Morgunblaðið - 25.11.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
©1986 Universal Pre»s Syndicale
A Kann keyptl æfíngahjóL, en
hann kom þv/ z.kk\ I gang-"
925
Ég bið afsökunar hve þetta hef-
ur tekið langan tíma. En það
var verkfall!
Með
morgunkaffinu
far.
HÖGNI HREKKVtSI
// Éf? HAMN NÖ fCOAMMM / BLO/VWM AFTUR..' "
,/ HANN ER AE> KASTA 6K1t í pÓAAAieANN.1 "
Takið þátt í baráttu
náttúruverndarmanna
MORGUNBLADlf), FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
Tengelmann á villigötum
cítirJón Sæmund
Sigurjónsson
Umraeður um hvalvciðibann virð-
ast hafa valtnað á ný við þi ákvörð-
un veralunarauðhríngaina Tengel-
mann I Þýakalandi að hætu að
kaupa umtalsvert magn af niður-
auðuvörum frá okkur Ialendingum.
Auðhringurinn Tengelmann I
Þýakalandi hefur getið aér n\jög
gott orð fyrir umhverfisvemd og
ataðið þar mjög framarlcga I flokki
og hcfur tekið þar á málum, þannig
að menn hafa tekið eftir. Þannig
hcfur auðhríngurínn ákveðið að
selja ekki skjaldbókuaúpur vegna
þeaa að skjaldbökur voru I útrým-
ingarhettu. Hann hefur ákveðið að
aelja ekki froskalappir af þvf að
froskar voru I útrýmingarhœttu.
Og þessi verslunarkeðja hefur m.a.
ákveðið að aelja ekki alls konar
,spray“-dósir vegna þesa að út-
streymi af gasi úr þeim gseti hugs-
anlcga haft varanleg akemmdar-
ákveðið að kaupa ekki niðursuðu-
vörur frá lslandi. Það cr ekki ráðist
á hvalaaflirðir eða neitt slfkt, eins
og I hinum tilfellunum. Þeir ákveða
sem sagt ekki, að eftirleiðis muni
þeir ekki selja hvallqöt eða ein-
hveijar hvalaafurðir, vegna þess að
þser hafa yfirieitt ekkert verið til
sölu hjá þessum auðhring. í fyrri
tilfellunum var ekki hætt við að
kaupa vörur frá Frakklandi vegna
froskalappa og skjaldbftkusúpa, það
var ekki hætt við að kaupa vörur
frá öllum öðrum löndum I Evröpu
sem hugsanlega framleiddu ein-
hvcrjar .spray'-dösir vegna þessa.
Nei, það var ákveðið að selja ekki
vörumar sjálfar, sem voru viðkom-
andi hverjum málaflokki fynr sig.
En vegna hvalamálsins er ráðist á
Islendinga og allt sem fslenskt er.
Ekki hvalaafurðir. Þser voru ekki
til- Og þetta hefur verið stefnan
yfirieitt hjá þessum grsenfriðung-
um, að ráðast á saklausa þriðju
aðila. Það er ráðist að niðursuðuvör-
um, það er ráðist að ullarsölumönn-
Jón Ssemundur SigurjAnuoii
t hið mesta ranglæti sem við-
við sagt, að tneð aðgerðum sfnum
samþykki auðhringurinn Tengel-
mann jafnvel og réttlæti árás
.terrorista" á ölympfuþorpið t
Munchen á sfnum tima. Að vtsu
voru það grandalausir fþróttamenn,
sem fyrir árásinni urðu, en málstað-
inn hefði einhvem veginn verið
hsegt að réttiaeta skv. aðferð Teng-
olmanns, þannig að árásin hefði átt
rétt á sér. Við verðum að gora okk-
ur grein fyrir þvt, þegar við sjáum
svona afskrscmd daemi, að Tengel-
mann er kominn á ákaflega lágt
plan.
Afkoma íslendinga
Tengelmann-samsteypan mun
t.d. ekkert aðhaíast, þegar fiskinum
tekur að fsekka f sjönum vegna
þess að hvalurinn étur fiskinn sjálf-
an. eða hann étur faeðuna sem fisk-
urinn étur. Tengelmann mun ckkert
aðhafast, þegar kostnaðurinn við
ormatfnslu cr orðinn slíkur t okkar
frystihúsum, að við getum varla
ráðið við það. Og þegar neytandínn
Til Velvakanda.
Mig langar að fjalla hér um hval-
veiðimálið með tilliti til greinar sem
Jón Sæmundur Sigurjónsson, þing-
maður, skrifaði í Morgunblaðið
föstudaginn 11. nóvember sl.
