Morgunblaðið - 06.12.1988, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
Flæðifrumusjá, ný tækni við krabbameinsrannsóknir:
Með nákvæmri greiningu er
hægt að velja bestu meðferð
- segir Jónas Hallgrímsson prófessor
RANNSÓKNASTOFA Háskólans
og krabbameinslækningadeild
Landspítalans hafa í sameiningu
sótt um heimild til að kaupa
flæðifrumusjá og stjórnarnefnd
Rikisspítalanna hefur lagt til að
samstarfsverkefni stofhananna
hafi forgang við tækjakaup og
ráðningar í nýjar stöður á næsta
ári. Er vonast til að með þessari
nýju tækni verði hægt að bæta
þjónustu við krabbameinssjúkl-
inga og auðvelda ákvarðanir um
meðferð þeirra. Blaðamaður
ræddi af þessu tilefni við Jónas
Hallgrimsson prófessor og for-
stöðumann Rannsóknastofúnnar,
Jóhannes Björnsson yfirlækni og
Bjarna A. Agnarsson sérfræðing
í meinafræði.
Islendingar framarlega
í heilbrig'ðisþjónustu
„íslendingar standa áreiðanlega
meðal fremstu þjóða heims hvað
snertir heilbrigðisþjónustu, bæði
almenna og sérhæfða," sagði Jón-
as. „Að vísu eru ýmsar sérgreinar
innan iæknisfræði, sem aðeins er
vísir að hér, enda þá oftast grein-
ar, sem sinna þeim sjúkdómaflokk-
um, sem tilheyra fágætari tegund-
um.
Við höfum tekið duglega til hend-
inni hér seinni árin og nýtt okkur
góðærið vel á ýmsum sviðum lækn-
isfræðinnar. Má í því sambandi
benda á byggingar og nýskipan í
meðferð geðsjúkra, bæði fullorð-
inna og nú síðast bama og ungl-
inga. Það svið sérgreina, sem síðast
hefur fengið úrlausn svo nokkru
nemi og þegar hefur skilað umtals-
verðum árangri, er hjartalækning-
ar, og einkum greining kransæða-
sjúkdóma og kransæðaaðgerðir,
sem hófust á Landspítalanum á
síðasta ári.
Næsta stóra átakið er bygging
fyrir krabbameinslækningadeild
Landspítalans, sem verður til húsa
í svokallaðri K-byggingu á Land-
spítalalóð. Sá hluti byggingarinnar
sem hýsa skal krabbameinslækn-
ingar kemst í notkun innan
skamms. Rannsóknastofa Háskól-
ans í meinafræði tekur virkan þátt
í uppbyggingu krabbameinslækn-
inga, því til Rannsóknastofunnar
berast flest vefjasýni, sem tekin eru
með skurðaðgerðum á landinu, og
þar af leiðandi em flest krabbamein
í Islendingum fyrst greind þar.
Meðferð krabbameins er orðin
fjölbreyttari en áður og því er nauð-
synlegra að greina æxlin meira að
eftir tegundum, þar sem árangur
og horfur sjúklingá em breytileg
eftir gerð æxlisins. Með nákvæmri
greiningu í upphafi er nú hægt að
velja bestu meðferð strax og á þann
hátt spara vinnu og fjármuni og
það sem auðvitað skiptir mestu
máli, að spara sjúklingum tíma og
þjáningar og kannski stytta með-
ferð og gera hana þægilegri. Einnig
væntum við þess að með þessu öllu
lengist líf fólks með krabbamein
og að fleiri læknist af meinum
sínum.
Síðustu árin hefur samvinna
meinafræðinga og krabbameins-
lækna aukist mikið og er nú svo
komið að meðferð flestra krabba-
meina er endanlega ákveðin með
samráði þessara aðila. Ennfremur
fylgjast báðir með árangri með-
ferðar og því til staðfestingar er
algengt að vefjasýni séu tekin á
meðan á meðferð stendur eða við
lok hennar til þess að árangur verði
endanlega metinn og hvort frekari
ráðstafanir kunni að vera nauðsyn-
legar,“ sagði Jónas.
