Morgunblaðið - 25.11.1988, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
1-
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofiiunar fyrir Morgunblaðið:
Sjálfstæðisflokkur
stærstur, Framsókn-
arflokkur sækir á
Fleiri stuðningsmenn Kvennalista með ríkisstjórn en á móti
40-
30-
20
10-1
0
Karlar
Konur
Alþýðufl. Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. Alþýðubandalag Kvenna-
listi Borgarafi.
* Stuðningur við flokka eftir kynjum
Félagsvísindastofiiun Háskóla
íslands gerði þjóðmálakönnun
fyrir Morgunblaðið 9.-14. nóvem-
ber. Hringt var til 1500 manna
á aldrinum 18-75 ára, af öllu
landinu. Alls fengust svör firá
1097, 73,1% en nettósvörun er
77,4%, Fullnægjandi samræmi er
milli skiptingar úrtaksins og
þjóðarinnar eftir aldri, kyni og
búsetu. Eftirtalin fimm atriði
voru könnuð: fylgi flokka á
landinu öllu; flæði milli flokka
síðan í alþingiskosningum í apríl
1987; ánægja með eigin flokk -
óánægja með aðra; stuðningur
við ríkisstjórnina og stuðningur
við flokka eftir kynjum.
Fylgi flokka
Fyrst var spurt: Ef alþingis-
kosningar væru haldnar á morg-
un, hvaða flokk eða lista held-
urðu að þú myndir kjósa?
Þeir sem svöruðu „veit ekki“,
voru spurðir áfram: En hvaða
flokk eða lista heldurðu að sé
llklegast að þú myndir kjósa?
17,6% sögðu veit ekki við fyrstu
tveimur spumingunum. Þeir voru
þá spurðir: En hvort heldurðu að
sé líklegra að þú kjósir Sjálfstæð-
isflokkinn eða einhvem annan
flokk eða lista?
Þá féll hlutfall óráðinna niður í
5,7%. *Þeim sem svöruðu þriðju
spumingunni þannig, að líklega
mundu þeir kjósa annan flokk en
Sjálfstæðisflokkinn, var skipt á
milli þeirra flokka í sömu innbyrðis
hlutföllum og fengust við fyrri
tveimur spumingunum.
Flæði milli flokka
Spurt var hvað menn hefðu
kosið í alþingiskosningunum
1987. Tafla 2 sýnir hvað kjósendur
þingflokkanna myndu gera ef kosið
yrði á morgun. Svör um hvað menn
Tafla 1
Hvað myndu menn kjósa f alþingiskosningum nú
Fjöldi " Allir Rjósa Júnf Kosningar
flokk 1988 1987
% % %
Alþýðuflokkur 92 8,4 10,5 12,0 15,2
FYamsóknarflokkur 204 18,6 23,3 19,1 18,9
Sjálfstæðisflokkur 269 23,6 29,6 28,3 27,2
Alþýðubandalag 93 8,5 10,6 7,1 13,4
Kvennalisti 186 17,0 21,3 28,4 10,1
Borgaraflokkur 26 2,4 3,0 3,4 10,9
Bandalagjafnaðarmanna 1 0,1 0,1 0,1 0,2
Samt.jafnr. ogfél.hyggju 1 0,1 0,1 0,1 1,2
Flokkur mannsins 6 0,5 0,7 0,6 1,6
Þjóðarflokkur 6 0,5 0,7 1,0 1,3
Launþegaflokkur 1 0,1 0,1 — —
Myndi ekki kjósa 65 5,9
Skila auðu/ógildu 46 4,2
Neitar að svara 48 4,4
Veit ekki 63 5,7
Samtals 1097 100 100 100 100
Tafla 3
Anægja með eigin flokk — óánægja með hina
Ánægja Óánægja Bæði Alls Fjöldi
meðeigin meðaðra
flokk
Kjósa nú Alþýðuflokk 46% ° 32% 23% 100% 73
Framsóknarflokk i 62% 20% 18% 100% 164
Sjálfstæðisflokk 36% 42% 22% 100% 219
Alþýðubandalag 36% 45% 19% 100% • 73
Kvennalista 31% 47% 22% 100% 160
Borgaraflokk 45% 20% 86% 100% 20
Allir svarendur 42% 37% 21% 100% 712
Tafla 2
Flæði milli flokka
Kusu 1987
Kjósa nú: A B D G V S
Alþýðuflokk 39 1 2 3 4 -
Framsóknarflokk 4 70 3 5 5 2
Sjálfstæðisflokk 8 2 66 - 5 19
Alþýðubandalag 2 1 1 60 7 2
Kvennalista 10 5 7 19 54 8
Borgaraflokk - - 0 - - 30
Þjóðarflokk 1 - - - - -
Myndi ekki kjósa 5 2 4 1 4 6
Skila auðu/ógildu 7 2 3 2 3 5
Neitar að svara 3 2 1 2 1 -
Veit ekki 21 16 12 7 17 ' 29
Samtals 101% 100% 100% 100% 100% 99%
Fjöldi 126 179 287 95 105 63
Tafla 4
Stuðningsmenn/andstæðingar ríkisstjóraarinnar
Myndu lgósa
• Allir A 8 D G V S
Stuðningsmaður 40 68 79 9 85 35 20
Bæði og/hvorugt 28 20 13 18 9 39 25
Andstæðingur 31 12 8 74 5 26 55
Samtais 99% 100% 100% 101% 99% 100% 100%
Fjöldi 1014 74 160 221 76 141 20
Kvikmyndaverðlaun
Evrópu veitt á laugardag
Sýnd í beinni útsendingn í ríkissjónvarpinu
Tinna Gunnlaugsdóttir sem ísold S „í skugga hrafnsins" ásamt Agli
Ólafssyni I hlutverki Hjörleifs.
