Morgunblaðið - 20.05.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
5
Ný stjórn í
Félagi bóka-
gerðarmanna
NÝ STJÓRN tók við störfum á
aðalfundi Félags bókagerðar-
manna, sem haldinn var nýlega.
Formaður er Þórir Guðjónsson.
Aðrir stjómarmenn eru: Sæmund-
ur Ámason, Svanur Jóhannesson,
Baldur H. Aspar, Fríða Björg Aðal-
steinsdóttir, Bjami Jónsson og Ólafur
Bjömsson.
Fjölmörg mál voru til umfjöllunar
á aðalfundinum og meðal sam-
þykktra ályktana má nefna stuðn-
ingsyfirlýsingu við lq'arabaráttu fé-
laga í BHMR, mótmæli gegn fyrir-
huguðum heræfingum Bandaríkja-
hers heflendis og áskorun til stjóm-
valda um lýmkun á reglum um at-
vinnuleysisbætur. Þá samþykkti að-
alfundurinn að veita Kvennaathvarf-
inu í Reykjavík 100 þúsund króna
styrk.
Skakmótið í Moskvu:
Jaftitefli
hjá okkar
mönnum
ÍSLENZKU keppendumir á
opna skákmótinu í Moskvu
gerðu allir ja&tefli í skákum
sínum í Qórðu umferð. Mar-
geir og Helgi eru því með
2,5 vinning hvor, en Hannes
Hlífar með 2 vinninga og bið-
skák.
í Qórðu umferðinni gerði
Margeir jafntefli við sovét-
manninn Kartman, Helgi gerði
jafntefli við sovézka stórmeist-
arann Thermin og Hannes
Hlífar og júgóslavneski stórma-
eistarinn Popovic skildu jafnir.
Hannes Hlífar á enn biðskák
við sovézka stórmeistaranna
Gavrikov. Hannes stendur þar
höllum fæti, en það kom á óvart
að sovétmaðurinn skyldi ekki
ná að knýja fram vinning eftir
seinni setuna, en þeir Hannes
Hlífar hafa nú notað 80 leiki
hvor.
Helgi og Margeir hafa 2,5
vinninga og Hannes Hlífar 2
og biðskák. Þrir efstu menn eru
með 3,5 vinninga, þeir Tukm-
akov, F*igusov og Ubilava sem
allir eru sovézkir. Nokkrir
keppenda eru með 3 vinninga
og eru þeir allir sovézkir.
Fimmta umferð verður tefld í
dag en mótinu lýkur næstkom-
andi fimmtudag.
Hvolsvöllur:
Grunaður mað-
ur handtekinn
með fíkniefini
LÖGREGLAN í Keflavík hefur
handtekið 27 ára gamlan mann,
sem er grunaður um aðild að
innbroti í söluskála Esso á Hvol-
svelli um hvítasunnulielgina. Þar
var stór og mikill peningaskápur
brotinn upp og stolið úr honum
reiðufé, ávísunum og kredit-
kortamiðum að verðmæti rúm-
lega eina milljóna króna.
Maðurinn, sem var eftirlýstur af
RLR, var stöðvaður í akstri í
Keflavík. í fórum hans fundust
fíkniefni. Hann hefur nú verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í sjö
daga vegna rannsóknar málsins.
Að sögn Helga Daníelssonar yfir-
lögregluþjóns hjá RLR eru ýmis
mál tengd manninum, sem áður
hefur komið við sögu lögreglu, til
skoðunar. Að öðru leyti varðist
Helgi allra frétta af málinu og vildi
ekki ræða um hvort sami maður
væri einnig grunaður um innbrot
fyrir nokkru í söluskála Eso í
Hveragerði en þaðan var einnig
stolið hundruðum þúsunda.
GOÐAN DAGINN
HREINSUM BÆINN!
í DAG BYRJAR SÉRSTÖK HREIN SUNARVIKA
í AUSTURBÆ.
LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA!
Nú stendur yfir allsherjar hreinsunarátak í Reykjavík.
Til að auðvelda starfið hefur borginni verið skipt í
fjóra hluta. Megin þungi hreinsunarþjónustu á vegum
borgarinnar verður í dag og næstu viku í Austurbæ.
ÖFLUGT SAMSTARF ÍBÚA OG BORGAR
Gripið verður til margvíslegra ráða til að ná settu marki
m.a. í samvinnu við einstaklinga, íbúasamtök og félög
sem hafa forystu um hreinsunarstarf í sínu hverfi.
HVERFABÆKISTÖÐVAR ÞJÓNA BORGARBÚUM
Hafið samband við hverfabækistöðvarnar ef ykkur vantar
upplýsingar eða aðstoð vegna hreinsunarátaksins. Til
þeirra er einnig hægt að koma ábendingum er varða um-
hverfið í borginni: Skemmdir á yfirborði gatna og gang-
stétta, ónýt umferðarmerki eða vöntun á götumerking-
um, holræsastíflur, brottflutning bílgarma og hreinsun
gatna og lóða.
STUTT í NÆSTA RUSLAGÁM.
Fólk getur gengið að ruslagámum vísum á 17 stöðum í
borginni næstu vikur. Á fjórum þessara staða verða
einnig gámar fyrir rafgeyma og rafhlöður eins og sést á
kortinu.
RUSL HIRT DAGLEGA AF GANGSTÉTTUM
Ruslapoka er hægt að fá í hverfabækistöðum gatnamála-
stjóra. Þeir verða hirtir daglega í þeim hluta borgarinnar
þar sem hreinsunarvika stendur yfir.
STAÐSETNING OG SÍMANÚMER HVERFABÆKI
STÖÐVA
Vesturbær: Njarðargata, Skerjafirði, sími 29921.
Miðbær: Miklatún við Flókagötu, sími 20572.
Austurbær: Á horni Sigtúns og Nóatúns, sími 623742.
Breiðhoit: Við Jafnasel, sími 74482 & 73578.
Árbær, Selás og Grafarvogur: Við Stórhöfða, sími
685049.
Hamrahlíð
Njarðargata,
Skerjafirði *
Vtkan 20. - 26. maf
Sléttuvegur
Sundlaugavegur Vatnagarðar Bústaðavegur
..ii.r-u--»: við Holtaveg við Fák
3. júni - 9. júní
Fjallkonuvegur
við Foldaskóla
Stórhöfði •
Rofabær
við Ársel
Selásbraut
við Suðurás
/ Vikan 27. mai - 2. júní
Austurberg
við Hólabrekkuskóla
Arnarbakki
Breiðholtsskóla
Öldusel
við skólann
Jafnasel *
Vikan 13.-19. mai
Sigtún
Austurbæjarskóli
Meistaravellir
Kortið sýnir borgarhlutana, dagsetningar sérstakra hreinsunarvikna og staðsetningu rusla-
gáma meðan á hreinsunarvikunum stendur. Laugardagur er upphafsdagur og aðal hreins-
unardagur sérstakrar hreinsunarviku í hverjum borgarhluta.
* Gámar fyrir rafgeyma og rafhlöður
HREIN BORG, BETRI BORG!
-----------------—-----
ARGUS/StA