Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 40

Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 40
40 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989 Áratugur síðan Kvikmyndasjóður var settur á stofn: Styrkir veittir til 25 kvikmynda í fiillri lengd Erfitt fyrir okkur að standa í deilum við fólk um galla og verðleika ákveðinna verka, segir Knútur Hallsson, formaður úthlutunarnefiidar Kvikmyndasjóðs RÚM tíu ár eru síðan Kvikmyndasjóður var settur á stofh árið 1978 og úthlutunin nú var sú tíunda í röðinni. A þessu tímabili hefúr sjóð- urinn styrkt 25 kvikmyndir í fúllri lengd og þijár til viðbótar eru í vinnslu, auk þess sem styrkir hafa verið veittir 52 heimildarmynd- um, fímm teiknimyndum og 30 styrkir hafa verið veittir fyrirtækjum eða einstaklingum til þess að kynna eða dreifa myndum. Styrkupp- hæðir til kvikmyndagerðar hafa verið ærið mismunandi og numið allt frá 3% upp í 50% af framleiðslukostnaði. „íslenska kvikmyndavorið“ Knútur Hallsson, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, hefur verið formaður Kvikmjmdasjóðs frá upphafí og átt sæti í úthlutunar- nefnd sem formaður öll árin utan eitt. Hann segir að menn deili ekki um það að stofnun sjóðsins haldist í hendur við „íslenska kvikmynda- vorið" svokallaða. „Sjóðurinn hratt af stað þessari bylgju. Með Landi og sonum og Óðali feðranna hefst í raun samfelld framleiðsla kvik- mynda í fullri lengd. Þeim var ákaf- lega vel tekið af almenningi, fengu mikla aðsókn og komu fjárhagslega vel út. Seinna minnkaði aðsóknin. Það var eins og áhorfendur færu í auknum mæli að gera sömu kröfur til íslenskra og erlendra mynda og sættu sig ekki við að borga hærra aðgöngumiðaverð fyrir að sjá þær íslensku. Nú er íslensk kvikmynda- gerð í nokkurri lægð miðað við upphafíð og brýnasta verkefnið sem blasir við er hvemig megi hefja hana upp úr þessari lægð,“ segir hann. Hann segir að í byijun hafí styrk- ir sjóðsins til hverrar myndar verið til þess að gera lágir, þar sem sjóð- urinn hafí verið vanmegnugur, enda hafí myndimar gengið vel og því verið minni ástæða til þess að styrkja þær. Á þessu velgengn- istímabili hafí komið upp þær radd- ir hjá kvikmyndagerðarmönnum að dregið yrði úr styrkveitingum og í stað þess veitt lán sem yrðu endur- greidd þegar myndimar skiluðu hagnaði. Kvikmyndasjóður hefði farið hægt í sakimar hvað þetta varðaði og þegar tap á myndunum fór að verða vandamálið hefði orðið ljóst að það væri enginn grundvöll- ur til að veita lán til kvikmynda. Þá hefði verið farið inn á þá braut að ósk kvikmyndagerðarmanna að styrkja færri myndir með hlutfalls- lega stærri framlögum og það væri sú stefna sem nú væri fylgt. 71 milljón í ár Knútur segir að meginhlutverk stjómar Kvikmyndasjóðs sé að standa vörð um lögbundnar fjár- veitingar til sjóðsins, en miðað er við að þær jafngildi söluskatti af aðgöngumiðum í kvikmyndahús. Þetta sé geysilega erfítt og kosti oft mikla baráttu. Þannig hafi fjár- veiting til sjóðsins aðeins einu sinni á þessum tíu ámm verið í samræmi við lög. I ár hafí sjóðurinn til að mynda fengið 71 milljón, en hefði verið farið eftir bókstaf laganna hefðu það átt að vera um 120 millj- ónir. „Það er mjög erfitt að skipta 60-70 milljónum svo vel fari, þegar áætlaður framleiðslukostnaður