Morgunblaðið - 25.11.1988, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
Ljóðaval handa 4. til
6. bekk grunnskóla
Békmenntir
Jenna Jensdóttir
Ljóðspor
Valið hafa: Kolbrún Sigurðardótt-
ir, Sverrir Guðjónsson og Þórdís
S. Mósesdóttir.
Kápumynd Jóhannes S. Kjarval,
myndverk ýmsir myndlistarmenn.
Námsgagnastofiiun 1988.
Út er komið hjá Námsgagnastofn-
un safn ljóða ætlað til kennslu í 4.-6.
bekk grunnskóla.
í kynningu aftan á kápu segir: „í
bókinni eru flest ljóðin eftir ljóðskáld
nítjándu og tuttugustu aldar og er
hlutur ungra skálda veigamikill í
safninu."
í upphafi bókar er orðsending til
kennara frá þeim er völdu ljóðin í
bókina. Þar segir svo: „Við efiiisval
þessarar bókar var það haft að
leiðarljósi að ljóðin höfði til og
glæði áhuga nemenda i 4.-6. bekk
grunnskóla." Hér tek ég sýnishom
sem velq'a hjá mér efa:
ávaxtamarkaður í tókýó/
draumsendur japanpappír
tileinkað brautigan
um ba
na
na
na
tvo & tvo
saman er vafíð rauðu límbandi að
vega upp á móti gula litnum
Gyrðir Elíasson
til íslands
Sólin skín
oní maga
eða
í verbúð vestur
á fjörðum
út um hvippinn
og hvappinn
til pg frá
Hugþekkur leikur
En
2 1 femumar
voru líka súrar
Ásgeir Lámsson
Ljóðunum er skipt í flokka eftir
því hvað veljendur lesa út úr inni-
haldi þeirra. Verkefni og útskýringar
til nemenda eru fyrir hvem ljóða-
flokk. Flest em þau í fyrirskipana-
formi. Lærðu, lestu, finndu o.s.frv.
Hvemig eiga nemendur að átta sig
hér? M.a. má lesa þar í verkefni:
„Reyndu að gera þér grein fyrir
því hvað vakir fyrir skáldinu,
hvemig brögðum það beitir við
að tala til þín og koma hugsun
sinni til skila.“
Á öldum ljósvakans
- brot -
Gunnar Runólfur
Yfírskrift er jafnan yfir hverjum
ljóðaflokki. Sem dæmi: „Til lands-
ins“, „Leikur að orðum“, „Þess
konar ást“, „Annars konar ást“.
Hér birtist ljóð úr „Þess konar
ást“. „Orðið ást merkir kærleik-
ur.“
Geggjaður ástaróður
til Stínu frá töffaranum á 18555
tennur þínar einsog röð hvítra fólksvagna
hörund þitt einsog eftir hvítan stormsveip
augu þín tær einsog lakk á nýbónuðu
tryliitæki
Stök teppi í austurlenskum mynstrum í úrvali sem aldrei
fyrr. Stök teppi úr gerviefni og ull, allir gæða- og verðflokk-
ar. Stærðir minnst 60x120 cm, stærst 240x340 cm og
úrval þar á milli. Sérpöntum einnig eftir ósk kaupanda
stærðir og mynstur. Sígild teppi sem standast tímans
tönn og tískustrauma.
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ.
Teppaland
Grensásvegi 13,105 Rvík, símar 83577 og 83430
GAMLAR
. HjEFÐIR
IHAVEGUM
CL
Ql
LU
fætur þínir smart hannaðir
bijóst þín einsog is í brauði
ást mín heit einsog nýsteiktur hamborgari
kossar þínir sætari en kók
skaut þitt einsog sæti í Citroen Delux
ég gef skit í allt fyrir ástina
tryllitækið steríógræjumar bíómiðann
síðustu rettuna
kvar retta án elspítu
tryllitæki án þín
ef þú heyrir geggjaðan ástaróð minn
í lögum unga fólksins
mundi ég fíla það í botn
að þú slæðir á þráðinn beibí
Bitgir Svan Símonarson
Er ég bað tólf ára nemanda (sem
ekki hafði séð bókina áður) að velja
fegursta ástarljóðið, valdi hann:
Ljóðið
Fólk,
staðir og stundir
hafa gert mér orð
í Ijóð og sögur
en þú
gafst mér ævintýrið
orðlaust
og ljóðið sem lifír
aðeins í einu bijósti.
