Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
41
Vörusýningar a sunnudögum:
Húsgagnaverslun
lokað af lögreglu
VERSLUNINNI TM-húsgögn við
Síðumúla var lokað með lög-
regluvaldi á sunnudag. Eigandi
verslunarinnar hafði auglýst
vörusýningu milli klukkan 14 og
17. „Það hef ég gert á hveijum
sunnudegi í 10 eða 11 ár,“ sagði
kaupmaðurinn Emil Hjartarson.
I Reykjavík er einungis heimilt
að hafa opnar á sunnudögum
blómabúðir, brauðbúðir og sölut-
urna, og selja þær vörur sem eru
á sérstökum lista, að sögn Signýj-
ar Sen, fulltrúa lögreglustjóra.
Signý sagði að embættinu hefði
borist tilmæli um að ganga sérstak-
lega eftir að þessum reglum, sam-
þykkt um afgreiðslutíma versalna
í Reykjavík, sé framfylgt. Framhald
yrði á því á næstunni.
Emil Hjartarson sagðist engar
vörur hafa selt í verslun sinni á
sunnudögum, þar hefði aðeins verið
um sýningar að ræða. Hann sagðist
ákveðinn í að halda áfram með
þessar sýningar á sunnudögum.
„Eg tel að ég sé þar í fullum rétti,“
sagði hann. „Fyrir um 11 árum,
skömmu eftir að ég hóf þessar sýn-
ingar, var ég kallaður í yfirheyrslu
á lögreglustöðinni. Þá var mér sagt
að saksóknari mundi ákveða um
framhald málsins. Síðan hef ég
ekkert heyrt fyrr en nú, eða fyrir
þremur vikum, að ég fékk boð um
að hafa lokað á sunnudögum. Ég
ansaði því ekki. Þetta er sýning,
ég sel engum neitt á sunnudögum.
Fólk kaupir ekki húsgögn eins og
brauð, það vill taka sér góðan tíma
til að skoða áður en það gerir upp
hug sinn,“ sagði Emil Hjartarson.
Morgunblaðið/Silli
Sverrir Jónsson, Magnús Bjarnason, Gunnar Jónsson, Sören Einars-
son og Hjálmar Friðgeirsson, sem flestir hafa átt sína starfsævi á
sjónum, sumir nær 60 ár.
Húsavík:
Skemmtun eldri borgara
Húsavík.
Ellilífeyrisþegnm á Húsavík
var boðið til samfundar og
skemmtunar í Félagsheimilinu á
Húsavík sunnudaginn 27 nóvem-
ber.
Það var Félagsmálaráð, Kvenfé-
lag Húsavíkur og Kvennadeild
Slysavarnafélagsins sem að boðinu
stóðu.
Leikfélagið sýndi leikþátt, kynnt
var starfsemi Félags eldri borgara
í Reykjavík og rætt um hugmynd
að stofnun slíks félags á Húsavík.
Samkomunni lauk svo með söng
og dansi undir dillandi harmoníku-
músík.
