Morgunblaðið - 06.12.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
35
Hinn nýkjörni forseti Venesúela, Carlos
Andes Perez, lýsir yfir kosningasigri
sínum á sunnudag. Perez er 66 ára að
aldri og var forseti landsins á árunum
1974-1979. Á innfelldu myndinn fagna
stuðningsmenn forsetans á götum í
Caracas.
Forsetakosningar í Venesúela:
Yfírburðasigur Perez
Caracas. Reuter.
CARLOS Andres Perez bar sigur
úr býtum í annað sinn í forseta-
kosningum í Venesúela sem fóru
fram á sunnudag. Perez, sem er
leiðtogi Baráttusamtaka lýðræð-
issinna, AD, var lýstur ótvíræður
sigurvegari kosninganna þegar
keppinautur hans um forseta-
embættið, Eduardo Fernandez,
leiðtogi Jafinaðarmannaflokksins
játaði ósigur sinn á sunnudag.
Perez hlaut 54.1% atkvæða en
en Fernandez 33.7%. Perez er
fyrsti forseti Venesúela sem
gegnir embættinu í annað sinn.
Perez sagði þegar hann hafði
verið lýstur sigurvegari að hin nýja
ríkisstjórn myndi koma á umbótum
í efnahagsmálum, uppræta atvinnu-
leysi og renna styrkari stoðum und-
ir gjaldmiðil landsins. Hann sagðist
jafnframt ætla að draga úr af-
borgunum á erlendum skuldum um
helming, en þær nema 30.3 mill-
jörðum dollara eða sem samsvarar
um 1.400 milljörðum ísl. kr. Ve-
nesúela er fjórða skuldugasta þjóðin
í Suður-Ameríku.
I kosningabaráttunni hét Perez
því að hann myndi efna til fundar
leiðtoga OPEC-ríkjanna og knýja á
um olíuverðhækkanir. Venesúela er
á meðal átta stærstu olíuútflutn-
ingsríkja heims.
Einnig var kosið til þjóðþings í
Venesúela á sunnudag og sam-
kvæmt kosningaspám hljóta Bar-
áttusamtök lýðræðissinna 48% at-
kvæða, Jafnaðarmannaflokkurinn
26.3% og Sósíalistahreyfingunni
var spáð 10.8% atkvæða. Ibúar
Venesúela eru 18.8 milljónir.
Kjörtímabil forsetans og þingsins
er 5 ár og tekur hin nýja stjóm við
völdum í febrúar á næsta ári.
Perez er kunnur fyrir afskipti sín
af málefnum Suður-Ameríkuríkj-
anna og framgöngu í þágu ríkja
Þriðja heimsins. Hann var forseti
landsins á árunum 1974-1979 þeg-
ar hátt olíuverð og þensla innan-
lands stuðlaði að miklu velmegunar-
Cho Soon, prófessor við háskóla
í Seoul, var skipaður aðstoðarfor-
sætisráðherra, en hann gagnrýndi
mjög efnahagsstefnu Chuns og fyr-
irrennara hans, Parks Chung-hee.
Chun neyddist nýlega til að biðj-
ast afsökunar opinberlega fyrir
misgjörðir sínar, afhenda ríkinu
eignir sínar og flytja í afskekt
Búdda-hof, eftir að námsmenn
höfðu krafist þess að hann yrði
dreginn fyrir rétt. Roh forseti, sem
sjálfur var ráðherra í átta ár í ríkis-
stjóm Chuns, hvatti Suður-Kóreu-
menn í sjónvarpsávarpi fyrir tíu
dögum til þess að fyrirgefa Chun
og lofaði pólitískum umbótum í
landinu. Leiðtogar stjórnarand-
stæðinga höfnuðu þessu og kröfð-
skeiði í Venesúela. Mesta afrek sitt
sem forseti vann hann árið 1976
þegar hann þjóðnýtti olíufyrirtæki
og stáliðjuver landsins og greiddi
erlendum eigendum þeirra aðeins
einn milljarð dollara í skaðabætur.
ust þess að leiðtoginn fyrrverandi
skýrði frá öllum misgjörðum sínum
og að forsetinn gerði einnig hreint
fyrir sínum dyrum.
