Morgunblaðið - 04.01.1989, Qupperneq 38
.38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989
+ Sambýliskona mín og systir okkar, ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR, Austurbrún 2, lést í Vífilsstaðaspítala 2. janúar. Þormóður Haraldsson og systkini hinnar látnu.
t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, SIGMUNDUR JÓHANN ALBERTSSON verslunarmaður, lést í Borgarspítalanum 3. janúar. Margrót Albertsdóttir, dœtur, tengdasynir og barnabörn.
+ Móöir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, Traðarkotssundi 3, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum að kvöldi 2. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingibjörg Norðkvist, Theódór Norðkvist, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Eiginmaður minn, faðir, fósturfaöir, tengdafaöir og afi, MAGNÚS FRÍMANNSSON, Sólheimum 20, Reykjavfk, andaðist þann 28. desember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þuríður Eggertsdóttir, Birgir Magnússon, Soffía Jóhannsdóttir, Hannes Hafsteinsson og barnabörn.
+ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRYNJAR SÖRENSEN, Kringlumýri 9, Akureyri, lést í Borgarspítalanum að kvöldi nýársdags. Jarðarförin verður gerð frá Glerárkirkju föstudaginn 6. janúar kl. 14.00. Þeir, sem vildu minnast hins látna, eru beðnir að láta Fjóröungs- sjúkrahúsið á Akureyri njóta þess. Ruth Sörensen, Dan Brynjarsson, Björk Guðmundsdóttir, Elva B. Brynjarsdóttir, Hörður Lilliendahl, Brynjar B. Brynjarsson, Ágúst Freyr Dansson.
+ Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR L. GUÐMUNDSSON fyrrv. skipstjóri, lést að Reykjalundi 3. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Jónsdóttir.
+ Eiginmaður minn, AGNAR KRISTJÁNSSON forstjóri, y lést á Landspitalanum þann 27. desember sl. Hann veröur jarð- sunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag fslands. Fyrir hönd aöstandenda, Anna Lilja Gunnarsdóttir.
+ Faðir okkar og afi, KJARTAN ÁGÚST JÓNSSON járnsmiður, Brekkustig 9, andaöist 24. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þorsteinn Kjartansson, Guðmundur Kjartansson, Oddný Sif Guðmundsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Minning-:
Baldur Ólafsson
bankaútibússtfóri
í dag fer fram frá Fossvogs-
kirkju útför Baldurs Ólafssonar,
fyrrverandi útibússtjóra Útvegs-
banka íslands í Vestmannaeyjum
og Kópavogi.
Baldur Olafsson fæddist á Hofs-
ósi í Skagafjarðarsýslu 2. ágúst
1911. Foreldrar hans voru Lilja
Haraldsdóttir og Ólafur H. Jensson,
kaupmaður þar í sveit.
Arið 1927 skipti Ólafur um
starfssvið og fluttist til Vestmanna-
eyja. Þar störfuðu þeir feðgar að
póststörfum í þrjú ár, til 1930.
Þá urðu mikilvæg þáttaskil á
starfsferli og framtíðaráformum
hins tæplega tvítuga unglings.
Árið 1930 fékk Baldur Ólafsson
atvinnu í Útvegsbanka íslands hf.
undir leiðsögn og forystu Haraldar
Viggós Bjömssonar.
Það ár urðu þýðingarmikil þátta-
skil á ævibraut Baldurs Ólafssonar
og frá þeim tíma hafa í meira en
hálfa öld störf og hugur hans verið
samofin bankastörfum og peninga-
þjónustu í margbreytilegum störf-
um og stefnumörkunum.
Árið sem Baldur réðst í þjónustu
Útvegsbanka íslands í Vestmanna-
eyjum varð í fyrstu starfsvettvang-
ur hans margskonar ritarastörf.
Síðar var hann lengi gjaldkeri úti-
búsins, og við lát Bjaraa Sighvats-
sonar í ágúst 1953 réðst Baldur
Ólafsson útibússtjóri bankans í
Vestmannaeyjum og gegndi því
starfí til 1968 að hann tók við
útibúastörfum í Kópavogi.
