Morgunblaðið - 19.01.1989, Síða 53
53
MORGUNBLAÐH)
ÍÞRÓTTIR
FTMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
KNATTSPYRNA / ENSKA DEILDARBIKARKEPPNIN
Chapman skoraði fjögur mörk
Forest vann stórsigurá QPR, 5:2. Bristol City og West Ham einnig í undanúrslit
LEE Chapman fór sannarlega
hamförum er Nottingham For-
est gersigraði QPR 5:2 á City
Ground í 8-liða úrslitum deild-
arbikarkeppninnar í gærkvöldi.
Chapman skoraði fjögur mörk
og hefði geta skorað fleiri.
Kvað eftir annað opnaði hann
vörn QPR upp á gátt og Lund-
únaliðið saknaði sárlega fyrir-
liða síns, miðvarðarins Alans
McDonald, en án hans var
vörnin eins og hjarahurð f roki.
Nigel Clough skoraði eitt mark,
en þeir Mark Stein og Dave
Kerslake skoruðu fyrir QPR.
West Ham vann einnig góðan
sigur, á Aston Villa, og ör-
uggari heldur en 2:1 gefur til
kynna. Leikmenn Aston Villa voru
á hælunum allan
leikinn og áttu aldr-
ei möguleika og lék
West Ham þó án
Alvins Martin og
Ray Stewart. Liam Brady klúðraði
viti í byrjun leiks, en síðan skoraði
Paul Ince. Undir lokin bætti Dave
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
Kelly öðru marki við, en á lokasek-
úndunum minnkaði Dave Platt
muninn fyrir Villa í 1:2 með glæsi-
legri hjólhestaspymu.
Bradford tapaði óvænt heima
fyrir Bristol City og átti enginn
von á því eftir glæsilegt gengi Brad-
ford í bikarleikjum í vetur, en bæði
Everton og Tottenham hafa stein-
legið. Gamla brýnið Joe Jordan valdi
sig í liðið hjá Bristol og gaf tóninn
er hann var bókaður á ijórðu
mínútu. Alan Walsh skoraði sigur-
markið í 1:0 sigri á fyrstu mínú-
tunni. Eftir það sótti heimaliðið án
afláts en allt kom fyrir ekki.
Luton tók á móti Southampton
og skildu liðin jöfn, Ricky Hill náði
forystunni fyrir Luton seint í leikn-
um, en Glenn Cockerill jafnaði í
lokin.
Þá léku Wimbledon og Everton
á heimavelli fyrmefnda liðsins í
Simot-keppninni. Everton sigraði
2:1 og skoruðu Wayn Clarke og
Neil McDonald mörk liðsins, en
John Scales svaraði fyrir heimaliðið.
BIKARKEPPNIN
Sjálfsmark felldi IMewcastle
Watford náði loks að knýja fram sigur á Newcastle í 3. umferð
ensku bikarkeppninnar í gærkvöldi er liðin áttust við í fjórða
sinn. Alls léku liðin í 450 mínútur og það var sorgarsaga að segja
frá hvemig Newcastle féll eftir allt erfíðið. Sjálfsmark sex mínútum
fyrir lok framlengingar, skorað af fyririiða liðsins, Glenn Roeder.
Lee Chapman, fyrrum félagi Sigurður Jónssonar hjá Sheffíeld Wed., var
heldur betur á skotskónum í gærkvöldi.
ÍÞRÚmR
FOLK
B DANSKI landsliðsmaðurinn í
handknattleik, Otto Mertz, hefur
ákveðið að yfirgefa Uniexpress á
Spáni í lok þessa keppnistímabils
hvað sem tautar og raular. Hann
segir reyndar að hann sé ákaflega
ánægður með dvölina og félag sitt,
en eiginkona hans þurfi að ljúka
sínu námi og það verði aðeins gert
heima í Danmörku.
■ ANNAR danskur landsliðs-
maður, Jan Erik Röpsdorf, hefur
lýst yfír að hann ætli að hætta með
landsliðinu eftir B-keppnina sem
fram fer í Frakklandi í febrúar sem
kunnugt er. Ber hann fyrir sig mikl-
um önnum í starfi.
■ ÞEIR félagamir Trevor Put-
ney og Robert Fleck hjá Norwich
hafa meiri hluta þessa keppnistíma-
bils farið allra ferða sinna á Ford
Escort bifreiðum sem umboðið í
Norwich lagði til í auglýsinga-
skyni. Svo gerðist það dag einn
fyrir skömmu, að umboðsmaðurinn
mætti á æfingu og hafði bflana á
brott með sér. Rifti samningnum á
þeim forsendum að umboðið græddi
ekkert á því að láta þá félaga aka
um á bílum sínum.
