Morgunblaðið - 07.03.1989, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1989
21
Margaret
Thatcher,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, ræðir
við Daniel
Arap-Moi,
forseta
Kenýu. Moi
og Thatcher
ávörpuðu
ráðstefnu-
gesti og
sagði Thatc-
her að hraða
yrði ráðstöf-
unum til að
takmarka
notkun
efnasam-
banda sem
álitin eru
valda eyð-
ingu ózon-
lagsins.
Pravda skrifar um landbúnaðarmál:
Ráðuneytíð er skrýmsli
sem „pyntar“ bændur
Moskvu. Reuter.
DAGBLAÐIÐ Pravda réðst harkalega á sovéska landbúnaðarráðu-
neytið í grein sem birtist í gær. Ráðuneytið væri skrýmsli sem
„pyntaði" bændur og sem dæmi um skrifræðið var nefnt að skipan-
ir frá ráðuneytisstj óranum þyrftu að fara í gegnum hendurnar
á 32 aðilum áður en þær næðu til bænda á samyrkjubúunum. í
greininni, sem er eftir Vladimír Somov, einn helsta landbúnaðars-
érfræðing Prövdu, er gefið í skyn að landbúnáðarráðuneytið
verði leyst upp á miðstjórnarfundi kommúnistaflokksins í næstu
viku.
Það var hluti af umbótastefnu
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleið-
toga að sameina sex ráðuneyti sem
Ózon-ráðsteftia í London:
Hvatt til róttækra að-
gerða gegn eyðinguimi
tengjast landbúnaði í eitt yfirráðu-
neyti árið 1985. Hið nýja ráðu-
neyti nefnist Gosagroprom og að
sögn Prövdu hefur þessi nýbreytni
orðið til að auka skrifræðið í stað
þess að draga úr því. Verðlag á
tækjum til landbúnaðar hefur
hækkað gríðarlega undanfarið og
„í raunveruleikanum eru verslanir
ömurlegar og skömmtun við lýði
í mörgum landshlutum á meðan
þriðjungur uppskerunnar rotnar,“
segir í greininni.
Stjórnmálaráðið reyndi í síðustu
viku að móta drög að niðurstöðu
væntanlegs miðstjómarfundar en
án árangurs. Telja stjómmálaský-
rendur að þessu valdi ágreiningur
milli Jegors Lígatsjovs landbúnað-
arráðherra og Gorbatsjovs.
Lígatsjov hefur opinberlega lagst
gegn þeirri stefnu Gorbatsjovs að
bylta landbúnaðinum og hverfa frá
samyrkjubúskap.
ERLENT
Þriðjaheimsríkin vilja aðstoð frá rík-
um þjóðum til að hætta notkun CFC-eíha
London. Reuter.
FULLTRÚAR ríkja þriðja heimsins á ráðstefhu um eyðingu ózon-
lagsins í London hafa látið í ljós áhyggjur af þvi að ráðstafanir
gegn eyðingu ózon-lagsins muni verða ríkjunum Qötur um fót í
viðleitni þeirra til að iðnvæðast. Ripa Di Meana, sem sæti á í
framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins, sagðist vona að bann
EB við notkun svonefindra klórflúrkolefnissambanda, CFC, verði
látið taka gildi fyrr en áætiað hefúr verið. Síðastliðinn fimmtu-
dag samþykktu umhverfismálaráðherrar EB að hætt skyldi notk-
un slíkra efiia fyrir árið 2000.
CFC-efni eru m.a. notuð í úða-
brúsa, kæliskápa, tölvur og ýmis
rafeindatæki. Notkun efnanna er
talin helsta ástæðan fyrir því að
myndast hafa göt á ózonlagið sem
vemdar jörðina fyrir útfjólubláum
geislum er geta valdið húðkrabba;
lagið skiptir einnig máli fyrir veður-
far. Stærsta gatið hefur fundist
yfir Suðurskautslandinu en kana-
dískir vísindamenn segjast einnig
hafa fundið gat í nánd við Norður-
skautið.
Fulltrúar frá um 120 þjóðum em
á ráðstefnunni sem hófst á sunnu-
dag og stendur í þtjá daga. Meðal
fulltrúanna er Guðmundur Bjama-
son heilbrigðismálaráðherra. Full-
trúi Afríkuríkisins Gambíu lagði til
að ríku þjóðimar veittu þeim fá-
tæku í þriðja heiminum aðstoð þar
sem umskiptin frá CFC-efnunum
yrði þungur baggi fyrir fátæku
þjóðimar. Kínverjar og fleiri þriðja-
heimsríki tóku undir tillöguna og
bentu á að 80% af CFC-menguninni
kæmi frá ríkum þjóðum. Di Meana
sagði að í EB væri nú rætt um að
auka aðstoð við þriðjaheimslönd í
umhverfísmálum. Deiía bæri tækni-
þekkingu og afrakstri rannsókna
varðandi efni sem geta komið í stað
CFC-efna með þriðja.heimslöndum.
