Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989 35 Allir þeir, sem greitt hafa laun á árinu Í988, skulu skila launamiðum vegna greiddra launa á þar tilgerðum eyðu- blöðum til skattstjóra. Frestur til að skila iaunamiðum rennur út 20. janúar. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Minning: Signrður Friðmann Þorvaldsson Fæddur 11. október 1904 Dáinn 6. janúar 1989 „Slq'ótt hefur sól brugðið sumri.“ Eða svo fannst mér, þegar ég 6.janúar heyrði andlátsfregn vinar míns, Sigurðar Friðmanns Þor- valdssonar á Háaleitisbraut 48. Alla tíð frá því er ég var lítil stúlka á Háaleitisbrautinni hefur Sigurður verið mér sem góður afi og heimilisvinur á heimili okkar. Þau voru ófá skiptin sem ég fór upp á fjórðu hæðina og alltaf tók Sigurður á móti mér opnum örmum. Hann hafði gaman af að segja mér sögur, hann talaði oft um Dan- merkurferðimar sem hann hafði mikla ánægju af. Oft spiluðum við stelpumar í ganginum á segulband- ið hans og sungum inn á það, og þá var nú hlegið dátt. Þær voru margar stundimar sem við sátum saman í stofunni og alltaf kom hann með góðgæti handa mér. En árin liðu og við fluttum í Álftamýrina. Vinskapurinn hélst samt sem áður áfram. Síðasta hálfa árið dvaldi Sigurður á Hrafnistu í Reykjavík. Er ég fór til náms í Englandi í september sl. kvaddi ég hann með það í huga að ég ætti eftir að sjá hann aftur, en nú er hann Sigurður dáinn. Vinur sem ég hafði notið svo margs góðs frá, verið mér umhyggjusamur og glatt mig á svo marga lund. Hann var ekki lengur til og ekki hægt að heimsækja hann oftar. Ég vil með þessum fáu orðum þakka Sigurði, vini mínum, fyrir allt sem hann gaf mér. Minning um hann á sér ævarandi sess í huga mínum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Drífa Harðardóttir t ELÍN HELGA STEFÁNSDÓTTIR, Reynimel 72, andaðist í Landakotsspítala þriðjudaginn 17. janúar sl. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, _ Stefán Ágústsson. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, PÁLÍNU STEFÁNSDÓTTUR, Strandarhöfða, Vestur-Landeyjum, fer fram frá Breiðabólsstaðarkirkju laugardaginn 21. janúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. Fródleikur og skemmtun fyrirháa semlága! GAMLIBÆRINN Hverfisgata 4-62 AUSTURBÆR Stigahlíð 49-97 Drekavogur Efstasund 2-59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.