Að hann skuli ekki undirbúa sig
betur áður en hann fer að skrifa
um mál sem hann skilur ekki ná-
kvæmlega. Hann skilur ekki þýð-
ingu orðsins „kollektivschuld".
Hann skilur ekki sögu nasistatím-
ans. Hann skilur ekki muninn milli
einræðis, hryðjuverkamanna og
Grænfriðunga. (Nú veit ég ekki
hvort það var sniðugt að velja Aldi
og Tengelmann sem dæmi um hug-
myndir Grænfriðunganna. Ég et
alveg viss um að þessi fyrirtæki
selja ennþá allt þetta drasl úr þýsk-
um kálfa-, kjúklinga- og svínabú-
um, sem eru líkt og fangabúðir
nasista.)
Hann þekkir ekki rannsóknir sem
hafa verið gerðar á hvölum áður.
Það er rangt að hvalirnir hafi mik-
il áhrif á fiskstofna. íslenskir
vísindamenn segja meira að segja
að hvalveiði íslendinga geti ekki
kallast vísindaleg. Og hver hefur
ekki hugmynd um ástand lífríkis
kringum ísland? Ég held það sé nú
bara hann sjálfur. Hvalir eru í út-
rýmingarhættu — það vita allir.
Hafið er sem hringrás og þegar
einn hlut vantar er heil hringrás í
hættu. Nú er ég sem Þjóðvetji ekki
að segja hvað Islendingar eiga að
gera og hvað ekki. Ég er ekki svo
frekur. Ég ætla bara að setja fram
nokkrar hugmyndir.
Að sjálfsögðu eiga Íslendingar
að hugsa um sjálfstæðið, t.d. um
dönsku kórónuna á alþingishúsinu:
Táknmyndir eru aldrei án þýðingar.
En skil ég rétt að sjálfstæðisbarátta
íslendinga endi með kórónum og
hvölum? Manfred Wömer, formaður
Atlantshafsbandalagsins, kom til
landsins en var ekki hent út í sjó
— þar var enginn íslendingur að
minna á sjálfstæðið. Ég þekki þenn-
an mann vel; þegar hann var vam-
armálaráðherra í Þýskalandi,
dreymdi hann bara um vígbúnað á
tímum afvopnunar. Ég skil því ekki
hvemig Islendingar ákveða hvað sé
í þágu sjálfstæðisbaráttunnar og
hvað ekki.
Sjálfstæði nær allra þjóða endar
á erlendum mörkuðum. Kannski er
það ekki alltaf til góðs en oftast
er það nauðsynlegt fyrir heimsfrið-
inn. Það verða rúmlega 5 milljarðar
að lifa í heiminum og margs konar
vandamál em ekki þjóðleg heldur
alþjóðleg. Hvað er að gerast í
Afríku og Suður-Ameríku með
regnskógana? Hvað er að gerast í
Suður-Afríku? Verða ekki þjóðir að
nota áhrif sín til þess að bæta
lífshorfur okkar allra?
Og þannig er hvalamálið ekki
mál sem aðeins íslendingar þurfa
að ræða. Þetta er alþjóðlegt vanda-
mál sem verður að leysa á alþjóðleg-
an hátt. Vilja íslendingar ekki taka
þátt í baráttunni sem náttúmvernd-
armenn um allan heim vinna fyrir,
frekar en að standa á móti þeim?
Þeir sem kalla Grænfriðungana
hryðjuverkamenn skulu bara opna
augun. Þessir menn tala ekki bara
— þeir gera það sem hefði átt að
gera fyrir löngu. Þeir eru á móti
öllum sem menga umhverfið hvar
sem er í heimi. Að friða dýr sem
em í útrýmingarhættu er hluti af
því.
íslendingar eiga ennþá hreinasta
vatnið, hreinasta loftið og besta fisk
heimsins, — en hve lengi enn?
Mengunin stöðvar ekki við tvö-
hundmð mílna línuna úti í hafi, því
miður.
Klaus Kretzer, námsmaður
Yíkverji skrifar
Víkverji gerði að umtalsefni fyr-
ir nokkm greinarkorn um
skemmdarverk, sem birtist í blaðinu
Eystra-horni. Reyndar er Víkveiji
síðan búinn að fjalla um bréf Ey-
verja af þessu tilefni.