I SÆNSKI skíðakóngurinn
gamalkunni, Ingimar Stenmark
er að slá botninn í feril sinn og
þann 8. aprfl næst komandi verður
hans síðasta keppni, meistaramót í
Salen í Svíþjóð. Ýmsum gömlum
og góðum hefur verið boðið, svo
sem bræðrunum Phil og Steve
Mahre, Bojan Krizaj, Marc Girar-
delli, Pirmin Zurbriggen og Stig
Strand.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ GRÆNLENSKA handknatt-
leiksliðið K 1933 kemur til landsins
í dag. Liðið leikur nokkra leiki fyr-
ir norðan og verður fyrsti leikurinn
á Akureyri annað kvöld kl. 19. Þá
leikur K 1933 gegn KA.
■ ÖRNINN mikli, Eddie Ed-
wards, nánar tiltekið hinn frækni
skíðastökkvari Breta, sem ætíð er
lang aftastur á merinni í keppnum
heimsbikarsins, hefiar fengið tilboð
frá bandarísku kvikmyndafyrir-
tæki, reyndar ónefndu, sem vill
gera myndband með ævisögu kemp-
unnar. Alls er áætlað að það taki
tvö ár að ljúka verkinu, en Öminn
er tvístígandi (eða tvífljúgandi?),
því hann tekur sig ekki hafa svo
ríkulegan tíma aflögu. Hann sé á
fullri ferð að keppa í heimsbikarn-
um.eða þannig.
■ HOLLENSKA meistaraliðið
PSV EINDHOVEN hefur náð sér
í nýjan markvörð, en aðalmarkvörð-
ur liðsins, Hans Van Breukelen
meiddist illa á innanhúsmóti um
áramótin. Nýi maðurinn er 22 ára
gamall frá Excelsior, og heitir
Carlo L’Ami.
■ BAYERN MUnchen hefur
verið í keppnis- og æfingaferð í
Bandaríkjunum síðustu vikur. Lið-
inu hefur gengið mjög illa og tap-
aði m.a. fyrir úrvalsliði háskólans
í Kaliforníu. Þá lék liðið gegn
mexíkönsku félagsliði og tapaði
aftur. 0:2.
■ KÖLN leitar nú að manni í
stað JUrgens Kohler sem liðið seldi
fyrir skömmu. Liðið hefur augastað
á þremur leikmönnum: Roland
Grahammer frá Bayern og þeim
Martin Kree og Roth Rekers frá
Bochum.
HANDBOLTI
íslendingar
gera það
gott á Baltic
Islenska handknattleiksdómar-
amir Ólafur Haraldsson og Stef-
án Amaldsson frá Akureyri fengu
mikið hrós í v-þýska sjónvarpinu í
gærkvöldi. Þeir
stóðu sig mjög vel
þegar þeir dæmdu
leik V-Þjóðveija og
Ungverja á Baltic
FráJóni
Halldórí
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
Cup.
V-Þjóðveijar unnu auðveldan
sigur, 23:12, yfir ungu og óreyndu
liði Ungveija, sem eru að byggja
upp nýtt landslið fyrir HM í Tékkó-
slóvakíu 1990. V-Þjóðveijar notuðu
alla sína menn í leiknum og áttu
þeir auðveldan dag.
■Jochen Fraatz hjá Essen leikur
ekki með V-Þjóðveijum á Baltic.
Hann er með hlaupabóluna og er
óvíst hvort að hann leiki í B-keppn-
inni í Frakklandi.
A-Þjóðveijar rétt mörðu Finna í
hinum leiknum í B-riðlinum, 29:26.
Sovétmenn lögðu Pólveija að velli,
29:23, í A-riðlinum og Tékkkó-
slóvakía og V-Þýskaland b gerðu
jafntefli, 17:17.
íkvöld
Eftirtaldir leikir verða í kvöld í 16-liða
úrslitum Bikarkeppni KKÍ. í sviga má
sjá úrslit í fyrri leik liðanna. Allir leik-
imir hefjast kl. 20 nema leikur Léttis
og ÍS sem hefst kl. 21.30.
íþróttahúsið Strandgötu
Haukar—Grindavík..........(68:73)
íþróttahús Hagaskólans
KR-Valur..................(50:63)
Léttir-ÍS b...............(68:69)
íþróttahús Kennaraháskólans
ÍS—Tindastóll............(63:102)
íþróttahús Se(jaskólans
ÍR—Molduxar...............(79:64)
X^0R'SUMAR l9S9^Qf}
,96WW'
USTANN í SÍMA