Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 Holti, Austur-EyjaQallahreppi. GÓÐUR árangur hefur orðið af borun eftir heitu vatni hjá Ólafi Egfgertssyni bónda á Þorvalds- eyri. Fyrir hvítasunnu var dýpt holunnar komin í 750 m og upp komu um 2 sekúndulítrar af 53° heitu vatni, en borun hófst 13. aprfl: Jarðboranir hf. annast bor- unina og er áætlað að halda áfram allt niður að 1.000 metrum ef um áframhaldandi hitaaukningu verð- ur að ræða í holunni. Fréttaritari spurði Ólaf um ástæð- ur þess að bóndi réðist í það stór- virki að láta bora eftir heitu vatni í landi sínu á eigin kostnað. Ólafur sagði að jörðin væri í næsta nágrenni við Seljavelli þar sem 60° til 80° heitt vatn rynni í miklu magni til jarðar. í um 20 ár hefði verið rætt um að virkja heita vatnið til nota fyrir sveitina og Skógaskóla en ekkert hefði enn verið gert fyrir utan framtak bóndans á Seljavöllum við að nýta vatnið til upphitunar þar heima og við sundlaug hans og þá ferðamannaþjónustu sem hann hefur komið upp. Afi hans, Ólafur Pálsson, hefði virkjað Koltungufoss 1928 inni í Merkigili. Hefði sú rafstöð verið með þeim fyrstu og verið í notkun til 1950. Hefði hún malað gull öll þau ár og lagt þannig grunn að góðu búi á Þorvaldseyri. Pabbi hans, Eggert Ólafsson, hefði síðan af tilviljun tek- ið eftir volgru í læknum nákvæmlega fyrir framan gamla stöðvarhúsið og það hefði alltaf verið trú þeirra feðga að þama undir væri heita vatnið. Jón Jónsson jarðfræðingur hefði kannað nákvæmlega jarðmyndun svæðisins og teldi hann að heitt vatn myndi finnast í afmörkuðu 70.000 ára gömlu berglagi sem væri í kring um jökulinn. Fyrir hans áeggjan hefði fyrir 6 árum verið gerð frum- athugun með leit að heitu vatni í volgrunni og aftur fyrir §órum árum þegar borað var af ræktunarsam- bandi Flóa- og Skeiðamanna 50 m niður og gaf holan í þeirri dýpt 16°. Síðan hefði mikið verið rætt um borun eftir heitu vatni í þágu sveitar- félagsins og Skógaskóla, en ekkert orðið úr framkvæmdum. Því hefði Ferðá Hafhaberg HIÐ fslenska náttúrufræðifélag efhir til ferðar á Hafhaberg, sunnudaginn 21. mai. Þar má sjá alla algenga bjargfugla landsins en einnig verður hugað að gróðri sem þrífst á þessu harðbýla svæði. Lagt verður af stað kl. 11 árdegis frá Umferðarmiðstöðinni og áætlað að koma til baka um kl. 16. Leiðsögu- menn verða Hrefna Siguijónsdóttir atferlisfræðingur og Þóra Ellen Þór- hallsdóttir grasafræðingur. INNLENT hann leitað eftir tilboði frá Jarð- borunum hf. um borun holu í allt að 1000 m. Jón Jónsson jarðfræðingur og þeir aðilar sem stóðu að borunar- framkvæmdum hefðu álitið að holan væri álitleg og var hitaaukningin um 14° á hveija 100 metra. 2. maí var haldinn fundur í félags- heimilinu að Skógum m.a. um þessar borunarframkvæmdir. Þar kom fram hjá Kristjáni Sæmundssyni hjá Jarð- hitadeild Orkustofnunar að hann taldi hitastigulinn ekki nógu háan í holunni og að litlar líkur væru á að holan gæfi vatn. Þá var dýpt holunn- ar um 470 m og líklega daginn eftir var komið niður á vatnsæð sem gaf um 100 1 á mínútu af 30° heitu vatni sjálfrennandi við yfirborðið. Því hafi ekki verið um neitt annað að ræða en halda áfram boruninni með hjálp allra þeirra aðila sem studdu hann og þá ekki sízt borunarmannanna sjálfra. Þetta væri gert af hugsjón í þökk til afa hans, sem lagði grunn að rafmagni sem búið naut í nær 30 ár og það væri ekki meira í ráðist í dag, miðað við efnahag og aðstæð- ur að bora eftir heitu vatni og ieiða heim að búinu. Heita vatnið gæti lagt grunn að nýrri uppbyggingu í sveitinni, sem þörf væri á Fréttaritari Húsgagnaiðjan á Hvolsvelli. Kaupfélag Rangæinga: Morgunblaðið/Sigurdur Jónsson Nýr kaupfélagsstj óri ráðinn Selfossi. NÝR kaupfélagsstjóri, Ágúst Ingi Ólafsson, hefúr verið ráð- inn til Kaupfélags Rangæinga frá 1. júní næstkomandi. Hann tekur við af Ólafi Ólafssyni sem hættir eftir 23ja ára starf hjá kaupfélaginu. Hjá Kaupfélagi Rangæinga vinna um 100 manns. Erfiðleikar hafa verið í rekstri Kaupfélagsins og nokkur hallarekstur á síðasta ári. Ágúst Ingi Ólafsson sagði ástæður fyrir erfiðleikum í rekstri vera fólksfækkun og minnkandi framkvæmdir í sýslunni. Rekstrar- kostnaður hefði aukist og fjár- magnskostnaður væri mikill. Iðnaðarstarfsemi kaupfélagsins hefur átt undir högg að sækja og ónotað og vannýtt iðnaðarhúsnæði Morgunblaðið/Kári Jónsson. Valdimar Gíslason, æðarbóndi á Mýrum í Dýrafirði kannar snjó- dýpt í aðalvarpinu á Mýrum. Dýrafjörður: Bændur uggandi um æðarvarpið í vor Hætt við afföllum ef ekki