En nú er komið nýtt eintak af
Eystra-horni. Þar segir m.a.:
„Víkverji Morgunblaðsins gerir
stólpagrín að meðferð okkar hér á
Eystrahorni á íslenskunni í pistli
sínum fyrir réttri viku. Það verður
ekki of oft ítrekað að menn og kon-
ur skuli vanda mál sitt og þá ekki
síst ritað mál. Því getum við tekið
undir með Víkveija að það sé sorg-
legt er mönnum í flýti og asa verð-
ur á að skemma íslenskuna svo
hroðalega, að aðrir geti ekki orða
bundist. ..“
xxx
••
011 stjórnin ófrísk segir í einu
blaði á Selfossi. Stjórnin, sem
við er átt, er stjórn Ungmennafé-
lagsins Dagsbrúnar í Austur-Land-
eyjum.
Þar kemur fram, að allar stjórn-
arkonurnar hafi verið ófrískar á
sama tíma. Formaðurinn varð svo
fyrstur til, eins og formanni sæmir,
og eignaðist Agnes Antonsdóttir
dóttur 17. september sl. Blaðið get-
ur þess, að forveri Agnesar í for-
mannsembættjnu hafi einnig orðið
móðir á embættistímanum.
„Þetta er íhugunarefni," segir
svo. „Þær konur í Dagsbrún, sem
ekki kæra sig um fjölgun ættu ekki
að sækjast eftir kosningu í stjórn
og allra síst formannskjöri. En hin-
um sem árangurslaust hafa reynt
er bent á þennan möguleika til auk-
innar fijósemi."
XXX
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
sendir stundum út fréttatil-
kynningar. í síðustu viku barst ein
inn á borð Víkveija. Þar tilkynnti
gatnamálastjóri, að ný umferðarljós
yrðu tekin í notkun laugardaginn
19. nóvember.
í fréttatilkynningunni sagði m.a.:
„Um leið og ljósin á mótum Hverfis-
götu og Rauðarárstígs verða tekin
í notkun verða afnumin þau beygju-
bönn, sem hingað til hafa gilt á
þeim gatnamótum." Og síðar segir
gatnamálastjóri í fréttatilkynning-
unni: „Ljósin á mótum Eiríksgötu
og Barónsstígs verða alumferðar-
stýrð. Sérstakir skynjarar mæla
umferðina og stjórna því, hve mik-
inn græntíma hvor gata fær.“
Víkvetji varð satt að segja bæði
gulur og grænn, þegar hann las
þetta. A endanum ákvað Víkveiji
að setja endalausan rauðtíma á
þessa málfarsins blindgötu og
beygjubann á gatnamálastjóra að
auki.
xxx
Víkveiji þarf stundum í starfi
sínu að taka ákvörðun um eitt
og annað. Satt að segja hefur það
gengið snurðulítið. En nú er komið
í ljós, að það var einungis vegna
þess, að Víkveiji vissi ekki, hvað
hann var að gera. Og þess vegna
er öldin önnur. Nú kemst Víkveiji
aldrei til þess að taka ákvörðunina,
því allur tíminn fer í ákvörðunar-
fræðina sjálfa. Þessu olli fundar-
boð, sem Víkveija barst í fréttatil-
kynningu og honum varð á að lesa.
Þar sagði orðrétt: „Með ákvörð-
unarfræði er átt við aðferð, sem
sameinar marga þá þætti sem
ákvörðun byggir á. Með því að beita
ákvörðunarfræði á vandamál er
hægt að meta þær aðstæður, sem
taka þarf ákvörðun við, tii að: —
öðlast betri vitneskju um aðstæður
á formlegan en auðskiljanlegan
hátt, — „leysa“ ákvörðunarvanda-
málið, — veita jafnt ákvörðunartak-
anum sem þeim, sem fylgja þarf
ákvörðuninni eftir, næga innsýn og
hvatningu til að taka ákvörðun og
ekki síður hrinda henni í fram-
kvæmd.
Sú staðreynd að einstökum að-
ferðum ákvörðunarfræði er oft
ruglað við fræðin sjálf hefur valdið
ónákvæmni í niðurstöðum ogg
skaðað fagið. Þar sem óvissa er
oftast ráðandi þáttur í ákvörðunar-
vandamálum eru ýmsar sérhæfðar
aðferðir, svo sem ákvörðunartré,
notaðar til að ráða í þessa óvissu.
Því miður hafa margir, þ. á m.
kennarar í faginu, álitið að fræðin
felist bara í því að búa til tré, en
svo er þó ekki. Vissulega eru
ákvörðunartré mikilvæg við lausn
vandamála, þar sem óvissa spilar
stóran þátt, en sé aðferðinni beitt
rétt fer mestur tími og kraftur í
að finna og setja upp hið rétta
vandamál og ekki síður að með-
höndla og túlka niðurstöður."
Eða þannig!
t)