Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
Opinn fiindur um ferðamál:
|-----------------
Líta verður á Exjaflarðar-
svæðið sem eina heild
„MENN voru sammála um að
horfa ekki á Akureyri sem ein-
angraðan punkt, heldur skoða
Eyjafjarðarsvæðið sem heild,“
sagði Þorleifur Þór Jónsson,
starfsmaður atvinnumálanefnd-
ar, í samtali við blaðið, um opinn
fund um ferðamál sem nefndin
gekkst fyrir á Hótel KEA um
helgina.
„Það er verið að vinna að stefnu-
mörkun í ferðamálum og þeirri
spurningu var varpað fram á fund-
inum hvert hlutverk bæjarins ætti
að vera. Menn voru sammála um
að hlutverk hans væri að sjá um
heildarskipulagningu og samræm-
ingu á aðgerðum, en einkafyrirtæki
ættu síðan að vinna starfið. Eg vil
leyfa mér að orða þetta á svipaðan
hátt og Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, gerði á ráðstefnu um
„Reykjavík sem ráðstefnuborg" að
við verðum öll að vera í sama liði,
spila í sama búning og sækja á
sama markið. Akureyrarbær ætti
að vera í hlutverki þjálfarans, en
það eru síðan fjölmargir þættir sem
bærinn ætti ekki að koma nálægt
í daglegum rekstri," sagði Þorleifur.
Þorleifur sagði, eins og fyrr
greinir, að líta yrði á Eyjafjarðar-
svæðið í heild sem ferðamanna-
svæði, og vinna yrði í samvinnu við
heimamenn á hverjum stað. „Við
erum með 140.000 manna markað
á suð-vestur horninu sem við þurf-
um að sannfæra um að koma hing-
að í staðinn fyrir að fara eitthvað
lengra. Hér er mikið um að vera
fyrir skíðaáhugamenn og góð að-
staða fyrir þá sem vilja spila golf
svo eitthvað sé nefnt. Hér er gott
fyrir fjölskyldur að koma í frí.“
Fasteigmskattur á íbúðar-
húsnæði án álags 1989
Útsvarsprósenta verður 7,5%
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frá fyrsta útsendingardegi útvarps Ólundar. Til hægri er Hlynur
Hallsson, Kristján Ingimarsson útvarpsstjóri er til vinstri og á milli
þeirra eru menntaskólakennararnir Erlingur Sigurðarson og Sverr-
ir Páll Erlendsson, sem komu í heimsókn til að fylgjast með fyrstu
„skrefum" stöðvarinnar.
Ólund hóf útsendingar á laugardag:
„Mjög góð viðbrögð“
ÚTVARP Ólund hóf formlega
útsendingar klukkan 17.00 á
laugardaginn. Það eru nokkrir
} Akureyringar um tvítugt sem
standa að útvarpsstöðinni, sem
þeim tíma. „Þetta er fólk á aldrinum
16-40 ára. Fólk hvaðanæva að,“
sagði Hlynur Hallsson í gær.
SAMÞYKKT verður á fundi bæj-
arstjórnar Akureyrar í dag að
fasteignaskattur af íbúðarhús-
næði í bænum verði innheimtur
án álags á næsta ári. Tekjur
bæjarins af þessum skatti verða
minni sem nemur á níundu millj-
ón króna vegna þessa. Fasteigna-
skattur af öðru húsnæði verður
hins vegar innheimtur með 25%
álagi, þ.e. 1,25% af fasteigna-
matsverði. Það er meirihlutinn,
sjálfstæðismenn og alþýðu-
Qokksmenn, sem leggja þetta til.
Meirihlutinn leggur einnig til að
útsvarsprósenta í staðgreiðslu
opinberra gjaldi á árinu 1989
verði 7,2% — en hæsta leyfilega
útsvarsprósenta er 7,5%.
