Morgunblaðið - 26.11.1988, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988
fclk í
fréttum
Með 34 börn í sinni umsjá
Kvöldverður hjá Migliaccio-§öl-
skyldunni í Bandaríkjunum er
svipaður og annasamasti tími dags-
ins á hamborgarastað. Þau Bob og
Kathie Migliaccio ala upp og ann-
ast hvorki fleiri né færri en 34 böm.
Sjö eru þeirra eigin, 21 bam er
ættleitt og sex em þar að auki í
þeirra umsjá. Flest eru bömin fötluð
á einhvem hátt og em sum þeirra
þroskaheft. Nokkur þeirra hafa orð-
ið fómarlömb glæpamanna og önn-
ur verið beitt kynferðislegri mis-
notkun af foreldmm eða öðmm.
Eigin böm kalla hjónin „heimatil-
búin“ hin em kölluð „krydd í tilver-
una“. „Við tökum að okkur böm
sem enginn annar vill annast. Hér
er alltaf nóg að gera, til dæmis
þarf ég að elda 50 hamborgara í
eina máltíð," segir Kathie. Og Bob
bætir við: „Þetta er hörkuvinna en
fyllilega þess virði."
Bömin em á aldrinum 7 mánaða
til 23ja ára. Sum hin eldri em kom-
in í framhaldsnám, þrátt fyrir fötlun
sína. Til dæmis em tvær þær elstu
í háskóla, önnur er blind og leggur
stund á lögfræði, hin kemst ekki
ferða sinna án hjólastóls og hún er
nú í fjölmiðlafræði. Móðirin starfar
að sjálfsögðu við uppeldið og faðir-
inn leggur einnig til vinnu á þeim
vettvangi. Þau búa í 13 herbergja
íbúð og hljóta þau styrk frá því
opinbera með fötluðu bömunum.
„Við vomm venjuleg fjölskylda
með þrjú böra en vomm húsnæðis-
laus. Bob var mjög bakveikur og
missti vinnuna. Við báðum til Guðs
að við fyndum hús og að Bob fengi
nýja vinnu. Það má segja að við
höfum gert samning við Guð því
við lofuðum sjálfum okkur og al-
mættinu að rættist úr okkar vand-
ræðum skyldum við taka að okkur
hjálparlaus og ástvana böm. Það
var eins og við manninn mælt að
stuttu síðar vomm við komin í hús
og Bob í vinnu og við tókum þijú
lítil böm í fóstur," segir Kathie og
Bob bætir við: „Sum bömin okkar
hafa þurft að þola grimmilega með-
ferð áður en þau vom tekin af for-
eldmnum, en við reynum að bæta
þeim tilvemna, og hlúum að þeim.
Ástin getur verið þrældómur en það
er alltaf nóg til af ást á þessu heim-
ili.“
Það er hjálpast að á þessu heim-
01. Hér er Beverly ekið í stóinum
sinum og einn lítill fær að fljóta
með.
Bob og Kathie með flest börnin sem þau hafa með glöðu geði fórnað sér fyrir.
Morgunblaðið/Bjarr
Flytjendur verksins „Eg er afi minn“ eftir Magnús Jónsson, sem Iesið verður úr á sunnudag, þann 27.
nóvember í Ásmundarsal.
Hér er hópurinn sem flutti verkið samankominn við myndatöku árið 1967.
i \ j&i B \| * m aí
fi 4 jKjgg&'
ÁSMUNDARSALUR
Lesið úr
leikverki eftir
Magnús Jónsson
áT
Asunnudaginn kemur í Ásmundarsal mun hópur leikara lesa úr verk-
inu „Ég er afi minn“ eftir Magnús Jónsson. Leikaramir em þeir
sömu og þátt tóku í sýningu á vegum Grímu árið 1967 á sama verki.
Er þetta liður í dagskrá sem efnt er til í minningu Magnúsar Jónssonar,
kvikmyndaleikstjóra, en hann lést árið 1979.
Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir og leikstýrði hún einnig hópnum
árið 1967, en Siguijón Jóhannsson sér um umbúnað. Flytjendur em: Sig-
urður Karlsson í hlutverki Bróa, Björg Davíðsdóttir sem Systa, Jón Júlíus-
son leikur pabba, Jóhanna Norðfjörð mqmmu, Oktavía Stefánsdóttir sem
gömul kona, Amar Júlíusson leikur sálfræðing, Kjartan Ragnarsson leik-
ur Lillalilla og Þórhildur Þorleifsdóttir er i hlutverki kynnis. Aðstoðar-
menn leikstjóra em þau Viðar Eggertsson og Helga Hjörvar.
COSPER
Þeir eru að koma með kertin á afmælistertuna þína.