Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 28
Skipulag nkisins opnar
útibú á Akureyri í dag
Benedikt Björnsson arkitekt ráðinn forstöðumaður
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Benedikt Björnsson arkitekt er forstöðumaður Skipulags ríkisins á
Akureyri sem opnar formlega í dag.
Skrifstofa Skipulags ríkisins
tekur formlega til starfa í dag á
Akureyri. Starfsmaður útibúsins
er Benedikt Björnsson arkitekt
sem unnið hefiir hjá Skipulagi
ríkisins undanfarin sex ár. Hjá
stofnuninni er ákveðin verka-
skipting milli starfsmanna, m.a.
um landshluta eða svæði, og mun
Benedikt nú sem fyrr hafa um-
sjón með skipulagsmálum er
varða Norðurland.
A undanfornum árum hefur farið
fram víðtæk umræða um nauðsyn
þess að bæta opinbera þjónustu í
landinu og er þá ekki síst átt við
Dræm
rækju-
veiði
DRÆM rækjuveiði hefiir verið
úti fyrir Norðurlandi upp á síð-
kastið. Nýlegt togskip útgerðar-
félagsins Blika hf., Bliki EA, er
í sínum öðrum rækjutúr og hefiir
verið á veiðum allt frá Dohm-
banka og austur að Kolbeinsey.
„Það er alls staðar sama sagan,
einstaklega tregt. 'Hinsvegar geng-
ur nýja skipið vel. Okkur vantar
bara rækju í sjóinn. Hún virðist
hafa synt eitthvert í burtu. Mjög
gott verð fæst í Japan fyrir góða
rækju. Verð á Japansmarkaði hefur
farið hækkandi auk þess sem yenið
er alltaf að styrkjast. Við flokkum
rækjuna og heilfrystum um borð í
fimm kílóa öskjur og sendum hana
þannig til Japans," sagði Ottó
Jakobsson hjá Blika hf.
það að færa þjónustuna nær vett-
vangi. Umræðan hefur farið fram
á Alþingi og meðal sveitarstjómar-
manna auk þess að hafa verið innan
stofnana. Á stjómarfundi Byggða-
stofnunar þann 10. júlí 1986 var
samþykkt að hefja undirbúning að
stofnun stjórnsýslumiðstöðva á Ak-
ureyri, Isafírði og Egilsstöðum og
stuðla þannig að bættri þjónustu
við landsbyggðina. Byggðastofnun
var síðan falið að hafa frumkvæði
að því að fylgja þessum málum eft-
ir og kanna í fyrstu grundvöllinn
fyrir því hvort ráðuneyti eða stofn-
anir hefðu tök á að verða þátttak-
endur í þessari sameiginlegu upp-
byggingu sem átti að byija á Akur-
eyri.
Af hálfu Skipulags ríkisins var
frá upphafí mikill áhugi á þátttöku
í þessari uppbyggingu, en þó með.
þeim takmörkunum að aðeins einn
starfsmaður skyldi annast þá þjón-
ustu, sem flyttist til Akureyrar.
Stefnt var að því að starfsemin
yrði til húsa í sambýli við miðstöð
BILUN kom upp í rafstreng I
jörðu við Krossanesverksmiðj-
una með þeim afleiðingum að
verksmiðjan stöðvaðist um kl. 5
í gærmorgun. Unnið var að við-
gerð í allan gærdag og hófst
bræðsla þar aftur í gærkvöldi.
Alls hafa borist um 15 þúsund
tonn af loðnu og sfld í Krossanes-
verksmiðjuna það sem af er vertíð.
„Það er auðvitað allt of lítið, en
Byggðastofnunar á Akureyri.
Byggðastofnun hóf starfsemi í hús-
næði Búnaðarbankans á Akureyri
þann 1. október sl. Það húsnæði
var ekki nægjanlega stórt til að
rúma jafnframt skrifstofu Skipu-
lags ríkisins og var því ákveðið að
leigja um 45 fermetra húsnæði á
annarri hæð í húsi Landsvirkjunar
á Glerárgötu 30. Sími skrifstofunn-
ar er 96-26387.
Félagsmálaráðuneytið fer með
stjóm skipulagsmála í landinu. Því
til aðstoðar eru skipulagsstjórn
ríkisins og skipulagsstjóri. Verkefni
skipulagsstjórnar er að ganga frá
skipulagsuppdráttum, sem berast
til staðfestingar, hafa forgöngu um
gerð skipulags og vera opinberum
aðilum til ráðuneytis um hvers kon-
ar byggingar- og skipulagsmál, sem
hún telur þörf á og lögin ákveða.
Skipulagsstjóri hefur yfirumsjón
með allri framkvæmd skipulags-
mála í samráði við hlutaðeigandi
sveitarstjómir.
Ýmis stærri verkefni verða unnin
ekkert slæmt miðað við aðrar verk-
smiðjur og miðað við það litla fram-
boð sem verið hefur á loðnu. Við
vildum auðvitað að vertíð hæfist
strax eftir verslunarmannahelgi, en
hún hófst ekki fyrr en tveimur
mánuðum síðar," sagði Geir Zoéga
forstjóri Krossanesverksmiðjunnar.