„Alagið á fasteignaskatt af íbúð-
arhúsnæði var allt upp í 25% á
síðasta kjörtímabili. A fyrsta ári
þessa kjörtímabils lækkaði núver-
andi meirihluti álagið í 10% og í
fyrra var svo þrengt að sveitarfé-
lögum að ekki var mögulegt að fella
álagið niður. En við ákváðum að
gera það nú með hliðsjón af auknu
fijálsræði í útsvarsálagningu,"
sagði Sigurður J. Sigurðsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Sigríður Stefánsdóttir, fulltrúi
Alþýðubandalags í bæjarráði, lagði
til á síðasta fundi þess að lagt yrði
25% álag á fasteignaskatt af íbúð-
arhúsnæði á næsta ári, en gjalddag-
ar yrðu 10 í stað 5, eins og ákveð-
ið hefur verið. „Þetta er eina tillag-
an sem komið hefur fram frá minni-
hlutanum ennþá, en ef álag á fast-
eignaskatt af íbúðarhúsnæði yrði
25% — hæsta heimilað álag — yrðu
fasteignagjöldin í bænum 21 milljón
króna hærra en þau verða sam-
kvæmt tillögum meirihlutans,"
sagði Sigurður J. Sigurðsson í gær.
Knattspyrna/hafiiarframkvæmdir:
Sana-völlurinn not-
aður eitt ár enn?
ÁHUGAMENN um knattspyrnu á
Akureyri hafa haft af því miklar
áhyggjur að Sana-vöIIurinn væri
nú úr sögunni sem knattspyrnu-
völlur, en svo gæti farið að þeir
geti tekið gleði sína aftur í bili —
í eitt ár.
Sana-völlurinn er eini völlur bæj-
arins sem hægt hefur verið að nota
til æfinga og keppni síðla vetrar og
á vorin, vegna þess hvelágt hann
liggur og því snemma tilbúinn til
notkunar. Vegna dýpkunar í fiski-
höfninni nýju benti allt til þess að
síðar í vetur yrði að dæla efni til
geymslu á völlinn, þetta „gervigras“
Akureyringa, og knattspyrnumönn-
um stæði því engin aðstaða til boða
þegar nær dregur vori og þeir fara
að elta knött af alvöru utandyra á
nýjan leik.
Guðmundur Sigurbjörnsson, hafn-
arstjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að mögulegt yrði að
knattspyrnumenn gætu notað völl-
inn eitt ár til viðbótar. „Við erum
að skoða hvort hugsanlega sé hægt
að haga framkvæmdum þannig að
við þurfum ekki að dæla efninu upp
á völlinn að sinni — ef það má verða
til þess að menn noti tímann og leysi
vallarmálin," sagði Guðmundur.
Hvað höfnina varðaði sagði Guð-
mundur annars að hann vonaðist til
að sá hluti hennar, sem nú er verið
að vinna við, yrði endanlega tilbúinn
til notkunar síðari hluta næsta árs.
er tll húsa á Eiðsvallagötu 18, í
Lárusarhúsi.
Útsendingar áttu að hefjast um
fyrri helgi, en ekki tókst að Ijúka
við innréttingu húsnæðisins í tæka
tíð svo Ólundarmenn urðu að fresta
vígsluathöfninni. Útsendingartími
stöðvarinnar verður frá kl. 19.00
til 24.00 alla daga nema föstudaga,
en þá hefjast útsendingar kl. 17.00
og á laugardagskvöldum verður
væntanlega sent út efni fram á
nótt. Hlustunarsvæði stöðvarinnar
verður Akureyri og næsta nágrenni.
Hlynur Hallsson, einn aðstand-
enda stöðvarinnar, var ánægður
með starfsemina hingað til, er
blaðamaður spjallaði við hann í
gær. „Við höfum fengið mjög góð
viðbrögð. Við lentum í örlitlum byij-
unarörðugleikum, en ekki meiri en
við áttum von á,“ sagði Hlynur.
Talsverður fjöldi fólks hefur komið
í heimsókn á stöðina, að sögn Hlyns,
„en þeir gestir sem koma eru hjá
okkur í útsendingu því við höfum
aðeins eitt herbergi til umráða“.
Hlynur sagði 26 dagskrárgerðar-
menn myndu koma við sögu fyrstu
■ vikuna, þrátt fyrir að stöðin sendi
' aðeins út i um 40 klukkustundir á
Skilyrði Sambandsins um samn-
inga við bankana eru óaðgengileg
- segir Tryggvi Stefánsson á Hallgilsstöðum
©
ÓLÍKLEGT er að bændurnir
átta, sem gengust í persónulegar
ábyrgðir fyrir Kaupfélag Sval-
barðseyrar, taki tilboði Sam-
bandsins, sem hljóðaði upp á að
SÍS tæki á sig þriðjung krafn-
anna gegn því að bankamir
tækju að sér þriðjung og lánuðu
bændunum þriðjung til langs
tíma á „hagstæðum“ kjömm.
Bændurnir ræddu við Guðjón B.
