Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
Loðnuveiðar:
Norðmönnum leyflt að
veiða 54 þúsund tonn
Fimm norsk skip komin á miðin
N ORÐMONNUM hefur verið
leyft að veiða 54 þúsund tonn af
loðnu í íslensku lögsögunni og
síðdegis i gær voru fimm norsk
loðnuskip komin á miðin, að sögn
Landhelgisgæslunnar. Þetta er í
fyrsta skipti sem norsk skip fá
að veiða loðnu í islensku lögsög-
unni í desember en þau hafa
fengið að veiða loðnu við landið
í janúar síðastliðnar 3 vertíðir. Á
Flugmenn
tilþjálfun-
ar á 737
FLUGLEIÐIR munu senda
nokkra flugmenn til Seattle
þann 1. mars á næsta ári til að
læra á hinar nýju Boeing 737
flugvélar sem félagið hyggst
kaupa.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, eru hjá
félaginu nokkrir flugmenn sem
flogið hafa 737 þotum Amar-
flugs, en stýri- og tækjabúnaður-
inn i þotunum sem Flugleiðir ætla
að fá er ekki eins og í þeim, þann-
ig að nauðsynlegt er að senda
menn utan til þjálfunar.
miðnætti aðfaranótt mánudags-
ins höfðu íslensku skipin veitt
225.070 tonn af loðnu frá ver-
tíðarbyrjun en 216.700 tonn á
sama tíma i fyrra.
Síðdegis í gær, mánudag, höfðu
þessi skip tilkynnt um afla: Bergur
300 tonn, Beitir 1.250, Sigurður
1.350, Skarðsvík 650, Huginn 580,
Súlan 750, Svanur 500, Húnaröst
620, Höfrungur 880, Keflvíkingur
500, Þórshamar 450 og Sjávarborg
780.
Á sunnudag tilkynntu þessi skip
um afla: Börkur 1.200 tonn, Hólma-
borg 1.430, Björg Jónsdóttir 540,
Þórshamar 600, Hilmir II 580,
Guðrún Þorkelsdóttir 720, Fífíll
650, Valaberg 500, Helga II 1.000,
Grindvíkingur 950, Þórður Jónas-
son 600, Gullberg 620, Harpa 620,
Víkurberg 600 og Erling 700.
Á laugardag tilkynntu þessi skip
um afla: Svanur 680 tonn, Bergur
530, Erling 700, Húnaröst 620, Jón
Kjartansson 1.100, Guðmundur
900, Víkurberg 580, Huginn 590,
Sighvatur Bjarnason 690, Kap II
700, ísleifur 730, Höfrungur 780
og Sjávarborg 800.
Síðdegis á föstudag tilkynntu
þessi skip um afla: Guðmundur
Ólafur 600 tonn, Helga II 830,
Gullberg 600, Sunnuberg 650 og
''karðsvík 640.
Haftiarflörður:
19 ára piltur lést er
bíll lenti í höftiinni
19 ÁRA piltur, Kjartan Ragnar
Kjartansson, lést aðfaranótt
sunnudagsins þegar fólksbíl, þar
sem hann var farþegi í firam-
sæti, var ekið íram af bryggju í
norðurhöfninni í Hafiiarfirði.
Glerhált var vegna ísingar þegar
slysið varð. Auk Kjartans heitins
og ökumannsins, sem er 18 ára
gamall, voru fjórir í bílnum þegar
hann fór fram af bryggjunni.
Fimm komust klakklaust úr
bílnum og á þurrt land en kafarar
fundu lík Kjartans í bflnum.
Kjartan Ragnar Kjartansson var
fæddur 3. maí 1969. Hann bjó að
Dalseli 13 í Reykjavík og stundaði
nám við Fjölbrautarskólann í Breið-
holti.
4 km
-I-
Suáur
Kort sem Vegagerðin hefiir gert af botni
Hvalflarðar við Laufagrunn samkvæmt
endurvarpsmælingunum i sumar sýnir
að dýpra er niður á klapparbotn en áður
var talið, eða tæplega 100 metrar á boti
„dalsins". Ofan á klapparbotninum er
hins vegar 70 metra set sem villt hefiir
um fyrir mönnum.
Norður
0 m
20
40
60
80
100
Frumrannsóknir á göngum undir Hvaigörð:
Göngin þurfa að vera lengri
eða brattari en áður var talið
EKKERT hefur enn komið
fram við rannsóknir á jarð-
fiæði Hvalfjarðar sem útilokar
gerð neðansjávarganga. Við
rannsóknir í sumar kom í ljós
að dýpi á klapparbotn er þó
meira en búist hafði verið við,
sem þýðir að göngin þurfa ann-
aðhvort að vera lengri eða
brattari en áður var talið.
í framhaldi af upplýsingum
svokallaðrar jarðganganefndar
um hagkvæmni ganga undir
Hvalfjörð var ákveðið að gera
hönnunar- og rannsóknaáætlun
fyrir verkefnið og á vegaáætlun
fyrir þetta ár var veitt 2 mijljónum
kr. til byijunarrannsókna. í sumar
gerðu starfsmenn Hafrannsókna-
stofnunar endurvarpsmælingar
utarlega í Hvalfirði, á þeim stöð-
um sem mest hafa verið nefnd í
sambandi við jarðgangagerð.
