Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
ÍÞRÚntR
FOLK
Earvln Johnson var allt í öllu hjá Lakers.
Spurskaupir
annan miðvörð
Kemst Pétur aftur í lið San Antonio?
■ EINAR Vilhjálmsson var út-
nefndur Frjálsíþróttamaður árs-
ins 1988 á fundi hjá Fijálsíþrótta-
sambandi íslands á miðvikudag-
inn. Einar er í hópi bestu spjótkast-
ara heims og náði hann fjárða besta
árangri í heiminum í ár - kastaði
84.66 m.
■ HELGA Halldórsdóttir úr
KR var útnefnd Frjálsíþróttamað-
ur Reykjavíkur 1988 á aðalfundi
Fijálsíþróttaráðs Reykjavíkur.
Helga setti glæsilegt Islandsmet í
400 m grindarhlaupi í sumar, er
hún hljóp á 56.64 sek. og bætti
gamla met sitt verulega, en það var
57.54 sek.
■ MAGNÚS Jakobsson, stjóm-
armaður úr fijálsíþróttadeild KR
var kosinn formaður Fijálsíþrótt-
aráðs Reykjavíkur á aðalfundi
ráðsins. Magnús tekur við starfi
Jónas Egilssonar, sem gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
■ HOLLENDINGAR sigruðu
eftirminnilega í Evrópukeppni
landsliða í knattspymu fyrr á árinu
og kemur því ekki á óvart að þeir
séu ófarlega á blaði, þegar árið er
gert upp. Tímaritið „World Soccer"
útnefndi í gær Marco Van Basten
knattspymumann ársins og hlaut
hann 43% atkvæða. Ruud Gullit,
-* sem var kjörinn sá besti í fyrra,
hafnaði í öðm sæti og Frank Rij-
kaard í því þriðja. Rinus Michels,
sem stýrði Hollendingum til sigurs
í Evrópukeppninni, var kjörinn
þjálfari ársins og hollenska landslið-
ið var útnefnt besta landslið heims.
■ EYJÓLFUR Sverrisson hef-
ur ákveðið að leika áfram með
Tindastóli í 2. deild knattspyrn-
unnar.
I KR vann Fram 4:1 í úrslita-
leik haustmóts KRR í 1. flokki, sem
fram fór í vikunni.
GOLF
MótíGrafar-
holti á
laugardaginn
Golfmót verður haldið í Grafar-
holti á laugardaginn, 26. nóv-
ember, og er það auðvitað nokkuð
óvenjulegt á þessum árstíma. „Tíðin
er það góð og völlurinn í svo góðu
ástandi að við gátum hreinlega ekki
sleppt því að halda mót núna,“ sagði
Björgúlfur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri GR í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Völlurinn er
iðagrænn, það er nokkur spretta í
honum þannig að við höfum þurft
að slá hann,“ sagði hann.
Ræst verður út frá kl. 10.30 —
eða strax í birtingu ef hún verður
fyrr!
San Antonio Spurs skipti á leik-
mönnum á miðvikudag þegar
félagið lét nýliðann Shelton
Jones fara til Golden State í
skiptum fyrir miðvörðinn Jer-
ome Whitehead. Þetta er annar
miðvörðurinn sem Spurs kaup-
ir á einum mánuði. Whitehead
hefur verið tíu ár í deildinni og
er sterkur varnarmaður. Með
þessum kaupum er sýnilegt að
Pétur Guðmundsson á erfitt
verkefni fyrir höndum að ná
sæti aftur í liðinu þegar hann
verður orðinn góður af meiðsl-
um sínum.
Fjölmargir leikir voru á þriðju-
dag og miðvikudag í deildinni.
A þriðjudag hóf Kareem Abdul-
Jabbar að kveðja körfuknattleiks-
unnendur þegar
Gunnar hann spilaði í
Valgeirsson síðasta sinn í New
skrífar York, en þar er hann
uppalinn. Lið Lakers
átti stórleik og sigraði 110:96.
Worthy var stigahæstur með 29
stig, en það var Earvin „Galdur"
Johnson sem var allt í öllu hjá Los
Angeles með 25 stig, 12 fráköst
og 13 stoðsendingar.
