Morgunblaðið - 19.01.1989, Qupperneq 21
öllum, hvað sem verður þegar þeim
verður ljóst að um tvennt er að
velja, að losna úr ftjálshyggjunni
eða hætta stjórnmálaafskiptum.
Um tildrög að myndun ríkis-
stjórnar Steingríms Hermannsson-
ar ætla ég ekki að hafa mörg orð
að þessu sinni. Það lá fyrir að við
vorum tilbúin að mynda ríkisstjórn
ef við gætum tryggt að slík stjórn
stigi spor til réttlætisáttar. Við
komum mörgum grundvallar-
stefnumálum okkar inn í stjórnar-
sáttmálann og það hefur verið tekið
tillit til skoðana okkar eins og ann-
arra, sem styðja þessa ríkisstjórn.
Sú staðreynd blasti við, að jöfn at-
kvæði yrðu í neðri deild og af því
leiddi að stjórnarandstaðan hafði
þar stöðvunarvald stæði hún sam-
an. En við nánari umhugsun um
ýmsa þingmenn og bakgrunn þeirra
hefði öllum átt að vera ljóst, að
þeirra á meðal eru einstaklingar
sem frekar mundu ljá ríkisstjórninni
styrk en fijálshyggjunni á úrslita-
stundum.
Eg mun hér aðeins nefna Aðal-
heiði Bjarnfreðsdóttur. Hún er
sprottin upp úr þeim jarðvegi sem
ég þekki vel, hefur alist upp og
starfað úti í stijálbýlinu, verið síðan
í forystusveit lágtekjukvenna í höf-
uðborginni og er þekkt af því að
standa fast og einarðlega á skoðun-
um sínum og sannfæringu. Á
kvennafrídaginn 24. okt. 1975 boð-
uðu konur til fundar á Lækjartorgi
í Reykjavík. Mætti þar mikið fjöl-
menni. Meðal annarra flutti Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir athyglis-
verða ræðu, sem hreif hug og hjörtu
áheyrenda, jók bjartsýni og sjálfs-
traust íslenskra kvenna og hafði
án alls efa mikil áhrif á þá miklu
umræðu og baráttu, sem hefur ver-
ið fyrir jafnrétti kynjanna síðan.
Mikið hefur verið vitnað í þessa
umræðu Aðalheiðar, t.d. í sambandi
við þá hreyfingu sem myndaðist um
framboð Vigdísar Finnbogadóttur
1980. Ég hygg að neisti frá ræðu
hennar hafi komið þeirri hreyfingu
af stað, sem varð til þess að Islend-
ingar urðu fyrstir til að kjósa konu
á forsetastól. Það er einnig athygli
vert og sýnir vel festu og þroska
Aðalheiðar, að þegar konur blésu í
lúðra og söfnuðust um Kvennalist-
ann var hún ekki í þeim hópi. Hún
vill raunverulegt jafnrétti, ekki
pólitíska kvenna- eða karlaflokka.
Hún hefur þrek og áræði til að tak-
ast á við hvem sem er og sýndi það
í verki nú fyrir jólin, sem ætti að
verða öðmm til eftirbreytni. Slík
kona með þá lífsreynslu og skap-
gerð getur ekki og mun aldrei styðja
fijálshyggjuöflin í hvaða kvikinda
líki sem þau birtast. Þó fleiri ein-
staklingar muni feta í fótspor Aðal-
heiðar verða þeir ekki nefndir að
sinni.
Ég sagði við myndun ríkisstjórn-
ar Steingríms Hermannssonar, að
hægt væri að tryggja meirihluta í
báðum deildum Álþingis fyrir þeim
málum, sem nauðsynlegt væri að
lögfesta ef þau væm á annað borð
þannig, að ég gæti staðið að sam-
þykki þeirra. Galdurinn er sá að
meta aðstæður og einstaklinga og
draga réttar ályktanir af stöðu
mála, sem sagt heilbrigð skynsemi.
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar þarf engu að kvíða ef
Kristín Þorkelsdóttir.
MQRGIJHBLAÐIÐ FIMMTUIJAGUR 19. JANÚAR 1989
21
hún stendur við stjórnarsáttmálann
og tekur vemlegt skref á fýrstu
mánuðum þessa árs til réttlætisátt-
ar. Náist ekki samstaða um það
innan stjórnarliðsins er hætt við
miklum átökum á vinnumarkaðin-
um og nýrri kollsteypu, vaxandi
verðbólgu, meira misrétti eða
áframhaldandi misrétti, þar með
atvinnuleysi. Því þarf að taka á
málum strax, koma hjólum fram-
leiðslunnar af stað og tryggja henni
rekstrargmndvöll, endurskoða allt
tekjuöflunarkerfi hins opinbera með
það að markmiði, að jafna lífskjörin
og lífsaðstöðuna og fella niður
matarskattinn af innlendri mat-
vælaframleiðslu. Ef þjóðin sér og
finnur að stjórnað er í anda jafnrétt-
is og félagshyggju verður öllum
kröfum stillt í hóf. En hér verða
verkin að tala. Þá verður kröfum
stillt í hóf og fýrir hendi verður
meiri hluti í báðum deildum Al-
þingis fyrir slíkum breytingum. Því
stendur þjóðin nú á krossgötum,
framleiðslan og fyrirvinnufólkið
mun sækja rétt sinn með verkföllum
og hörðum kosningum á þessu ári,
ef ríkisstjóm og Alþingi tekur ekki
á málum af raunsæi.
Gleðilegt ár með þeirri ósk og
von, að þetta ár verði ár jafnari
lífskjara og markvissari vinnu-
bragða.
Höfundur er alþingismaður Sam■
taka jafhréttis og félagshyggju.
RÝMINGARSALA
FLÍSAR - HEIMILISTÆKI - HÚSGÖGN
Gerið góð kaup
Eitthvað fyrir alla
EuroA/isa raðgreiðslur.
AtFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
Skútuvogi 4
Skyldi nokkur „pabbi“ nokkru
sinni hafa dregið að sér jafn
almenna athygli?
Á hverju laugardagskvöldi.
Föðurleg ábending til auglýsenda.
BILL COSBY
koniinn ailnr.
■O
SJÓNVARPIÐ
ekkert rugl.