Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
27
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir KRISTJÁN JÓNSSON
Umrótið í Kína:
Efltir áratuga harðstjóm
krafðist þjóðin lýðréttínda
„PRÚÐBÚIÐ alþýðufólk fylgdist með Míkhafl Gorbatsjov og Raisu,
eiginkonu hans, leggja blómsveig að minnismerki fallinna byitingar-
hetja á Torgi hins himneska friðar f Peking. Sfðan ræddu hjónin
vinsamlega við fólkið sem lauk lofsorði á ieiðtoga sfna, einkum
Deng Xiaoping, fyrir framfarir og velsæld sem aidrei hefðu verið
meiri f sögu Kfna.“ Nei, svona var ekki sagt frá tímamótaheimsókn
sovéska leiðtogans til Peking, heimsókn sem nálega hvarf f skugg-
ann af mestu mótmælaaðgerðum kfnversks almennings frá þvf að
kommúnistar tóku völdin f landinu fyrir réttum 40 árum. Hundruð
þúsunda manna fyiitu torgið fræga með kröfúspjöld þar sem for-
dæmt var einræði, fautaskapur og spilling æðstu leiðtoga og heimt-
að að nýir menn tækju við. Smygla varð sovéska leiðtoganum bak-
dyramegin inn f Alþýðuhöllina miklu til að hann gæti Qutt mikilvæg-
ustu ræðu sfna í ferðinni. Niðurlæging Dengs Xiaopings og foryst-
unnar allrar var gffúrleg, hneisan óbærileg. Setning herlaga í gær
var örvæntingarúrræði manna sem fannst öll sund vera að lokast.
Kornung-
ur andófs-
maður f
Peking
gerir sig-
urmerkið
með fingr-
unum.
Nokkrar milljónir manna hafa
tekið einhvem þátt í mót-
mælunum, þ. á m. lögreglumenn
og starfsmenn fjölmiðla sem allir
hafa verið vandlega múlbundnir
af ritskoðurum stjómvalda. Sumir
þeirra hafa þó sýnt mikið hugrekki
og tekið óbeint undir kröfur stúd-
entahreyfíngarinnar sem almenn-
ingur hefur fylkt sér um. Ráðleysi
kínversku forystunnar birtist
kínverskum almenningi þegar
kínverska sjónvarpið sýndi beint
frá heimsókn fjögurra af valda-
mestu mönnum landsins á sjúkra-
hús á fímmtudag þar sem nokkrir
stúdentar i hungurverkfalli lágu.
Valdsmennimir spurðu kvíðnir á
svip um líðan ungmennanna og
Zhao Ziyang flokksleiðtogi nánast
grátbændi þá um að hætta fös-
tunni. Svarið var langur fyrirlestur
eins stúdentanna um stjómarfarið
og hveiju þyrfti að breyta; hann
rakti ítarlega spillingu ráðamanna
og sagði að ætluðu embættismenn
sér að bæta ímynd sína væri þeim
ráðlegast að hætta þegar að hygla
eigin bömum og ættingjum. Al-
menningur fylgdist agndofa með
þessari uppákomu sem var endur-
sýnd nokkrum sinnum; ráðamenn
eru vanastir því að heyra smjaður
og lofgerðarrullur um eigin afrek.
Fulltrúar stúdenta létu reiðilestur
og hótanir Li Pengs forsætisráð-
herra á fundi með þeim síðar um
daginn eins og vind um eyrun
þjóta; staðfesta þeirra virðist óbii-
andi. Þeir kreflast þess að sjón-
varpað verði beint frá viðræðum
þeirra við ráðamenn um lýðræðis-
umbætur.