Cleveland keppti í Boston, en þar
hafði liðið ekki unnið í tíu ár eða í
28 leikjum. Boston er ekki sama
liðið án Larry Bird og Cleveland
vann örugglega 114:102. Joe Dum-
ars er enn í banastuði fyrir Detro-
it. Hann skoraði 26 stig fyrir Pist-
ons í sigurleik gegn nýliðum Charl-
otte. í Seattle logaði allt í slagsmál-
um þegar nágrannamir frá Port-
land komu í heimsókn. Eitthvað
voru heimamenn stressaðir því alls
voru dæmdar átta tæknivillur á
Seattle og þrisvar í leiknum brutust
út handalögmál á milli leikmanna.
Portland reyndist sterkara á loka-
sprettinum og vann 125:104.
Á miðvikudag vann New York
örugglega í Detroit með 133 stigum
gegn 111. Var þetta fyrsti sigur
Knicks í Detroit í fjögur ár. Þá tókst
Denver „aðeins“ að skora 106 stig
gegn Dallas í tapleik. Denver hefur
skorað 135 stig að meðaltali í leikj-
um sínum í vetur. Loks er að geta
góðs sigurs hjá San Antonio gegn
sterku'liði Atlanta 119:109.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
1«
„Verð áf ram hjá KR
- segirPéturPétursson, landsliðsmiðherji
„ÉG verð áfram hjá KR hvað
sem öllum sögusögnum líður
og lýk ferlinum í 1. deild hjá
félaginu," sagði Pótur Péturs-
son, landsliðsmiðherji, við
Morgunblaðið í gær.
Pétur hafði samband við blaðið
vegna frétta annars staðar
þess efnis að hann ætlaði að
skipta yfír í Val eða Fram. „Ég
hef hingað til látið sögusagnir sem
vind um eyru þjóta en þegar farið
er að flytja mig á milli félaga f
fjölmiðlum er mælirinn fullur.
Væri ég óánægður hjá KR væri
ég löngu farinn, en ég er ánægð-
ur og hef ekki rætt við önnur
félög. Takmarkið er að hjálpa KR
til að vinna bikar og ég ætla ekki
að gefast upp við það,“ sagði
Pétur.
Gömlu félagar hans á Akranesi
hafa boðið honum á leikmannahóf
á laugardag og hefur Pétur þekkst
boðið. „Ætli sumir verði ekki bún-
ir að skrá mig í ÍA eftir helgi,"
sagði miðheijinn.
Úrslit í IVIBA
Þriðjudagur:
Cavaliers - Boston Celtics...114:102
Detroit Pistons - Charlottc Homets....99:93
Indiana Pacers - Milwaukee Bucks... 105:91
Philadelphia - Washington Bullets. 130:103
LA Lakers - New York Knicks...110:96
Denver Nuggets - New Jersey Netsl41:106
Portland - Seattle Supersonics.125:104
Chicago Bulls - Sacramento Kings.. 114:98
Miðvikúdagur:
New York Knicks - Detroit Pistons. 133:111
Boston Celtics - Charlotte Homets . 114:109
Los Angeles Lakers -Miami Heat.138:91
Philadelphia - Cleveland Cavaliers ...104:91
Mavericks - Denver Nuggets..125:106
Milwaukee - Washington Bullets.... 124:102
San Antonio Spurs- Hawks....119:109
Utah J azz -.Houston Rockets.111:108
New Jersey Nets - Phoenix Suns....l33:129
Seattle - Golden State Warriors.93:85
LA Clippers - Chicago Bulls..105:97
HANDBOLTI / LANDSLIÐIÐ
Danir koma ei
Ekkert verður af landsleik við
Dani S Laugardalshöll á
mánudagskvöld. Fjöldi landsliðs-
manna gaf ekki kost á sér í leik-
inn vegna mikils álags í deildinni
og þar með var málið dautt.
Um skeið hafði verið unnið að
því að koma á umræddum lands-
leik og í fyrradag sögðust Danir
geta komið á mánudag, HSÍ að
kostnaðarlausu, og leikið um
kvöldið. Þorri fslenskra landsliðs-
manna var hins vegar ekki tilbú-
inn í slaginn, þegar á þa'var geng-
ið, og var Dönum tilkynnt á há-
degi í gær að af leiknum gæti
ekki orðið.
HANDBOLTI / BIKARKEPPNIN
Fram og Víkingur
mætast í 1. umferð
FYRSTUDEILDARLIÐ Fram og
Víkings mætast í fyrstu umferð
í bikarkeppni HSÍ í handknatt-
leik. Þetta voru einu liðin í 1.
deild sem drógust saman.
Mikla athygli vakti að A-og B
lið Vals drógust saman í 1.
umferð.
