Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 14

Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 SUZUKI UMBOÐIÐ H/F Skútahrauni 15, S 65-17-25 SUZUKI 1989* TS50X NÝ RAFMAGNS KEÐJU SÖG 14" SVEÐJA 1200 WÖTT KR. 8.950.00 HOMELITE H F= Armúlaii Tilvalin jólagjöf fyrir sumarbústaða- eigendur. HURÐIRHF Skeifan 13-108 Reykjavik-Sími 681655 Enn af Mj ófirðingum Békmenntir Sigurjón Björnsson Vilhjálmur Hjálmarsson: Mjófirðingasögur. Annar hluti. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Reykjavik 1988, 490 bls. Á síðastliðnu ári kom út fyrsti hluti Mjófirðingasagna Vilhjálms Hjálmarssonar. í því bindi sagði einkum frá forfeðrum höfundar auk þess sem fjallað var um ættaróðalið Brekku í Mjóafírði og ömefni þar. Nú heldur höfundur enn áfram sögu sinni af Mjófirðingum og fjall- ar hann skipulega um byggð og mannlíf í Mjóafirði síðustu hundrað árin eða svo. Stígur hann nú út fyrir sinn þrengsta frændgarð. í formála skýrgreinir höfundur hlut- verk sitt næsta hógværlega: „safna saman og gera aðgengilega nokkra þá fróðleiksmola um sveit hans og sveitunga sem eru innan seilingar — reglulegar sögurannsóknir ræður hann ekki við“. Satt má þetta vera, en margir eru þá molamir og sum- ir hverjir býsna góð munnfylli! Höfundur skýrir frá því að Mjóa- fjarðarhreppur greinist í fimm byggðarlög: 1. Suðurbyggð sem nær yfir suðurströnd íjarðarins. 2. Fjarðarbýli sem ná yfir byggðina fyrir botni fjarðar. Er það jörðin Fjörður og býli í landi hennar. 3. Norðurbyggð er norðurströndin að Steinsnesi, sem er utarlega á ströndinni. 4. Brekkuþorp er mið- svæðis að norðanverðu og klýfur því Norðurbyggð. 5. Dalakálkur kemur svo nyrst og austast allt að Dalatanga. Höfundur byijar frásögn sína austast að sunnan á jörðinni Krossi og heldur vestur eftir suðurströnd. Tekst honum í þessari vænu bók að ljúka Suðurbyggð og Fjarðarbýl- um. Telur hann sig þá um það bil hálfnaðan með byggðasöguna. Það er því vissulega nóg efni í eina bók enn. Alls er fjallað um einar 20 jarðir og býli og ábúendur þeirra marga, auk kafla sem nefnist Norðmanna- þáttur og greinir frá síldveiðum Norðmanna í Mjóafírði fyrir síðustu aldamót og hvalveiðum þeirra 1901—1913. Sérstakur þáttur er og um Svein Ólafsson alþingis- mann í Firði. Vilhjálmur hefur þann háttinn á að lýsa fyrst hverri jörð, lands- háttum, gögnum og gæðum. Síðan kemur skrá um ábúendur, húsmenn o.þ.h. Nær sú skrá mislangt aftur eftir atvikum. Skilst mér að skráin sé fengin úr „Bændatali Sigurðar Helgasonar“, sem varðveitt er í handriti í Landsbókasafni. Að því búnu velur höfundur einstaka ábú- endur til ítarlegri umfjöllunar. Eru það einkum menn frá síðari hluta 19. aldar og fram á þessa öld. Fer höfundur þar eftir ýmsum heimild- um, munnlegum, rituðum og per- Vilhjálmur Hjálmarsson sónulegum kynnum. Dijúgar hafa honum orðið til fanga hinar knapp- orðu dagbækur Mjófirðingsins Benedikts í Fjarðarkoti. Sögð eru deili á ábúendum og fjölskyldum þeirra og hvaðan þeir eru komnir ef aðfluttir eru. Starfssaga er rakin og helstu viðfangsefni, svo og sitt hvað um fjölskylduhagi og efnahag. Öll er umfjöllun Vilhjálms skýr og skilmerkileg, vel skrifuð og þægileg aflestrar. Hann er hlýlegur í um- sögnum sínum og umtalsgóður. Svo mjög að manni finnst naumast ein- leikið hversu vammlausir Mjófírð- ingar hafa verið allir sem einn. Sumir