Morgunblaðið - 07.03.1989, Page 1
56 SÍÐUR B
55. tbl. 77. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mestu óeirðir 1 Tíb-
et í átján mánuði
Lhasa. Reuter.
KÍNVERSKA lögreglan lagði í gœr til atlögu við Tíbeta í Lhasa,
höfuðborg Tíbets, til að brjóta á bak aftur mestu óeirðir, sem brot-
ist hafa út í landinu i hálft annað ár. Tíbetar höfðu náð einu af
helstu hverfúm borgarinnar á sitt vald og látið þar greipar sópa
opinberar byggingar, auk veitingahúsa og verslana f eigu
um
Kínveija.
Fréttaritari Æeuters-fréttastof-
unnar sá lögreglumenn ganga
fylktu liði niður aðalgötu borgarinn-
ar og hleypa af sjálfvirkum byssum.
Um 200 lögreglumenn komu á eft-
ir þeim, flestir vopnaðir kylfum, en
Bandaríkin:
Nýr flöl-
miðlarisi
New Vork. Reuter.
Útgáfúfyrirtækið Time Inc. og
kvikmynda- og tónlistarrisinn
Wamer Communications Inc.
hafa ákveðið að sameinast og
verða þau þar með stærsta Qöl-
miðlafyrirtæki í heimi. Var skýrt
frá þessu á laugardag en Time
Wamer Inc. eins og nýja fyrirtæk-
ið heitir er metið á 18 milljarða
dollara og árstekjumar em um
10 milljarðar dollara.
„Aðeins mjög öflug, bandarísk
fyrirtæki munu lifa af samkeppnina
og breytingamar, sem verða með
tilkomu innri markaðar Evrópu-
bandalagsríkjanna 1992,“ sagði Ste-
ven Ross, stjómarformaður Wam-
ers, í viðtali við New York Times á
sunnudag. Samkvæmt samningnum
er það Time, sem eignast Wamer,
og fyrirtækið verður það stærsta í
heimi í tónlistarútgáfu, tímarita- og
bókaútgáfu, kvikmyndagerð og
kapalsjónvarpi.
Time og Wamer vom stofnuð
árið 1923 og hafa höfuðstöðvar sínar
í New York. Time er stærsti tímari-
taútgefandi í Bandaríkjunum, nær
til 30 milljóna lesenda þar og 120
milljóna á heimsbyggðinni allri.
Wamer er móðurfyrirtæki Wamer
Bros., sem hefur verið tekjuhæsta
og arðsamasta kvikmyndafyrirtækið
allt frá árinu 1969.
nokkrir byssum. Hundmð Tíbeta
lögðu á flótta undan þeim og síðar
heyrðist skotið úr byssum víðs veg-
ar um borgina.
Tíbetar sögðu að tveir menn
hefðu verið skotnir til bana skammt
frá gömlu hofi tíbetskra búddatrú-
armanna í gær. Einn maður til við-
bótar var fluttur á sjúkrahús í
grenndinni vegna skotsára og lést
hann skömmu síðar.
Kínverskir fjölmiðlar greindu frá
því að ellefu manns hefðu beðið
bana og hundrað særst í óeirðum
í borginni á sunnudag. Læknar á
einu af fjórum stærstu sjúkrahúsum
borgarinnar sögðust hins vegar
telja að 20 til 30 manns hefðu fallið.
Fréttastofan Nýja Kína skýrði
frá því að Tíbetar hefðu ráðist á
fjórar lögreglustöðvar og rúmlega
30 ríkisstofnanir, auk flölda veit-
ingahúsa og verslana Kínveija.
Fregnir herma að þeir hafi einnig
ráðist á Kínveija, giýtt þá og barið.
Keuter
Kröfðust úrbóta í mannréttindamálum
Um tvö þúsund manns tóku þátt í útifundi í Gorkíj-
garði í Moskvu á sunnudag og kröfðust úrbóta í
mannréttindamálum austantjalds. Á skiltunum sem
sjást á myndinni má lesa frá vinstri til hægri: „Ekki
fleiri pólitískar handtökuri", „Frelsið [tékkneska
andófsmanninn] Vaclav Havel!" og „Breytið Lú-
bjanka-fangelsinu í safn til að minnast fómarlamba
ógnarstjómar!". Fundarmenn hrópuðu einnig slagorð
gegn Jegor Lígatsjov. Hann er formaður landbúnað-
amefndar kommúnistaflokksins og helsti andstæð-
ingur umbótastefnu Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleið-
toga. Ágreiningur um landbúnaðarmál er nú eitt
mesta hitamálið í Sovétríkjunum.
Sjá „Ráðuneytið er skrýmsli . . “ á bls. 21.
