Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
AF INNLENDUM
VETTVANGI
ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN
Enn er deilt um skólastjóra í Ölduselsskóla:
„Vopnahlé“ meðan ráðu-
neytið kannar málið
Kennarar ákæra skólastjóra í 26 liðum
MIKIÐ hefur gengið á í Ölduselsskóla i Breiðholti undanfarið miss-
eri. í hópi kennara skólans eru margir, sem illa sœtta sig við nýja
skólastjórann, Sjöfii Sigurbjömsdóttur, sem sett var til starfans
síðastliðið sumar. Deilan hefiir sett mark sitt á skólalífið og tekið
mestallan fundatíma frœðsluráðs undanfaraar vikur. Hún hefiir
einnig haft áhrif á samskipti fræðslustjóra og fræðsluráðs og nú
er málið til meðferðar í menntamálaráðuneytinu. Eftir að formaður
fræðsluráðs ræddi við alla málsaðila í sfðustu viku hafa sverðin
verið slíðrað f bili, og þess er beðið að menntamálaráðuneytið kom-
ist að niðurstöðu.
Tveir sóttu um stöðu skólastjóra
í maí síðastliðnum, þau Reynir
Daníel Gunnarsson, yfírkennari við
skólann, og Sjöfn Sigurbjömsdótt-
ir, sem þá var kennari og deildar-
stjóri við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti. Meirihluti fræðsluráðs
Reykjavíkur mælti með Sjöfn, en
Daníel hafði hins vegar stuðning
samkennara sinna og foreldraráðs
nemenda við skólann, sem mót-
mæltu ákvörðun fræðsluráðs kröft-
uglega. Birgir ísleifur Gunnarsson,
þáverandi menntamálaráðherra,
setti Sjöfn svo í embættið til eins
árs að fengnum fjórum af fimm
atkvæðum fræðsluráðs og á þeim
forsendum að hún hefði meiri
reynslu af stjómunarstörfum.
Lengi á eftir sátu kennarar og for-
eldrar á löngum fundum og sendu
frá sér hvert mótmælaskjalið eftir
annað. Foreldrafélagið sætti sig
loks við orðinn hlut og vildi frið
um skólastarfíð, en kennarar eru
ekki allir af baki dottnir.
Ákæruskjal
þriggja kennara
fömum ámm. Þá hafí samráðs-
fundir kennara og stjómenda nán-
ast lagst af í yngri deildum og
þeim fækkað í eldri deildunum.
Sjöfn segir að fundimir séu á hálfs
mánaðar fresti í eldri deildunum
og hafí kennarar samþykkt það
fyrirkomulag mótatkvæðalaust,
enda gefí það þeim meiri tíma til
að vinna að sameiginlegum verk-
efnum. Fundir í yngri deildum hafí
ekki verið settir inn á stundatöflu,
en hún hafí verið fullunnin þegar
hún kom til starfa. Yfírkennari
fundi reglulega með kennurum í
yngri deildum.
Kennarar gagnrýna að skóla-
stjóri hafí fengið leiðbeinendur
(kennara án réttinda) til forfalla-
kennslu án þess að ræða fyrst við
réttindakennara. Sjöfn svarar þvi
til að í vetur hafí kennsla fallið
niður í 18% forfallastunda kennara,
en í fyrravetur í 37% og hafí því
gengið mun betur að fá kennara
til að taka að sér forfallakennslu.
Oftast hafi hún sjálf reynt að bæta
úr, hafí ekki tekist að útvega for-
fallakennara.
Ölduselsskóli
Um miðjan desember sendu þrír
fulltrúar kennara í kennararáði,
þeir Jón Barðason, Sigmar Hjartar-
son og Sveinbjöm Þórkelsson,
fræðsluráði bréf, þar sem kvartað
er undan þvi að skólastjóm í Öldu-
selsskóla sé í molum og stefnuleysi
skólastjórans algert. Þeir óskuðu
þess að skólayfirvöld „gripi inn í
með þeim hætti sem dugir til þess
að i Ölduselsskóla verði hægt að
he§a á nýjan leik eðlilegt skóla-
starf," eins og segir í bréfí þeirra.
Kennaramir tína síðan til fjölda
atriða í störfum skólastjórans, sem
þeir telja athugaverð. Bréfíð mun
ekki hafa verið borið undir kenn-
arafund áður en það var sent.
