Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
55
L
Flæðifrumusjáin eykur nákvæmni við rannsóknir á krabbameinsæxlum.
Smásjármynd af meinvarpi í eitli frá sortuæxli í húð. Sjá má að sérhæfð mótefni hafa bundist við
æxlisfrumur (brúnn litur). An slikra rannsókna væri illmögulegt að segja til um uppruna frumanna.
á íslandi er augljós,“ sagði Jóhann-
es.
Flæðifrumusjáin
„Nýlega hefur verið sýnt fram á
að vaxtarhraði og magn erfðaefnis-
ins DNA í krabbameinsfrumum
geti skipt verulegu máli þegar lagt
er mat á horfur krabbameinssjúkl-
inga,“ segir Bjarni A. Agnarsson
sei.i hefur kynnt sér þessa nýju
tækni. „Það hefur komið í ljós að
sjúklingar með æxli sem hafa af-
brigðilegt magn af DNA hafa yfir-
leitt verri horfur en ef um er að
ræða æxli þar sem eðlilegt DNA-
magn er í krabbameinsfrumunum.
Mælingar hafa ekki almennt ver-
ið gerðar á DNA í æxlisfrumum en
flæðifrumusjáin, sem nýlega er
komin á markaðinn, getur mælt
þetta erfðaefni á mjög fljótvirkan
hátt. Þetta tæki er enn ekki til á
íslandi en við vonumst til að af
kaupum þess geti orðið sem fyrst.“
Bjarni sagði að miklar rannsókn-
ir ættu sér nú stað víða um heim
til að kanna notagildi þessarar
tækni við mat á horfum sjúklinga
með krabbamein. Virtist aðallega
vera um ferns konar notagildi að
ræða:
„í fyrsta lagi virðist yfirleitt vera
samband á milli DNA-innihalds
krabbameinsfruma og á horfum
viðkomandi sjúklings, eins og ég
nefndi áður. Sem dæmi má nefna
að komið hefur í ljós að konur með
brjóstakrabbamein á byijunarstigi,
þar sem DNA-innihald er afbrigði-
legt, eiga minni batalíkur en konur
með sams konar æxli þar sem DNA
er eðlilegt. Með því að greina strax
í upphafi að um óeðlilegt DNA-
magn sé að ræða má hugsanlega
beita lyfjameðferð auk hefðbund-
innar skurðaðgerðar strax á byijun-
arstigi sjúkdómsins til að reyna að
bæta batahorfur sjúklingsins. Þess-
ar niðurstöður hafa augljóslega
mikla þýðingu á íslandi, þar sem
bijóstakrabbamein er nú algeng-
asta tegund krabbameins hjá kon-
um.
Sama má segja um til dæmis
krabbamein í þvagblöðru. Æxli á
byijunarstigi með eðlilegt DNA-
innihald sá sér sjaldan út fyrir þvag-
blöðruna og má því oft beita stað-
bundinni meðferð við þessi æxli.
Ef æxlið hefur hins vegar óeðlilega
mikið af DNA eru horfurnar verri
og kemur þá lyfja- og geislameð-
ferð eða meiriháttar skurðaðgerð
til álita. Segja má að vart líði sú
vika að ekki birtist í fagtímaritum
nýjar niðurstöður rannsókna af
þessu tagi.
í öðru lagi má notfæra sér þessa
tækni til að aðstoða við að útiloka
að um krabbamein sé að ræða, því
að góðkynja æxli hafa sjaldan óeðli-
legt magn DNA.
í þriðja lagi má greina hvort
nýtt æxli í sjúklingi með krabba-
mein sé í rauninni nýtt æxli eða
hvort um meinvarp frá fyrra æxli
sé að ræða, því DNA-magn æxla
breytist yfirleitt ekki. Ef um nýtt
æxli óskylt hinu fyrra er að ræða
er meðferðin að sjálfsögðu allt önn-
ur en ef um meinvarp væri að ræða.
Þá má nefna að tækni þessi gef-
ur til kynna hversu stór hluti æxlis-
fruma eru í skiptingu. Sú vitneskja
getur skipt máli, til dæmis við lyfja-
gjöf, því krabbameinslyf deyða yfir-
leitt aðeins frumur sem eru í skipt-
ingu.
Einnig er rétt að nefna að með
þessari tækni má mæla dreifingu
mótefnavaka á miklum fjölda fruma
í lausn og geta slíkar rannsóknir
komið að góðum notum á svipaðan
hátt og ónæmisfræðilegar athugan-
ir á vefjasneiðum sem Jóhannes
nefndi. Nefna má að með þessari
tækni má mæla fjölda mismunandi
eitilfruma í blóði sjúklinga, til dæm-
is sjúklinga með alnæmi svo dæmi
sé tekið.
Arlega greinast hér á landi um
700 krabbamein og teljum við að
með flæðifrumusjá verði hægt að
veita betri þjónustu við krabba-
meinssjúklinga og auðvelda ákvarð-
anir um meðferð þeirra. Auk þess
kæmi það að margs konar öðrum
notum við grunnrannsóknir á
krabbameini á íslandi,“ sagði
Bjami.
LITGREINING
MEÐ
CROSFIELD
MYNDAMÓT HF
Næsti
viðkomustaður er
RAFTÆKJA-
OG SPORTVÖRUDEILDIN.
Þar fást öll stærri og smærri
raftæki og við seljum einnig
mvndlykla. Þar finnur fjölskyldan
jólagjöf handa sjálfri sér.
BYGGINGAVORU-
DEILDIN
er fyrir þá sem vilja dytta
að heimilinu fyrir jólin. ,
Sumir vilja mála,
lagfæra eða endurbæta.
Heimsókn til okkar gerir það
létt verk.
Síðast
en ekki síst er
M AT V ÖRUDEILDIN.
Þar fæst allur jólamatur,
og allt í jólabaksturinn.
Jólin hefjast í Vöruhúsinu þt
okkar jólaundirbúningur
þjóna ykkur.
VöruhúsVesturlands Borgarnesi sími 93-71 200
- er birgðamiðstöðin ykkar.