Morgunblaðið - 15.01.1989, Side 28

Morgunblaðið - 15.01.1989, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ATVIMIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna roskaþjálfar - meðferðarfulltrúar óskast sem fyrst til starfa á skammtímavistun sem rekin er sameiginlega af félagsmálaráðu- neytinu og Styrktarfélagi vangefinna. Um er að ræða kvöld- og helgarvinnu. Leitað er sér- staklega eftir starfsmönnum í fullt starf. Upplýsingar gefur Hrefna Haraldsdóttir, for- stöðumaður í síma 38228 og í heimasíma 31818. Styrktarfélag vangefinna. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar Við á FSA leitum að starfsfólki, sem er til- búið til að takast á við nýtt verkefni á lyflækn- ingadeild FSA. Hvað bjóðum við? - Sveigjanlegan vinnutíma. - Skipulagða fræðslu. - Skipulagða aðlögun. - Áhugavert og uppbyggjandi starf. Hvert er verkefnið? Ætlunin er að skipta lyflækningadeildinni, sem er sú eina sinnar tegundar á sjúkrahús- inu, í tvær minni einingar. Á annarri verða m.a. sjúklingar með hjarta-, æða- og lungna- sjúkdóma, en aðallega sjúklingar með melt- ingarfærasjúkdóma á hinni. Um er að ræða tilraunaverkefni. Hvaða starfsfólk vantar okkur? Deildarstjóra, sem hefur áhuga á stjórnun og skipulagningu. Hjúkrunarfræðing í K1 stöðu. Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, sem hafá áhuga á lyflækningahjúkrun. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Þeir, sem hafa áhuga, geta fengið nánari upplýsingar hjá hjúkrunarframkvæmda- stjóra, Sonju Sveinsdóttur, í síma 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsiö á Akureyri. Atvinnurekendur Atvinnumiðlunin NORDJOBB - 89 er tekin til starfa. Árið 1985 var sett á stofn atvinnumiðlun fyrir ungt fólk á Norðurlöndum undir nafninu. NORDJOBB. Yfirumsjón með þessari atvinnu- miðlun hefur sjálfseignarstofnun á vegum Norr- ænu iðnþróunarstofnunarinnar (Gyllen- hammarhópurinn) og Norrænu félaganna á öllum Norðurlöndum. Framkvæmd verkefn- isins er í höndum Norrænu félaganna. í sumar er reiknað með að u.þ.b. 100 ung- menni frá íslandi fái sumarvinnu á hinum Norðurlöndunum og svipaður fjöldi komi hingað til vinnu. Þau skilyrði eru sett fyrir umsóknum að umsækjendur séu orðnir 18 ára, en ekki eldri en 26 ára. Miðað er við að atvinnan fari fram á tímabilinu frá júní- byrjun og fram í miðjan september. Laun verða greidd eftir kjarasamningum í hverju landi. Þeir atvinnurekendur sem áhuga hafa á að ráða til sín ungt fólk frá hinum Norðuríöndun- um í sumarvinnu, vinsamlega hafið samband við Ástu Erlingsdóttur, verkefnisstjóra hjá Norræna félaginu í síma 1 96 70. R4ÐGJÖF OG RAÐNINCAR Ert þú töluglögg(ur)? Nú vantar okkur gott fólk í: Launaútreikninga hjá opinberri stofnun í miðbænum. Bókhalds-og gjaidkerastörf hjá þjónustu- fyrirtæki í Skeifunni. Reynsla af bókhaldi skilyrði. Æskiiegur aldur 30-40 ára. Ábendi sf., Engjateigi 9, sími 689099. Opiðfrákl. 9-15. Kerfisfræðingur Öflugt fjármálafyrirtæki í borginni vill ráða kerfisfræðing til starfa sem fyrst. Leitað er að tölvunarfræðingi eða aðila með sambærilega menntun. Starfið felst m.a. í hönnun hugbúnaðar í mjög fjölbreyttu umhverfi. Góð vinnuaðstaða er fyrir hendi. Farið verður með allar umsóknir og fyrir- spurnir í fyllsta trúnaði. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist skrifstofu okkar fyrir 22. janúar nk. QidntIónsson RÁÐC JÖF & RÁÐN I NCARÞJÓN LISTA TJARNARGÖTU14,101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI621322 (Isl | FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ |á akureyri Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, aðstoðarfólk Við á FSA óskum eftir ykkar hjálp. Okkur vantar hjúkrunarfræðinga á öldrunar- deildirnar, Seí og B-deild. Við erum fús til að koma til móts við óskir ykkar um vinnutíma og vinnuhlutfall. Sjúkraliða vantar okkur á fastar næturvaktir í Sel sem allra fyrst. Hlutastarf kemur til greina. Einnig viljum við ráða starfsþjálfa í Sel. Starfið er fólgið í því að vera með vistmönn- um og veita þeim stuðning, hvatningu og leiðbeiningar í ýmsum afþreyingarverkefn- um, svo og athöfnum daglegs lífs. Um hluta- starf er að ræða. Nánari upplýsingar gefur Sonja Sveinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 22100 milli kl. 13.00 og 14.00, virka daga. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir hjúkrunar- fræðingum til starfa sem fyrst. Góð laun og ódýrt húsnæði. Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma 95-1329. Ljósmyndari óskast Óskum að ráða Ijósmyndara sem fyrst. Við- komandi þarf að kunna góð skil á fjölskyldu- og barnamyndatökum auk annarra Ijós- myndastarfa. Umsóknir er greini frá menntun og starfs- reynslu sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Ljósmyndari 1989 - 6340“ fyrir 23. janúar. Ert þú offsetprentari - og vilt breyta til? Okkur vantar offsetprentara sem fyrst. Lítill og þægilegur vinnustaður. Offsetfjölritun hf. LÁGMÚLA 7 (BAKHÚS) S 687890 P.O. BOX 8233 128 REYKJAVÍK BORGARSPÍTALINN Aðstoðarlæknar Þrjár stöður reyndra aðstoðarlækna við lyf- lækningadeild eru lausar til umsóknar. Ein staðan veitist frá 1. apríl en tvær frá 1. maí til eins árs. Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf sendist yfirlækni lyflækninga- deildar fyrir 15. febrúar nk. Forstöðumaður á skóladagheimili Börn og starfsfólk á skóladagheimilinu Greni- borg bráðvantar fóstru til að veita heimilinu forstöðu. Greniborg er eitt af fjórum barna- heimilum Borgarspítalans. Þar er aðstaða fyrir rúmlega 20 börn á aldrinum 6-8 ára. Nánari upplýsingar veitir aðstoðarfram- kvæmdastjóri í síma 696205. Starf á ræstingadeild Starfsmaður óskast til aðstoðar hjá ræst- ingastjóra. Upplýsingar gefur ræstingastjóri alla virka daga frá kl. 13.00-14.00, ekki í síma. RIKISSPÍTALAR Aðstoðarlæknir Staða reynds aðstoðarlæknis við Skor 1 geðdeild Landsprtalans er laus til umsóknar. Ráðning er frá 1. febrúar nk. til eins árs. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Lárusi Helgasyni, yfir- lækni, sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið í síma 601708. Hjúkrunarfræðingar Aðstoðardeildarstjóri og hjúkrunarfræð- ingar óskast á geðdeild 33C. Deildin er móttökudeild á Landspítalalóð. Um er að ræða morgun- og kvöldvaktir. Nánari upplýsingar veitir Nanna Jónasdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602600. Umsóknir sendist til Nönnu Jónasdóttur. Reykjavík, 15.janúar1989. BS-líffræðingur - BS-hjúkrfræðingur Rannsóknastofa H.í. í lífeðlisfræði óskar eft- ir starfsmanni í tölvuúrvinnslu á rannsóknar- verkefni. Ráðningartími er 1/2 til 1 ár. Dag- legur vinnutími eftir samkomulagi. Frekari upplýsingar fást í síma 694830 (kl. 9-12). Umsóknir um nám og fyrri störf sendist Rannsóknastofu í lífeðlisfræði, Vatnsmýrar- vegi 16, fyrir 25. janúar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.