Olga Guðrún Ámadóttir
Samt er þetta fallega ljóð ekki
flokkað með ástarljóðum.
A einni blaðsíðu í bókinni eru brot
úr ljóðum og meðal annars má lesa
þetta í verkefnaskipunum: „Lestu
þessi brot yfir og gerðu grein
fyrir þeirri lífsspeki sem í þeim
felst." Birti hér tvö brot og læt les-
endum eftir í hvoru þeirra felst
lífsspeki.
Sá maður sem aldrei kennir sorgar í hjarta
sínu
getur ekki glaðst
því hann þekkir ekki sorgina.
Þórunn Mapea
ég held að umferðarljósin
séu skotin í mér
Ólafur Haukur Símonarson
Það hefur jafnan verið einkenni
„skólaljóða" fýTÍr barnaskóla að mjög
hefur verið vandað til vals á ljóðum
og aðeins tekin ljóð eftir þá höfunda
er áttu góðan skáldferil að baki, eða
höfðu vakið sérstaka athygli með
útkomnum ljóðabókum, en voru líka
þekktir á öðrum vettvangi ritlistar.
Því höfðu þessi ljóðasöfn mikið gildi.
Þó var sá ljóður á að skáldskapur
samtíma- og ungra skálda átti ekki
aðgang í slíkt úrval. Þetta hefur nú
breyst og rík ástæða er til að fagna
því sérstaklega. En hér finnst mér
alls ekki vandað til vals á ljóðum
margra ungu skáldanna. Þar sem ég
hafði um langt árabil sér leyfi yfir-
stjómar menntamála til þess að hafa
fijálst val í meðferð ljóða (og smá-
sagna) í efstu bekkjum gmnnskóla,
tel ég mig þekkja talsvert til ljóða
þeirra. Því veit ég að mörg þeirra
eiga betri og aðgengilegri ljóð fyrir
böm en hér birtast einmitt um sömu
viðfangsefni. Og hvers eiga ung
skáld eins og Anton Helgi, Þorri
Jóhannsson, Vilmundur Gylfason og
fleiri skáld að gjalda? Því ljóst er að
í ljóðabókum þeirra em áhrifamikil
ljóð sem fjalla um áðumefnd við-
fangsefni.
Þá komum við að þekktustu
samtímaskáldum okkar, sem eiga
ljóð í Ljóðspomm. Ég veit að til nokk-
urra þeirra var leitað eftir leyfi til
þess að birta ljóð sem þeir áttu í
öðmm ljóðasöfnum eða tímaritum.
Þessum ljóðum var síðan skipað nið-
ur, ljóðum sem em langt frá því að
vera það besta er skáldin hafa ort
um viðkomandi efni — og auk þess
umdeilanlegt hvort efnið sé í sam-
ræmi við niðurskipan. Eftir sem áður
em bestu ljóð þeirra í ljóðabókum
þeirra, sem í þessum tilfellum em
margar. Og hví em ekki valin ljóð
eftir þijú af vönduðustu nútíma-
skáldum okkar, Steinunni Sigurðar-
dóttur, Kristján Karlsson og Þóm
Jónsdóttur? I öllu þessu felst lítils-
virðing á skáldskap. Ljóð eftir elstu
skáldin okkar svo og þjóðkvæði og
alþýðukveðskapur er allt margkunn-
ugt úr fyrri skólaljóðum og víðar og
ætti að nýta það á þeim vettvangi.