Vínarviðræður NATO og Varsjárbandalagsins um fækkun hefðbundinna vopna:
Baker vill að Sovétmenn af-
neití Brezhnev-kenningunni
Ztlrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsina. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti Míkhail
Gorbatsjov, Sovétleiðtoga, til þess að afheita afdráttarlaust hinni
svonefiidu Brezhnev-kenningu, sem Sovétmenn hafa notað til að
réttlæta hernaðaríhlutun í kommúnistaríkjum, er hann ávarpaði
fúnd utanrikisráðherra aðildarríkja Helsinki-sáttmálans í Vínarborg
i gær. Þar í borg hófúst í gær annars vegar viðræður um öryggi
og traustvekjandi aðgerðir í Evrópu og hins vegar viðræður 23 ríkja
NATO og Varjsárbandalagsins um fækkun hefðbundinna vopna, en
það er í fyrsta sinn sem þessi ríki setjast öll saman að samningaborði.
Hjalmar W. Hannesson, sendi-
herra, ávarpaði fundinn fyrir hönd
Jóns Baldvins Hannibalssonar, ut-
anríkisráðherra. Gerði hann já-
Brutugegn
reykbanni
MÖRG hundruð manns hefúr
verið stungið í fangelsi síðustu
dagaí Quezon, tveggja milljóna
íbúa útborg Manila á Filippseyj-
um, fyrir að brjóta gegn
reykingabanni. Óheimilt er að
reykja í opinberum byggingum,
verzlimarmiðstöðum og sam-
komustöðum og var ákveðið um
helgina að framfylgja banninu
með hörku. Fylltust fangelsi i
Quezon á skammri stundu og i
þeim var þröng á þingi, eins
og myndin ber með sér. Brot
gegn reykingabanninu varða
10 daga fangelsi eða Qársekt-
kvæða þróun í samskiptum austurs
og vesturs undanfarin ár að um-
ræðuefni og sagði að upphaf þeirrar
þróunar mætti allt eins rekja til
Reykjavíkurfundar Ronalds
Reagans og Mfkhails Gorbatsjovs,
leiðtoga risaveldanna. Vék hann
einnig að mannréttindamálum og
ítrekaði mótmæli ríkisstjómar ís-
lands frá 24. febrúar sl. um fangels-
un tékkneska rithöfundarins Vac-
lavs Havels.
í ræðu sinni sagði Baker að
Bandaríkjamenn leituðu nú leiða til
þess að hraða brottflutningi efna-
vopna frá Vestur-Þýzkalandi, sem
fyrirhugað hefði verið að ljúka fyr-
ir 1992. Hvatti hann Sovétmenn til
að eyða því sem hann nefndi óhófs-
legar birgðir af efnavopnum í Aust-
ur-Evrópu. Sagði hann þá ákvörðun
Gorbatsjovs að fækka um 50.000
hermenn og 5.000 skriðdreka í her-
afla Sovétmanna í Varsjárband-
lagsríkjunum góða byijun á þeirri
braut að fækka hefðbundnum vopn-
um.
Vestrænir fulltrúar sögðust eiga
von á því að fundimir stæðu í mörg
ár áður en samningar litu dagsins
ljós. Edúard Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
sagðist þó bjartsýnn á að brúa
mætti bilið milli NATO og Varsjár-
bandalagsins. Shevardnadze og
Baker hittast f dag og verður það
fyrsti fundur sovézks ráðherra með
ráðherra í sfjóm George Bush,
Bandaríkjaforseta.
Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Breta, skoraði á Gorbatsjov
að sýna hugrekki og farga stómm
hluta vopna Varsjárbandalagsins.
Hann sagði að NATO-ríkin mjmdu
gera kröfu til þess að bandalögin
stæðu jafnt að vígi á sviði hefð-
bundins herafla en til þess að ná
því takmarki yrðu Varsjárbanda-
lagsríkin að fækka enn meira sök-
um mikilla yfirburða sinna. Bæði
Howe og Baker sögðu yfirburði
Varsj árbandalagsins mestu ógnun
við öryggi í Evrópu.
Fyrsta lota fundanna um öryggi
og traustvekjandi aðgerðir í Evrópu
og viðræður tuttugu og þriggja
ríkja NATO og Varsjárbandalags-
ins um jafnvægi hefðbundins her-
afla í Evrópu hefjast á fimmtudag
og munu standa fram að páskum.
Hjálmar Hannesson sagði í gær
að andrúmsloftið á utanríkisráð-
herrafundinum hefði verið gott.
„Hér verður tekist á um gffurleg
ágreiningsefni en ákveðinn vilji er
fyrir hendi til að ná árangri. Menn
vilja forðast þann farveg sem
MBFR-viðræðumar um hefðbundin
vopn í Mið-Evrópu féllu í en þeim
lauk án árangurs eftir 15 ára fund-
arhöld. Eins binda menn miklar
vonir við fundinn um traustvekjandi
aðgerðir og er mun jákvæðara hljóð
í ráðamönnum nú en þegar fyrri
hluti hans hófst í Stokkhólmi 1984.“