Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 It\ \ er sunnudagur 15. janúar. Bændadagur að vetri. 2. sd. eftir þrettánda. 15. dagurársins 1989. Árdegsflóð í Reykjavík kl. 12.22 og síðdegisflóð kl. 25.02. Sólarupprás í Rvík kl. 10.54 og sólarlagkl. 16.21. Myrkur kl. 17.27. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.37 og tunglið í suðri kl. 20.19 (Almanak Háskóla íslands.) En Guð allrar náðar, sem hefiir kaUað yður í Kristi til sinnar eilífii dýrðar, mun sjálfur, er þér hafið þjáðst um lítinn tíma, fullkomna yður, styrlqa, og öfluga gjöra. (l.Pét. 5,10.) ÁRNAÐ HEILLA GULLBRÚÐKAUP eiga í dag, 15. janúar, hjónin fi-ú Svein- björg Ásgrimsdóttir og Benedikt Jónasson, Sigtúni 59 hér í bænum. Gullbrúðkaupshjónin eru að heiman. rjf\ára afinæli. Næstkomandi þriðjudag, 17. þ.m., er sjö- I l/tug Kristín Þorvaldsdóttir, Hörpugötu 11 hér í bænum. Hún ætlar að taka á móti gestum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar er búa á Ægissíðu 96 hér í Vesturbæn- um. MANNAMÓT KVENFÉL. Kópavogs heldur hátíðarfund fyrir fé- lagsmenn sína og gesti þeirra fimmtudaginn 26. þ.m. í fé- lagsheimili bæjarins kl. 20. Eru félagsmenn beðnir að láta vita um þátttöku sína og hringja í eitthvert þessara símanúmera: 40332, 41949 eða 40388. MOSFELLSBÆR. Tóm- stundastarf aldraðra heldur fund nk. þriðjudag í Hlé- garði. Kynnt verður fyrir- huguð sumarferð til Dan- merkur í júnímánuði nk. Á fundinn kemur frú Anna Sig- urkarlsdóttir, sem fór slíka ferð á vegum félagsstarfs aldraðra í Kópavogi á sl. sumri og mun hún segja frá þessari hópferð. Kynningar- fundurinn hefst kl. 13.30. SPILAKVÖLD á vegum félaganna Framsóknar og Sóknar heflast á ný nk. þriðjudagskvöld 17. þ.m. í Sóknarsalnum, Skipholti 50. Verður þetta fyrsta kvöldið í Qögurra kvölda spilakeppni með tilheyrandi spilaverð- launum. SAMVERKAMENN móður Teresu halda mán- aðarlegan fund sinn á Há- vallagötu 16 annað kvöld, mánudag 16. þ.m. Venjulega hafa fundimir hafist kl. 20.30 en þessi hefst kl. 20. FÉLAG eldri borgara. í dag, sunnudag, er opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, og verður frjálst spil og tafl kl. 14 og dansað kl. 20. Á morg- un, mánudag, verður opið hús í Tónabæ kl. 13.30 og verður byijað að spila félagsvist kl. 14. KVENFÉLAG BESSA- STAÐAHREPPS heldur aðalfund sinn nk. þriðjudags- kvöld, 17. þ.m., á loftinu á Bjamastöðum, og hefst hann kl. 20.30. BREIÐFIRÐINGAFÉ- LAGIÐ efnir til ijögurra umferða spilakeppni og verð- ur fyrsta umferð spiluð í dag í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, í dag, sunnudag kl. 14.30. LÁRETT: 1 hugaða, 5 tal- an, 8 ávöxturinn, 9 skelfa, 11 móðir, 14 tók, 15 eyddur, 16 raðtala, 17 beita, 19 mæt- ur, 21 flanað, 22 málminum, 25 askur, 26 tóm, 27 stúlka. LOÐRÉTT: 2 magur, 3 skap, 4 dýranna, 5 deilan, 6 þjóta, 7 sár, 9 sorgbitin, 10 spéfugls, 12 tunglinu, 13 ákveður, 18 líkan af manns- líkama, 20 komast, 21 end- ing, 23 guð, 24 greinir. LAUSN SIÐUSTU KROSSGATU: LÁRÉTT: 1 folar, 5 skæla, 8 rifta, 9 ófátt, 11 úldin, 14 aur, 15 aflið, 16 illur, 17 inn, 19 regn, 21 áðan, 22 andliti, 25 Rán, 26 ýli, 27 róm. LÓÐRÉTT: 2 orf, 3 art, 4 ritaði, 5 stúrin, 6 kal, 7 lúi, 9 ófagrar, 10 árlegan, 12 dólaðir, 13 nýmnum, 18 núll, 20 NN, 21 át, 23 dý, 24 II. ÞETTA GERÐIST 15. JANÚAR Þetta gerðist þennan dag: 1559: Elízabet I. krýnd á Englandi. 