hlýnar í bráð Núpi. Æðarræktendur í Dýrafirði og Önundarfirði eru nú ugg- andi um framgang æðarvarps- ins í sumar vegna mikilla snjóa- laga í varplöndum. Fuglinn er nú byijaður að setjast upp en finnur ekki gömlu hreiðurstæð- in sín. Í fyrstu viku maímánaðar var enn mikill snjór á láglendi, einkum þó í Önundarfirði sem er eins og jökull yfir að líta. í svokölluðu aðalvarpi á Mýrum í Dýrafirði, er ennþá metraþykkur snjór og bráðnar hægt sökum kulda. Að sögn Valdimars Gíslasonar æðarbónda eru fuglar venjulega um þetta leyti byijaðir að setjast upp og jafnvel þeir fyrstu famir að verpa. Minntist Valdimar þess ekki að svo mikill snjór hefði áður legið í varpinu á þessum tíma, enda hefði sama og ekkert þiðnað allan apríl eftir snjóþungan vetur. Hvort fuglinum seinkar eitthvað er ekki gott að segja, hann er vanafastur og verpir oftast í sömu hreiðrin ár eftir ár. í þeirri von að fuglinn velji sér nýja hreiður- staði þegar þeir eldri finnast ekki er nú keppst við að búa til hreið- ur fyrir hann. _ kj Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu: Fundur um atvinnuástandið SAMTÖK sveitarfélaga á höfúð- borgarsvæðinu efiia til fúndar um atvinnuástandið á höfuðborgar- svæðinu, þriðjudaginn 23. mai nk. Fundurinn verður haldinn á Hótel Borg og hefst hann kl. 17.15 Ræðumenn verða:. Gunnar J. Frið- riksson, formaður Vinnuveitenda- sambands íslands, „Atvinnumál og afkoma fyrirtæja". Öm Friðriksson, varaforseti Alþýðusambands íslands, „Atvinnumál og verkalýðshreyfing". Jón Sigurðsson, forstjóri íslenska Jámblendifélagsins, prundartanga, „Ný verksvið fyrir Islenska Jám- blendifélagið". Ágúst Einarsson, for- stjóri Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík. nf., „Utgerð og fiskvinnsla í Reykjavík". Jóhann Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis, „Sveiflujöfnun í atvinnulífinu". Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs ís- Agúst Ingi Ólafsson nýráðinn kaupfelagsstjóri Kaupfélags Rangæinga. íþyngir rekstrinum. í húsgagna- iðju kaupfélagsins unnu áður um 30 manns en þar vinna nú 7 og hefur þeim öllum verið sagt upp frá næstu mánaðamótum. Ekki er þó vfst að alveg verði lokað þar sem nokkrar vonir em bundnar við að úr rætist með framleiðslu sjúkrahúsgagna sem húsgagnaiðj- an hefur framleitt fyrir sjúkra- stofnanir. Samdráttur hefur verið í verslun kaupfélagsins og ljóst að verslunin verður rekin með halla í ár miðað við sömu forsendur og verið hafa. „Við emm engu að síður staðráðin í að standa þetta af okkur og kom- ast í gegnum erfiðleikana. Það hefur mikil áhrif þegar bændur halda að sér höndum við fram- kvæmdir og fyrirtæki hér hætta starfsemi," sagði Ágúst Ingi. „Það sem getur hjálpað til að komast í gegnum erfiðleikana og auka um- svifin er að fólk beini viðskiptum í ríkara mæli til fyrirtækja í heima- byggð," sagði Ágúst Ingi Ólafs- son. — Sig. Jóns. Samtök um byggingu tónlistarhúss: Ferðahappdrætti til styrktar byggingarsjóði SAMTÖK um byggingu tónlist- arhúss hafa ákveðið að efna til ferðahappdrættis til ágóða fyrir byggingarsjóð hússins og verða vinningar dregnir út 17. júní næstkomandi. í frétt frá samtökunum segir, að vaxandi áhugi sé meðal lands- manna fyrir byggingu hússins, sem á að rísa á næstu ámm í suðausturhluta Laugardals rétt við gatnamót Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Enn fremur að tón- listarhúsið verði framtíðarhljóm- leikahöll fyrir alla þá tónlist, sem landsmenn hafa áhuga á og full nægir alþjóðlegum kröfum flytj enda og áheyrenda. Tveir tónlist arsalir verða í byggingunni og tek ur annar þeirra 250 til 400 mann: í sæti en hinn um 1.400 manns Efnt var til norrænnar samkeppn um hönnun hússins og varð Guð- mundur Jónsson arkitekt hlut- skarpastur. Teikningar hússins hafa hlotið samþykki byggingar- nefndar og nú vantar fé til ac grafa gmnninn. (Úr fréttatilkynningu) lands, „Efnahagsástand og atvinnu- horfur". Davíð Oddsson borgarstjóri Reykjavíkur flytur ávarp i upphafi fundar. Fundinn setur Lilja Hall- grimsdóttir formaður Samtaka sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Fundarstjóri verður Jóna Gróa Sigurðardóttir formaður Atvinnu- málanefndar SSH. ’ Morgunblaðið/Þorkell íslenskir tónlistarmenn og aðrir áhugamenn um byggingu tónlistar- húss lögðu hönd á plóginn og aðstoðuðu við að koma happdrættismið- um í póst. ■; j ; í; 11 i /1 i Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum: Bóndi sækir búi sínu heitt vatn með borun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.