Morgunblaðið - 04.01.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989
29
AKUREYkI
Fj órðungssjúkra-
húsið á Akureyri:
Gjafir til
bamadeildar
FRÚ LAUFEY SigTirðardóttir
frá Torfufelli hefur, fyrir hönd
ónefndrar konu, afhent barna-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri að gjöf40.000 krónur.
Þá hefur Minningarsjóður Kven-
félagsins Hlífar fært deildinni veg-
lega gjöf fyrir þessi jól eins og hann
hefur gert undanfarin ár. Að þessu
sinni stól, sem breyta má í svefn-
stól fyrir foreldra sem vilja vera
næturlangt hjá bömum sínum.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Fjórðungssjúkrahúsinu.
„Bamadeildin þakkar innilega fyrir
þessar góðu gjafir og minnir um
leið á minningarspjöld Kvenfélags-
ins Hlífar til styrktar bamadeild
FSA.“ segir ennfremur í tilkynning-
unm.
Einangrunar-
stöðin í Hrísey:
Hundur-
innDepill
í sóttkví
HUNDUR ER nú í sóttkví í
einangrunarstöð ríkisins í
Hrísey, þar sem Galloway-
nautin eru ræktuð. Um er að
ræða hundinn Depil, sem tals-
vert var skrifað um á sínum
tima, er eigandi hans, ungur
drengur, neitaði að flytja heim
til Islands frá Frakklandi,
nema fá að taka hundinn sinn
með.
„Hundurinn er hér í kjallaran-
um, alveg sér. Hann kom hingað
til okkar á milli jóla og nýárs og
það var talað um að hann yrði
héma í um það bil einn mánuð,"
sagði Sigurjón Helgason bústjóri
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Sigutjón sagði að til stæði að
hundasóttkví yrði komið upp í
Hrísey. „Ég veit ekki hvað verð-
ur, en þetta hefur verið rætt. En
það er Alþingi sem ákveður hvort
þetta verður leyft og því hlýtur
málið að koma þar fljótlega til
umræðu. Þá hlýtur líka að verða
veitt fjárveiting í byggingu, því
hundasóttkvíin verður að vera í
sér húsi. Þetta var algjört neyðart-
ilfelli, að taka hundinn inn í ein-
angrunarstöðina," sagði Siguijón.
Islippnum
SÁÁ á Norðurlandi:
Skrifstofa og ráðgjaf-
arþjónusta á Akureyri
SAMTÖK áhugafólks um áfengisvarnir á Norðurlandi opna skrif-
stofu og ráðgjafarþjónustu á Glerárgötu 28, 2. hæð, 6. janúar
nk. kl. 14.00, á fostudaginn.
Þjónustan sem þama verður boð-
ið upp á er hin fyrsta sinnar tegund-
ar utan Reykjavíkur, eftir því sem
segir í fréttatilkynningu sem Morg-
unblaðinu hefur borist.
í tilkynningunni segir ennfremur:
„f starfi ráðgjafar- og leiðbein-
ingarstöðvarinnar verður lögð rík
Dreifingamiðstöð flögurra kaup-
félaga á Norðurlandi stofnuð
Dreifíngamiðstöð Qögurra
kaupfélaga á Norðurlandi er
nú í burðarliðnum, og verður
að öllum líkindum stofnuð í
dag, skv. heimildum Morgun-
blaðsins. Miðstöðin verður með
aðsetur hjá KEA á Akureyri,
en auk KEA eru það KÞ á
Húsavík, KNÞ á Kópaskeri og
Kaupfélag Langnesinga á Þórs-
höfii sem stofiia þessa dreif-
ingamiðstöð.
KEA hefur rekið birgðastöð sem
dreift hefur matvöru og hreinlætis-
vömm í verslanir félagsins í bæn-
um og út með firði, og heimilda-
maður Morgunblaðsins orðaði það
þannig að þessi dreifíngamiðstöð
væri í raun útvíkkun á þeirri starf-
semi. í fyrstunni verður um að
ræða dreifingu á sömu vömm og
birgðastöð KEA var með, en hugs-
anlega bætist fleira við í framtí-
ðinni.
Viðræður hafa átt sér stað á
milli fyrmefndra fjögurra kaup-
félaga um samvinnu og er þetta
niðurstaðan úr þeim, enn sem kom-
ið er. Eins og fram kemur annars
staðar á síðunni er raunar búið að
ákveða samstarf á öðmm vett-
vangi einnig, því verið er að ráða
starfsmann til að kanna möguleika
á enn frekara samstarfi félaganna,
á sviði sláturhúsa og mjólkursam-
laga.