Baráttan gegn ættingjadekri og
fjármálaspillingu flokksleiðtoga
hefur verið ofarlega á baugi í
mótmælaaðgerðunum sem hófust
er Hu Yaobang lést. Honum var
einmitt sparkað úr valdastóli á
sínum tíma er hann reyndi að fá
því framgengt að refsingar yrðu
upp teknar fyrir auðgunarbrot
bama frammámanna. Eitt þekkt-
asta dæmið um vafasöm viðskipti
er háttemi fatlaðs sonar Dengs
sem hefur rakað saman fé í stöðu
sinni sem stjómandi góðgerða-
stofnunar er hefur tekjur af ýmiss
konar fyrirtækjarekstri. Sonur
Zhaos flokksleiðtoga hefur komið
sér vel fyrir á eyjunni Hainan sem
er eitt af sérstökum efnahags-
svæðum ríkisins og nýtur verulegs
viðskiptafrelsis. Sagt er á að Li
Peng eigi frama sinn því að þakka
að hann var ættleiddur af Zhou
Enlai, sem lengi var einn af voldug-
ustu mönnum landsins. Loks má
geta þess að almenningur í Peking
og víðar í kommúnistaríkjunum á
sennilega erfítt með að meðtaka
öreigaboðskapinn um jafnrétti
allra og ótrúlega fómarlund leið-
toganna þegar hann horfír á vel
haldna ráðamenn aka um í útlend-
um eðalvögnum.
Stúdentar hafa borið fram
óþægilegar spumingar um gjald-
eyriseyðslu, spurt hver ákveði for-
gangsröðina. Þótt framleiðslu-
aukning hafí verið stórkostleg und-
anfarin ár fer því ijarri að alþýða
manna sé ánægð með kjör sín.
Verðbólga og atvinnuleysi hafa
haldið innreið sína og aukin sam-
skipti og þekking á umheiminum,
ekki síst fyrir tilverknað sjónvarps-
ins, gera mörgum ljóst hve eymdin
er mikil heima fyrir.
Á einu mótmælaspjaldinu á
Torgi hins himneska friðar
stóð.„Eftir 40 ára þögn getum við
sagt það sem okkur býr í bijósti."
Kínveijar þekkja yfírleitt ekki vest-
rænt lýðræði nema af brengluðum
söguskýringum áróðursmanna
yfirvalda og athyglisvert er að í
umbótatillögum stúdenta er ávallt
lögð áhersia á forystuhlutverk
kommúnistaflokksins, gagnstætt
kröfum andófsmanna í Austur-
Evrópu. Stúdentamir segjast ein-
faldlega vilja yngri, óspilltari og
kröftugri menn til valda. Stjóm-
málaref á borð við Deng Xiaoping,
sem enn virðist vera valdamestur
bak við tjöldin, er þó vafalaust ljóst
að þegar stúdentar kyija kröfur
sínar um fullt tjáningarfrelsi leggja
þeir drög að endalokum flokksein-
ræðisins.
ERTU «1
GÓÐ W
SKYTTA?
Æfðu þig með eigin
ieirdúfukastara
Leirdúfukastari með
rafstýrðum sleppibún-
aði. Kastlengd alltað
90 m.
Aðeins Dkr.. 3.488,-
- með handstýringu
- losun með snúru eða
fótstigi
- kastlengd allt að 60
m.
AðeinsDkr... 1.288,-
Lelrdúfuhandkastari
Dkr........... 88,-
Skotskífa fyrir riffla og
haglabyssur.
Aðeins Dkr.... 488,-
Biðjið um bækling.
N.CHRISTIAIMSEN,
Postbox 6019
DK-6731 Tjæreborg.
Sími: 75-17 5422
Fax: 75-17 58 68
Honda 89
Civic
3ja dyra
16 ventla
Verð frá 715 þúsund,
miöað við siaógrcióslu á gcngi 1. mai 1989
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
ÍHONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
Við bjóðum þér allt að 24
mánaða greiðslukjör.
Lágmarksútborgun f Renault 5
er aðeins 100 þúsund krönur.
Leggðu dæmið fyrir þig!
Það er einflalt mál að semja
við okkur.
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ
13—17.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633
24 mánaða greiðslukjör
Síðustu Renault bðamir á tðboðsverði
til afgreiðslu strax.
I dag sýnum við síðustu
Renauit bílana af árgerð 1988
og 1989, sem eru fáanlegir á
tilboðsverði. Nú er síðasta
tækifærið.
RENAULT
I
i