Dýptarkort sem unnið er upp úr
þessum mælingum sýnir að dýpra
er niður á klapparbotn norðan
megin í firðinum en áður var tal-
ið. Að sunnanverðu er tiltölulega
Að stytta sér
leið undir Hvalfjörð
grunnt niður á klöpp, eða 5 til
30 metrar og yfírborðið er óreglu-
legt. Hinn eiginlegi fjörður tekur
síðan við og er sem U-dalur, um
1,5 km breiður, með brattar hlíðar
og nokkuð flatan botn. Við Laufa-
grunn og Hnausasker, sem taldir
eru vænlegustu jarðgangastaðim-
ir eru 90-100 metrar niður á
klöpp, en grynnra utar í fírðinum.
Ofan á klapparbotninum er set,
60-80 metra þykkt.
I lok skýrslunnar um rannsókn-
imar í sumar segir að til ákvörð-
unar um leiðir fyrir jarðgöng und-
ir Hvalfjörð þurfi mun umfangs-
meiri og dýrari rannsóknir, meðal
annars hljóðhraðamælingar,
kjamabomn og jarðfræðikort-
lagningu á strandsvæðum og
skerjum. Þá þurfí einnig að gera
umferðarrapnsóknir og fleira áður
en kemur að ákvörðun um lausnir
eða framkvæmdir. ■
Nýjustu hugmyndir eru um
göng í mynni HvalQarðar, milli
Tíðarskarðs og Innri-Hólms.
Þar voru rannsóknirnar fram-
kvæmdar í sumar. Slík göng
myndu stytta leiðina milli Akra-
ness og Reykjavíkur um 61 kíló-
metra.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ:
Kaupmáttur hefur minnk-
að um 12-16% frá síðasta ári
Vandinn liggur í flármagnskostnaði, ekki launakostnaði
Kjartan Ragnar Kjartansson
ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands, segir
að kjaraskerðing sé engin lausn
á vanda sjávarútvegsins og um-
mæli Steingrims Hermannsson-
ar, forsætisráðherra, um að
launakostnaður í sjávarútvegi og
í heiid sé of hár séu ekki byggð
á réttum forsendum. Vandinn sé
Dollar lækkar en
pund og jen hækka
GENGI Bandarikjadollars hefur
lækkað allnokkuð að undanförnu
og hefur samtals lækkað um
6,356% siðan gengi krónunnar var
fellt 28. september sfðastliðinn. Á
sama tima hefur gengi Serlings-
pundsins hækkað um 3,92% og
japanska jensins um 3,341%.
V-þýska markið hefur einnig
hækkað um 2,74% á þessum tíma.
28. september var kaupgengi dollar-
ans 48,14 krónur, er nú 45,08. Pund-
ið VáUá Kf. -8r,089; er rtú S 84;268/
Jenið hefur hækkað úr 0,35873 í
0,37104 krónur og markið úr
25,6173 í 26,1675 krónur.
Þessar gengisbreytingar hafa að
mestu haldist i hendur þannig að
aðrir gjaldmiðlar hafa hækkað um
leið og dollarinn lækkar, samkvæmt
upplýsingum frá Seðlabanka íslands.
Þvi veldur svokölluð gengisvog, sem
vegur meðalgengi íslensku krónunn-
ar og hefur það lítið breyst. Að und-
anfomu hefiir dollarinn fallið tölu-
' véff öghÍniVgjárdmiðlárhrrhækkáð.'
fyrst og fremst sá að fjármagns-
kostnaður fiskvinnslufyrirtækja
hafi stóraukist og sé nú álíka hár
og launakostnaður þeirra. Ás-
mundur sagði að kaupmáttur nú
væri um 12-16% lægri en hnnn
var í fyrra ef samdráttur í yfir-
vinnu væri reiknaður með.
„Það er ekki þjóðin sem er gjald-
þrota, heldur kjaraskerðingarstefn-
an. Það skilar ekki árangri að velta
vandanum áfram með bráðabirgða-
lausnum af því tagi sem menn hafa
verið með nú að undanfömu," sagði
Ásmundur. Hann sagði að bæta
þyrfti hagstjómina og bæta skilyrði
atvinnurekstrarins með vaxtalækk-
un, skynsamlegri fjárfestingu, og
hagræðingu í rekstri. í skýrslu
Þjóðhagsstofnunar kæmi fram að
raungengi hefði alls ekki verið of
hátt á undanfömum ámm ef miðað
væri við laun, þannig að það væri
ekki kaupið sem hefði farið upp.
Kaupmáttur fískvinnslutaxta
hefur lækkað um 10% frá því í
apríl eftir samningana, að sögn
Asmundar. Við þetta bættist að
vinnutími væri að meðaltali tveimur
tímum styttri en á síðasta ári, sem
' þýðdf ~um’ ‘6% sámdrátt * f "tekjúm. ’
Þessi tekjusamdráttur, sem væri
um 12-16%, væri nú að koma fram
meðal annars í samdrætti í verslun
og þjónustugreinum. Ef það ætti
að bregðast við vandanum nú með
kjaraskerðingu væri rétt að minna
á að reynslan frá 1983 sýndi að
kjaraskerðing yki á ójöfnuð. Þá
myndi áframhaldandi tekjusam-
dráttur koma fram í minnkandi
vinnu og í þeirri stöðu sem við
værum þegar komin ’í þýddi það
verulega hættu á alvarlegu atvinnu-
leysi.
Lést af
slysförum
LÁTINN er af slysförum Dan-
íel Williamsson, 52 ára gamall
ljósameistari hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Þann 20. fyrri mánaðar lenti
bíli hans út af vegi við Köldukvísl
í Mosfellsbæ og þar hlaut Daníel
þá áverka, sem drógu hann til
dauða.
Daníel Williamsson lætur eftir
sig eiginkonu, Kristínu Egilsdótt-
ur, uppkomna dóttur þeirra og
"fjögúr" sfjuþborn’ .
. Daníel Williamsson