Greining á uppruna
æxlis skiptir miklu máli
Jóhannes Bjömsson yfirlæknir
Rannsóknastofunnar: „Við grein-
ingu æxla er hefðbundin ljóssmá-
sjárrannsókn enn megin aðferðin
og eru litlar líkur til að það breytist
Morgunblaðið/Bjami
Jónas Hallgrímsson prófessor, forstöðumaður Rannsóknastofú Há-
skólans, ásamt Jóhannesi Björnssyni yfirlækni og Bjarna A. Agnars-
syni sérfræðingi í meinafræði.
Rannsóknastofa Háskólans við Barónsstíg.
í fyrirsjáanlegri framtíð. Tvær nýjar
rannsóknaraðferðir eru þó ómiss-
andi þáttur í nútíma jneinafræði,
það er örsjárskoðun með rafeinda-
smásjá sem varð hluti af almennri
þjónustuvinnu í greininni fyrir um
það bil 25 árum og vefjaónæmis-
fræði, sem farið var að styðjast við
í daglegri greiningavinnu fyrir um
það bil 10 árum. Báðum þessum
aðferðum er ætlað að greina ná-
kvæmar æxli, bæði með tilliti til
æxlisgerðar og upprunalíffæris
æxlisvaxtarins, en unnt er með
ljóssmásjárrannsókn einni. Rann-
sóknir með frumuflæðisjá eru alveg
nýjar af nálinni við greiningu
krabbameins og að hluta framþróun
vefjaónæmisfræði.
Auk þess að kanna stig, það er
stærð, staðsetningu og útbreiðslu
æxlisvaxtar í líkamanum, þurfa
læknar þeir, er annast sjúklinga
með krabbamein, sem allra ná-
kvæmastar upplýsingar um veQa-
gerð og upptök æxlisins. Þá fyrst
er unnt að sníða meðferð, þ.e.a.s
skurðaðgerð, geisla- og lyfjameð-
ferð, að þörfum hvers sjúklings.
Ljóssmásjárrannsókn ein getur
þannig til dæmis ekki gefið af-
dráttarlausar upplýsingar um upp-
tök æxlis, sem þegar er dreift um
líkamann er sjúklingur leitar lækn-
is. Örsjárrannsókn aðstoðar við
nákvæma vefjaflokkun, til dæmis
hvort æxlisupptök eru í eitil- eða
þekjuvef. Vefjaónæmisfræði nýtir
sér þá tilhneigingu æxlisfruma að
viðhalda sumum eiginleikum heil-
brigðra fruma þess líffæris sem þær
eiga upptök sín í.
Til dæmis má nefna sjúkling, sem
reynist hafa æxlismeinvörp í
hryggsúlu við komu til læknis. Þar
sem ljóssmásjárrannsókn og örsjár-
skoðun greina æxlisgérð og leiða
sterkum líkum að upprunalíff eri
geta aðferðir vefjaónæmisfræðinn-
ar beinlínis sannað upprunastað, til
dæmis hvort æxlisupptök eru í
skjaldkirtli eða blöðruhálskirtli, en
meðferð við þessum tveimur æxlis-
tegundum er gerólík.
Árlega berast sýni frá um 16
þúsund sjúklingum til vefjagrein-
ingar á Rannsóknastofu Háskólans
í meinafræði. Stofnunin stefnir að
því að búa yfir þeirri sérþekkingu
og tækjabúnaði til þjónustuvinnu
sem ætlast verður til af háskóla-
stofnun í okkar heimshluta. Er von-
andi að okkur takist að viðhalda
þeim staðli í menntun starfsmanna
og tækjakosti, en þýðing þess fyrir
greiningu og meðferð krabbameins
sokkar, skór, buxur, jakkar,
skyrtur, kjólar, allt þekkt vörumerki.\,
JÓLAVÖRUHÚS VESTURLANDS
Senn líður að jólum. Samkvæmt
okkar dagatali er ekki seinna
vænna að hefja jólaundirbúning-
inn. Við erum byrjaðir okkar
undirbúning. Hann felst í því að
safna saman þeim vörum sem
ykkur vanhagar um og búa okkur
undir heimsókn ykkar.
um Vöruhús
Vesturlands hefst í
VEFNAÐARVÖRUDEILDINNI.
Þar fást jólaföt á alla fjölskylduna
DEILDINNI
eru smávörur, búsáhöld,
leikföng og bækur,
tilvalin staður til að finna
jólagjöfina.