Morgunblaðið - 15.01.1989, Page 1

Morgunblaðið - 15.01.1989, Page 1
96 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 13.tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fyrsti fundur bresks ráðherra með Arafat: Israelar verða „skildir eftir“ gangi þeir ekki til samninga Túnis. Reuter. BRESKUR ráðherra sagði að loknum fimdi með Yasser Arafat, leiðtoga PLO, Frels- issamtaka Palestínumanna, að ísraelar yrðu „skildir eftir“ gripu þeir ekki tækifær- ið og tækju upp samninga um framtíð Palestínumanna. Var þetta í fyrsta sinn, sem breskur ráðherra ræðir við Arafat. Vilja sameig- inlegt ritmál inúítaþjóða GRÆNLENDINGAR ætla að beita sér fyrir því á þessu ári, að frumbyggjaþjóðimar á norðurheimskauts- svæðinu — í Alaska, Kanada, Síberíu og Grænlandi — taki upp sameiginlegt ritmál. í samstarfi Græn- lendinga við aðra inúíta er enska aðal- málið, en inúítar skilja talmál hverjir annarra — með erfiðismunum þó. I fyrstu lotunni ætlar Jonathan Motz- feldt, formaður landsstjórnarinnar, sem átti hugmyndina, að einbeita sér að Kanada og Alaska og leggja til við inúita þar, að grænlenska ritmálið verði sameiginlegt ritmál. Inúítar í Kanada eiga ritmál, sem byggt er á samstöfum, það er að segja að ritmáls- táknin samsvara atkvæðum í orðum, líkt og í japönsku. Inúítar utan Kanada em ekki læsir á það. Noregur: Sakaður um 81 íkveikju Ósló. Reuter. Norðmaður nokkur hefiir verið ákærður fyrir 81 íkveikju víðs vegar um Suður-Noreg á síðastliðnum þrem- ur ámm. Er tjónið, sem eldamir ollu, metið á rúman miHjarð ísl. kr. Talsmað- ur ríkissaksóknara í Noregi sagði, að maðurinn, sem er 36 ára að aldri, ætti yfir höfði sér 21 árs fangelsi yrði hann fundinn sekur. Verður málið tekið fyr- ir í næstu viku. Deyja úr kulda í Bangladesh Dhaka. Reuter. YFIRVÖLD í Bangladesh hafa ákveðið að loka öllum skólum i sumum hémðum í norðurhluta landsins vegna óvenju- legra kulda. Síðustu tvo daga hafa þeir valdið dauða 20 manna. I Dinajpur- héraði var hitinn ekki nema 4,5 gráður á Celsíus í gær og þar hafa níu látist og 11 í Rajshahi-héraði. Þetta nýbyijaða ár getur skipt sköp- um. Nú höfum við tækifæri og ef við nýtum það ekki er óvíst, að það gefist aftur,“ sagði William Waldegrave, aðstoðar- utanríkisráðherra Breta, á föstudagskvöld að loknum tveggja tíma fundi með Arafat í Túnisborg í Túnis. „Þessi fundur er til marks um ný viðhorf innan bresku stjómarinnar og ísraelar, sem vilja vita hvað klukkan slær, verða að átta sig á því, að tímarnir eru að breytast. Ef þeir gera það ekki, verða þeir skildir eftir,“ sagði Waldegrave. Waldegrave og Arafat ásamt mörgum frammámönnum innan PLO ræddu aðallega um alþjóðlega ráðstefnu um frið í Miðaust- urlöndum og hvemig best væri að koma henni um kring. ísraelar eru andvígir henni og Bandaríkjamenn hafa hingað til lagt mesta áherslu á beinar viðræður ísraela og Palestínumanna. Segja ísraelar, að hug- myndir PLO séu aðeins tilraun til að tortíma ísrael en Bretar og önnur Evrópuríki segja, að þær séu þær raunhæfustu, sem fram hafí komið í áratugi. Waldegrave sagði, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að Arafat yrði boðið til Bretlands ef það gæti orðið til að þoka málum áleiðis og tók síðan upp útsaumaðan, palest- ínskan púða og sagði: „Eg verð ekki í rónni fyrr en ég get gengið eftir götu og keypt svona djásn, palestínskan grip, i landi, sem er ykkar eigið.“ „Það er búðarhola í Lond- on . . .,“ sagði þá einn aðstoðarmanna Arafats. „Nei, ég vil kaupa hann í ykkar landi,“ áréttaði Waldegrave. SENDIHERRAR STÚRVELDANNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.