Morgunblaðið - 04.01.1989, Side 1
56 SIÐUR B
2. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989
Prentsmiðja Morgxmblaðsins
Reuter
Lögreglu þakkað
Lögreglumenn, sem vinna við umferðarstjórn í Bangkok, höfuð-
borg Tælands, fá um áramót gjafir í þakklætisskyni frá ánægðum
ökumönnum. Stundum fá þeir reyndar svo marga pakka að þeir
geta varla sinnt skyldum sínum. Myndin var tekin í gær i Bang-
kok og má sjá að lögregluþjónninn hefur oft orðið að hlaupa frá
með glaðninginn.
Ekkert lát á kynþáttaeijunum í Kína:
Kreppa í samskiptum Kín-
verja og AMkumanna
Pekingf. Daily Telegjaph, Reuter.
ÝFINGAR milli afriskra og
kínverskra námsmanna breidd-
ust út til Peking-borgar í gær.
Afríkumennirnir sögðust hafa
sætt pyndingum lögreglunnar og
kínversku námsmennirnir sök-
uðu þá afrísku um að hafa beitt
kínverskar konur ofbeldi.
Afrískir stjórnarerindrekar, sem
Bandaríkin:
Reagan forseti
í skurðaðgerð
Los Angeles. Reuter.
FYRIRHUGAÐ er að Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti gang-
ist undir skurðaðgerð á vísifingri
vinstri handar á laugardag, að
þvi er John Hutton, læknir for-
setans, skýrði frá i gærkvöldi.
Hutton sagði að skurðaðgerðin
væri nauðsynleg vegna sívaxandi
herpingar í fingrum Reagans. Hann
sagði að forsetinn yrði lagður inn
á Walter Reed-hersjúkrahúsið á
föstudag og gengist undir skurðað-
gerðina daginn eftir. Aðeins þyrfti
að staðdeyfa forsetann og aðgerðin
tæki þijá tíma. „Hann ætti að hafa
fótavist síðdegis sama dag,“ sagði
Hutton og bætti við að forsetinn
færi aftur í Hvíta húsið á sunnudag
og gæti þá strax hafið störf að nýju.
segja að kínverskir embættis-
menn hafi hafnað viðræðum um
ásakanir afrisku námsmann-
anna, hafa varað við því að
Afríkuríki gætu hætt að senda
námsmenn i kínverska háskóla.
Stjórnendur Einingarsamtaka
Afríku, OAU, boðuðu ennfremur
kinverska sendiherrann i
Eþíópiu á sinn fund í Addis
Ababa og lýstu yfir áhyggjum
vegna málsins.
Kínverskir námsmenn efndu til
mótmæla gegn Afríkumönnunum
við tvo háskóla í Peking í gær.
Heimildarmenn í Wuhan í Mið-Kína
sögðu að afrískir námsmenn hefðu
verið fluttir úr heimavistum sínum
eftir að gijóti hefði verið kastað í
rúður þeirra. Blakkir námsmenn í
borginni Hangzou í Austur-Kfna
hafa ekki mætt í tíma að undan-
förnu og saka þeir skólayfirvöld um
að hafa bannað Kínveijum að heim-
sækja Afríkumennina vegna þess
að þeir væru smitaðir af alnæmi.
Rúmlega 100 kínverskir náms-
menn efndu til mótmæla við Mála-
stofnunina í Peking og sökuðu
Afríkumennina um að hafa ráðist
á kínverskar konur og slasað að
minnsta kosti eina þeirra alvarlega.
Á mótmælaspjöldum þeirra mátti
meðal annars sjá slagorðið „blóð
fyrir blóð." Síðar svöruðu Afríku-
mennirnir þessu með því að setja
upp veggspjald þar sem sagði að
þeir myndu mótmæla framkomu
Kínveija við Afríkumenn við stofn-
unina í dag. Þeir sögðu að Kínveij-
ar litu á Afríkumenn sem „skepn-
ur.“
Áður höfðu Afríkumenn í Nank-
ing, fyrrum höfuðborg Kína, sakað
kínversku lögregluna um að hafa
beitt stöfum, sem gefa frá sér raf-
högg við snertingu, á kynfæri og
andlit afrískra námsmanna er hún
réðist inn í gistihús þeirra á laugar-
dag. Yfirvöld í Nanking hafa vísað
þessum ásökunum á bug.
Mamah Gobo Bio, stjórnarerind-
reki Afríkuríkisins Beníns í Peking,
sagðist í gær hafa krafið kínverska
utanríkisráðuneytið skýringa á
ásökunum um að afrískir náms-
menn hefðu verið pyndaðir en eng-
in svör fengið. Þá hefur Líbýustjórn
mótmælt „kúgun Kínveija á Afríku-
mönnum".
