Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 74
- 74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
Mikil aðsókn í nýja íþróttahúsið á Akranesi:
Efla þarf íþróttasjóð ríkisins
— segir Magnús Oddsson formaður IA
Akranesi.
HIÐ nýja íþróttahús ÍA á Akra-
nesi hefúr nú verið starfrækt í
rúma tvo mánuði og hefúr húsið
reynst i alla staði mjög vel. Asókn
í æfingatíma er mjög mikil og
komast færri að en vilja. Það
sýnir hve mikil þörf var á því
að nýtt íþróttahús risi á Akra-
nesi.
Að sögn Magnúsar Oddssonar
formanns íþróttabandalags Akra-
ness er mikil ánægja með hið nýja
hús. Engir gallar hafa komið fram
á byggingunni enda hún vönduð og
allur frágangur góður. Magnús seg-
ir að nú þyrfti að fara að huga að
byggingu búningsklefahúss sem
verður hluti af þeirri íþróttamiðstöð
sem verið hefur að byggjast upp
við íþróttavöllinn á Jaðarsbökkum.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þrátt fyrir mikla sjálf-
boðavinnu og framlög frá ýmsum
aðilum til íþróttahússbyggingarinn-
ar vantaði enn gármagn til að ná
endum saman. Iþróttasjóður ríkis-
ins á samkvæmt lögum að leggja
fram 40% byggingarkostnaðar og
er vonast til þess að á fjárlögum
fyrir árið 1989 fáist rífleg upphæð.
„Við höfum sýnt ráðamönnum að
.
* •••
. _ Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
íþróttahús IA er glæsilegt og vel búið áhöldum.
það er hægt að byggja ódýrt en
vandað íþrótta- og félagsheimili í
krafti öflugs félagsstarfs og við
erum mjög stolt af því,“ sagði
Magnús og bætti við að bygging-
artími hússins hefði verið mjög
skammur, „og þess vegna finnst
okkur að íþróttasjóður ríkisins þurfi
að geta greitt sitt lögbundna fram-
lag bæði fljótt og vel. íþróttafélög
hafa enga sjóði til að ganga í og
því þurfa þau að brúa bilið meðan
beðið er eftir framlagi frá sjóðnum."
Magnús sagði að brýnasta hags-
munamál íþróttafélaganna í dag
væri að inneignir þeirra hjá íþrótta-
sjóði vegna framkvæmda yrðu verð-
bættar, en félögin munu eiga inni
á annað hundrað milljónir hjá ríkis-
valdinu. „Þar þurfum við að standa
jafnfætis því þegar ríkisvaldið t.d.
leggur fjármagn til sveitarfélaga
þegar um skólabyggingar er að
ræða. Sé svo ekki brennur framlag-
ið upp smám saman og eftir stend-
ur enn þá meira fjárvana íþróttafé-
lag.“
Hugmyndir um að færa verkefni
íþróttasjóðs yfír til sveitarfélaganna
hafa verið til umræðu en Magnús
telur að ekki séu miklar líkur fyrir
því að sú hugmynd nái fram að
ganga, enda yrði það til lítils gagns.
Sum héraðssambönd yrðu þá að
gera samninga um einstök verkefni
við mörg sveitarfélög í sumum til-
fellum og slíkt gengi aldrei upp.
Að lokum vildi Magnús koma á
framfæri þakklæti til allra þeirra
sem á einn eða annan hátt stuðluðu
að byggingu íþróttahúss ÍA. „Við
erum með í höndunum 1.340 fer-
metra byggingu sem metin er í
brunabótamati á 75 milljónir króna.
Framreiknaður kostnaður okkar við
bygginguna nemur um 60 milljón-
um króna. Þetta sýnir svo ekki verð-
ur um villst hvað húsið er í raun
ódýrt,“ sagði Magnús að lokum.
- JG
Morgunblaðið/Ingimar Sveinsson
Sturla Pétursson skákmeistari leiðbeindi fúllorðnum og börnum í
skák á Djúpavogi.
Fréttabréf frá Djúpavogi
Djúpavogi.
Djúpavogshreindýrin eru
komin af Qöllum. Reyndar hafa
þau verið hér skammt undan í
meira en mánuð.
Á hveiju hausti hafa þau komið
í mörg ár, 50—100 stykki og eru
hjá okkur fram í júníbyijun, fólki
til skemmtunar sem fer í sunnu-
dagsbíltúra. Þau líta varla upp þótt
bíll aki rétt fram hjá þeim, enda
dettur engum í hug að hrekkja
þau. Þau bregða sér stundum inn
í þorpið þótt há girðing sé þar
umhverfis, en víkja sér þó undan
mannaferðum.