þeirra mynda sem sótt er um styrk til nemur hálfum milljarði króna og á hveiju ári hafa þeir sem ekki hafa fengið neitt eða ekki telja sig hafa fengið nóg haldið upp mjög hvassri gagnrýni á úthlutunar- nefndina. Ég hef verið í fjölmörgum öðmm úthlutunamefndum og þar hefur verið tiltölulegur friður um úthlutanir, utan einstakra óánægju- radda. Við höfum velt dálítið fyrir okkur hvemig á þessari sífelldu óánægju standi og dettur helst í hug að ástæðan sé hversu miklir peningar em í húfí. Aðrar úthlutan- ir em í miklu smærri stíl. í annan stað höfum við íhugað að breyta úthlutunarreglunum þannig að hætta veita leikstjómm styrki en styrkja þess í stað framleiðanda kvikmyndarinnar. Það er ekki alltaf sem framkvæmda- og fjárhagsleg atriði liggja vel fyrir kvikmynda- leikstjómm, sem eiga aðeins að stjóma gerð kvikmyndarinnar. Er- lendis þurfa leikstjórar ekki að vas- ast í fjármálum, enda hlýtur það að tmfla hina faglegu leikstjóm, auk þess sem þeir em sjaldnast hæfír til þess að stjóma hinum ólíku framleiðsluþáttum." Skattaívilnanir vegna framlaga til kvikmynda Til samanburðar bendir hann á að heildar ijárveiting Alþingis til listamannalauna sé eitthvað um sjö milljónir og það sama gildi um eftir- menntunarsjóð kennara. Eitthvað um sjö hundmð styrkjum hafí verið úthlutað úr honum samtals að upp- hæð um sjö milljónir króna. Sú stað- reynd að hér séu engin kvikmynda- framleiðslufyrirtæki geri það erfítt í framkvæmd að úthluta til fram- leiðenda. Það geti hins vegar breyst. Hann ásamt Hrafni Gunnlaugssyni og Þorsteini Jónssyni hefði samið fmmvarp til breytinga á lögum um Kvikmyndasjóð, þar sem gert sé ráð fyrir því að þeir aðilar sem leggi fé í kvikmyndir fái sérstakar skatta- ívilnanir. Þetta hafí til dæmis verið reynt í Noregi og Ástralíu og gefist Knútur Hallson. vel. Nú hafi menntamálaráðherra skipað aðra nefnd til þess að endur- skoða lögin um kvikmyndasjóð. í henni eigi sæti ásamt fleirum Þrá- inn Bertelsson og Ágúst Guð- mundsson. Sú nefnd hafí ekki enn skilað af sér, en þar sé þetta fmm- varp meðal annars til umfjöllunar. „Að mínu mati fer lokaomstan um framtíð íslenskrar tungu og menningar fram á sviði kvikmynda og sjónvarps. Það er því afskaplega mikilvægt að rétta við íslenska kvikmyndagerð," segir hann og bendir á að það séu vaxandi mögu- leikar á samvinnu við aðrar þjóðir um kvikmyndagerð, meðal annars með tilkomu öflugra sjóða, sem við íslendingar eigurh möguleika á að- ild að, svo sem nýstofnuðum nor- rænum kvikmyndasjóði og evrópska kvikmyndasjóðnum Eurimage. „Starfsemi þessara íjölþjóðlegu sjóða er öll á byijunarstigi og ekki að vita hver framvindan .verður. Það gerir hins vegar þær kröfur til okk- ar að við fylgjumst vel með og auð- vitað skiptir það höfuðmáli að gæta þess að framleiðslan verði íslensk, þó erlendir aðilar eigi þátt í að fjár- magna hana,“ segir Knútur. Óréttmæt gagnrýni Hann víkur að þeirri gagnrýni sem úthlutun sjóðsins hefur fengið að þessu sinni, en hún sé í höfuð- dráttum úr tveimur áttum. Annars vegar gagnrýni Ágúst Guðmunds- son, kvikmyndaleikstjóri, 10 millj- óna króna byijunarstyrk sem hann fékk til gerðar sögualdarmyndar og hins vegar sé gagnrýnt að ekki hafí verið úthlutað til kvikmyndar- innar Meffí. Varðandi gagnrýni Ágústar, seg- ir