Sjöfn skólastjóri skrifaði
fræðsluráði nokkrum dögum síðar
og vísaði ásökunum kennaranna á
bug. í bréfínu segir að skólastjóm-
in hafi verið markviss og stefnu-
föst, og í fullu samræmi við stefnu
fyrri skólastjóra. Sjöfn segir jafn-
framt að kennaramir þrír hafí aldr-
ei gert ágreining við skólastjómina
í einu eða neinu, sem þeir hefðu
þó hæglega getað gert, og vísar
Sjöfn þar til reglugerðar um kenn-
arafundi og kennararáð. Hún segir
að samkvæmt reglugerðinni beri
að leggja ágreining við skólastjóra
undir kennarafund. Náist ekki
samkomulag þar, geti hvor aðilinn
um sig vísað málinu til skólanefnd-
ar, sem í þessu tilviki er fræðslu-
ráð. Slíkur fundur hafí ekki verið
haldinn, og sé bréfið því einkafram-
tak kennaranna þriggja. Sjöfn
svarar síðan athugasemdum þre-
menninganna lið fyrir lið.
Kennarar gagnrýna meðal ann-
ars að lítil fagleg umræða hafí far-
ið fram í skólanum í haust, en hún
hafí farið mjög vaxandi á undan-
„Latti kennara til
að halda aga“
Kennaramir segja að Sjöfn hafí
„latt kennara til að hringja til for-
eldra til að ræða hegðun eða önnur
vandkvæði, sem varða nemendur."
Þessu vísar Sjöfn á bug og segir
að slíkt væri fráleitt. Hún hafí
ætíð lagt mikla áherslu á samstarf
heimila og skóla, kennara og for-
éldra. Fjöldi foreldra hafí hringt í
sig í haust að lýsa ánægju sinni
með eitt og annað í skólastarfinu,
en lítið eða ekki kvartað. „Dálítið
er þó um kvartanir vegna einstakra
kennara og reyni ég þá að gera
eins gott úr því og hægt er, bæði
fyrir heimili og skóla," segir Sjöfn.
Kennaramir segja að eina vik-
una hafí gangavörður fengið leyfí.
Enginn hafí verið fenginn í staðinn
og hafi þetta valdið óróa hjá yngri
nemendum. Þá hafí kennarar
margoft vakið athygli skólastjóra
á lélegri umgengni og ólátum nem-
enda á göngum, en skólastjóri
skellt skollaeyrum við ábendingum
um að ræða þetta við nemendur.
Kennarar hafí heldur ekki fengið
neinn stuðning í agavandamálum.
Sjöfn svarar því til að maður hafí
verið fenginn fyrir gangavörðinn
en lent í slysi og ómögulegt hafí
reynst að fá nýjan mann, hvorki
innan skóla né utan. Hún hafði því
gengið í stofur, útskýrt málið og
beðið nemendur að hafa hljótt um
sig. Húsvörður hafí síðan tekið að
sér gæslu vegna þessa og það
gengið vel. Hún hafí einnig gengið
í stofur til eldri bekkja og hvatt til
góðrar hegðunar og umgengni.
Hún hafí hafst töluvert við á
göngunum í frímínútum til að ræða
við nemendur og bæta aga, sem
sjaldan þurfí. Þá fái kennarar full-
an stuðning bæði jrfirkennara og
skólastjóra vegna agamála, sé til
þeirra leitað.
Kennaramir þrír segja að á ein-
um skóladansleik vetrarins hafí það
gerst að nemendur voru undir
áhrifum áfengis. Foreldrar hafí
ekki verið kallaðir til og skólastjóri
vísað málinu til nemendaráðs. Á
öðru „diskóteki" hafí orðið ólæti
utandyra en skólastjóri ekki tekið
málið upp. Sjöfn svarar því til að
áfengisneyslan hafí verið rædd á
kennarafundi 25. október að við-
stöddum fulltrúa foreldra. Þre-
menningamir hafí ekki mætt á
fundinn, þrátt fyrir að vera heilir
heilsu og skylt að mæta.
Kennaramir tína margt fleira
til. Til dæmis hafí verið ráðinn nýr
yfirkennari til eins árs í stað Daní-
els Gunnarssonar, sem er í árs-
leyfí. Ráðningin hafí ekki verið
borin undir kennararáð. Slíkt mun
ekki vera vaninn, þegar um
skammtímaráðningar er að ræða.
