Morgunblaðið - 25.11.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
T
Skiptafímdur vegna gjaklþrots Verslunar Sigurðar Pálmasonar:
Skiptastjóri óskar efitir upp-
boði á slátur- og verslunarhúsi
Stærsta gjaldþrot í Húnavatnssýslu
FYRSTI skiptafiindur vegua gjaldþrots Verslunar Sigurðar
Pálmasonar á Hvammstanga var haldinn í gær á Hvamm-
stanga. Guðmundur Arnaldsson, skiptastjóri, hefur óskað eftir
uppboði á sláturhúsi þrotabúsins og verslunarhúsi þess á Höfða-
braut 6. Þetta er stærsta gjaldþrot sem orðið hefúr í Húnavatns-
sýslu og allmargir aðilar tapa verulegum Qárhæðum vegna
þess, að sögn Guðmundar Arnaldssonar. Samtals voru gerðar
415 kröfúr í buið.
Margir einstaklingar tapa frá
nokkrum tugum þúsunda og upp í
nokkur hundruð þúsund krónur á
gjaldþrotinu og ljóst er að Spari-
sjóður Hvammstanga, Búnaðar-
bankinn á Blönduósi, Olís, Verslun-
arbankinn, Hvammstangahreppur
og Ríkissjóður tapa nokkrum millj-
ónum króna hver.
Samkvæmt framlagðri kröfulýs-
ingaskrá eru lýstar kröfur 166,740
milljónir sem sundurliðast í almenn-
ar kröfur að fjárhæð 96 milljónir
króna, forgangskröfur að fjárhæð
9,3 milljónir króna og utan skulda-
raðar að fjárhæð 61,4 milljónir
króna. Afstaða bústjóra liggur fyrir
og er eftirfarandi: Samþykktar al-
mennar kröfur að fjárhæð 10,5
milljónir króna, samþykktar for-
gangskröfur að fjárhæð 5,2 milljón-
ir og samþykktar kröfur utan
skuldaraðar um 50 milljónir króna.
Kröfum að fjárhæð um 7 milljónir
króna var hafnað.
Samkvæmt greinargerð skipta-
stjóra á fundinum hafa allar sam-
þykktar forgangskröfur verið
greiddar og hann taidi líklegt að
um 5% yrði greitt af almennum
kröfum. Fyrir lágu kauptilboð í
tvær af þremur fasteignum þrota-
búsins, sláturhús á Brekkugötu 4
og gamla verslunarhúsið á Brekku-
götu 2, en vegna afstöðu veðkröfu-
hafa, sem ekki fengu greiðslur
vegna þessara kauptilboða, hefur
skiptastjóri óskað eftir uppboði á
sláturhúsinu og verslunarhúsinu á
Höfðabraut 6. Reikna má með að
3. og síðasta uppboð verði haldið í
seinni hluta mars 1989.
Fyrir skiptafundinum lá kauptil-
boð í gamla verslunarhúsið- á
Brekkugötu 2 upp á 2 milljónir
króna. Akveðið var að auglýsa eign-
ina og í framhaldi af því að semja
við tilboðsgjafa ef hærra tilboð
fengist ekki.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
/' DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 25. NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Skammt norfiaustur af Nýfundnalandi er víðáttu-
mikil og hægfara 960 mb lægð, en 1020 mb hæö yfir Norður-
Graenlandi þokast suðaustur. Yfir Bretlandseyjum er 1033 mb
hæð. í kvöld og nótt kólnar nokkuð við norðurströndina, en annars
verður sæmilega hlýtt áfram.
SPÁ: Suðvestan gola og súld sunnanlands en hæg breytileg átt
eða austangola og slydda eða rigning norðanlands. Hiti 5—7 stig
sunnanlands en 2—5 stig nyrðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Sunnan- og suðaustan
átt og sæmilega hlýtt víðast hvar á landinu. Súld eða rigning á
Suöur- og Vesturlandi, en þurrt á Norður- og Austurlandi.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
H, Alskýjað
/, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V H
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J* Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að isl. tíma
hlti veður
Akureyri 8 skýjaS
Reykjavík 8 þokumóða
Bergen 8 rigning og súid
Helsinki 4 léttskýjaS
Kaupmannah. 8 alskýjað
Narssarssuaq 13 skýjað
Nuuk 1 alskýjað
Osló 2 skýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 1B alskýjað
Amsterdam 8 skúr
Barcelona 10 heiðskírt
Chicago 2 skýjað
Feneyjar 3 heiðskírt
Frankfurt 1 súld
Glasgow 7 þoka
Hamborg 8 skýjað
Las Palmas 23 skýjað
London 4 þokumóða
Los Angeles 12 alskýjað
Luxemborg 3 þoka
Madnd 7 heiðskírt
Malaga 14 alskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Montreal +3.8 skýjað
New York 2 léttskýjað
París 8 þokumóða
Róm vantar
San Diego 13 hálfskýjað
Winnipeg 0 alskýjað
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Annað af duflunum á flugvellinum við Blönduós.
