Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
Grænland:
Veiðikvótar fyr-
ir 1989 ákveðnir
Nuuk. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA heimasljórnin hefur ákveðið fiskveiðikvóta fyrir
næsta ár. Leyft verður að veiða 90.000 tonn af þorski við vestur-
ströndina og 13.750 tonn við austurströndina. Samanlagt er þorsk-
kvótinn 27.000 tonnum hærri en á þessu ári.
Evrópubandalagið fær nú í fyrsta
sinn hluta af þorskkvótanum við
Norskur þingmaður:
I fangelsi
fyrir svik
Ósló. Frá Rune Timbcrlid, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
FYRRVERANDI þingmaður
á norska stórþinginu hefur
verið dæmdur i 10 mánaða
fangelsi fyrir Qársvik. Þing-
maðurinn, Kristine Rusten,
er 52 ára og sat á þingi fyrir
jaínaðarmenn.
Rusten var dæmd fyrir að
klófesta nær 600 þúsund norsk-
ar krónur (4,2 milljónir ísl.kr.)
hjá ýmsum fjármálastofnunum
í Noregi. Hún falsaði margsinn-
is undirskriftir á skuldbinding-
arskjölum og einu sinni notaði
hún nafn félaga síns á þingi,
Áge Hovengen.
Rusten segist nú iðrast
beisklega afbrota sinna. Féð
hafi hún notað að nokkru til
að kaupa áfengi, sem hún hafi
stundum misnotað, og jafn-
framt hafi hún notað 70 þúsund
n.kr. til að greiða fyrir krabba-
meinsaðgerð er hún gekkst
undir hjá einkastofnun í Vest-
ur-Þýskalandi. Dómarinn taldi
það Rusten ekki til málsbóta
að hún skyldi gegna hárri og
vellaunaðri stöðu sem þingmað-
ur.
„Ég á refsinguna skilið og
það er mér léttir að dómur skuli
hafa verið kveðinn upp. Mest
iðrast ég þess að hafa valdið
fjölskyldu minni og Verka-
mannaflokknum vonbrigðum,"
sagði Rusten.
írland:
Pernod
nær tök-
um á írska
viskíinu
Dyflinni. Reuter.
Viðskiptaráðuneyti írlands
veitti í gær samþykki sitt fyrir
kaupum franska fyrirtækisins
Pemod Ricard á meirihluta
hlutabréfa i Irish Distiller Gro-
up, fyrirtækjakeðju sem fram-
leiðir helstu tegundir írsks viskís
eins og Jameson, Powers og
Paddy. í sex mánuði höfðu bre-
skir og írskir dómstólar og
stjórnvöld á írlandi fjallað um
kapphlaup Pernod við bresku
hótel- og veitingahúsakeðjuna
Grand Metropolitan Group um
írska viskiiðnaðinn.
Pemod Ricard, sem þekktast er
fyrir framleiðslu áfengis með
lakkrísbragði, bauð 285 milljónir
írskra punda (20 milljarða íslenskra
króna) í meirihluta hlutabréfa Irish
Distillers. írska viðskiptaráðuneytið
gaf samþykki sitt fyrir kaupunum
með því skilyrði að franska fyrir-
tækið seldi ekki hluta írska fyrir-
tækisins aftur án samþykkis yfír-
valda. Einnig var ákveðið að Grand
Metropolitan mætti ekki eiga meira
en 30% hlutabréfa í Irish Distillers
til að koma í veg fyrir samstarf við
Pemod sem gæti spillt samkeppni
á markaðnum.
vesturströndina, 12.000 tonn, en
það er samkvæmt ákvæðum samn-
ings milli Grænlands og EB er á
að gilda í fimm ár. Skip í eigu
heimastjórnarinnar fá 30.000 tonna
þorskkvóta en skip einkaaðila
48.000 tonn. EB fær 11.500 tonna
kvóta við austurströndina en græn-
lenskir fískimenn 2.250 tonn.
Rækjukvótinn fyrir 1989 verður
alls 58.000 tonn en auk þess munu
grænlenskir bátar reyna að veiða
4.000 tonn á tilraunasvæðum við
austurströndina. Af öllum rækju-
kvótanum verða rúm 9.000 tonn
veidd við austurströndina. Rækju-
kvóti EB verður 5.500 tonn - 1.775
tonn við Vestur-Grænland og 3.725
tonn við Austur-Grænland. EB fær
að auki að veiða 63.820 tonn af
karfa, 5.900. tonn af lúðu, 2.000
tonn af steinbít, 10.000 tonn af
loðnu og 30.000 tonn af kolmunna.
EFTA og EB:
Reuter
Christina Onassis jörðuðídag
Líkkista Christinar Onassis borin í kirkjugarð í Aþenu í Grikk-
landi í gær af prestum úr grísku réttrúnaðarkirkjunni. Jarðarför-
in fer fram í dag.
Bandaríkjadollar:
Lægsta verð
síðan í janúar
London. Reuter.
ÞRÁTT fyrir stuðningskaup
ýmissa alþjóðlegra stórbanka féll
Bandarikjadollar i verði í gær
og hefúr gengi hans ekki verið
lægra á þessu ári síðan i janúar.
Verð hlutabréfa á Evrópumörk-
uðum féll einnig og sama gilti á
Tókíó-markaði.
Dollarinn var skráður á 121,03
japönsk jen er kauphöllum var lokað
í London í gær en viðskiptaaðilar
sögðu lítið um að vera enda voru
bandarískir markaðir lokaðir vegna
þakkargjörðardagsins sem þarlend-
ir héldu hátíðlegan.