Hann sagði ljóst að taprekstur væri
óumflýjanlegur á yfirstandandi
vertíð, en óvfst væri hversu mikill
af starfsmanni Skipulags ríkisins á
Akureyri, svo sem gerð aðalskipu-
lagstillagna, en auk þess er ætlunin
að ríkur þáttur í starfi hans verði
almenn ráðgjöf um skipulags- og
byggingarmál. Mikill áhugi er fyrir
auknu samstarfí við sveitarstjómir
á svæðinu auk þess sem tengslin
við ýmsar stofnanir og fyrirtæki
þarf að efla.
Nú er unnið að uppbyggingu
tölvukerfis á vegum Skipulags
ríkisins og í framhaldi af því gagna-
banka, sem verður sérhæfður um
hann yrði. Tap verksmiðjunnar á
vertíðinni í fyrra nam um tuttugu
milljónum króna. Geir sagði að eðli-
leg vertíð hjá Krossanesverksmiðj-
unni væri á milli 60 og 70 þúsund
tonn, eða þetta 10 til 12 þúsund
tonn á mánuði. Loðnuvertíðin er
hálfnuð um jól og miðað við það
magn, sem þegar hefur borist að
landi, stefnir ekki í annað en halla-
rekstur, að sögn Geirs.
flesta þá þætti sem snerta skipu-
lags- og byggingamiál. Með fjar-
skipta- og tölvutækni verður útibúi
kleift að hafa fullan aðgang að
þessum upplýsingum og er óhætt
að segja að þetta sé afar þýðingar-
mikið atriði í framtíðinni og verði
í raun forsenda fyrir frekari upp-
byggingu nýrra útibúa. Fyrstu tvö
árin verður skrifstofa Skipulags
ríkisins á Akureyri á tilraunastigi
og í framhaldi af þeim reynslutíma
verður tekin ákvörðun um fram-
haldið og hugsanlega önnur útibú,
að sögn Benedikts.
Af þeim loðnuskipum, sem venju-
lega hafa lagt upp í Krossanesi,
hafa tvö þeirra, Súlan EA og Öm
EA, siglt með loðnu til Færeyja auk
þess sem nokkur skipanna hafa lagt
upp annars staðar á landinu. Geir
sagði að ef framboð væri mikið af
loðnu, segði það sig sjálft að verk-
smiðjan annaði ekki öllu því sem
bærist að landi. Verksmiðjan ann-
aði aðeins 400 tonnum á sólarhring.
Krossanesverksmiðjan:
Hallarekstur óumflýjanlegur
Bræðsla stöðvaðist í gær vegna bilunar í rafstreng
Ölunn hf. á Dalvík:
Sjö tonn af ferskum laxi
á Bandaríkj amarkað í dag
Meðalverð 370 kr. fyrir þriggja kg físk
Laxeldisstöðin Ölunn hf. á
Dalvík slátraði í gær sjö tonn-
um af laxi sem fer flugleiðis á
markað í Bandarikjunum í dag.
Meðalvigt laxanna er um þrjú
kg, sem telst mjög gott, að sögn
Gunnars Blöndals, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
„Ég er mjög ánægður með það
verð, sem fyrir hann fæst.
Þetta er stór fiskur og fyrir
hann fæst gott verð miðað við
þann smáa. Ég ætla að vona
að meðalverð verði um það bil
370 krónur fyrir kg,“ sagði
Gunnar.
„Við drögum sláturkvína að
landi, blóðgum laxinn við bryggj-
una, látum honum blæða út og
förum síðan með fískinn inn í
hús, þar sem við slægjum hann,
skerum hann og pökkum honum.
Fiskurinn fer með bíl suður í dag
og beint í flugvél til Boston og
New York. Þar taka kaupendum-
ir á móti honum og dreifa honum
ferskum í verslanir," sagði Gunn-
ar. Tveir innlendir söluaðilar sjá
um að koma laxinum á markað
erlendis. Það em Fisktækni hf.
og Luna, sem bæði em staðsett
í Reykjavík.
Ölunn hf. var sett á stofn fyrir
þremur ámm og hefur rekstur
hennar gengið vel frá upphafí.
Engin stórvægileg vandamál hafa
komið upp hjá fyrirtækinu. Að-
stæður til laxeldis á Dalvík væm
ágætar nema hvað norðaustanátt-
in væri heldur leiðinleg. Gunnar
sagði að á árinu væri búið að
slátra um 25 kg af laxi hjá fyrir-
tækinu. „Þessi fiskur, sem við
emm nú að drepa, má helst ekki
vera lengur í sjó því þá er hætta
á bullandi kynþroska í honum.
Eflaust er í lagi með hann til
aprílmánaðar, en við kynþroska
verður hann allur brúnn á litinn."
Ölunn hefur sautján kvíar úti
Gunnar Blöndal framkvæmda-
stjóri Ölunnar hf. með tvo 12-14
punda laxa úr stöðinni.
í sjó á Dalvík og sex kör í landi
sem í em samtals um 150.000
laxar. Stöðin hefur ekki annast
klak sjálf, heldur kaupir hún seiði
og hefur innan dyra fyrst um sinn.
Síðan verða þau sett út að vori
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Laxinum „landað" á Dalvík í gær.
þegar þau hafa náð tæpu kg að
þyngd. Löxunum er síðan slátrað
þegar þeir hafa náð 2,5 til 3,0
kg þyngd eftir um það bil þriggja
ára eldi hjá fyrirtækinu.
Gunnar tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Ölunnar sl. vor, en
áður hafði hann starfað urn fjög-
urra ára skeið við laxeldi í Björg-
vin í Noregi þar sem hann er jafn-
framt menntaður sem fiskeldis-
fræðingur.