Knútur, að á síðasta ári hafi Ágúst einnig fengið tíu milljóna króna styrk, sem hann hafi boðist til að skila, tækist honum ekki að útvega viðbótarfjárstuðning erlend- is. Það hafí honum ekki tekist og því hafí hann skilað stærstum hluta styrksins aftur. „Nú úthlutuðum við honum aftur tíu milljónum króna, sem virðist ekki óeðlileg upphæð þegar litið er til óvissunnar um að honum takist að fjármagna mynd- ina að öðru leyti og þess vegna yfír höfuð hvort hún verður gerð. Venjan hefur verið sú að myndir sem hafa verið komnar vel á stað hafa fengið framhaldsstyrki. Ágúst lýsir hins vegar yfír megnri óánægju með styrkinn og telur hann of lágan. Okkur virðist hins vegar samræmi í þessum styrkveit- ingum og að um frekar ríflegan styrk sé að ræða heldur en hitt. Ágúst gagnrýnir líka styrki okkar til handritagerðar og að mörg hand- rit sem við höfum styrkt hafi ekki orðið að kvikmyndum. Nú vill svo til að margir kvikmyndagerðar- menn hafa fagnað handritastyrkj- um sérstaklega. Hins vegar verður aldrei nema örlítill hluti handrita nokkum tíma að kvikmyndum og fáránlegt að ætlast til þess.“ Hvað kvikmyndina Meffí varðar segir Knútur að upphaflega hafí verið veitt til undirbúnings hennar 2ja milljóna króna styrk á grund- velli handrits þeirra Hilmars Odds- sonar og Jóhanns Sigurðarsonar. Myndin hafi síðan fengið 10 millj- óna króna styrk til viðbótar, en skömmu síðar hafí komið í ljós að handritinu hafí verið gjörbreytt, þannig að það var ekki lengur um sama handrit að ræða heldur annað og miklu verra handrit að mati út- hlutunamefndar og var erlendur höfundur skrifaður fyrir því. Kostn- aðaráætlun hafði hækkað upp úr öllu valdi og erlendir aðilar sem ætluðu að kosta myndina hafi gert kröfur um þessa gjörbreytingu handritsins og jafnframt hefðu Is- lendingar glatað öllu listrænu og fjárhagslegu forræði yfír myndinni. Greiðslur á 10 milljóna króna styrknum vom því stöðvaðar og gerð krafa um endurgreiðslu á 2,5 milljónúm, sem þegar höfðu verið greiddar. „Það er erfitt fyrir úthlutunar- nefndina að standa í þjarki við fólk um galla eða verðleika tiltekinna verka. Okkur fínnst hins vegar nú taka í hnúkana og sjáum okkur til- neydda til að svara einhveiju af þessari gagniýni," sagði Knútur að lokum. Skóburstari skvettir sér upp Kvikmyndir Saebjörn Valdimarsson Stjörnubíó: Allt er breytingum háð — „Things Change“. Leikstjóri og handritshöfúnd- ur David Mamet. Aðalleikend- ur Joe Montegna, Don Amac- he, Robert Prosky. Columbia 1988. Leikritaskáldið og handrita- höfundurinn Mamet („The Verdict", Hinir vammlausu") leikstýrir hér sinni annarri mynd og tekur til meðferðar ekki óá- þekkt efni — hinar broslegri hlið- ar undirheimanna í heimaborg hans, Chicago. Mafían fær aldur- hniginn og lítt sigldan skóburst- ara (Amache) að taka á sig morð gegn því hann fái gamlan draum uppfylltan er útúr múm- um kemur á nýjan leik — físki- bát á Sikiley. Montegna, hand- bendi Mafíunnar, er fenginn til að kenna karli rulluna sem hann á að fara með fyrir dómstólun- um, sér aumur á þessu prúða gamalmenni og hellir sér með hann í sukkreisu til Lake Tahoe áður en réttarhöldin heflast. Harla óvenjulegt efni, atama, hvað þá að voga sér að hafa aðra söguhetjuna á gamals aldri. En Amache er ekki kominn að fótum