Sjöfn segir hins vegar að konan,
sem valin hafí verið í yfirkennara-
stöðuna, hafí 11 ára starfsreynslu
og mjög góð ummæli fyrrum
stjómenda skólans. Fram hafi kom-
ið tillaga um Jón Barðason sem
yfírkennara, en hann hafí kennt
einn vetur við skólann. Hún hafi
rætt við skólastjóra Fellaskóla; þar
sem Jón hafi áður horfíð úr starfí
fyrirvaralítið, og niðurstaðan orðið
sú að annar hefði verið valinn til
starfans. Jón hefur nú sagt upp
starfí sínu, og hafði raunar gert
það áður en hann skrifaði bréfíð
til fræðsluráðs með starfsbræðrum
sínum tveimur. Hann hætti störfum
um áramót.
Kennaramir segja að skólastjór-
inn hafí „ráðist heiftarlega á einn
kennara." Það hafí verið í annað
sinn á tveimur dögum og kennaran-
um brugðið svo mjög að hún hafí
verið í veikindafríi um tíma og sagt
sig úr kennararáði. Allir fulltrúar
í kennararáðinu hafi sagt sig úr
því fyrir lok september þar sem
þeir töldu sig ekki geta starfað
með skólastjóranum. Þá hafí skóla-
stjóri „borið huldumenn fyrir gagn-
rýni á kennara" og ráðist heiftar-
lega á hóp þeirra, þar sem þeir
sátu og ræddu daginn og veginn.
Þessu vísar Sjöfn öllu á bug. Hún
segist hafa ávítað umræddan kenn-
ara fyrir að kalla saman kennara-
fund án leyfís. Kennararáðið, sem
hafí hætt í september, hafí hvort
sem er verið ólöglega kjörið, en það
var kosið í maí. Samkvæmt reglu-
gerð á að kjósa það innan mánaðar
frá því er skóli hefst.
„Lítilsvirti starf sitt“
Loks segja kennaramir þrír að
skólastjóri hafí lítilsvirt starf sitt
með því að vera í 30% hlutastarfí
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Auk þess hafí hún kennt við „ein-
hvem tölvuskóla," eins og það er
orðað. Sjöfn segist kenna sex
stundir á'viku í kvöldskóla við FB.
Hvað fullyrðinguna um tölvuskól-
ann varði, sé hún rakalaus ósann-
indi. Þess má geta að skólastjóri
Tölvuskóla Stjómunarfélagsins
heitir Sjöfn, og sá grunur gæti
læðst að mönnum að hér sé um
einhvem misskilning hjá þremenn-
ingunum að ræða.
Hér er fátt eitt nefnt af ákærum
kennara á hendur Sjöfn enda eru
þær alls í 26 liðum. Þetta virðist
þó sýna, að málin séu ekki ævin-
lega leyst með því að kennarar og
skólastjóri ræði þau í bróðemi,
jafnvel þótt þau séu ekki sérlega
stórvægileg. Kennaramir gagn-
rýna meðal annars að skólastjóri
hafí ekkert gert í því að stöðva
akstur iðnaðarmanna að sundlaug-
inni, sem verið hefur í byggingu á
skólalóðinni, en iðnaðarmennimir
munu hafa svarað því til að öðm-
vísi kæmust þeir tæplega að með
tæki sín og tól.
Foreldrar, sem Morgunblaðið
ræddi við, segjast afar áhyggjufull-
ir vegna þessa ástands innan skól-
ans. Einn sagðist hafa áhyggjur
af því að raunveruleg vandamál
væru ekki orsökin fyrir kæmm
kennaranna, heldur reiði yfír því
að Daníel Gunnarsson hefði ekki
fengið skólastjórastarfið. Annar
talaði um að aðgerðir kennara
kæmu síst niður á skólastjóranum,
en þeim mun meira á nemendum
og skólastarfínu í heild. Vegna
þeirra deilna, sem uppi hafa verið,
hefur fulltrúaráð foreldrafélagsins
sent menntamálaráðuneytinu bréf,
þar sem farið er fram á að ráðu-
neytið taki málið til frekari athug-
unar til þess að losna við frekari
vandræði.
Fræðsluráð og
fræðslustjóri deila
Erindum, sem fræðsluráði
Reykjavíkur hafa borist vegna
deilna í Ölduselsskóla, hefur verið
vísað til embættis fræðslustjóra til
meðferðar og úrlausnar. Það á við
um bréf frá foreldrum, sem barst
í september, kæm kennararáðsins
vegna fundarboðunar skólastjór-
ans, sem barst snemma í desember
og bréf kennanna þriggja. Á fundi
fræðsluráðs 9. janúar síðastliðinn
kom til deilna um vinnubrögð
fræðslustjóraembættisinsí tveimur
síðamefndu málunum. í fundar-
gerð segir að lögð hafí verið fram
tvö bréf kennslufulltrúa fræðslu-
skrifstofunnar, og þar komi fram
að erindin hafi verið send beint til
menntamálaráðuneytis án frekari
umfjöllunar. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks átöldu
þessa málsmeðferð fræðslustjórans
harðlega og bókuðu að þessi með-
ferð gengi í berhögg við fyrirmæli
fræðsluráðs, sem ekki hefði ætlast
til þess að málin gengju til ráðneyt-
is.
