Morgunblaðið - 06.12.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
33
Fjölmenni var á bókasýningu Félags íslenskra bókaútgefenda i Norræna húsinu um helgina.
Fjölmenni á bókasýningu
340 bókatitlar geftiir út fyrir jólin
FJÖLDI fólks lagði leið sína á
bókasýningu Félags íslenskra
bókaútgefenda í Norræna húsinu
um helgina. Sýningin bar yfir-
skriftina „Bókin er og verður“,
og var sett upp til að kynna
starfsmönnum bókaverslana og
fiilltrúum bókasafiia bókaútgáf-
una í ár, en einnig var viðauki
við sýninguna ætlaður almenn-
ingi.
Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar
formanns Félags íslenskra bókaút-
gefenda var mikil sala á bókum í
verslunum fyrir síðustu helgi, og
taldi hann að bóksalan væri komin
vel í gang fyrir jólin. Hann sagði
að fy'öldi bókatitla á markaðnum nú
væri í kringum 340 talsins, og
væru flestar bækumar þegar komn-
ar út.
Mál Magnúsar Thoroddsen:
Sjö mál endurflutt í Hæstarétti
SJÖ MÁL þarf að endurflytja í
Hæstarétti, þar sem Magnúsi
Thoroddsen var fyrir helgina
formlega vikið úr embætti
Ríkisendurskoðun:
„VIÐ teljum að allar upplýsingar
um áfengiskaup handhafa for-
setavalds liggi fyrir og því sé
ekki ástæða til könnunar af okk-
ar hálfu,“ sagði Halldór V. Sig-
urðsson, ríkisendurskoðandi.
Haft var eftir Halldóri Ásgríms-
syni, dómsmálaráðherra, í frétt-
um að réttast væri að ríkisendur-
skoðun kannaði þessi mál.
Á föstudag sendi fjármálaráð-
herra frá sér upplýsingar um áfeng-
iskaup handhafa forsetavalds árin
hæstaréttardómara, á meðan
dómstólar fjalla um kaup hans,
sem handhafa forsetavalds, á
áfengi á kostnaðarverði.
1982-1988. „Þær upplýsingar, sem
nú nafa komið fram um þessi áfeng-
iskaup, eru komnar frá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins og ég tel
enga ástæðu til að rengja þær,“
sagði Halldór. „Þess vegna tel ég
ástæðulaust að ríkisendurskoðun
kanni þetta einnig. Hins vegar hef
ég ekki heyrt frá dómsmálaráð-
herra eftir að þessar upplýsingar
lágu fyrir, svo ég veit ekki hvort
hann hyggst snúa sér til okkar
vegna þessa."
Magnús sat sem dómari í málun-
um sjö, en Hæstiréttur hafði ekki
kveðið upp dóma í þeim áður en
honum var vikið úr starfi. Sam-
kvæmt upplýsingum Hæstaréttar
verða málin sjö endurflutt í þessari
viku og næstu og verður málflutn-
ingi í þeim öllum lokið 16. desem-
ber. Um er að ræða þrjú opinber
mál og fjögur einkamál. Vegna
þessa færist málflutningur í fimm
málum fram yfir áramót og störf
Hæstaréttar tefjast af þessum sök-
um um eina viku.
Haraldur Henrýsson sakadómari,
sem hefur verið settur hæstaréttar-
dómari undanfarna mánuði, átti að
láta af því starfi þann 1. desember,
þegar Þór Vilhjálmsson kom aftur
til starfa eftir frí. Vegna brott-
hvarfs Magnúsar Thoroddsen hefur
Haraldur verið settur hæstaréttar-
dómari til áramóta. Í dag verður
að öllum líkindum skipaður nýr
hæstaréttardómari, í stað Guð-
mundar Skaftasonar, sem lætur af
embætti um áramót og er Haraldur
Henrýsson meðal umsækjenda.
Astæðulaust að kanna
áfengiskaupin frekar
Graskögglam-
ir duga út árið
segir Páll Ólafsson í Brautarholti
GRASKÖGGLAVERKSMIÐJUR
sem eru í einkaeigu eiga tölu-
verðar birgðir af graskögglum,
að sögn Páls Ólafssonar í Braut-
arholti. Segir Páll það alrangt
að m'kill skortur sé á kögglum,
eins og haft var eftir fram-
kvæmdastjóra graskögglaverk-
smiðjunnar i Gunnarholti i Morg-
unblaðinu um helgina.
Páll segir að framleiðslan í sum-
ar hafi verið minni en menn áætl-
uðu vegna minni sprettu. En miðað
við eðlilega sölu ættu graskögglarn-
ir að duga út sölutímabilið. Því
væri ljóst að engin þörf væri á að
ríkið byijaði að vasast í grasköggla-
framleiðslu að nýju.
Málverkauppboð:
70 myndir seldust
hjá Gallerí Borg
SJÖTÍU myndir seldust á 17.
málverkauppboði Gallerís
Borgar, sem haldið var í sam-
ráði við Listmunauppboð Sig-
urðar Benediktssonar á Hótel
Borg á sunnudaginn, en alls
voru 87 myndir boðnar upp.
Á málverkauppboðinu fékkst
hæsta verð fyrir lítið olíumátverk
eftir Kjarval, en það seldist fyrir
170 þús. krónur, og olímálverk
eftir Ragnheiði Ream seldist á
160 þús. krónur.
Haraldur Blöndal uppboðshaldari sést hér leita eftir boðum í
eitt verkanna á málverkauppboði Gallerís Borgar á sunnudaginn.
Listmunauppboð Klausturhóla:
Kjarvalsmynd
fór á 420 þúsund
Á listmunauppboði Klausturhóla
sem haldið var á Hótel Sögu á
sunnudaginn fékkst hæst verð
fyrir málverk eftir Jóhannes
Kjarval, en það seldist á 420 þús.
krónur. Alls voru 68 málverk boð-
in upp á þessu listmunauppboði
Klausturhóla og seldust þau öll.
Á uppboðinu seldist mynd eftir Jón
Stefánsson á 270 þús. krónur og
tvær myndir eftir Júlíönu Sveins-
dóttur seldust á 170 þús. krónur
hvor. Þá seldist mynd eftir Þorvald
Skúlason á 95 þús. krónur, og mynd
eftir Kára Eiríksson seldist á 90
þús. krónur.
DFGoodrich
Á: Útborgun aðeins 20%
B: Eftirstöðvar á U mánuðum
LT225/75R16 33x11,5R16LT
LT 215/75R15 32xll.50R15LT 235/85R16LT
LT235/75R15 33xl2-50R15LT 31xlQ.50Rl6.5LT
30x9.50Rl5LT 35xl2.50R15LT 33xl2.5ÓRl6.5LT
31xl0.50Rl5LT 255/85R16LT 35xl2.5Rl6!5LT
AMRTsf
Jeppadekkin sem duga.
Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188.
(írgainn^JíiúcJjdii
itálliii .fcílliJUli V* ölíliyii i