Morgunblaðið - 06.12.1988, Qupperneq 27
t
greindu tagi. Vitaskuld geta menn
ekki látið slíkt á sig fá heldur er
nauðsynlegt í ræðu og riti, að sýna
þjóðinni fram á eðli þessa áróðurs,
sem er undir öllum kringumstæðum
í því fólgið, að verja sjónarmið
stjómlyndis og opinberrar forsjár-
stefnu, sem nu gengur undir nafninu
„félagshyggja".
Ekkert af þessum áróðri stenst
nánari skoðun. Hvers vegna skyldu
t.d. vestrænar stjórnunaraðferðir og
vestrænt hagkerfi ekki eiga við á
Islandi? Hvað þarf þjóð að vera stór
til að geta tileinkað sér vestrænar
aðferðir við hagstjórn? Vill nokkur
Islendingur fremur, að þjóðin verði
hneppt í fjötra „austræns hagkerfis“
sem öllum er ljóst, að hefur beðið
stórkostlegt skipbrot í ríkjum sósíal-
ismans? A slíkt hagkerfi eitthvað
betur við hjá smáum þjóðum en stór-
um? Nei, við vitum það öll, að aftur-
hvarf til kreppuhagkerfis Framsókn-
arflokksins er tímaskekkja. Slíkt
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
afturhvarf stríðir gegn straumi ald-
arinnar í löndunum í kringum okkur
þar sem kall tímans er hvarvetna á
aukið frjálsræði. Við myhdum drag-
ast langt aftur úr vestrænum þjóðum
ef viðurkenndum vestrænum hag-
fræðikenningum verður fórnað á alt-
ari ríkisafskipta. Það hlýtur að fara
fyrir mönnum, sem reyna slíkt, eins
og fór fyrir Hákoni jarli en um örlög
hans orti Grímur Thomsen með svo-
felldum hætti:
Ef stríða menn gegn straumi aldar,
sterklega þótt vaði seggir,
yfir skella unnir kaldar,'
engir brekann standa leggir,
aldar boðar áfram halda,
allir fomir hrynja veggir;
Hákoni varð það helzt að falli,
að hlýddi hann ekki tímans kalli.
Hrakspár andstæðinga viðreisn-
arstjómarinnar reyndust haldlausar
í ljósi reynslunnar. Hið sama á við
um áróður andstæðihga frjálshyggj-
unnar sem snúa út úr henni og rang-
túlka hana. Sá áróður á ekki við rök
að styðjast. Vandinn, sem við er að
etja í íslensku efnahagslífi, er ekki
fijálshyggjunni að kenna heldur ráð-
stöfunum misviturra stjómmála-
manna svo og eyðslunni og óhófinu
á öllum sviðum. Allt slíkt viðgengst
vegna þrýstings hagsmunahópa og
vegna stjórnlyndisins. Það verður
að koma í veg fýrir að vinstri mönn-
um takist að koma á því kerfi sem
hér var við lýði fyrir daga viðreisnar-
innar. Það gæti orðið dýrkeypt fyrir
þjóðina ljúki þessu stefnumóti við
fortíðina þannig að Hermannssyni
verði það að falli, að hlýða ekki
tímans kalli.
Höfundur er lögfrædingur og
varaformaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna. Greinin er
byggð á erindi sem höfundur flutti
á ráðstefhu, sem utgáfiifélagið
Frelsið gekkst fyrir.
Heilbrigðisráðuneytið:
Fjölmiðlar aug-
lýsi ekkijólaglögg
Heilbrigðisráðuneytið hefur
sent til Qölmiðla beiðni um að
ekki verði birtar auglýsingar um
jólaglögg framvegis. í bréfi ráðu-
neytisins segir að þótt ekki sé
tekið fram í auglýsingum um jóla-
glögg hvort um áfengan drykk
eða óáfengan sé að ræða, hafi þær
venjur myndast um glöggið að
ekki verði annað séð en að hér
séu áfengisauglýsingar á ferð-
inni. Hvers konar auglýsingar á
áfengi eru bannaðar með lögum.
„Þetta glöggsull hefur oft leitt til
ölvunaraksturs um jólin og við viljum
því benda á að það sé óheimilt að
auglýsa jólaglögg. Þetta er fyrir-
byggjandi starf hjá okkur eins og
venjulega," sagði Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri Heilbrigðisráðu-
neytisins.
Páll sagði að samkvæmt skilningi
Heilbrigðisráðuneytisins væri allt,
sem drægi athygli fólks að áfengi,
áfengisauglýsing. Þó væri til dæmis
heimilt að auglýsa bjór, 'sem hefði
minna en 2,25% af áfengi inni að
halda.