- Fréttaritari
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 5. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 50,50 34,00 48,12 32,479 1.562.936
Smáþorskur 26,00 26,00 26,00 1,384 35.997
Ýsa 79,00 34,00 65,31 16,843 1.000.124
Smáýsa 25,00 25,00 25,00 0,348 8.701
Karfi 31,00 15,00 30,99 14,993 464.604
Steinbítur 44,00 37,00 41,17 7,571 311.673
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,242 3.638
Langa 37,00 36,00 36,48 0,526 19.209
Lúða 210,00 160,00 192,70 0,452 87.197
Koli 25,00 25,00 25,00 0,004 113
Keila 17,00 17,00 17,00 1,512 25.709
Blandað 10,00 10,00 10,00 0,025 255
Samtals 47,39 76,384 3.620.156
Selt var aðallega úr Otri HF, Stakkavík ÁR, Guðrúnu Björgu ÞH,
Lómi SH, Hafbjörgu SF, Gullfara HF, frá KASK, Stöð hf., Tanga
hf. og Faerabaki hf. í dag verða meðal annars seld 5 tonn af
blönduðum afla úr Otri HF og óákveöiö magn úr Guðrúnu
Björgu ÞH, Gullfara HF og Mumma KÓ.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 47,00 42,00 46,30 4,718 218.465
Þorskur(ósL) 45,00 42,00 43,14 5,577 240.608
Þorsk.(dblósL) 29,00 29,00 29,00 0,145 4.205
Ýsa 65,00 45,00 58,81 0,719 42.287
Ýsa(ósL) 63,00 35,00 57,00 3,637 206.542
Ýsa(umálósL) 27,00 15,00 15,59 0,811 12.645
Langa(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,038 570
Lúða(smá) 160,00 160,00 160,00 0,030 4.800
Blandað 43,00 43,00 43,00 0,030 1.290
Samtals 46,79 15,630 731.412
Selt var úr bátum. í dag verður selt úr bátum og Skafta SK.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 50,50 36,50 45,60 11,890 542.22Q
Ýsa 67,50 30,00 64,83 3,835 248.625
Ufsi 10,00/ 10,00 10,00 0,270 2.700
Karfi 25,50 20,50 21,00 42,077 883.791
Steinbítur 41,00 41,00 41,00 0,240 9.840
Langa 19,00 16,00 18,00 0,150 2.700
Keila 12,00 12,00 12,00 0,150 1.800
Samtals 28,86 58,612 1.691.676
Selt var aöallega úr Bergvík KE, Sigrúnu GK og Þorsteini Gísla-
syni GK. i dag verða meðal annars seld 12 tonn af ufsa, 4 tonn
af ýsu, 3 tonn af löngu, 3 tonn af steinbít og fleiri tegundir úr
Bergvík KE. Selt verður úr dagróðrabátum ef á sjó gefur.
ÁBENDINGAR FRÁ LÖGREGLUNNI:
Skemmdarverk bama og unglinga
Skemmdarverk eru miklu al-
gengari meðal barna og unglinga
en fólk gerir sér grein fyrir í fljótu
bragði. Sumt af því sem telja má
til skemmdarverka er fólk farið
að líta á sem eðlilegan hlut og
er það af hinu verra. Skemmdar-
verk vinna böm og unglingar á
umhverfi sínu, í nálægð heimila
sinna, í skólanum eða annars stað-
ar þar sem þau safnast saman.
Þau eru algengari þar sem marg-
ir safnast saman, því þá er ákveð-
in tilhneiging að geta skákað í
skjóli „nafnleysis11 og framkvæmt
hluti, sem ekki em framkvæmdir
að öðm jöfnu.
Algengast er að börn og ungl-
ingar á aldrinum 12-20 ára vérði
uppvís að skemmdarverkum. í
langflestum tilvikum er um drengi
að ræða. Sérstaklega ber að beina
sjónum að 10-11 ára börnum, eri
á þeim aldri bytja þau oft
skemmdarverkin. Ymislegt er
skemmt, svo sem dyr, veggir,
gluggar, styttur og listaverk í al-
menningsgörðum, umferðarskilti
og umferðarljós, almenningssal-
emi, stólar og sæti í almennings-
vögnum, bíldekk, almennings-
símar og jafnvel grafsteinar.
Skemmdarverkin virðast oft unn-
in af sýndarmennsku, leiðindi eru
látin bitna á hlutum eða um
hefndarráðstafanir er að ræða,
skemmdarvargar em að mótmæla
samfélaginu og áfengi á oft hlut
að máli.
Rekja má skemmdarverk til
minni virðingar fyrir verðmætum,
böm og fullorðnir hafa minni tíma
saman, áhrif ijölmiðla geta verið
neikvæð ( sjónvarp og myndbönd)
og minni virðing er borin fyrir
yfirvöldum (foreldrum og öðmm
fullorðnum og kennurum.