1582: Friðurinn í Jam-Zap- olski milli Pólveija og Rússa undirritaður og Rússar missa þá aðgang að Eystrasalti. 1877: Austurríki samþykkir að gæta hlutleysis í yfirvof- andi ófriði Rússa og Tyrkja. 1896: Frakkar og Bretar gera með sér samning um Síam (Thailand). 1919: I. Paderewski verður fyrsti forsætisráðherra ný- stofnaðs lýðveldis í Póllandi. 1922: írska fríríkinu undir forystu Michaels Collings komið á stofn. 1943: Bandarískar hersveitir hrekja Japani frá Guadal- canal. 1963: Tshombe Kongóforseti samþykkir Katanga-áætlun Sameinuðu þjóðanna. 1969: Þremur sovéskum geimfömm skotið í geimfari til móts við geimfar á braut. 1973: Páll páfi VI tilkynnir Goldu Meir að hann styðji alþjóðlega stjóm í Jerúsalem. Og Nixon Bandaríkjaforseti fyrirskipar að öllum árásarað- gerðum gegn N-Viet-Nam skuli hætt. FRÉTTIR 1978: Jimmy Carter forseti ræðir við íranskeisara í Therean. 1980: íran vísar bandarískum fréttarituram úr landi. Þennan dag árið 1815 lést Emma, lafði Hamilton, hjá- kona Nelsons lávarðar. Þenn- an dag fæddust þessir: Franska skáldið Moliére (1622-1673) og Martin Luther King baráttumaður blökkumanna í Bandarílq'un- um (1929-1968). Þetta gerðist 15. janúar hér innanlands: 1888: Hannes Hafstein flytur fyrirlestur sinn um rómantík og realisma í Góðtemplara- húsinu hér í Reykjavík. 1934: Skýrt frá málshöfðun gegn lögreglustjóranum í Reykjavík vegna kolludráps. 1935: Mjólkursamsalan tekur við allri mjólkursölu í Reykjavík. 1979: Tveir bátar fórast á Skjálfanda. 1980: Svavari Gestssjmi falin stjómarmyndun. Þennan dag fæddust Valur Gíslason leikari árið 1902 og Guðmundur Ingi Kristjánsson 1907. Og þennan dag árið 1886 lést Hilmar Finsen bisk- up. FRÍMERKI. I tilk. frá Póst og símamálastofnun segir að fyrstu frímerkin sem út koma á þessu ári komi út 2. febrúar næstkomandi. Era það fugla-frímerki. Er annað þeirra 100 króna frímerki. Á því er mynd af sólskríkju/s- njótittlingi. í fréttatilk. er frá- sögr. um fuglinn og þess get- ið að hann sé mjög útbreiddur varpfugl um land allt. Þéttast sé varpið í Flatey á Breiða- firði. Frímerkið með mynd af óðinshana er í verðgildinu 19 krónur. Óðinshaninn heldur sig hérlendis u.