Kvikmyndaverðlaun Evrópu
verða veitt í fyrsta sinn laugar-
daginn 26. nóvember í Theater
des Westens í Berlín. Meðal
þeirra sem tilnefiid eru til verð-
launa eru Tinna Gunnlaugs-
ðóttir og Helgi Skúlason. Sjö
manna dómnefhd velur verð-
launahafa og verður afhending-
arhátíðinni sjónvarpað um alla
Evrópu. Kvikmyndastjörnur
víðs vegar úr Evrópu munu af-
henda verðlaunin og auk þess
verða skemmtiatriði í höndum
frægra listamanna. Útsending á
laugardaginn hefst kl. 19.15.
Franska leikkonan Isabelle Hup-
pert er formaður dómnefndar, en
auk hennar eiga þar sæti ítalski
leikstjórinn Liliana Cavani, sovéski
leikstjórinn og leikarinn Nikita
Miehalkov, breski leikarinn Ben
Kingsley, gríska tónskáldið Mikis
Theodorakis, þýski framleiðandinn
Bemd Eichinger og pólski leik-
stjórinn Krzysztof Zanussi. Dóm-
nefndin kom saman í Berlín 19.
nóvember og mun sitja við út þessa
viku, þar til val hennar verður
gert kunnugt á laugardaginn.
Alls tóku 48 myndir frá 27 lönd-
um þátt í undanúrslitum, en sjö
manna dómnefnd valdi úr þær sem
til verðlaunanna keppa. Valdar
voru sjö myndir sem keppa um titil-
inn „besta myndin" og sjö sem
keppa sem „besta mynd ungs leik-
stjóra".
Þær myndir sem keppa um titil-
inn „besta myndin" eru: „Au Revo-
ir les Enfants" frá Frakklandi, leik-
stjóri Louis Malle; „E1 Bosque
Animado" frá Spáni, leikstjóri José
Luis Cuerda; „Distant Voices, Still
Lives" frá Bretlandi, leikstjóri Ter-
ence Davies; „Der Himmel iiber
Berlin" frá Vestur-Þýskalandi,
leikstjóri Wim Wenders; „Iacob"
frá Rúmeníu, leikstjóri Mircea
Daneliuc; „Krókti Film o Zabija-
niu“ frá Póllandi, leikstjóri Krzys-
ztof Kieslowski; „Pelle Erobreren"
frá Danmörku, leikstjóri Bille Aug-
ust.
Um titilinn „besta mynd ungs
leikstjóra" keppa: „Dni Zatmenija"
frá Sovétríkjunum, leikstjóri Alex-
andr Sokurov; „Domani accadra"
frá ítalfu, leikstjóri Daniele Luc-
hetti; „Karhozat" frá Ungverja-
landi, leikstjóri Béla Tarr; „Mujer-
es al Borde de un Ataque de Nervi-
os“ frá Spáni, leikstjóri Pedro
Almodóvar; „Reefer and the Mod-
el“ frá írlandi, leikstjóri Joe Co-
merford; „Stormy Monday" frá
Bretlandi, leikstjórí Mike Figgis
og „Veiviseren“ frá Noregi, leik-
stjóri Nils Gaup.
Tilnefndir sem bestu leikstjórar
eru: Terence Davies frá Bretlandi
fyrir „Distant Voices, Still Lives“;
Louis Malle frá Frakklandi fyrir
„Au Revoir les Enfants"; Manoel
de Oliveira frá Portugal fyrir „Os
Canibais"; Sergej Paradjanov frá
Sovétríkjunum fyrir „Aschik-
Kerib“ og Wim Wenders frá Vest-
ur Þýskalandi fyrir „Der Himmel
iiber Berlin".
Fyrir besta handrit eru tilnefnd-
ir: Terence Davies frá Bretlandi
fyrir „Distant Voices, Still Lives";
Wolfgang Held frá Austur-Þýska-
landi fyrir „Einer Trage des Ander-
en Last“; Daniele Luchetti, Franco
Bervini og Angelo Pasquini frá íta-
lfu fyrir „Domani accadra"; Louis
Malle frá Frakklandi fyrir „Au
Revoir des Enfants" og Manoel de
Oliveira frá Portúgal fyrir „Os
Canibais".
Um titilinn „besti leikari“ keppa:
Klaus Maria Brandauer frá Ung-
verjalandi fyrir „Hanussen"; Al-
ÁRNAÐ HEILLA
PA ára afinæli. í dag, 25.
0\/ nóvember, er sextug
frú Elínborg Óladóttir,
Sigtúni 59 hér f bænum. Hún
og eiginmaður hennar, Her-
mann Sigurðsson, fulltrúi,
taka á móti gestum f Kiwanis-
húsinu, Brautarholti 30, f
dag, afmælisdaginn, kl.
17-20.
f*f\ ára aftnæli. í dag er
Ol/ sextugur Björa Jó-
hannesson, fyrrum bóndi
að Laugarvöllum, Reyk-
holtsdal, nú starfsmaður
OLÍS á Akranesi. Hann og
kona hans, Guðrún Gísladótt-
ir, ætla að taka á móti gestum
á heimili sínu þar í bænum,
Esjuvöllum 13, eftir kl. 19 í
kvöld, afmælisdaginn.