Svæðisútvarpið:
Lilja María
kjörin Norð-
lendingur
ársins 1988
LILJA María Snorradóttir, sund-
kona frá Sauðárkróki, var kjörin
Norðlendingur ársins af hlust-
endum svæðisútvarps ríkisút-
varpsins á Akureyri í fyrradag.
Hlustendur hringdu þá inn og
greiddu atkvæði, og var Lflja
kjörin með miklum yfirburðum.
Lilja keppti sem kunnugt er á
heimsleikum fatlaðra í Seoul í Suð-
ur-Kóreu í haust og vann þar til
nokkurra verðlauna. Lilja María
vann gullverðlaun í 200 metra fjór-
sundi á tímanum 3:12.97 mín.,
bronsverðlaun í 100 metra skrið-
sundi á 1:16.51 mín. og einnig
bronsverðlaun í 100 metra baksuðQ
á 1:28.18 mín. Lilja bætti íslands-
metið vemlega í 100 metra bak-
sundinu.
áhersla á viðtöl og ráðgjöf við þá,
sem búa við áfengisvandamál á einn
eða annan hátt. Sérstök áhersla
verður lögð á fjölskyldumál, þannig
að þeir sem búa við vandann á heim-
ilum sínum geti komið og rætt í
fullum trúnaði við sérhæfðan leið-
beinanda á þessu sviði.
Ingjaldur Amþórsson hefUr verið
ráðinn í fullt starf. Ingjaldur hefur
langa reynslu í slíku starfí. Hann
hefur starfað sem leiðbeinandi hjá
SÁÁ og unnið að stofnun með-
ferðarstöðva í Svíþjóð. Þá hefur
hann annast fræðslunámskeið í
Færeyjum og á Grænlandi.
Stjóm SÁA-N mun á næstu dög-
um leita eftir stuðningi fýrirtækja
og einstaklinga til að standa straum
af rekstrinum. Margir aðilar hafa
þegar sýnt þessu málefni mikinn
velvilja og lagt fram fjámpphæðir
til starfsins.
Við opnunina mun stjóm SÁÁ-N
ásamt Ingjaldi Amþórssyni og
formanni SÁÁ, Þórami Tyrfíngs-
syni lækni, svara fyrirspumum og
vejta allar frekari upplýsingar."
Bjarni deild-
arsljóri öld-
runarþjón- „
ustu bæjarins
BJARNI Kristjánsson hefiir
tekið við starfi deildarstjóra
öldrunarþjónustu Akureyrar-
bæjar. Aður var hann fram-
kvæmdastjóri Svæðisstjórnar
málefiia fatlaðra á Norðurlandi
eystra, og þar áður var Bjarni
lengi vel forstöðumaður vist-
heimilisins Sólborgar á Akur-
eyri. Hann er nú í ársleyfi frá
Svæðisstjórn, og ekki fyrren
að þeim tíma liðnum kemur í
ljós hvort hann snýr þangað
aftur, eða dvelur lengur í starfi
deildarstjóra öldrunarþjón-
ustunnar.
Deildarstjóri öldmnarþjónustu
bæjarins hefur yfímmsjón með
þjónustu þeirri sem Akureyrarbær
veitir á dvalarheimilunum í Skjald-
arvík fyrir norðan Akureyri og
Hlíð við Austurbyggð, einnig með
heimilisþjónustu aldraðra og fé-
lagsstarfí þeirra.
Samkvæmt nýju stjómskipulagi
Akureyrarbæjar heyra öldrana-
rmál undir félagsmálasvið sem Jón
Bjömsson sálfræðingur veitir for-
stöðu.
Sigrún Sveinbjömsdóttir sál-
fræðingur hefur tekið við starfi
Bjama Kristjánssonar sem fram-
kvæmdastjóri Svæðisstjómar mál-
efna fatlaðra á Norðurlandi eystra.
Ekið á mann
og á brott
EKIÐ var á mann á gangbraut á
Akureyri aðfaranótt gamlárs-
dags. Ökumaður stöðvaði ekki
bifreið sína heldur hélt á brott.
Atvikið átti sér stað á Glerár-
götu, skammt neðan við Sjallann.
Talið er að um ljósa fólksbifreið
hafí verið að ræða. Sá sem fyrir
slysinu varð slasaðist ekki hættu-
lega. Rannsóknarlögregluna vantar
vitni að atburðinum, og séu þífti
fyrir hendi em viðkomandi beðnir
að hafa samband við lögreglu.