samkvæmt reglum sem settar
voru fyrir 20 árum er handhafa
forsetavalds heimilt að kaupa
áfengi á kostnaðarverði þegar hann
er í embætti _sem slíkur, það er
þegar forseti íslands er erlendis,“
segir Ólafur Ragnar Grímsson.
„Reglumar voru settar svo nokkrir
aðilar gætu sinnt gestgjafaskyldum
sínum. Þeir sem leyfi hafa til kaupa
Lánasjóður
námsmanna:
Samið við
Landsbank-
ann um inn-
heimtur
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Grindavík:
Börn fínna skot
á víð og dreif
Grindavfk.
ÞRÍR ungir piltar komu á miðvikudag til lögreglunnar í Grindavík
með nokkur ósprungin skothylki auk tómra vélbyssuskothylkja.
Þeir kváðust hafa fimdið hylkin meðfram girðingu varnarliðs-
stöðvarinnar við Grindavík og hefðu ftindið miklu fleiri sem þeir
geymdu heima hjá sér. Skotin lágu á víð og dreif um móana á
stóru svæði og töldu piltarnir að þau væru fleiri.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar
aðalvarðstjóra lögreglunnar i
Grindavík má telja víst að þessi
skot og tómu skothylki séu eftir
vamarliðsmennina sem vom á
næturæfingum fyrir skömmu við
Grindavík.
„Ég mun láta kanna hvort
þama fínnist fleiri skot sem böm
geta fundið og farið sér að voða
við,“ sagði Sigurður og bætti við
að ef ástæða þætti til yrði farið
fram á það við vamarliðið að það
sæi um að svæðið yrði hreinsað.
Kr.Ben.
Sigurður Ágústsson með nokk-
ur skothylki sem piltarnir
fundu.
ASÍ varar við
Miklar breytingar á sambandsstjórn
í ÁLYKTUN á 36. þingi ASÍ, sem samþykkt var í gær, er varað
alvarlega við hugmyndum um hin svokölluðu húsbréf, miðað við þær
aðstæður sem ríkja á Qármagnsmarkaðnum í dag. Tillaga kjörnefiid-
ar um fulltrúa í sambandsstjóm, sem fer með æðsta vald ASÍ á
milli þinga, var samþykkt óbreytt og em 10 af 18 aðalmönnum þar
nýir.
húsbréfunum
GREIÐENDUR námslána munu
fi’a næsta hausti fá heimsenda
greiðsluseðla frá Reiknistofu
bankanna og geta þeir þá innt
greiðslur af hendi í öllum af-
greiðslum banka og sparisjóða.
Þetta felst í samkomulagi sem
Landsbanki íslands og Lánasjóð-
ur íslenskra námsmanna hafa
gert með sér og undirritað verð-
ur í dag. Það mun taka gildi í
áföngum frá ágúst-nóvember á
næsta ári.
Að sögn Sigurbjöms Magnússon-
ar, formanns stjómar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, mun sam-
komulagið hafa í för með sér tals-
verða hagræðingu fyrir rekstur
sjóðsins og það sem innheimtu lána
viðkemur.
Sigurbjörn sagði að sjóðsstjómin
vonaði að gagnvart viðskiptamönn-
um mundi hið nýja fyrirkomulag
sníða ýmsar brotalamir af þjónustu
lánasjóðsins. 10 þúsund einstakl-
ingar greiða af lánum til sjóðsins
og sagði Sigurbjöm að þeim fjölg-
aði um 1.500 á hveiju ári.
Þingfulltrúar sem til máls tóku
um tillögu húsnæðismálanefndar
létu í ljós ótta um að húsbréf myndu
ganga kaupum og sölum á „gráa
markaðnum“. Hrafnkell A. Jónsson
sagðist ekki vilja útiloka að húsbréf
gætu verið hentugur kostur ef
strangar reglur yrðu settar um
starfsemi „gráa markaðarins", en
hann féll frá tillögu um að fella
ákvæðið um húsbréfín niður. í
ályktuninni um húsnæðismál er
þess krafíst að fjármagn til félags-
íbúðakerfísins verði aukið vemlega
og að framlag ríkissjóðs til bygging-
arsjóðs ríkisins haldist að raunvirði
miðað við það sem var 1987.
Á þinginu í gær var kosið í stjórn
Menningar- og fræðslusambands
Alþýðu, auk sambandsstjómar, og
samþykktar vom ályktanir um
lífeyrismál, skipulagsmál, fræðslu-
mál og friðar- og mannréttindamál.