þ.b. 3 mánuði á ári. Þótt þessi fugl sé lítill heldur hann sig á vetrum úti á reginhafi. Þröstur Magnús- son teiknaði frímerkin. Sér- stakur dagstimpill verður not- aður útgáfudaginn. FATAÚTHLUTUN ávegum Mæðrastyrksnefiidarinnar hér í Reykjavík fer fram tvo daga í þessari viku, miðviku- dag og fimmtudag, í Traðar- kotssundi 6 kl. 15 til 18, báða dagana. MINNINGARKORT MINNINGARKORT Kristniboðssambandsins fást í Aðalskrifstofunni Amt- mannsstíg 2B (húsi I£EUM bak við menntaskólann) s. 17536 og 13437. SKIPIN_______________ REYKJAVÍKURHÖFN. Aðfaranótt laugardagsins kom togarinn Vigri úr sölu- ferð. í fyrrinótt fór Ljósafoss á ströndina. í gærkvöldi fór Skógarfoss áleiðis til út- landa. HAFNARFJARÐARHÖFN. Nú um helgina era tveir stór- ir rækjutogarar grænlenskir væntanlegir af miðunum til löndunar. Þeir heita Tass- illaq og Tasermiut. Þá kom þangað í gær erl. leiguskip, Flexen, með saltfarm. MOLAR • Fyrsta raunverulega dagblaðið hóf göngu sina í þýsku borginni Augsburg 1505. Var það maður að nafiii Erhard Oeglin sem var útgefandi þess. Á þessu sviði voru Kínveijar langt á undan Evrópumönnum og hófst blaðaútgáfa þar nokkrum öldum fyrr. Fyr- irmynd hinna evrópsku dagblaða var dagblað Róm- veijanna fornu „Acta Diuma“, sem birti fréttir er snertu borgarlífið. MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM Á fyrra ári komu hingað til lands 7768 útlending- ar. Flestir þeirra höfðu hér aðeins skamma við- dvöl. Komu t.d. tæplega 6200 farþegar með 16 skemmtiferðaskipum, sem hér stóðu við dag- langt. Með skipunum sem era í föstum ferðum milli íslands og annara landa komu tæplega 3000 manns og vora útlending- ar í þeim hópi 1592, en íslendingar 1380. Hér eru ekki taldir þeir far- þegar sem komið hafa til landsins með skipum sem taka jafhaðarlega höfii á Austur- eða Norðurlandi eða öðrum skipum. Bret- ar era Qölmennastir meðal hinna útlendu gesta rúmlega 540, þá Dandir 420 og Þjóðveijar tæplega 220. Dvalarleyfi í landinu í þijá mán. eða lengur var veitt 105 út- lendingum. ORÐABÓKIN Rest og lok Fyrir viku var minnzt á no. rest og einkum notkun þess í sambandi við jólin, þegar menn sögðu __ eða segja: gleðilega rest. Ýmis- legt annað varð þá út und- an, sem rétt er að vekja athygli á. Vissulega er þetta orð ekki alveg nýtt í íslenzku. í OH er m.a. dæmi um það um afgang allt frá upphafí 18. aldar. „Restin átti að betalast í Rifsbúð- um,“ stendur í gömlum ann- ál. Fremur mun það hafa lifað í talmáli en ritmáli. Þó bregður því fyrir í ritum. í auglýsingu frá 1902 stend- ur: „Verzlun Th. Thor- steinsson selur „restir“ af margskonar lömpum.“ Úr því era mörg dæmi úr prent- uðu máli. Þetta má t.d lesa undir mynd í Mjólkurmál- um, tímariti Tæknifélags mjólkuriðnaðarins, 2/88: „Hér er slakað á svona rétt í restina þótt enn sé rætt um framleiðslutæknileg málefni." Hér hefði auðvitað farið betur og raunar átt að segja: í lokin. Ég vona, að flestir séu mér sammála um það. Því miður heyrist oft talað um að gera eitt- hvað í restina og talað um restir af þessu og hinu og ekkert síður hjá því unga fólki, sem lætur móðan mása í útvarpi og sjónvarpi. Þar ættu menn þó að vera til fyrirmyndar um málfar. - JAJ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.