Baldri Ólafssyni var síðar falið
að koma á stofn á vegum bankans
útibúi í Kópavogi.
Á þeim árum, sem í hönd fóru,
þraut starfsorka hans, og Baldur
og kona hans fluttust til lokadvalar
í Hrafnistu í Hafnarfírði, þar sem
lúinn og þreyttur líkami kvaddi
söguríka ævibraut í einkaibúð
þeirra hjóna.
Skólaganga Baldurs var einn
vetur í unglingaskóla í Siglufírði.
Böm Baldurs og Jóhönnu eru Har-
aldur bankastjóri í Hamraborg í
Kópavogi. Kona Haraldar er Gyða
Guðmundsdóttir, eiga þau tvö böm.
Bima gift Svavari Davíðssyni for-
stjóra og Lilja' gift Atla Aðalsteins-
syni.
Dóttir Jóhönnu, konu Baldurs,
Guðrún Ágústa Oskarsdóttir, ólst
upp á heimili Jóhönnu og Baldurs
og naut þar ávallt ástar og kærleika
foreldranna. Hún starfar á Laiids-
símanum í Vestmannaeyjum. Eigin-
maður hennar er Hjálmar Eiðsson
í Útvegsbanka íslands hf. í Vest-
mannaeyjum.
Að leiðarlokum kveð ég ástkæran
og traustan vin. Ég mun meðan
æviskeiði mínu er enn ólokið geyma
í hug mér og hjarta ljúfar minning-
ar um góðan dreng og gæfumann,
sem öllum þótti gæfa að ganga við
hlið.
Starfsfélögum Baldurs Ólafsson-
ar þótti vinátta hans einlægur fé-
lagsandi, viðmótshlýja, drengskap-
ur og hjálpfýsi hans aðal.
Sem fyrr segir dvaldi Baldur
Ólafsson langdvölum í Vestmanna-
eyjum. Þar kynntist hann hversu
oft er stormasamt á Stórhöfða, en
einnig blása þar hlýir vindar.
Kærleiki guðs fylgi hinum fram-
liðna.
Aðstandendum votta ég innilega
samúð.
Adolf Björasson
Fæddur 2. ágúst 1911
Dáinn 28. desember 1988
Okkur setti hljóð þegar fréttin
um andlát afa barst. Hann hafði
dvalið á spítala um mánaðartíma
og okkur fannst hann hinn hress-
asti þegar hann tók á móti okkur
uppábúinn á spítalanum um jólin.
En þannig er það nú að dauðinn
kemur að óvörum ekki síst þegar
einhver á í hlut sem maður elskar
og virðir.
Þær eru ófáar minningamar frá
þeim tíma þegar afí og amma bjuggi
í Vestmannaeyjum enda voru heim-
sóknimar þangað hið mesta ævin-
týri. Þau bjuggu á 2. hæð í bankan-
um þar sem afí var bankastjóri. Þar
var oft glatt á hjalla enda leikvöllur-
inn stór. Oftar en ekki var sjálfur
bankinn aðal leiksvæðið jafet á
opnunartíma sem utan hans. Hún
var ótrúleg þolinmæðin og gæskan
sem afí sýndi okkur krökkunum
þegar við völsuðum um bankann
eins og hann væri okkar eigin.
Það varð okkur systkinunum
mikið tilhlökkunarefni þegar við
fréttum að afí og amma ætluðu að
flytja frá Eyjum í næsta nágrenni
við okkur í Garðabæinn. Þá urðu
heimsóknimar enn tíðari, heimili
þeirra varð nánast okkar annað svo
stutt var á milli húsa.
Það er ekki síst rólyndi, bjartsýni
og jákvæðni afa sem skín í gegn í
minningunni um hann frá þessum
tímum. Eiginleikar sem einkenndu
hann fram á síðasta dag.
Með þessum orðum kveðjum við
aía. Elsku amma, megi góður Guð
styrkja þig á þessari erfiðu stundu.