Japansbanki keypti í gær Banda-
ríkjadollara og sömuleiðis vestur-
þýski seðlabankinn er keypti fyrir
58 milljónir dollara (2,7 milljarða
ísl kr.).
Olíuverð lækkaði nokkuð á Evr-
ópumarkaði er fréttir bárust um að
olíuráðherrar OPEC, samtaka olíu-
útflutningsríkja, sem nú reyna að
ná samkomuíagi um framíeiðslu-
kvóta í Vín, hefðu frestað fundum
sínum þangað til í dag, föstudag.
Eru taldar minnkandi líkur á sam-
komulagi.
EB reisir um sig hulda múra
á samstarfsnefiidafimdi
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
I GÆR Iauk í Brussel tveggja daga fiindi samstarfsnefiida þing-
manna firá aðildarríkjum EFTA og EB. Af íslands hálfú sóttu
fúndinn alþingismennirnir Kjartan Jóhannsson og Matthías Á.
Mathiesen. í ræðu sem Kjartan Jóhannsson flutti á fúndinum sak-
aði hann EB um að reisa um sig hulda múra m.a. hvað varðar
aðgang að háskólum.
Fundurinn var fyrst og fremst
samráðsfundur, þingmennimir
skiptust á skoðunum um það sem
unnist hefur frá ráðherrafundi EB
og EFTA í febrúar sl. og sömuleið-
is síðan ráðherrafundur EFTA var
haldinn í Tampere í Finnlandi í
sumar en þann fund sótti Willy
De Clercq framkvæmdastjóri ut-
anríkismála innan EB. Áhersla var
lögð á umræður um umhverfis-
mál, tækniþjálfun og nemenda-
skipti. Kjartan Jóhannsson sagði
í ræðu á fundinum að Evrópu-
bandalagið hefði þrátt fyrir itrek-
aðar fullyrðingar um hið gagn-
stæða reist um sig ósýnilega múra
og háskólar innan bandalagsins
höfnuðu skipulega nemendum t.d.
frá íslandi á þeim forsendum að
aðsókn nemenda frá aðildarríkjun-
um væri svo mikil.
Matthías Á. Mathiesen sagði að
þó svo fundir af þessu tagi skiluðu
ekki árangri strax væri óhætt að
fullyrða að þeir greiddu fyrir af-
greiðslu mála þegar þau kæmu til
Evrópuþingsins. Hann sagðist
hafa átt góðar einkaviðræður við
Willy De Clercq en varðist annars
allra frétta af þeim fundi.
í yfirlýsingu sem Hans-Jurgen
Zahorka þingmaður á þingi EB lét
birta eftir fundinn kemur fram að
skortur EFTA á umboði frá aðild-
arríkjum þess til samninga tefji
öll samskipti þessara aðila.
Zahorka segir að EFTA ríkin
verði að koma fram sem ein heild
og móta sameiginlega afstöðu í
sem flestum málum. Það hljóti
einnig að vera í verkahring EFTA
að bæta samskiptin við ríki s.s.
Tyrkland, Möltu og Kýpur sem
hljóti að eiga erindi inn á evrópska
efnahagssamfélagið.
Morgunblaðið/PPJ
Koskotas handtekinn íBoston
Flótta gríska auðjöfursins, George Koskotas, lauk í gær en þá var hann handtekinn í Boston í
Bandaríkjunum í gær. Þangað kom hann frá Brasilíu. Koskotas dvaldist, sem kunnugt er, í rúman
sólarhring hérlendis á flótta sínum undan Alþjóðalögreglunni. Þá, þann 10. þessa mánaðar, tók
ljósmyndari Morgunblaðsins, Pétur Johnson, myndina hér að ofan af Lear Jet-einkaþotu Koskotas
á Reykjavíkurflugvelli. í gær fór gríska ríkisstjórnin þess á leit við bandarísk yfirvöld að fá Ko-
skotas framseldan en hann er grunaður um stórfelld fjársvikí heimalandi sínu. Mál mannsins kem-
ur fyrir dómstóla í Bandaríkjunum í dag.
Suður-Afríka:
Náðuninní
vel fagnað
Höfðaborg. Reuter.
ÞEIRRI ákvörðun P. W. Botha,
forseta Suður-Afríku, að þyrma
lífi sexmenninganna frá Sharpe-
ville hefúr verið fagnað víða og
baráttumenn gegn aðskilnaðar-
stefiiunni segja hana ágætt dæmi
um það, hveiju unnt sé að fá
áorkað þegar ríkisstjórnir og
samtök leggjast á eitt.
Desmond Tutu, erkibiskup og
friðarverðlaunahafi Nóbels, kvaðst
í gær vera mjög ánægður með þenn-
an sigur og sagði, að hann væri
að þakka alþjóðlegum þrýstingi og
atbeina Margaret Thatchers, for-
sætisráðherra Bretlands. Sagði
hann, að Thatcher mætti nú vita
hve mikil áhrif hún gæti haft í bar-
áttunni gegn aðskilnaðarstefnunni.
Stjómmálaskýrendur segja, að
náðunin sé til marks um, að Suður-
Afríkustjórn hafi talið sig tilneydda
til að láta undan alþjóðlegum þrýst-
ingi. Hafi hún líka óttast, að ella
yrðu efnahagslegar refsiaðgerðir
gegn henni stórauknar. Þá var einn-
ig skýrt frá því í gær, að frestað
hefði verið aftöku blökkumanns,
Pauls Setlaba, sem dæmdur hafði
verið til dauða fyrir líkar sakir og
sexmenningamir, það er að segja
að hafa verið einn af mörgum, sem
gerðu aðsúg að og drápu svarta
konu.