Tvö rússnesk hlustunar-
dufl sótt norður á land
MENN firá Landhelgisgæslunni og Varnarliðinu sóttu í fyrra-
dag tvö rússnesk hlustunardufl, annað á Þingeyrarsand við
Hóp í Húnavatnssýslum, en hitt hafði rekið á land í Keldu-
hverfi í Oxarfirði.
Ingvar Kristjánsson flugmaður
hjá Landhelgisgæzlunni segir að
dufl þessi séu af hefðbundinni
gerð en töluverður fjöldi þeirra
hefur fundist við strendur landsins
á undanfömum ámm. Þyrla frá
Varnarliðinu flutti duflið á Þing-
eyrarsandi upp á flugvöllinn við
Blönduós þar sem það var sett
upp á vörubíl og flutt suður á
Keflavíkurflugvöll. Duflið í Keldu-
hverfí var flutt beint til Keflavíkur
með öðrum vörubíl. Frá Keflavík-
urvelli verða duflin flutt vestur til
Bandaríkjanna til nánari skoðun-
ar.
Listasafin íslands:
Sýningu Kristínar Jóns-
dóttur lýkur um helgina
LISTASAFN íslands hefúr und-
anfarinn mánuð minnst hundrað
ára fæðingarafmælis Kristínar
Jónsdóttur listmálara með þema-
sýningu á blómamyndum og upp-
stillingum.
Kristín Jónsdóttir fæddist á Am-
amesi við Eyjafjörð árið 1888 og
nam við Listaháskólann í Kaup-
mannahöfn 1911—1916. Hún varð
ásamt Júlíönu Sveinsdóttur fyrst
íslenskra kvenna til að gera mynd-
listina að ævistarfi. Kristín lést í
Reykjavík árið 1959.
A sýningunni eru 25 verk og
spanna þau fjóra áratugi af list-
ferli Kristínar. Gefur sýningin góða
mynd af þróun listar hennar og
breytingum sem á henni verða.
Sýningin hefur verið vel sótt og
mun eflaust styrkja stöðu Kristínar
sem helsta blómamálara íslendinga.
Ein af blómamyndum Kristínar
Jónsdóttur á sýningunni í Lista-
safiii íslands.
Listasafn íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 11—17.
Sunnudaginn 27. nó.vember fer
fram leiðsögn um sýninguna í fylgd
sérfræðings og hefst hún kl. 15.00.
(Frcttatilkynning)
Hafsbeinn Baldvinsson
lögfræðingur látinn
HAFSTEINN Baldvinsson, lög-
fræðingur, lést á Landspitalan-
um síðastliðið miðvikudagskvöld.
Hafsteinn hafði ekki gengið heill
til skógar síðastliðið ár. Hann
lætur eftir sig eiginkonu, Sigríði
Ásgeirsdóttur, og tvö börn, Bald-
vin og Elínu Jóhönnu Guðrúnu.
Hafsteinn fæddist 24. apríl 1927
í Reykjavík. Foreldrar hans voru
Baldvin Halldórsson skipstjóri 1
Hafnarfirði og kona hans Helga
Jónsdóttir. Hafsteinn var formaður
Orators, félags laganema, 1951 til
’52. Hann var ráðinn erindreki hjá
Landssambandi íslenskra útvegs-
manna í október 1953 og skrifstofu-
stjóri þar í janúar 1960. Hafsteinn
var bæjarstjóri í Hafnarfirði 1962
til ’66 og í stjóm Sambands
íslenskra sveitarfélaga 1963 til ’67.
Hafsteinn varð stjómaformaður
Álafoss 1968 og stjómarmaður í
Breiðholti hf. 1970. Hann var skip-
aður dómari í Félagsdómi 1. októ-
ber 1974. Hafsteinn varð fram-
kvæmdastjóri Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda l.janúar 1971.
Hann rak málflutningsskrifstofu í
Reykjavík frá árinu 1966.