þættir eru skemmtilegir af- lestrar, eins og t.a.m. Norðmanna- þátturinn (sem auk þess er merkt innlegg í atvinnusögu landsmanna) og þátturinn af merkismanninum Sveini í Firði. Hér er að fínna marga eftirminnilega örlagaþætti og íhug- unarverðar frásagnir af harðri bar- áttu og hetjulund. Þegar ég hóf að lesa Mjófirðinga- sögur var ég alls ókunnugur Mjóa- firði og Mjófirðingum. Nákvæm leiðsögn Vilhjálms Hjálmarssonar hefur valdið því að nú finnst mér ég vera orðinn vel viðræðuhæfur um byggð og mannlíf a.m.k. á suð- urströndinni og norður yfír botn. Hlakka ég til að bæta við þann fróð- leik. Þess má geta að nú eru allar jarðir og býli komin í auðn á þessum slóðum. Þar er því ekki lengur neitt mannlíf að fínna og því ekki seinna vænna að bjarga á land því sem bjargað verður. Bersýnilega er margt þegar komið í glatkistuna. Vilhjálmur Hjálmarsson vinnur því hér hið þarfasta verk, sem ólíklegt er að aðrir gætu unnið með þessum hætti. Dómbær er ég ekki á ná- kvæmni í meðferð staðreynda. Þar verða því aðrir að koma til skjala. Mikill fjöldi mynda prýðir þessa bók. Þykist ég vita að tafsamt hafi reynst að grafa sumar þeirra upp. Þá er fremst í bók kort yfir Mjóa- ijörð. Allur frágangur bókar er piýðilegur og nafnaskrá er í bókar- lok eins og byijar í riti sem þessu. Börn og bænir Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Samið og safiiað af Sigurði Páls- syni. Utlit: Búi Kristjánsson. Ljósmyndir: Búi Kristjánsson, MargTét K. Sigurðardóttir, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Pálsson. Prentun: Prenttækni. Útgefandi: Almenna bókafélag- ið. Það var virkilega gaman að fá þessa undurfögru bók í hendur. Þar kemur fyrst til hvatinn að gerð hennar: Virðingin fyrir börnum, löngunin til þess að rétta þeim eitt- hvað sem hald er í, benda þeim á, að við erum aldrei ein í amstri okk- ar og önn, sorg okkar og gleði. Yfir okkur öllum vakir kærleikans Guð með eyrað sitt, aldrei of upp- tekinn, þreyttur eða fjarlægur, að hann heyri ekki bænamál okkar á jörðu. Nú í annan stað kemur að ljós- myndaramir og sá sem útliti réð hafa verið einkar fundvísir á mynd- Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Sigurður Á. Friðþjófsson: tslensk- ir utangarðsunglingar Vitnisburður úr samtímanum Útg. Forlagið 1988 ÚTTEKT á unglingum sem eiga við margs konar vandamál að stríða í stressuðu nútímaþjóðfélagi; það er ekki vitlausari hugmynd en hver önnur. Það getur verið að við ein- blínum um of á vandamálin sem eins konar fyrirbrigði og hirðum síður um að leita einhverrar heildarlausn- ar. Kannski sú lausn sé ekki til, þegar allt kemur til alls. Unglingar hafa alla tíð verið sjálfum sér og öðrum erfíðir á hinum svokölluðu þroskaárum, sem fullorðna fólkið minnist síðar með angurværð og talar um áhyggjulausu árin. Gerir stundum harla lítið úr umbrotunum. efni, ljóða hreinlega með myndum úr lífí bama og af bænabréfum þeirra. Svo kemur í þriðja stað, að út- gáfan vandar verk sitt, virðist í engu spara, undirstrikar þá gleði- legu þróun sem orðið hefir á útgáfu bamabóka síðustu ára. Það er mun- ur á, eða þá hroðvirknin og pappírs- afgangamir sem bömum þóttu hæfa hér fyrrum. Söfnun Sigurðar til verksins hefir, að mínu viti, tekizt vel. Slíkur dómur hlýtur þó ætíð að vera einstaklingsbundinn, kær verður bæn í huga bams, ekki endilega af listilegum orðum, heldur