Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
gift Þorláki Jakobssyni, starfs-
manni Kaupfélagsins á Blönduósi,
og áttu þau fjóra syni sem upp
komust. Eftir heimkomuna réðst
Margrét til Kristjáns G. Gíslasonar
hf. og þar var ekki tjaldað til einn-
ar nætur en ég ætla að Kristján
segi sjálfur frá því.
Margrét var kröfuhörð við sjálfa
sig og þoldi illa linkind hjá fólki.
Henni fannst erfiðleikar vera til að
yfírstíga þá og stóð sjálf á meðan
stætt var og raunar lengur. Eftir
að hún hætti að geta notað strætis-
vagna óku vinir hennar, Auður
Aðalsteinsdóttir og Ásgeir Valdi-
marsson, henni í vinnuna. Þau hafa
einnig verið óþreytandi við að heim-
sækja hana á Sólvang í Hafnar-
fírði, en þar dvaldi Margrét síðustu
árin lengst af á sjúkradeildinni þar
sem hún naut góðrar aðhlynningar
starfsfólksins. Stærsta þáttinn í
umönnun hennar á meðan hún var
heima áttu frænka hennar, Margrét
Þorvaldsdóttir, og maður hennar,
Magnús Ólafsson, og sambýliskona
hennar á Birkimelnum, María Ás-
geirsdóttir, hjúkrunarkona.
Að framansögðu má vera ljóst
að hún Margrét var engin meðal-
manneskja. Hún var bráðgreind,
skemmtileg, frábær kokkur og
kastaði ekki höndunum til neins,
sem hún tók sér fyrir hendur. Ekki
þótti henni mikið varið í að ræða
um böm og bú í samkvæmum held-
ur flutti hún sig þangað sem um-
ræðan snerist um þjóðfélagsmál og
pólitík. Sjálfstæðismanneskja af
gamla skólanum var hún alla tíð.
Og nú er komið að leiðarlokum
sem voru orðin henni kærkomin.
Frú Agda Karström í Stokkhólmi
sendir kveðjur sínar og þakkar liðn-
ar stundir en þær Margrét kynnt-
ust á Pálmans-skólanum og hafa
verið vinkonur síðan. Hjá henni bjó
Margrét alltaf þegar hún heimsótti
Stokkhólm eftir að hún flutti heim.
Ég þakka vináttu, sem spannar
nærri hálfa öld og aldrei bar skugga
á. Nafna hennar og hin bömin mín
þakka henni ómælda velvild í sinn
garð.
Við sendum ættingjum hennar
kveðjur okkar og biðjum guð að
blessa minningu Margrétar Einars-
dóttur.
Þuriður Finnsdóttir
Birting afinælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaidslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð i Aðal-
stræti 6, Reylgavík og á skrif-
stofu blaðsins i Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar fmmort ljóð
um hinn látna. Leyfílegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins era
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar era
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
59
Óvænt endalok
— Setberg gefiir
út nýjustu skáld-
sögu Roberts
Ludlums
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
gefíð út skáldsöguna Óvænt
endalok eftir bandaríska rithöf-
undinn Robert Ludlum. Þýðandi
er Gissur Ó. Erlingsson.
Óvænt endalok, sem nefnist á
frammálinu The Icaras Agenda, er
nær 470 blaðsíður. í kynningu út-
gáfunnar segir m.a., að sagan sé
meistaraleg lýsing á átökum góðs
og ills. Sögusviðið nær frá eyði-
mörkum Arabíuskaga inn í dýpstu
fylgsni valdastofnanna í Washing-
ton.
Þá segir, að þessi nýjasta skáld-
saga Roberts Ludlums sé hlaðin
magnþranginni spennu, sem gagn-
taki lesandann.
Robert Ludlum
Tjónþolinn
ók burt
GULUM Lada-bíl var ekið aftan á
hvítan Fiat á mótum Lönguhlíðar
og Miklubrautar laust fyrir klukk-
an 14 á föstudag. Okumanni Fiats-
ins varð svo hverft við að hann
ók strax af stað án þess að athuga
skemmdir eða taka niður nokkrar
upplýsingar um þann sem tjóninu
olli.
Tjónið á Fiatnum var verulegt og
er mælst til þess að ökumaður Lada-
bílsins gefi sig fram við lögreglunna.
MOULINEX
DJ Ú PSTEIK1N G A POTTU R
DJÚPSTEIKTU AUÐVELDLEGA
0 G HREINLEGA.
STIGLAUS HITASTÝRING
O G LYKTEYÐIR.
<
'/
I
FEIN RAFMAGNSHANDVERKFÆRI
Fremst í sínum flokki
Umboðs- og þjónustuaðilar: Póllinn hf„ Isafirði; Rafvélaverkstæði Unnars sf„ Egilsstöðum; Geisli, Vestmannaeyjum.
Höggborvél ^
—fyrir alhliða notkun
• Afturábak og áfram snúningur
• Tvö hraöastig með stiglausum rofa
• Handfang sérhannaö fyrir rétt átak og grip
• Dýptarstillir í rennigreip
• Hraðastjórn með snúningslæsingu.
Hleðsluborvél
-aflmikil og fjölhæf
lÖfc
• Afturábak og áfram snúningur
• Tvenns konar snúningshraði
• Átaksstillir fyrir skrúfuvinnu
• Sjálfvirkt hleðslutæki með Ijósmerki
• Laus hleðslurafhlaða
• Löng ending hverrar hleðslu
• Fer sérlega vel í hendi
Komið og kynnið ykkur mikið úrval FEIN
rafmagnshandverkfæra.
Nákvæmni og öryggi
SKEIFUNNI3E, SÍMAR 82415 & 82117