Morgunblaðið - 25.11.1988, Qupperneq 7
_________________MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988 __7
Tillaga um umhverfísmáladeild í félagsmálaráðuneyti:
Heppilegra að stofiia sjálf-
stætt umhverfisráðuneyti
- segir Steingrímur Sigfósson landbúnaðarráðherra
STEINGRÍMUR Sigfusson land-
búnaðarráðherra segist telja það
heppilegra að strax verði stofnað
sérstakt umhverfisráðuneyti,
frekar en að sérstök deild í fé-
lagsmálaráðuneyti fari með um-
hverfismál, eins og Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
hefur lagt til. Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra segist
styðja tillögu forsætisráðherra,
og segir hana geta orðið fyrsta
skrefið í átt til sjálfstæðs um-
hverfisráðuneytis.
Steingrímur Hermannsson lagði
til á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag,
að stofnuð verði umhverfismála-
deild í félagsmálaráðuneyti, sem
hefði vald til að beita ýmsum að-
gerðum til mengunarvarna, og til
vamar ofnýtingu gróðurs eða dýra-
stofna. Þó er gert ráð fyrir að leita
verði áltis fagráðuneyta, áður en
slíkt verði gert.
Steingrímur Sigfússon sagði að
þetta væru út af fyrir sig kunnug-
legar hugmyndir, því menn hefðu
oft áður velt fyrir sér þeirri leið að
sameina mikilvægustu umhverfis-
málaflokkana í skrifstofu hjá einu
ráðuneyti. „Ég er þó þeirrar skoð-
unar,' og það hefur verið stefna
Alþýðubandalagsins, að það væri
langbest að stofna strax sjálfstætt
ráðuneyti, sem kæmi fram sem
sjálfstæður aðili í viðskiptum við
önnur ráðuneyti og útávið. Þetta
gæti verið lítið ráðuneyti, sem yrði
geymt með öðm,“ sagði Steingrím-
ur.
Hann sagði að menn hefðu
áhyggjur af þvi að ef umhverfismál
væm aukabúgrein í stóm ráðu-
neyti, verði ekki gert jafn hátt und-
ir höfði í ymsu tilliti og ef um sjálf-
stætt ráðuneyti væri að ræða. „Þar
sem að þessi mál em að fá vaxandi
mikilvægi hér allt í kringum okkur,
og vonandi hér á landi einnig, þá
held ég að það væri meira í anda
þeirra vakningar, sem er að verða
í uinhverfismálum, að við gerðum
þetta svona í upphafi. A hinum
Norðurlöndunum dregur enginn
lengur réttmæti þess í efa, að hafa
sjálfstætt umhverfisráðuneyti, þótt
hægt sé að deila um útfærslu á
því“ sagði Steingrímur.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði við
Morgunblaðið, að sér litist vel á til-
lögur forsætisráðherra. „Ég tel að
þetta sé mjög til bóta og geti breytt
mjög miklu í umhverfismálum í
heild hér á landi. Ég er hlynnt því
að fella þetta undir félagsmálaráðu-
neytið. Það er margt sem mælir
með því, enda em þar skipulagsmál
og byggingarmál og þar em tengsl-
in við sveitastjórnirnar. Það mætti
svo síðar skoða það, að koma á fót
einu umhverfisráðuneyti, en ég tel
að það ætti að stíga þetta skref
núna,“ sagði Jóhanna.
Steingrímur sagði að mjög mikill
áhugi væri á að koma þessu máli
áfram, og því myndu menn reyna
að komast að niðurstöðu.
iKonatskót
sfiBF?
AðetnspekWoQO1
pðvötumei
tíiUHiiiiiiimiiUiiUiiiUiikHuiiiUiiHiiHtuuiiiikmkuniiiiiiiiiiiiitnnnkiimiihHi
tililiilÍMiUUIIiiilUiHliUilIIlillitUiliIIIiIillilll