fram, hann undirleikur skóburstarann af sínum alkunna sjarma, gefur honum dýpt, virð- ingu, jafnvel trúverðugleika, sem þessa mynd skortir svo baga'- lega. Og Montegna skapar skemmtilegt mótvægi þar sem er hinn seinheppni en góðhjart- aði smákrimmi, atriðið þar sem þeir gamna sér í anda rómver- skra slarkkeisara, með sýningar- stúlkunum á lúxussvítunni, þam- bandi Dom Perignon af stút, kemur vonandi flestum í gott skap. En það er harla mikill leik- húsbragur á allri myndgerðinni, ætli næsta mynd Mamets verði ekki sú sem við bíðum eftir. En Amache á skilið góða aðsókn. Laugarásbíó: Tvíburar — „Twins“ Leikstjóri Ivan Reitman. Aðal- leikendur Arnold Schwartzen- egger, Danny DeVito. Univer- sal 1988. Einu sinni sem oftar fékk ég mér hamborgara í svanginn, hann flokkast almennt undir ruslfæði og væri engan veginn minnisstæður ef ég hefði ekki fengið hann á einum dýrasta veitingastað á jarðríki, og þar af Ieiðandi í New York (undir mynd eftir Remington, borð- búnaðurinn valinkunnur krystall, postulín og silfur, o.s.frv., o.s.frv.) Því rifjast þessi hádegis- verður upp þar sem myndin Tvíburar á margt skylt með hon- um. Hún er nefnilega ekkert annað en skyndibiti í sparifötun- um. Efnið er tuggið og ekkert afskaplega fyndið, lágmenning sem kemur manni í gott skap því umbúðimar eru glæstar, hrá- efnið af fagmennsku fram reitt og eftirbragðið gott. Þeir em kúnstugir saman vöðvabúntið og himnalengjan Scwharzenegger og tyrðiltapp- inn DeVito, og aðeins hugdettan sjálf að láta þessar andstæður leika tvíbura, bráðfyndin. Og ég ætla ekki að skemma ánægjuna fyrir væntanlegum áhorfendum með því að tíunda efnisþráðinn (sem er ósiður, útaf fyrir sig), hugmyndin ein hlýtur að kitla forvitni fólks. Það kemur engum á óvart þó DeVito fari á kostum. Hann er bráðflinkur gamanleikari og skáldlega vaxinn. Og ekki óprýð- ir Lagerfeldtaglið beran kollinn! Ágætur farsaleikur Amolds kemur hinsvegar svolítið flatt uppá mann, en hann hefur vissu- Iega sýnt óvænt skopskyn í ber- serkjamyndum sínum. Og ofaná létt grínið bætist fínlegur, mann- legur þáttur, punkturinn yfír i-ið, hraðmaturinn getur ekki betri verið. “Ber er hver á baki...“ Orlofsnefnd sjómanna: Samningar gerð- ir um flug til Luxemborgar ORLOFSNEFND sjómanna hef- ur gert samning við Ferðaskrif- stofúna Úrval um flug með Flug- leiðum til Luxemborgar, samtals um 800 sæti, en nefúdin hefúr gert samning um leigu orlofs- húsa og íbúða í Saarburg i Þýska- landi á timabilinu 20. maí - 23. september. Orlofsnefnd sjómanna hefur samið við hollenska fyrirtækið Aeg- on Ferienparks um leigu á fjórtán sumarhúsum og þrem íbúðum í sambýlishúsum í grennd við borgina Saarburg í Móseldalnum, en auk þess hefur verið gerður samningur við Lux Viking í Luxemborg um bílaleigubíla. Að sögn Þórðar Sveinbjörnssonar formanns Orlofsnefndar sjómanna eru félagsmenn í sjómannasamtök- unum sem rétt eiga á þessum ferð- um rúmlega sjö þúsund talsins, og áhugi þeirra fyrir orlofsferðunum mjög mikill, en um helmingur ferð- anna hefur þegar verið seldur. Seg- ir Þórður að með því að semja milli- liðalaust við hollenska fyrirtækið geti Orlofsnefndin boðið félags- mönnum upp á mun hagstæðari verð en annars hefði verið mögu- le£t. j £

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.