Baldur, Nina og Bryndís
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ THEÓDÓRA SIGURÐARDÓTTIR,
Holtsgötu 41, Reykjavík,
verður jarðsungin, frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. janúar kl.
13.30.
Steinþór Steingrímsson,
Sigurður Örn Steingrfmsson,
Sigrún Steingrímsdóttir,
Hreinn Steingrfmsson,
Svala Wigelund,
Guðrún Blöndai,
Bjarni Magnússon,
Steingrfmur Steinþórsson.
t
Sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA SIGURBORG BJARNADÓTTIR,
Stffluseli 6,
sem lóst af slysförum þann 29. desember, verður jarðsungin frá
Seljakirkju föstudaginn 6. janúar kL 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnafélag fslands.
Haraldur Gfslason,
Sigrföur Einarsdóttir, Þorsteinn Björnsson,
Guðlaugur Einarsson, Bryndfs Aðaisteinsdóttir,
Bjarni Einarsson, Una Jóhannesdóttír,
Kristinn Einarsson, Ólfna Gunnlaugsdóttir,
Guðbrandur Einarsson
og barnabörn.
Nú, er sólargangur er hvað styst-
ur á Islandi, en ljós jólanna milda
okkur skammdegið, andaðist hinn
27. desember sl. Baldur Ólafsson,
fyrrverandi bankastjóri Útvegs-
banka Islands í Vestmannaeyjum,
á Skt. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Andlát Baldurs kom okkur að-
standendunum ekki á óvart, hann
hafði átt við þannig vanheilsu að
stríða að til beggja átta gat brugð-
ið, en óneitanlega breyttist svipmót
hátíðanna, er harmafregnin barst
okkur.
Baldur var 77 ára gamall, er
hann féll frá, en hann var fæddur
hinn 2. ágúst 1911 á Hofsósi, sonur
hjónanna Ólafs Jenssonar frá
Innri-Veðraá í Önundarfirði og Lilju
Haraldsdóttur frá Bjamastöðum í
Flugumýrarsókn í Skagafirði. Var
Baldur fæddur í gamla verzlunar-
húsinu á Hofsósi, en Ólafur faðir
hans stundaði verzlunarrekstur á
Hofsósi og hafði um tíma mikil
umsvif. Þar dvaldi Baldur um æsku-
ár sín ásamt systkinum sínum,
Ástu, Jens og Haraldi, en hann lézt
sem ungur maður, er hann hrapaði
í björgum, og var það mikill harmur
flölskyldunni. Af systkinahópnum
lifír nú aðeins Jens, sem búsettur
er í Vestmannaeyjum.
En erfíðir tímar fóra í hönd,
mest vegna verðfalls á saltfiski, og
Ólafur Jensson tók sig upp árið
1922 og fluttist með fjölskylduna
til Siglufjarðar, þar sem hann vann
verzlunarstörf. Mun Baldur þá hafa
verið 11 ára gamall og áreiðanlega
erfítt hinum unga sveini að yfírgefa
æskustöðvamar og halda á vit
nýrra slóða. En á þessum áram var
mikið líf á Siglufirði í tengslum við
síldveiðamar og minntist Baldur
áranna þar oft með ánægju, m.a.
þess að hann aflaði sér vasapeninga
með því að hlaupa um borð I norsku
skipin og kalla „kino i kvell" (bíó
í kvöld), til þess að auka aðsókn
kvikmyndahúss staðarins. Þetta
vora fyrstu samskipti Baldurs
Ólafssonar við Norðmenn, en þau
áttu eftir að verða mikil síðar.
Þegar Baldur er 17 ára flytur
Ólafur Jensson enn með fjölskyldu
sína og nú til Vestmannaeyja, þar
sem hann tók við starfí póstmeist-
ara, sem hann gegndi til dauða-
dags. Ólafur varð þekktur í Eyjum
fyrir einstaka reglusemi og ná-
kvæmni í allri sinni umsýslan ásamt
fyrir virðulega framkomu, en Lilja,
móðir Baldurs, var hin milda og
Kransar, krossar
W ogkistuskreytingar.
‘ Sendum um allt hmi,
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84200