Bandarískir vísindamenn sögðu
að takmarka ætti notkun CFC-
sambandanna og fleiri efna er sköð-
uðu ózonlagið. „Jafnvel þótt komið
væri á algeru banni núna mætti
búast við versnandi ástandi fram
til aldamóta...Ef stefnt yrði að svip-
uðu ástandi í heiðhvolfinu og ríkti
árið 1960 næðist það takmark ekki
fyrr en á 22. eða 23. öldinni," sagði
vísindamaður við Kalifomíuhá-
skóla. Fulltrúar Sovétríkjanna
hvöttu til þess að ekki yrði rasað
um ráð fram; eyðing ózonlagsins
gæti átt rætur að relqa til sér-
stakra veðurskilyrða.
Pólland:
Leiðtogar Samstöðu
sakaðir um lýðskrum
Varsjá. Reuter.
I kommúnistaflokkurinn sakaði í gær leiðtoga Samstöðu, hinna
bönnuðu verkalýðsfélaga, um getuleysi, lýðskrum og óraunsæi í
viðræðum stjórnvalda og stjórnarandstæðinga um framtíð Pól-
lands. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, sagðist á sunnudag vona
að hann gæti dregið sig i hlé yrðu viðræðumar til þess að Sam-
staða yrði viðurkennd.
í forsíðufrétt málgagns pólska
kommúnistaflokksins, Trybuna
Ludu, segir að tillögur Samstöðu-
manna séu til vitnis um „getuleysi
og óraunsæi þeirra". Þetta var í
fyrsta sinn sem pólsk stjómvöld
gagnrýna afstöðu Samstöðumanna
í viðræðunum.
Talsmenn Samstöðu sögðu að
viðræðumar í Varsjá væru áð sigla
í strand vegna þess að stjómin
væri ekki viss hversu langt hún
vildi ganga í lýðræðisátt. Walesa
var hins vegar bjartsýnn á að við-
ræðumar yrðu árangursríkar. „Ég
vil draga mig í hlé í fjögur ár eftir
að Samstaða verður viðurkennd ef
það er vilji ykkar," ^agði hann.
Hann gagnrýndi einnig afstöðu
róttækra manna innan Samstöðu,
sem eru andvígir hvers konar
samningum við pólsk stjómvöld og
segja að Walesa hafi svikið mál-
staðinn með viðræðunum við
stjómvöld.
Þu
Opnunartími:
Föstudaga..........kl. 13-19
Laugardaga.........kl. 10-16
Aðra daga..........kl. 13-18
# mátt bara alts ekki missa af
hiaum eina og sanna Stórútsölumarkaði
í Faxafeni 14, 2. hæó, sími 689160
Gífurlegt vöruúrval og ótrúlegt verð til dæmis:
Fjöldi fyrirtækja
STEINAR
HUÓMPLÖTUR - KASSETTUR KARNA-
BJER - BOGART - GARBÚ TÍSKUFATN-
AÐUR
HUMMEL SPORTVÖRUR ALLS KONAR
SAMBANDIO FATNAÐUR
Á ALLA FJÖLSKYLDUNA
RADÍÚBÆR HUÓMTÆKI O.M.FL. Þ.H.
ELFUR FATNAÐUR
HERRAHÚSIB/ADAM HERRAFATNAÐUR
MÍLANO SKÓFATNAÐUR
BLÚM BLÓM OG GJAFAVÖRUR
NAFNLAUSA BÚBIN EFNIALLS KONAR
THEÚDÚRA KVENTÍSKUFATNAÐUR
MJERA SNYRTIVÖRUR - SKARTGRIPIR
PARTY TÍZKUVÖRUR
SKÚGLUGGINN SKÓR
0.M.FL. FYRIRTJEKI
Jakkar
2.900, -
Jakkaföt
4.500,-
Kjólar
1.900, -
Gallabuxur
Fínni buxur Bómullarefni Snjógalla-
1.800,-
Pils
Eldhúsg-
ardínuefni
Irá 180,-
sett
1.900,-
Varalitir
160,-
Reiðstígvél
Vettlinqar
150,-
Kinnalitir
95,-
Fínar
ullarpeysur
1.690,-
Frakkar 1.000,- Dúnúlpur 2.950,- Treflar 200,- » Sængur- verasett m/laki Dragtir 3.900,-
Bamasæng- urverasett 490,- . 1.290,-
Barnakjólar 500,- Úlpur 1.000,- i Loðfóðraðir kuldaskór dömu 1.500,-
Sængur 2.290,-
Herrakulda-
skór
1.500,-
Vinnuskyrtur
490,-
Hitateppi
1.980,
Stórir burkn-
ar
450,-
Túlípana-
búnt
Ferðasjón- Geisladiskar
varp Irá 599,-
Z9U - m/útvarpi
__________ 10.880,-
Jakkaföt úr -
góðum efn- Símar
um lrá 1.990,-
8.900,- __________
—Eriendar og
Hljómtaeki íslenskar
frá plötur og
14.550,- kassettur
fiá 99,-
EINIOG SANNI
STORUTSOLU MARKAÐUR
FAXAFENI14 (2. HÆÐ), SÍMI689160