Ljóst er að a.m.k sjö lið úr 2.
og 3. deild komast áfram í
16-liða úrslit. Þijú lið sitja hjá og
fara því beint í 16-liða úrslit en það
eru Stjaman, Haukar og Þróttur.
I kvennaflokki eru tveir leikir á
milli 1. deildarliða, Þór mætir ÍBV
og Stjaman mætir Haukum.
Eftirtalin lið drógust saman í 1.
umferð bikarkeppni HSÍ. í svigan-
um má sjá í hvaða deild liðin leika:
Grótta b (3.) - ÍR (2.)
AFLRAUNIR
ÍBV b (3.) - ÍH (2.)
Þór Akureyri (2.) — Ármann (2.)
Fylkir (3.) - KA (1.)
Selfoss (2.) — KR a (1.)
KR b (3.) - UBK (1.)
Leiftri (Utand.) — Armann b (3.)
Fram (1.) — Víkingur (1.)
Valur b (3.) — Valur a (1.)
UMFN (2.) - FH (1.)
ÍBK (2.) - UMFA (2.)
HK (2.) - ÍBV a (1.)
Haukar (2.) — Grótta a (1.)
1. 1. umferð bikarkeppni HSÍ í
kvennaflokki mætast eftirtalin lið:
Þór Akureyri (1.) — ÍBV (1.)
KR (2.) - Grótta (2.)
Stjarnan (1.) — Haukar (1.)
UMFA (2.) - Fram (1.)
UBK (2.) - ÍBK (2.)
ÍR (2.) — Vikingur (1.)
Þróttur (2.) - FH (1.)
Selfoss (2.) - Valur (1.)
Hjalti og Magnús
sigursælir
Hjalti Ámason varð aflrauna-
meistari í 10 manna keppni,
sem fram fór í Montreal í Kanada
í síðustu viku. Magnús Ver Magnús-
son hafnaði í öðru sæti og saman
sigruðu þeir í keppni fímm liða frá
jafn mörgum þjóðum — íslandi,
Kanada, Bandaríkjunum, Bretlandi
og Sovétríkjunum.
Keppt var í fjórum greinum; 25
kg steinakasti, 5 sm hnébeygju-
lyftu, hjólbömakstri og 200 m
hlaupi með 90 kg sekk á bakinu.
Magnús sigraði í tveimur síðast-
nefndu greinunum, en jafn árangur
Hjalta nægði honum til sigurs.
Verðlaunafé var samtals um
760.00 íslenskar krónur og fengu
þeir félagar saman um 570.000
krónur auk margra bikara. Tom
Magee frá Kanada varð þriðji í
keppninni.
Hjalti Árnason.
KORFUBOLTI / 1. DEILD KV.
IBK á toppnum
LIÐ ÍBK er efst í 1. deild kvenna
í körfuknattleik með 12 stig.
Kefavíkurstúlkurnar áttu að
leika við Hauka á dögunum en
lið Hauka mætti ekki til leiks
og hefur ÍBK fengið stigin í
þeim leik. KR er í öðru sæti
með tíu stig.
Um helgina sigruðu KR-stúlk-
urnar lið Njarðvíkur syðra
40:30 (19:14). Sigríður Guðbjörns-
dóttir var stigahæst í liði Njarðvík-
ur en hjá KR vom
Sigurður Guðrún Gestsdóttir
Hjöríeifsson (14 stig) og Hrönn
skrífar Sigurðardóttir (12)
atkvæðamestar.
Njarðvíkingar mættu einnig ÍR-
ingum um helgina og sigmðu ÍR-
stúlkurnar 42:36. Harpa Magnús-
dóttir var stigahæst hjá UMFN með
17 stig og Linda Stefánsdóttir skor-
aði 12 stig fyrir ÍR.
Þriðji leikur helgarinnar var við-
ureign Grindavíkur og ÍS. Stúdínur
sigruðu, 46:43, í jöfnum og spenn-
andi leik. Hafdís Sveinbjörnsdóttir
var stigahæst hjá Grindavík með
12 stig en Helga Kristín Friðriks-
dóttir hjá ÍS, með 16 stig.
Á þriðjudagskvöld unnu ÍR-
stúlkumar lið UMFG, 60:28, í
Grindavík. Linda Stefánsdóttir var
stigahæst í liði ÍR, skoraði 10 stig.
Hildigunnur Hilmarsdóttir og Þóra
Gunnarsdóttir komu næstar með 8
stig. Ragnheildur Guðjónsdóttir var
stigahæst í liði UMFG með 9 stig
og Svanhildur Káradóttir gerði átta.