Ólafsson forstjóra Sambandsins
tvívegis fyrir skömmu og kom
helst út úr þeim viðræðum að
litlar líkur væm á því að bænd-
urair sæju sér hag í því að taka
tilboðinu.
„Ef marka má ummæli þeirra
lögfræðinga, sem við höfum ráð-
fært okkur við, eiga þessir pappírar
Samvmnubankans að vera ógildir
og fymdir. Þetta eru hæstaréttar-
lögmenn og þar af er einn þeirra
löggiltur endurskoðandi og segja
þeir að við yrðum aldrei neyddir til
að greiða þessar kröfur ef í hart
fer. Þá setur Sambandið upp þau
óaðgengilegu skilyrði að samið
verði við bankana um greiðslur, þar
með talið Samvinnubankann, komi
til stuðnings Sambandsins. Sam-
bandið virðist vilja að við borgum
allar kröfur hvort heldur þær styðj-
ast við gild rök eða ekki. Valur
Amþórsson stjórnarformaður Sam-
bandsins hefur látið hafa það eftir
sér að það sé hæpið viðskiptasið-
ferði af okkur að færast undan
þeim skuldbindingum, sem við höf-
um tekist á herðar, þar sem bænd-
ur hefðu sjálfir viljað ganga í
ábyrgðirnar á sínum tíma. Maður
veit svo sem að sögulega skoðað
hefur Sambandið góða aðstöðu til
að taka menn í kennslustund í við-
skiptasiðferði, eða hvað? I þessu
sambandi vitnar stjómarformaður-
inn í lögfræðing Sambandsins og
Samvinnubankans, sem hefur allt
aðra skoðun á málinu en lögfræð-
ingarnir, sem við höfum ráðfært
okkur við. Hans álit stangast svo á
við álit þeirra lögfræðinga, sem við
höfum ráðfært okkur við. Og fyrst
farið er að tala um viðskiptasið-
ferði, þá má eflaust velta þeirri
ii'uuu ttii'. tas. t
KMUWMiCfilVt 'A
spurningu upp hver staða þeirra
bankamanna sé sem sitja uppi með
ógilda og fyrnda pappíra fyrir van-
rækslu eina saman,“ sagði Tryggvi.
Þeir Tryggvi Stefánsson og
Bjarni Hólmgrímsson fóru á fund
Iðnaðarbankans fyrir skömmu og
að sögn Tryggva vildu þeir Iðnaðar-
bankamenn reyna að leysa málið
án þess að til komi uppboð á jörðum
bændanna. Iðnaðarbankinn er
reiðubúinn til að gefa upp allt að
þriðjung af kröfum sínum. „Ljóst
er að þessar skuldir koma misjafn-
lega niður á mönnum eftir því hvar
þeir eru í ábyrgðum. Til dæmis er
ég persónulega ekki í neinum
ábyrgðum hjá Samvinnubankanum-
Við ábyrgðarmennimir höfum hins-
vegar ávallt komið fram sem heild
og viljum reyna í lengstu lög að
bera þetta í sameiningu," sagði
Tryggvi.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur Iðnaðarbankinn
nýlega skrifað Sambandinu bréf þar
sem spurt er hvort Sambandið
muni koma til móts við Iðnaðar-
bankann til að lækka fjárbyrði
bændanna ef kröfur Samvinnu-
bankans væru ógildar og Sam-
vinnubankinn fengi þær þar af leið-
andi ekki greiddar. Tryggvi sagðist
telja heldur ólíklegt að Sambandið
fallist á stuðning við þær kringum-
stæður enda væri þetta tilboð Sam-
bandsins aðeins fram komið til að
bjarga Samvinnubankanum. „Per-
sónulega tel ég að Sambandið muni
láta þetta framlag sitt, sem í tilboð-
inu er ætlað okkur, renna beint til
Samvinnubankans verði niðurstað-
an sú að við þiggjum ekki þettá
„góða“ boð Sambandsins."
Heildarkröfur á hendur bændun-
um nema um 50 milljónum króna.
Þar af nema kröfur Samvinnubank-
ans 26 millj. kr., kröfur Iðnaðar-
bankans 22 millj. kr. og kröfur
Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps um 2
millj. kr. Tryggvi sagði að bændum-
ir teldu allar kröfur Samvinnubank-
ans afar vafasamar og sumar kröf-
ur Iðnaðarbankans hefðu þeir sett
spurningarmerki við.
.un líiom 18 0r/ txsoím amaIs