miklu fremur af einlægninni, sem angar af þeim, og hver það var sem þuldi þau við eyra. Sigurður leitar víða fanga og dregur það fram, er hjarta hans sjálfs hefír snert. Það eitt skiptir máli. Umfjöllun hans um Faðir vorið er vel unnin, eg man, hve illa mér gekk, sveitastráknum, að skilja þetta með nautin. En æska mín vakti líka þá spum, hvort ekki hefði betur verið þýtt, ef í bæninni stæði: „leið þú oss í freistingun- um“? Eg varpa þessu svona fram öðmm til umhugsunar. Af þessu Þau verða sjarmerandi í endurminn- ingunni. En hvað sem því líður eru vanda- mál unglinga, og kannski einstakl- ingsins hvers og eins, langtum flókn- ari og óviðráðanlegri en áður. Það er ekki nóg með að nú þurfi að glíma við umhverfí og vímuefni á miskunn- arlausari hátt en áður, er ekki ein- hvers staðar spumingin um hvort manneskjan eigi sér framtíð í heim- inum, eða hvort hún er að eyði- leggja hann. Að vísu virðist sú spuming ekki leita mikið á ungling- ana sem Sigurður Á. Friðþjófsson talar við í bókinni. Krakkamir leiðast meira og minna út í ruglið fyrirtilviljun, þrýst- ings frá félögum, vanlíðunar vegna afleitra heimilisástæðna. Það verður ekki séð, að skýringamar sem þau fínna á framgöngu sinni séu neitt nýstárlegar heldur, stundum er skuldinni skellt á foreldra, skilnað þeirra eða ekki skilnað, eða ein- leiðir líka það, að eg sakna svara við spumum bama um það, hvers vegna lét Guð mig fæðast heilbrigð- an, en Jón Jónsson, vin minn, sjúk- an? Eða er það þá ekki hann sem hefir allt vald í hendi sér? Þessa sakna eg, því það er svo margur í heimi hér, sem er Guði reiður fyrir það, sem hann er ranglega sakaður um, og sendi son sinn Krist, til þess að frelsa okkur frá. En hér er eg kominn útfyrir efni bókar, en það er þá líka dæmi þess, að hún Sigurður Á. Friðþjófsson hveija heimilisharmleiki. Umhverfið nánasta er í miðpúnkti heims þeirra. Þessi bók er skilmerkileg og vakti mér löngunar að fá meira að heyra. Eftirmálinn, leiðbeiningar til ástvina barna, er mjög vel saminn, vegvísir, og svarar mörgum spum- um uppalandans. Prófiirk er vel lesin, þó ekki al- veg villulaus og á ég þar ekki við stafsetningu á bráðsmellnum bréf- um bama. Niðurstaðan er þessi: Holl lesn- ing, vönduð, fögur bók, sem ætti að vera í nálægð sem flestra bama. Hafíð heila þökk fyrir. greinargóð og læsileg. Sigurður vel- ur viðmælendur sínar af skilningi og mætti ég segja smekkvísi, þama eru„ fulltrúar" hvers konar utan- garðsunglinga, þeirra sem hafa ánetjast víni og dópi, hommans, les- bíunnar, unglingsins sem lagður er í einelti — og er raunar sá kafli sem mér varð hvað hugstæðastur — ungl- ingsins sem fatlast, unglingsins sem sætir kynferðislegri áreitni. Á öllu er nokkuð að græða og virðingarvert að höfundur reynir að hafa hemil á unglingunum og lætur þá ekki komast upp með að vaða elginn hömlulaust, vinsar úr og rit- stýrir. Það er rétt sem höfundur segir í formála að unglingamir virðast fús- ir að tjá sig og hvort sem höfundur á þar mestan hlut að máli, eða ekki, þá koma þau máli sínu ágætlega til skila, svo að áhuga og samúð vek- ur. Og kannski meiri skilning. Að ekki væri nú minnst á ef aðgerðir, aðrar en yfirborðssnakk fylgdi. Þörf bók og skýringakaflamir allir til upplýsinga og fróðleiks. Á því er full þörf. Hvað svo, unglingnr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.