Sjá frétt á bls. 20.
Reuter
Kínverskir námsmenn efiidu til mótmæla við háskóla i Peking og
sökuðu afríska námsmenn um að hafa beitt kínverskar konur ofbeldi.
Beirút:
Hart barist þrátt fyrir Mð-
arumleitanir Sýrlendinga
Beirút. Reuter.
HARÐIR bardagar brutust út i suðurhluta Beirút-borgar fjórða
daginn í röð í gær, þrátt fyrir tilraunir Sýrlendinga til að binda enda
á deilur og vigaferli shita i borginni.
Að sögn borgarbúa beittu Amal-
liðar, sem styðja Sýrlendinga, og
félagar í Hizbollah, „Flokki Guðs“,
fallbyssum, sprengjuvörpum, flug-
skeytum og vélbyssum á götum í
suðurhluta borgarinnar. Talsmaður
Hizbollah sagði að Amal-liðar hefðu
hafið stórskotaliðsárásir á bæki-
stöðvar Hizbollah í borginni eftir
að hlé varð á bardögunum í gær-
morgun. Félagar í Amal-hreyfing-
unni sögðu hins vegar að Hiz-
bollah-liðar hefðu átt upptökin að
bardögunum í gær. Talið er að
Nokkrir uggalausir hákarlar hafa
fundist við strendumar, nú síðast
tígrisháfur, og telja sérfræðingar
að nokkrar tegundanna séu í útrým-
ingarhættu. Löglegt er í Flórída að
veiða hákarla til að skera af þeim
uggana og halda slíkar veiðar
áfram vegna þess að mikil eftir-
spurn er eftir uggunum í Austur-
löndum, þar sem uggasúpa er talin
nokkrir af þeim 17 vestrænu
gíslum, sem eru í borginni, séu í
haldi Hizbollah-manna í suðurhluta
borgarinnar.
Að minnsta kosti 16 manns,
margir óbreyttir borgarar, hafa fall-
ið og 30 særst síðan bardagamir
bmtust út á laugardag. Áður en
bardagamir hófust að nýju í gær
höfðu sýrlenskir hermenn reynt að
stilla til friðar í útverfunum í suður-
hluta borgarinnar. „Við reynum að
stía hreyfingunum í sundur með því
að flytja skæruliða úr byggingum
geta læknað öll mein. Sjómennimir
fá um 24 dali, 1.152 ísl. kr., fyrir
kflóið af uggunum, eða fjórum sinn-
um meira en fyrir humar. Sum fiski-
skipanna geta veitt rúmlega þúsund
hákarla í einni veiðiferð.
Hefðbundnar hákarlaveiðar eru
einnig í örum vexti í Flórída. 17.000
hákarlar vom veiddir árið 1985 og
í fyrra rúm 50.000.
sem gerðar hafa verið að virkjum,"
sagði talsmaður sýrlenska hersins.
Borgarbúar, sem að vonum em
orðnir þreyttir á bardögunum, sögð-
ust hins vegar efins um að Sýrlend-
ingum tækist að koma á friði í borg-
inni.
V estur-Þýskaland:
Gífúrleg
Qölgun inn-
flytjenda
Bonn. Reuter.
242.500 Austur-Evrópumenn
af þýskum uppruna fluttust
til Vestur-Þýskalands árið
1988. Innflytjendum Qölgaði
um 145.000 frá því í fyrra en
þá fluttust 97.500 Austur-
Evrópumenn til landsins.
Rúmenia skar sig þó úr hvað
þetta varðar því á árinu 1988
lækkaði rúmenskum innflytj-
endum um 1.000 frá fyrra ári.
Flestir em innflytjendumir
sárfátækir og þýskukunnátta
margra þeirra er harla lítil. í
skoðanakönnun sem birt var í
Vestur-Þýskalandi í síðustu viku
kom í ljós að margir Vestur-
Þjóðveijar em fullir gremju
vegna innflytjendafjöldans og
líta þeir á innflytjendur af þýsk-
um uppmna sem útlendinga. Þá
kom ffam í skoðanakönnunum
að ástæðumar fyrir vanþóknun
Vestur-Þjóðveija em ótti um
aukið atvinnuleysi og mikill
kostnaður fyrir ríkið.
Bandaríkin:
UggaJausum hákörl-
um kastað í sjóinn
Miami. Ðaily Telegraph.
HÁKÖRLUM, sem veiddir hafa verið við strendur Flórfda, hefúr
verið hent í sjóinn eftir að uggarnir, notaðir í súpu, hafa verið skorn-
ir af þeim. Hákarlarnir sökkva sfðan máttvana niður á botninn og
geta litla sem enga björg sér veitt.