Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
37
Bretland:
Asókn í hlutabréf í
Breska stálfélaginu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
YFIR þrefalt fleiri umsóknir bárust í hlutabréf Breska stálfélags-
ins en nam Qölda þeirra hlutabréfa, sem í boði voru. Talið er,
að þetta boði gott fyrir söluna á Bresku vatnsveitunum á næsta ári.
Boðnir voru út 2,5 milljarðar
hlutabréfa í Breska stálfélaginu.
Um 650.000 breskir einstaklingar
sóttu um þá 1,5 milljarða, sem
ætlaðir voru til sölu til einstaklinga
innanlands. Þeir sóttu um ríflega
tvöfalt fleiri hlutabréf en voru í
boði. Þetta þýðir, að gengið verður
á þann eina milljarð bréfa, sem
ætlaður var til sölu erlendis og til
íjármálastofnana. Flestir sóttu um
lágmarksfjölda bréfa, sem var
400. Samuel Montagu-bankinn,
sem sá um söluna á bréfunum,
lýsti því yfir á sunnudag, að allir,
sem sótt hefðu um 1000 bréf eða
minna, fengju þau, en aðrir yrðu
að sætta sig við minna en þeir
óskuðu.
Stjómvöld eru sérstaklega
ánægð með, hvemig til hefur tek-
ist með söluna. Salan á BP á
síðasta ári gekk illa vegna hmns-
ins á fjármálamörkuðum þá. í
síðustu viku lækkuðu hlutabréf að
jafnaði í verði um 4% á markaðn-
um í City í Lundúnum. Viðskipta-
hallinn við útlönd olli vemlegum
pólitískum vandræðum, og skoð-
anakannanir benda til, að bjart-
sýni um viðgang efnahagslífsins
hafí aldrei verið minni frá 1981.
Þrátt fyrir það var almenningur
viljugur að leggja fé í breska stál-
fyrirtækið.
Meirihluti þeirra, sem sótti um
hlutabréf, virðist vera að fjárfesta
til langs tíma, en ekki að sækjast
eftir skjótferignum gróða. Það
þykir boða gott fýrir næstu sölu
í einkavæðingu Thatcher-stjórnar-
Flugránið gæti leitt til
betri samskipta ríkjanna
Moskvu, Jerúsalem. Reuter.
FJÓRIR sovéskir flugræningjar voru sendir með flugvél firá ísrael
til Sovétríkjanna á sunnudag og var lyktum málsins fagnað í báðum
ríkjunum. Dagblað í ísrael lét svo ummælt að flugránið hefði verið
„sem gjöf frá himnum“ og gæti leitt til þess að samskipti ríkjanna
bötnuðu á næstunni.
Flugræningjamir náðu skólabíl
með 30 bömum á sitt vald á
fimmtudag, fengu flugvél í skiptum
fyrir hann og neyddu áhöfn vélar-
innar til að fljúga henni til Tel
Aviv. Auk flugvélarinnar fengu
ræningjamir fé að andvirði 90 millj-
ória íslenskra króna. Fréttastofan
TASS greindi frá því að flugræn-
ingjunum yrði „refsað á viðeigandi
hátt,“ án þess að skýra það nánar.
ísraelskir fjölmiðlar skýrðu frá því
að ísraelar hefðu ákveðið að fram-
selja mennina eftir að sovésk stjóm-
völd hefðu lofað að þeir yrðu ekki
teknir af lífí.
Edúard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, ræddi á
laugardag við formann israelskrar
sendinefndar í Moskvu til að þakka
fyrir „velvilja ísraela og aðgerðir
þeirra sem bundu enda á þetta ólög-
lega athæfi.“ Þetta er í fyrsta sinn
sem sovésk stjómvöld hafa haft
samband við ísraelsku sendinefnd-
ina, sem kom til Moskvu í júlí til
að gæta hagsmuna gyðinga í Sov-
étríkjunum.