Nokkrar umræður urðu um málefni
Miðausturlanda undir síðasttalda
liðnum og var samþykkt ályktun
þar sem skorað er á ríkisstjómina
að viðurkenna hið nýstofnaða ríki
Palestínumanna.
í dag er síðasti dagur þingsins,
sem haldið er í íþróttahúsinu í
Digranesi í Kópavogi, og er helsti
dagskrárliðurinn kjara-, atvinnu-
Rannsóknarlögreglan hefur
nú upplýst íkveikju sem framin
var í Fossvogsskóla um síðustu
helgi. Einnig eru átta innbrot,
sem framin hafa verið að degi
til í hús í Fossvogi, talin upplýst
að mestu.
4 piltar, 13 og 14 ára, hafa játað
og efnahagsmál. Stefnt er að þing-
slitum klukkan 16.00.
Sjá ályktanir og kosningaúrslit
á bls. 27
á sig íkveikjuna, sem olli miklum
skemmdum á tónmenntakennslu-
stofu skólans.
Talið er að 10-14 piltar á aldrin-
um 12-15 ára hafi komið við sögu
í innbrotunum. Enginn þeirra hefur
áður komið við sögu lögreglunnar.
Fossvogur:
Bruni í skóla o g inn-
brot að degi til upplýst
Fylgi Framsóknarflokks
mest meðal 18-24 ára
FÓLK á aldrinum 18-24 ára er fjölmennast í hópi fylgismanna Fram-
sóknarflokksins, samkvæmt niðurstöðum þjóðmálakönnunar, sem
FélagsvísindastofnUn gerði fyrir Morgunblaðið. Um 25% kjósenda í
þeim hópi fylgja Framsókn að málum. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur
fylgis 37,5% Reykvíkinga, 30,4% Reyknesinga en 21,1% kjósenda í
öðrum kjördæmum. Þá er aðeins miðað við þá sem afstöðu tóku
með ákveðnum flokkum. í kosningum 1987 hlaut flokkurinn 29,0%
atkvæða í Reylgavík, 28,9% í Reykjanesi en 24,1% í öðrum kjördæm-
um.
Stærsti hópur stuðningsmanna
Kvennalistans er 25-39 ára gamall.
Fjórðungur þess hóps kýs Kvenna-
lista. Um 18% fólks 60-75 ára fylg-
ir Alþýðubandalagi en flokkurinn
nýtur fylgis um eða innan við 10%
úr öðrum aldurshópum. Fylgi Al-
þýðuflokks er 9-11% í öllum aldurs-
hópum, fylgi Sjálfstæðisflokks er
mest meðal 40-59 ára en minnst
meðal 25-39 ára kjósenda.
Framsóknarflokkur nýtur nú
14,6% fylgis í Reykjavík en fékk
9,6% i síðustu kosningum. 21,3%
Reyknesinga fylgja Framsóknar-
flokknum en það gerðu 19,8% í
kosningunum 1987. í öðrum kjör-
dæmum hefur fylgi Framsóknar
aukist úr 28,0% í 33%.
Kvennalisti nýtur nu stuðnings
23,8% Reykvíkinga en 14% þeirra
kusu listann 1987. 9,1% Reyknes-
inga kaus Kvennalistann í síðustu
kosningum en nú sögðust 24,2%
þeirra mundu fylgja listanum að
málum. í öðrum kjördæmum hefur
fylgi listans aukist úr 6,8% í 17,3%.
Aðrir flokkar tapa fylgi í öllum
kjördæmum, miðað við úrslit
síðustu kosninga. Þá naut Alþýðu-
flokkurinn fylgis 16% Reykvíkinga
en nú 9,8%. 18,2% Reyknesinga
kusu Alþýðuflokk 1987, nú hyggj-
ast 10,6% gera það og í öðrum kjör-
dæmum minnkar fylgi flokksins úr
12,6% í 11,3%.
í Reykjavík fellur Alþýðubanda-
lag úr 13,8% í 9,8%, í Reykjanesi
úr 11,7% í 10,1% og í öðrum kjör-
dæmum úr 13,9% í 12,2%.
Stuðningur við þingflokkana í ólíkum aldurshópum.
Alþyðuflokkur Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. Alþyðubandalag Kvennalisti Borgaraflokkur
Á myndinni sést stuðningur við þingflokkana í ólíkum aldurshópum.
3,7% Reykvíkinga fylgja nú
Borgaraflokknum en 15,0% þeirra
kusu hann síðast. í Reykjanesi fell-
ur flokkurinn úr 10,9% í 2,4% fylgi
og í öðrum kjördæmum úr 6,5% í
2,4%.
Sjá nánar um þjóðmálakönnun
á bls. 14