Hvemig væri að gefa aftur út hin
ágætu skólaljóð er Kristján J. Gunn-
arsson fyrrverandi fræðslustjóri
valdi?
Já, í Ljóðspomm er rik tilhneiging
til þess að ráðskast með ljóðin eins
og sjá má af áðumefndu. Eins og
áður er getið fara verkefnin ekki
varhluta af fyrirmælum til nemenda.
í þeim felst raunar mikið vantraust
á kennumm til þess að vinna með
ljóðin, á þann hátt sem tilfínning
þeirra — aldur nemenda og mismun-
andi þroskastig — kallar á. Af nem-
endum er aftur tekinn sá helgasti
réttur hvers einstaklings gagnvart
fagurbókmenntum að vinna sjálfur,
án íhlutunar annarra, úr sögu eða
ljóði. Raða efninu í vitund sína, finna
til eins og áhrif þess ákvarða. Miðla
síðan öðmm af hugsun sinni, með
eigin orðum, skapa þannig viðbrögð
og umræður, undir umsjá kennara
sem þekkir bekkinn sinn og veit um
getu nemenda. Hjálpa þeim til þess
að verða skyggn á góðan skáldskap
og rækta virðingu fyrir honum sem
háleitari listgrein.
Því finnst mér fáránlegt að koma
með bók eins og „Ljóðspor" til
kennslu inn til svo ungra nemenda
og í 4.-6. bekk. Þeir em rétt famir
að sjá inn í undraveröld ljóðsins og
hafa alls ekki náð þar þeirri fótfestu
að þeir skilji öll þau tilbrigði af skáld-
skap sem hér em sýnd. Útkoman
getur orðið sú að kennari freistist
til að lofa öllum bekknum sínum að
„smíða" ljóð rétt eins og þau væm
i smíði og handavinnu, þá gleymist
það að skáldskaparhneigð er náðar-
gáfa, sem er ekki öllum gefin. Sú
braut er erfið og ekkert síður hinum
ágætu ungu skáldum í dag, en var
hinum sem á sínum tíma lýstu til
framtíðar með skáldskap.
Að framansögðu vildi ég óska að
æðstu yfirvöld gmnnskóla kynntu
sér þessa bók áður en fleiri slíkar
koma á eftir — en þetta mun vera
sú fyrsta af þremur.
Listaverkamyndir þær er prýða
bókina, án allra orða, em líklegar til
þess að vekja listrænan áhuga hinna
ungu nemenda — eins og fjölmörg
ljóð sem em þar geta einnig.
Orðaskýringar, ljóðlyklar og höf-
undatal ljóða og mynda er allt aftast
í bókinni.
Athugasemd við hagfræði-
pistil Sigurðar Snævarr
eftirÞórólf
Matthíasson
í grein í Morgunblaðinu sunnudag-
inn 20. nóvember sl. fjallar Sigurður
Snævarr um fmmvarp til fjárlaga.
Fagleg umíjöllun um fmmvarp til
fjárlaga eykst með hveiju ári og er
það vel. Fjárlaga- og hagsýslustofn-
un hefur fyrir sitt leyti reynt að koma
til móts við aukinn faglegan áhuga
með því að auka magn upplýsinga
sem fram kemur í greinargerð með
fmmvarpinu og fylgiskjölum þess.
Undanfarin ár hefur mikil vinna
verið lögð í að bæta fjárlagavinnuna.
Gagnaöflun og gagnavinnsla hefur
verið bætt. Aðferðir til verðlagsupp-
færslu hafa verið þróaðar og stór-
bættar. Tengsl fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar við fagráðuneyti hafa
verið stóraukin.