Skammt frá þorpinu er raf-
magnsgirðing utan um hesta þorps-
búa. Hestamir bera mikla virðingu
fyrir þessari girðingu, en það gera
hreindýrin ekki. Þau hafa að vísu
gefist upp við að stökkva yfir hana
eins og venjulega girðingu, enda
ekkert gott að fá rafstraum í lapp-
imar ef dýri verður á að snerta
vírinn. Þau hafa fundið upp það
snjallræði að leggjast á hliðina og
mjaka sé undir langt frá þessum
rafmagnaða þræði. Þetta snjallræði
hefur hrossunum ekki dottið í hug
enn og hljóta því að teljast miklu
heimskari en þessi fagurhyrndu
fjallagestir okkar.
Stjömutindur hefur verið kasta
fyrir síld hér rétt fyrir utan. Hann
hefur nú komið hér inn með nokkuð
á annað þúsund tonn af síld. Oftast
er skroppið hér rétt út í fjörðinn
og komið inn með fullfermi.
Söltun er að ljúka hér. Saltað
hefur verið í um 9.300 tunnur.
Sturla Pétursson skákmeistari
hefur dvalið hér og sagt fullorðnum
og bömum til í skák. Um 60 böm
úr grunnskólanum og 10 fullorðnir
hafa notið leiðsagnar hans.
- Ingimar
Fulltrúaráð sjómannadagsins í Reykjavík:
Aformum um söluskatt á
happdrættismiða mótmælt
byggt sitt starf meðal annars á fjár-
munum sem var aflað á þennan
hátt, gefist upp.“
Jólasýn-
ing í Þjóð-
minjasafhi
Á DEGI heilags Nikulásar 6. des-
ember verður opnuð sýning í
Þjóðminjasafni íslands á ýmsum
munum og minjum sem tengjast
jólasiðum. Þar verða 'gömul
heimatilbúin jólatré, jólakort,
jólaskraut, jólasveinar af ýmsum
gerðum, Grýla, Leppalúði og
fleira. Sýningin verður opnuð kl.
17 og er öllum vinum Þjóðminja-
safnsins boðið að vera við opnun-
ina.
Mánudaginn 12. desember kem-
ur fyrsti íslenski jólasveinninn í
heimsókn þrettán dögum fyrir jól
eins og vera ber. Síðan kemur einn
á hveijum degi fram að jólum. Á
hveijum morgni kl. 11 munu böm
taka á móti jólasveinunum.
Við opnunina verður kveikt á
jólatré safnsins og heilagur Nikulás
mun segja frá lífshlaupi sínu ásamt
ýmsum útlitsbreytingum, sem hann
hefur mátt þola í hálft annað ár-
þúsund.
Sýningin verður opin daglega kl.
11—16 frá 7. desember og fram
að jólum.
(Fréttatilkynning)
t i) , 3 c - I' JK'i I ‘ i ’ií 1 J ■ J ) H11 ) ) I
dragast stórlega saman vegna fljót-
fæmislegra ákvarðana þeirra sem
ekkert þekkja til þeirra vandamála
sem að er unnið.“
Ennfremur segir, að verði þessi
skattheimta að vemleika, verði í
einu höggi vegið að æðri menntun
í landinu, íþrótta- og æskulýðs-
starfi og hagsmunum aldraðra, fatl-
aðra, sjúkra og öryrkja. „Fundurinn
fullyrðir að með slíkri skattlagningu
muni fjöldi viðskiptavina Happ-
drættis DAS hætta kaupum miða,
sem ríkissjóður skattleggur og þar
með stuðningi sínum við málefni
aldraðra sem aldrei hafa fengið
nema brot af nauðsynlegum stuðn-
ingi af opinberu fé. Jafnframt er
hætta á að sjálfboðaliðar sem hafa
FULLTRÚARÁÐ sjómannadags-
ins í Reykjavík samþykkti á
haustfundi sínum harðorð mót-
mæli við áformum stjórnvalda
um söluskatt á happdrættismiða
og skylda starfsemi. Jafnframt
beinir fúndurinn þeirri áskorun
til Alþingis að lög um Fram-
kvæmdasjóð aldraðra verði end-
urskoðuð og að ráðstöfúnarfé til
sjóðsins verði aflað með nef-
skatti og árlegu framlagi af Qár-
lögum.
I ályktun fundarins um söluskatt
á happdrættismiða segir meðal ann-
ars svo: „Á Hrafnistu í Hafnarfirði
hvílir um 100 milljóna króna skuld
sem ekki verður séð hvemig verður
P’eidd, ef tekjur Happdrættis DAS
Saltað hefúr verið í um 9.300 tunnur á Djúpavogi. Hér er unnið við
söltun í Búlandstindi.
SÖLUDEILD _
JUJ| | Höföabakka 3, simi: 83366 ® m 0
T8lvupapP|r
wmmmm^fmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmfffffpmffffffff^^mmmm
11111 iill III ■••«■■««