„Við teljum að með þessum
breytingum Rohs forseta á ríkis-
stjóminni verði þáttaskil fyrir
stjómina, sem getur nú einbeitt sér
að því að efna þau loforð sem forset-
inn gaf í kosningunum fyrir ári,“
sagði talsmaður forseta Suður-
Kóreu. Roh lofaði einnig í sjón-
varpsávarpi í gær að breytingar
yrðu gerðar á forystu flokks síns,
að pólitískum föngum yrði veitt
sakaruppgjöf, fómarlömbum Chuns
yrðu greiddar bætur og lög, sem
beitt hafa verið til að brjóta andóf
á bak aftur, yrðu afnumin.
Suður-Kórea:
Nítján ráðherrum
vikið frá embætti
Seoul. Reuter.
ROH Tae-woo, forseti Suður-Kóreu, gerði í gær miklar breytingar
á ríkisstjórn sinni, vék nitján ráðherrum af 22 frá embætti, þar á
meðal sex mönnum sem voru ráðherrar i stjórn fyrirrennara hans,
Chuns Doo Hwans. Lee Hyun-jae var vikið úr embætti forsætisráð-
herra og var Kang Young-hoon, fyrrum sendiherra i Bretlandi og
Páfagarði, skipaður í hans stað.
Reynt að jarðsetja
2.000 fórnarlömb
Dhaka. Reuter.
Bangladeshmenn reyndu i gær
að jarðsetja sem flesta þeirra
2.000 manna, sem fórust i hvirfil-
byl á fimmtudag og um 45.000
sjálfboðaliðar dreifðu matvælum.
Embættismenn sögðu að nokkrar
sveitir, sem sendar voru til að grafa
þá sem fórust, hefðu hætt störfum
vegna nályktar. Staðfest hefur verið
að í það minnsta 2.000 manns hafí
farist i hvirfilbylnum og að minnsta
kosti 15.000 manns er enn saknað.
Embættismaður sagði að óttast væri
að alit að 10.000 manns hefðu týnt
lífí. Talsmenn björgunarsveita sögðu
að hætta væri á að sjúkdómar breidd-
ust út yrðu lík fórnarlambanna ekki
grafín sem fyrst.
Hossain Mohammad Ershad, for-
seti Bangladesh, hefur sett á fót 170
manna nefnd til að stjóma björgun-
arstörfunum. Leiðtogar helstu
stjómarandstöðuflokkanna neituðu
að sitja fyrsta fundinn á sunnudag
og sögðu að tækju þeir þátt í störfum
nefndarinnar mætti líta á það sem
viðurkenningu á ríkisstjórn landsins,
sem þeir telja ólögmæta.
Minnst 55
börn farast
Yaounde. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 55 börn létust
og Qöldi slasaðist í miklum troðn-
ingi í skóla í Yaounde, höfiiðborg
Afríkuríkisins Kamerún, í gær.
Orsakir harmleiksins eru ókunnar
en tilgátur eru uppi að vinnupallar
utan á skólahúsinu hafi hrunið og
valdið mikilli skelfingu á meðal
barnanna.
Útvarpið í Yaounde hafði það eft-
ir sjónarvottum að bömin hefðu troð-
ist undir eða kafnað þegar mikil
skelfíng greip um sig og þau æddu
niður þriggja metra breiðan stiga-
gang.
Rjómalöguð súpa dagsins
Fjórar teg. afsíld
Þrjár teg. af grænmetís-
paté • Sjávarpaté
Sjávarréttir í hvítvíns-
hlaupi • Reykt hámeri
Grafln hámeri
Reyktur lax
Grafinn lax
Fersktjöklasalat með
pöstu í jógúrtsósu
Ferskt ávaxtasalat með
pöstu í tandoorisósu
Lambarúllupylsa
Sviðasulta
Lambapaté
Glóðarsteikt lambalæri
Lambarif barbeque
Fylltur lambsbógur
Hanglkjöt
Rauðvinshjúpað grisa-
læri jólaskinka
Jólagrisarifjasteik
Svart pönnubrauð
Munkabrauð
Þriggja korna brauð-
hleifur • Jólabrauð
Rúgbrauð • Hrökkbrauð
Kaldar sósur
Sex teg. af meðlæti
Ostar • Ávextir
Allar teg. af Baulu-jógúrt
Borði nú hver sem betur getur
Hverfisgötu 8-10-pantanasími 18833
G1LP^V
Tvö tímabil.
Ármúla 3-108 Reykjavík - Sími 91 -680988