Morgunblaðið - 25.11.1988, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
. \
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Nokkrir 9. bekkinganna úr Fellaskóla: Helga D. Þórarinsdóttir, Berglind Sigmarsdóttir, Lilja Anna
Gunnarsdóttir, Jóhanna Vilhelmsdóttir, Elín Ásgeirsdóttir, Áslaug Þorvaldsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir,
Birgir Þ. Birgisson, Tóti Bjarnason, Guðmundur Kristjánsson, Gísli Einarsson.
FELLASKÓLI
Nemendur í
umferðarfræðslu
Eitt veggspjaldanna.
Sérstakir umferðardagar voru í
Fellaskóla nú fyrir skömmu.
Nemendur 9. bekkjar önnuðust
undirbúning og féll almenn kennsla
niður hjá þeim á meðan. Meðal
þess sem nemendumir gerðu var
að útbúa kröfuspjöld og undirbúa
þátttöku í kröfugöngu og útifundi
um umferðarmál á laugardag, og
að kynna sér allt sem umferðarmál-
um viðkemur.
Einnig voru tekin viðtöl við fólk
sem hefur slasast í umferðarslysum
og aðra sem eiga um sárt að binda
vegna þeirra svo og lögreglu- og
sjúkraflutningsmenn, lækna og
hjúkrunarfólk, sem í daglegum
störfum sínum verður vitni að slys-
um og afleiðingum þeirra.
Þá áttu nemendur Fellaskóla
frumkvæði að teiknisamkeppni um
umferðarmál meðal grunnskóla-
nema í borginni. Samkeppnin stend-
ur nú yfir og er skilafrestur til 26.
nóvember. Kveikjan að umferðar-
dögunum í Fellaskóla var sú að
nemandi í skólanum lést í umferðar-
slysi í haust. Þann 30. nóvember
verður haldin kvölddagskrá í skól-
anum í minningu hans. Þar verða
ýmis dagskáratriði, veitingar verða
á boðstólum og fræðsla verður um
umferðarmál.
TÓNLIST
Ungir söngvarar
Atónleikum Dómkórsins í Há-
teigskirkju þann 13. nóvember
síðastliðinn sungu þessir ungu heið-
ursmenn sig inn í hjörtu allra tón-
leikagesta í þéttsetinni kirkjunni.
Þeir sem eru hér á myndinni, Finn-
ur Geir, Kjartan, ívar og Olafur,
syngja f Skólakór Kársness sem tók
þátt í flutningi Dómkórsins á tón-
verkinu „St. Nicolas" eftir Britten.
Stjórnandinn Jóhan Duijck og ten-
órsöngvarinn Louis Devos komu frá
Belgíu gagngert til þess að taka
þátt í þessum tónleikum sem að
sögn strákanna voru „alveg meiri-
háttar." Að loknum tónleikum bauð
Dómkórinn bamakómum til mikils
fagnaðar, þar sem á annað hundrað
söngvarar borðuðu saman, sungu
og dönsuðu fram eftir kvöldi.
Hljómsveitin Tóbías, sem er skipuð
strákum úr Skólakór Kársness, spil-
aði og hélt uppi dunandi dansi og
fjöri.
N
Jessy kveikir jafiivel í sígarettu fyrir Andy sem margir teldu nú
hámark þjónustulundar.
Hér burstar hún skóna fyrir hús-
bóndann.
AUSTURRÍKI
Api sem
vinmikona
Hvað gerir karlmaður sem ekki
getur eða vill sinna húsverk-
unum sjálfur? Fær sér vinnukonu.
Vinnukonur em af ýmsum upprana
(giftar eða ógiftar), en fæstar þeirra
era af apakjmi! Þó er ein apynja,
fómfús með afbrigðum, sem býr
með húsbónda sínum, þjónar honum
dyggilega og af trúmennsku. Jessy
heitir hún og enn hefur hún ekki
borið á móti því að sinna húsverkun-
um og vera húsbóndanum hægri
hönd. Hún klárar dagsverkin af
slíkri ánægju og af svo miklum
krafti að margar aðrar vinnukonur,
sem á annað borð leggja metnað
sinn í þjónustustörf, teldu hana öf-
undsverða.
Reyndar starfar hún í sirkus og
Viktoría Claflin Wo-
odhull ^arðist einarð-
lega fyrir jafnrétti
kynjanna.
í FRAMBOÐI
Fékk
ekkert
atkvæði
ún hét Viktoría Claflín Wo-
odhull og var 34 ára gömul,
konan sem fyrst bauð sig fram í
forsetakosningum í Bandaríkjun-
um. Þetta var árið 1872 og fékk
Viktoría ekkert atkvæði. Eigin-
maður hennar átti ekki kost á að
greiða henni atkvæði þar sem þau
vora þá bæði innan fangelsis-
veggja. Viktoría sjálf hafði ekki
heldur tækifæri til þess að kjósa
sjálfa sig enda fengu bandarískar
konur ekki kosningarétt fyrr en
hálfri öld síðar.
Hún hafði verið einn af stofn-
endum stjómmálaflokks sem
nefndist „Jafnréttisflokkurinn".
Henni var mjög umhugað um rétt
kvenna til að kjósa og taldi jafn-
vel að bylting væri eina svarið við
kúgun karla á þeim tíma. Hún rak
eigið dagblað sem öllum þótti
ekki jafn mikið til koma og mörg-
um var hún hrein plága. Fyrir
utan að boða jafnrétti kynjanna
og fijálsar ástir gerði hún mörg-
um sómamanninum lífið leitt.
Sem dæmi um uppreisnargimi
hennar birti hún eitt sinn frétt
þess efnis að blaðið hefði í fórum
sínum lista með nöfnum þeirra
viðskiptavina sem oftast hefðu
heimsótt gleðihús bæjarins. Uppi
varð fótur og fit og var hún heim-
sótt af mörgum heiðursmönnum
sem tilbúnir vora til þess að greiða
henni stórfé fyrir að fjarlægja
nöfn þeirra af þessum lista. Eng-
inn var listinn til en þarna fékk
hún nasasjón af því hve margir
nýttu sér þjónustu þessa sem hún
var lítt hrifin af. Öðru sinni birti
hún grein þar sem farið var ófög-
rum orðum um þáverandi ráð-
herra, Henry Ward Beecher, og
ástarsambönd hans við ýmsar
virðulegar konur.
Eftir þetta var hún ákærð og
fangelsuð í miðri kosningabarátt-
unni, og þar mátti hún dúsa á
kosningadaginn. Enginn fyrrum
stuðningsmanna greiddi henni at-
kvæði sitt og var ástæðan sögð
sú að hún hefði verið svo iila stödd
fjárhagslega að ekki hefðu verið
til aurar fyrir allra nauðsynleg-
ustu áróðurstækjum. Nú, og þar
íyrir utan var það ekki talið gæfu-
legt að byija forsetaferil sinn í
dýflissunni.
Hún var þó fundin sýkn saka,
sótti um skilnað frá eiginmanni
sínum, flutti til Englands og gift-
ist þar auðmanni. Hún lést árið
1927 í hárri elli.