Til að minnka líkur á skemmd-
arverkum þurfa uppalendur að
taka höndum saman og hafa gott
fordæmi fyrir bömunum, sýna
þeim fram á tilgangsleysi
skemmdarverka, reyna að auka
virðingu þeirra fyrir umhverfinu
og fá þau til að leggja sitt af
mörkum til að gera það meira
aðlaðandi. Til þessa þurfa uppa-
lendur að gefa sér tíma. Það borg-
ar sig margfalt þegar fram líða
stundir.
Norræna ferðaskrif-
stofan hefiir starfsemi
Norræna ferðaskrifstofan formlega opnuð. Frá vinstri Thomas
Arraboe, formaður stjórnar Smyril Line, Jónas Hallgrímsson, firam-
kvæmdastjóri Austfars, Emil Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar og Oli Hammer, framkvæmdastjóri Smyril Line.
viku júnímánaðar og siglir viku auk Seyðisíjarðar, Þórshöfn í Fær-
lengur fram á haustið en undanfar- eyjum, Bergen í Noregi, Hanstholm
in ár. Viðkomustaðir skipsins eru í Danmörku og Leirvík á Hjaltlandi.
Vitni vantar að ákeyrslu
NORRÆNA ferðaskrifstofan tók
til starfa í Reykjavík fyrir
skömmu. Megin markmið starf-
seminnar er kynning á ferðum
feereysku farþega- og bilfeijunn-
ar Norrönu og sala í ferðir henn-
ar. Jafiiframt mun skrifstofan
annast almennan ferðaskrif-
stofiirekstur.
Norræna ferðaskrifstofan er í
eigu Austfars hf á Seyðisfirði, ein-
staklinga þar og annars staðar á
landinu, og Smyril Line í Færeyjum,
sem á og gerir Norrönu út. Fram-
kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar
er Emil Orn Kristjánsson.
Emil Örn sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ávalt væri mikið
um að vera í kringum ferðir Nor-
rönu. Farþegafjöldi hefði vaxið ár
frá ári og síðasta ár slegið öll met.
Meðal annars þess vegna væri ver-
ið að auka rými fyrir bíla i skipinu,
þannig að það bæri 300 í stað 250
áður. Ferðir frá landinu með þess-
um hætti hefðu yfir sér sérstakt
og skemmtilegt yfirbragð og væru
jafn hentugar einstaklingum, fjöl-
skyldum og hópum því ætíð væri
hægt að taka með ökutæki sem
hentaði, stórt eða smátt. Siglingin
sjálf væri svo ævintýri út af fyrir
sig. Þjónusta Norrænu ferðaskrif-
stofunnar væri að sjálfsögu ekki
einskorðuð við þessar ferðir. Hún
byði ferðamönnum upp á ýmsa kosti
er út væri komið, ferðir áfram eða
dvöl í viðkomandi landi, til dæmis
í vönduðum íbúðarhótelum í Dan-
mörku.
Norröna kemur hingað i fyrstu
Slysarannsóknardeild lög-
reglunnar óskar eítir að hafa
tal af vitnum að því er ekið var
á gullleitan Volvo-fólksbíl á
bílastæðum við austurenda
Borgartúns 7. Þarna eru meðal
annars bílastæði viðskiptavina
Heimilistækja og ÁTVR.
Bíllinn stóð í stæði á planinu,
skammt frá Borgartúni, frá klukk-
an 8 og til klukkan 13.30. Þá
hafði verið ekið utan í bílinn og
voru skemmdir á afturbretti og
-stuðara. Sá sem tjóninu olli hafði
farið af staðnum án þess að gera
vart við sig. Hann, sem og þeir
sem vitni urðu að óhappinu, er
beðinn að hafa samband við slys-
arannsóknardeild lögreglunnar f
Reykjavík.