Undirritaður taldi að meðal þeirra
sem íjalla um opinber Qármál væm
ofangreindar staðreyndir vel þekkt-
ar. Grein Sigurðar Snævarr verður
því miður til þess að hnekkja þeirri
skoðun. Orðrétt segir Sigurður:
„Undirbúningi fjárlaga er stórkost-
lega ábótavant. Fjárlagavinnan byij-
ár alltof seint, er ekki nógu markviss
og samstarf við einstakar stofnanir
er ekki nægjanlegt." Þessar fullyrð-
ingar ganga þvert á það sem sagt
var hér að framan og því rétt að
staldra við og huga að staðreyndum.
Undirbúningur flárlagafmmvarps
hefst nánast sama dag og það síðasta
verður að lögum. Stofnunum og
ráðuneytum em send ógrynni hálf-
og óútfylltra eyðublaða ásamt nokk-
uð ýtarlegum leiðbeiningum um út-
„Undanfarin ár hefiir
mikil vinna verið lögð í
að bæta fjárlagavinn-
una. Gagnaöflun og
gagnavinnsla hefur
verið bætt. Aðferðir til
verðlagsuppfærslu
hafa verið þróaðar og
stórbættar. Tengsl Qár-
laga- og hagsýslustofii-
unar við fagráðuneyti
hafa verið stóraukin.“
fyllingu. Stjómsýslufræðsla ríkisins
hefur í samvinnu við fjárlaga- og
hagsýslustofnun komið af stað nám-
skeiðum fyrir fjárlagagerðarfólk í
stofnunum og ráðuneytum um gerð
fjárlagatillagna til þess að auðvelda
þeim sem nýlega em að komnir að
fóta sig. Fagráðuneytin fjalla um
fjárlagatillögur einstakra stofnana
áður en þær em sendar fjárlaga- og
hagsýslustofnun. Sú yfirferð er eðli-
lega misjöfn að gæðum, en fjárlaga-
og hagsýslustofnun hefur viljað að
sá þáttur í starfsemi ráðuneytanna
yrði styrktur. Embættismenn ráðu-
neyta og fjárlaga- og hagsýslustofn-
unar fjalla síðan ýtarlega og í sam-
einingu um tillögumar. Vissulega
væri hægt að byija fyrr á undirbún-
ingi. Vissulega væri hægt að auka
enn afskipti og ábyrgð fagráðuneyta
á fjárlagavinnunni o.s.frv. Allt em
þetta atriði sem em á verkefnalista
fjárlaga- og hagsýslustofnunar og
unnið að þeim jafnt og þétt. Sem lítið
dæmi um samvinnu fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar við stofnanir utan
íjármálaráðuneytis má nefna að
nokkur undanfarin ár hefur stofnun-
in og Þjóðhagsstofnun samræmt
verðlagsforsendur §árlagafmmvarps
og þjóðhagsáætlunar. Ég trúi að
flestir séu sammála um að það atriði
hafi auðveldað faglega umfjöllun um
bæði þessi plögg vemlega.
En þó vel sé vandað til undirbún-
ings getur niðurstaðan oðið góð eða
slæm eftir atvikum og ekki mitt verk-
efni að deila þar um. Slæm ákvörðun
verður slæm ákvörðun hversu lengi
sem hún hefur verið í undirbúningi.
E.t.v. má hugsa sér að með lengri
undirbúningstíma megi fækka slæm-
um ákvörðunum. Það er vissulga
fróm ósk en ég trúi að stjómmálasag-
an geymi mörg dæmi um hið gagn-
stæða.
Að lokum vil ég nota tækifærið
til að óska Morgunblaðinu til ham-
ingju með hvemig tekist hefur til
með nýtt sunnudagsblað. Sem hag-
fræðingur fagna ég því sérstaklega
að fræðigrein minni hefur verið gert
það hátt undir höfði að henni sé
ætlaður fastur dálkur. Umræða um
efnahagsmál er sífellt að verða fag-
legri. Nýbreytni Morgunbíaðsins
verður vonandi enn eitt sporið í þá
átt.
Höfundur er hagfræðingur hjá
fjnrluga-og hagsýslustofhun.