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels, fagnaði þessum fundi og
vinsamlegum ummælum She-
vardnadzes. Talsmenn ísraelska ut-
anríkisráðuneytisins vísuðu á bug
ásökunum um að Sovétmenn hefðu
gerst brotlegir við alþjóðasamninga
um hryðjuverk með því að leyfa
flugvélinni að fara frá Sovétríkjun-
um.
Geníj Agejev, talsmaður sovésku
leyniþjónustunnar KGB, sagði að
leiðtogi flugræningjanna, Pavel
Jakshíjants, hefði krafíst þess að
kona hans kæmi um borð í flugvél-
ina og sett það sem eitt af skilyrð-
unum fyrir því að þeir slepptu
gíslunum í skólabflnum. Hún hefði
gert það til að bjarga nemendunum
og kennara þeirra.
Israelar framselja flugræningja til Sovétríkjanna:
innar, sem er sala á vatnsveitum
í landinu. Frumvarp um það kem-
ur til annarrar umræðu í neðri
deild þingsins á miðvikudag og
fímmtudag í þessari viku.
Búist er við, að hagnaður
Breska stálfyrirtækisins á yfir-
standandi ári verði um 600 milljón-
ir punda (um 4,8 milljarðar ísl.
kr.), áður en tekið er tillit til skatt-
greiðslna.
Reuter
ísraelskur lögreglumaður og sovéskur leyniþjónustumaður takast í hendur áður en flugvélin, sem flutti
sovésku flugræningjana frá ísrael til Sovétríkjanna, fór frá Tel Aviv.
PÉTUR
ZQPHÖNÍASSON
VIKINGS
IÆKJARÆrr
ÞÓRÐUR KAKALI
Ásgeir Jakobsson
Þórður kakali Sighvatsson var
stórbrotin persóna, vitur
maður, viljafastur og mikill
hermaður, en um leið
mannlegur og vinsæll. Ásgeir
Jakobsson hefur hér ritað
sögu Þórðar kakala, eins
mesta foringja Sturlunga á
Sturlungaöld. Ásgeir rekur
söguna eftir þeim
sögubrotum, sem til eru
bókf'est af honum hér og þar í
Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, ílslendinga sögu, í
Arons sögu Hjörleifssonar óg
Þorgils sögu skarða og einnig í
Hákonarsögu. Gísli
Sigurðsson myndskreytti
bókina.
ANDSTÆÐUR
Sveinn frá Elivogum
Andstæður hefur að geyma
safn ljóða og vísna Sveins frá
Elivogum (1889-1945). Þessi
Ijóð og vísur gefa glögga
mynd af Sveini og viðhorfum
hans til lífs, listar og sani-
ferðamanna. Sveinn var bjarg-
álna bóndi í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta
þessarar aldar. Hann var eitt
minnisstæðasta alþýðuskáld
þessa lands og þótti mjög
minna á Bólu-Hjálmar í kveð-
skap sínum. Báðir bjuggu þeir
við óblíð ævikjör og fóru síst
varhluta af misskilningi sam-
tíðarmanna sinna.
SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
FANGINN OG DÓM ARINN
Þáttur af Sigurdi skurði
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 18^1
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirðif
Mönnurn þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð mcð
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 árá rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
cn hér.
VÍKINGSLÆKJARÆTT IV
Pétur Zophoníasson
Þetta er fjórða bindið af niðja-
tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar hrepp-
stjóra á Víkingslæk. Pétur
Zophoníasson tók niðjatalið
saman, en aðeins hluti þess
kom út á síiium tíma. í þessu
bindi eru i-, k- og 1-liðir ættar-
innar, niðjar Ólafs og Gizurar
Bjarnasona og Kristínar Bjarna-
dóttur. í þessari nýju útgáfu
Víkingslækjarættar hefur tals-
verðu verið bætt við þau drög
Péturs, sem til voru í vélriti, og
auk þess er mikill fengur að
hinum mörgu myndum, sem
í’ylgja niðjatalinu. í næsta bindi
kemur svo h-liður, niðjar Stefáns
Bjarnasonar.