„Með þessari afstöðu sinni hefur
fræðslustjóri tekið skýra afstöðu
til þess að samþykktir fræðsluráðs
teljist ekki bindandi fyrir hann sem
starfsmann og getur hann þvi eðli
málsins samkvæmt ekki talist
framkvæmdastjóri eða annar
starfsmaður ráðsins," segir í bók-
uninni. Einn af fulltrúum Sjálf-
stæðisflokks, Guðrún Zoéga, bók-
aði einnig að samkvæmt grunn-
skólalögunum hefði fræðslustjóra
borið að fella eigin úrskurð í þess-
um málum. Þessu mótmælti Þor-
bjöm Broddason, fulltrúi Alþýðu-
bandalags, og sagðist telja fræðslu-
stjóra ráðinu trúan í þessu máli sem
öðrum. Á fyndinum urðu langar
deilur um Ölduselsskólamálið, og
rúmar fímm síður af sex í fundar-
gerðinni eru undirlagðar af bókun-
um um málið. Loks var samhljóða
samþykkt að fela formanni ráðsins
að ræða við alla málsaðila og gera
ráðinu grein fyrir þeim sem fyrst.
Síðastliðinn mánudag var enn
fundur í fræðsluráðinu og var hann
undirlagður af þessu eina máli ein-
göngu. FYæðslustjóri, Áslaug
Brynjólfsdóttir, mætti þá á fundinn
og gerði grein fyrir sinni hlið máls-
ins. Hún segir það alrangt að hún
hafí ekkert aðhafst í þeim málum,
sem henni voru falin í september
og byijun desember. í báðum tilfell-
um hafí hún rætt við málsaðila,
með þeim árangri að kennsla fari
fram með eðlilegum hætti. 15. des-
ember hafí hún svo verið í nokk-
urra vikna veikindafríi og á sjúkra-
húsi. Það hafí fræðsluráðsmönnum
verið kunnugt um, og þeim í lófa
lagið að vinna í málinu sjálfir og
leita samkomulags, enda beri þeim
það samkvæmt lögum. Kennslu-
fulltrúa embættis síns, sem mætt
hefði á fræðsluráðsfundinn 15. des-
ember að ráði menntamálaráðu-
neytisins, hefði verið sagt af ráðu-
neytinu að senda umrætt erindi
beint áfram til ráðuneytis vegna
veikindaforfalla fræðslustjóra.
„Menntamálaráðuneytið er yfír
fræðslustjóraembætti í þessu tilliti,
en ekki fræðsluráð," bókaði
fræðslustjóri. Ragnar Júlússon,
formaður fræðsluráðsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að þótt
fræðslustjóri veiktist, bæri embætti
hans að vinna í málum, sem því
væru falin. Áslaug Brynjólfsdóttir,
fræðslusljóri, segir að lögum sam-
kvæmt hefði henni borið að láta
ráðuneytið skera úr um kæruna
vegna fundarboðsins. Hvað bréf
þremenninganna varðaði, þá hefði
hún ekki átt von á slíku máli er
hún fór í veikindafrí og það sé ekki
í verkahring kennslufulltrúa.
Ölduselsskólamálið virðist sem
sagt hafa komið samskiptum
fræðsluráðs og fræðslustjóra í
hnút. Menntamálaráðuneytið hefur
það nú til meðferðar, og þar feng-
ust þær upplýsingar að málið væri
í athugun, sem væri í miðjum
klíðum og því óljóst hvemig í því
lægi nákvæmlega. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra sagðist ekk-
ert vilja um það segja hvenær nið-
urstöðu ráðuneytisins væri að
vænta eða hver hún gæti hugsan-
lega orðið.
Niðurstaðan af viðræðum for-
manns fræðsluráðsins við foreldra,
kennara og skólastjóra varð sú að
nú mun ríkja „vopnahlé" í Öldusels-
skóla og allir aðilar munu bíða
átekta eftir niðurstöðu ráðuneytis-
ins. Foreldrar, sem Morgunblaðið
hafði tal af, virtust fegnir að lausn
kynni að vera í sjónmáli í þessari
sérkennilegu deilu. „Við viljum
bara fá frið,“ var viðkvæðið hjá
öllum.