Morgunblaðið - 25.11.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
33
Minning
Þórdís Sigurgeirs-
dóttirfrá Svarfhóli
Fædd 31. júlí 1902
Dáin 18. nóvember 1988
Þá er ég hníg í djúpið dimma,
drottinn ráð þú hvemig fer
þótt mér hverfi heimsins gæði
hverS allt sem kært mér er
æðri heimur, himnafaðir
hinum megin fagnar mér.
Með þessum fallegu ljóðlínum
sálmaskáldsins (M.Joch.) viljum við
Heiða og börnin þakka Dísu frænku
samfylgdina. Myndin og minning-
arnar verða okkur ljúfar og ógleym-
anlegar. Þórdís Sigurgeirsdóttir var
fædd á Svarfhóli í Miklaholtshreppi
hinn 31. júlí 1902. Hún var dóttir
hjónanna Sigurgeirs Sigurðssonar
og Þórdísar Þorleifsdóttur, en þau
áttu þijú börn, Björn, Sigurlaugu
og Þórdísi, sem var þeirra yngst.
Föður sinn misstu þau á góðum
aldri, en bjuggu áfram með móður
sinni. Einkenni búskapar á Svarf-
hóli voru góð umhirða, þrifnaður
og nýtni og í þeim anda ólst Þórdís
upp og setti það mark sitt á hana.
1942 lést bróðir hennar, Björn, að-
eins tæplega 50 ára að aldri og var
það mikið áfall. Bjöm var smiður
góður og hagleiksmaður og bera
smíðisgripir hans þess glöggt vitni.
1947 lést síðan móðir hennar í hárri
elli. Þórdís bjó á Svarfhóli í nokkur
ár, en á árunum 1952-’53 kynntist
hún Guðbirni, sem hún síðar gift-
Fjölfræðibok
um steina
VAKA-Helgafell hefur hafið út-
gáfu á flokki Qölfiræðibóka sem
hlotið hefiur nafnið Heimur í
hnotskurn. Fyrsta bókin er ný-
komin út, heitir Steinríkið og ber
undirtitilinn: Heillandi veröld i
máli og myndum.
I kynningu útgefanda segir m.a.:
„Bókin Steinaríkið er unnin í sam-
vinnu við Náttúrugripasafnið í
London og kemur nú samtímis út
í allmörgum Evrópulöndum. ís-
lensku útgáfuna hafa jarðfræð-
ingarnir Ari Trausti Guðmunds-
son og Halldór Kjartansson þýtt
og staðfært.
í bókinni er fjallað um stein-
aríkið á nýstárlegan og áhuga-
verðan hátt og birtur fjöldi lit-
mynda af berg- og steintegund-
um, steingervingum, eðalmálm-
um, kristöllum, gimsteinum og
steinum utan úr geimnum.
Bókin hefst á yfirliti um innviði
jarðar og er þá útskýrt hvemig
helstu bergtegundir eru steindar
og steintegundir eru flokkaðar.
Síðan er því lýst hvemig berg
myndast, hvernig landslag verður
til, hvernig jarðeldurinn markar
ásýnd jarðar, hvernig neðanjarð-
arhellar myndast og sjávarsetið
verður til. Að lokum er fjallað um
það hvar máimar, jarðefni önnur
og gimsteinar eru unnir í nám-
um.“
ist. Þau fluttust suður 1953 og
keypti jörðina Háteig í Garðabæ
af Blindravinafélagi Islands. Kona
mín, Aðalheiður, ólst upp á Svarf-
hóli hjá Þórdísi eldri og bömum
hennar, en síðar undir vemdarvæng
Dísu eftir að þeirra Björns naut
ekki lengur við og ávallt kallaði hún
Dísu fóstru sína. Eg kynntist Dísu
árið 1956 og reyndist hún okkur
og börnunum eins og hin besta
amma.
Alltaf var sérstakur blær og til-
hlökkun að taka upp pakkana frá
Dísu frænku á jólunum. Þar voru
gefnar af stórhug, en litlum efnum,
nytsamar gjafir og í fleiru nutu þau
hennar hlýja viðmóts og styrks.
Þau Guðbjörg bjuggu saman í
Háteigi við lítil efni, en samheldnin
var góð og með árunum reistu þau
sér lítið íbúðarhús. Sveitin og bú-
skapurinn áttu hug þeirra allan.
Guðbjörg vann einnig utan heimilis-
ins um árabil. Þeirra sambúð var
traust og góð, þau 14 ár sem hún
varði, en Guðbjörg lést árið 1966.
Dísa bjó áfram í Háteigi og hélt
lengst af kýr og kindur.
En Elli kerling sækir að og í
september 1987 fluttist hún að
Hrafnistu í Hafnarfirði og dvaldist
þar uns hún lést 18. nóvember sl.
Hún fékk hægt andlát.
Dísa var trúuð og sinnti kirkju
sinni vel, enda var steinsnar í
Garðakirkju frá heimili hennar.
Við Heiða fluttumst norður í land
árið 1957 ogurðu samverustundirn-
ar því færri en ella og við gátum
ekki sinnt henni sem skyldi sakir
fjarlægðar. En Dísa átti marga að,
sem sýndu henni tryggð. Allir ná-
grannar hennar á Garðaholtinu
reyndust þeim hjónum vel og henni
sérstaklega, eftir að Guðbjöms naut
ekki lengur við, og þurfti hún þá
oft ekki að biðja, það gerðist án
þess.
I kvenfélaginu starfaði hún mikið
og sendum við kvenfélagskonum
þakkir okkar og kveðjur. Asta
Ágústsdóttir, systurdóttir hennar
og fjölskylda reyndust henni af-
bragðsvel og var Ásta hjá henni
síðustu stundimar. Gunnar eigin-
maður Ástu sá um smíði íbúðar-
hússins á sínum tíma.
Margir unglingar dvöldust í Há-
teigi sín unglingsár og nutu hand-
leiðslu þeirra hjóna, og oft minntist"
hún Sigutjóns og Egils, sem sýndu
henni mikla tryggð. Ollu þessu fólki,
sem og starfsfólki á Hrafnistu,
sendum við okkar bestu kveðjur,
því þar leið henni vel og var þakk-
lát fyrir þá góðu umönnun sem hún
hlaut. Nú er skarð fyrir skildi, en
við Heiða eigum minninguna, og
okkar börn og barnabörn. Við þökk-
um henni samfylgdina og allt, þótt
nú skilji um stund. Guð blessi minn-
ingu hennar.
Óttar Viðar
VANTI
VITAMIN
VERÐUR SVARIÐ NÁTTÚRULEGA
SEVEN ', -
SEAS
3 TEGUNDIR AF 18 MÖGULEGUM
,,‘-'j'Bbie minerul V Á J
Húlfi fruit flnvniirccntrí?
JARN
Seven
Seas
B-KOMPLEX
VITAMIN-C PLUS
SEVEN
seas
ERU NATTURULEG VITAMIN — AN SYKURS
— ÁN ROTV ARNAREFN A — ÁN GERFIEFNA
— ÖLL í ÞÆGILEGUM BELGJUM
— BESTA OG HAGKVÆMASTA VIÐBÓTIN
VIÐ DAGLEGAN KOST
ét
orenco
HEILDSOLUDREIFING
Laugavegi 16, simi 24057.