Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAI 1989 LYFTU ÞÉR UPP OG OPNAÐU PILSNER 6gils ...að sjálfsögöu! fclk í fréttum Myndin er tekin eftir prestvígsluna í Dómkirkjuni á annan dag hvítasunnu. Frá vinstri eru: Kristín Guðmundsdótdr og séra Sigurður Haukur Guðjónsson, þá koma foreldrar Þórhalls, séra Heimir Steinsson og Dóra Þórhallsdóttir, og þeim næst eru Þórhallur Heimisson og kona hans Ingileif Malmberg. PRESTVÍGSLA Þórhallur Heimisson vígður Þórhallur Heimisson cand. theol. hlaut prestvígslu á annan dag hvítasunnu í Dómkirkjunni, en hann heftir verið ráðinn til að leysa séra Sigurð Hauk Guðjónsson, sóknarprest Lang- holtskirkju, af í ársleyfi hans. Biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, vígði nýja prestinn, en vígsluvottar voru dr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor, sem lýsti vígslu, Jónas Gíslason, próf- essor, séra Sigurður Haukur Guð- jónsson og séra Heimir Steinsson, prestur á Þingvöllum og þjóð- garðsvörður þar, en hann er jafn- framt faðir Þórhalls. Þórhallur lauk guðfræðinámi fyrir ári síðan og hefur hann frá þeim tíma starfað hjá útideild Félagsmálastofnunar Reykjavík- urborgar. Þá hefur hann um ára- bil annast barna- og unglinga- starf í Langholtskirkju. Þórhallur er 28 ára gamall, giftur Ingileif Malmberg, sem einnig er guð- fræðinemi og eiga þau eitt barn. Þórhallur hyggur á frekara nám að afloknu starfi sínu hjá Lang- holtssókn. UPPSKERUHÁTÍÐ Fengu 200 þúsund frá Kefla- víkurbæ U nglingalandsliðsmaðurinn Nökkvi Már Jónsson var tvímælalaust sá leikmaður i meistaraflokki sem kom mest á óvart í vetur. Hann var valinn efhilegasti leikmaðurinn og auk þess fékk hann sérstök verðlaun fyrir að vera besta vítaskytta allra flokka ÍBK í vetur. MARAÞONHANDBOLTI í NJARÐVÍK Spiluðu í 16 tíma Stúlkurnar í 3. flokki UMFN sem eru nýbakaðir íslands- meistarar í sínum flokki léku mara- þonhandbolta fyrir skömmu. Mark- miðið var að safna peningum til keppnisferðar og að greiða þjálfara- laun. Stúlkurnar léku í 16 tíma og náðu að safna um 200 þúsund krón- um. Margrét Sanders íþróttakenn- ari hafði umsjón með keppninni sem hófst kl. 11 á sunnudagsmorgun 7. maí og lauk kl. 1 eftir miðnætti. Hlé var gert á leiknum í 5 mínútur á klukkustundar fresti og um kvöld- matarleytið var tekið stutt matar- hlé. Keppnin tókst vel og oft mátti sjá góð tilþrif hjá stúlkunum sem skoruðu rúmlega 1.000 mörk, þær voru þó orðnar talsvert þreyttar undir það síðasta. BB KÍNA Poppstjarnan Bluce Splingsteen Þessi ungi maður á myndinni er enginn annar en skær- asta poppstjarna Kínaveldis. Nýlega var hann í London að störfum en hann heitir réttu nafni Cui Jian. Samkvæmt fag- mönnum í tónlistinni er sköpun hans langt frá því útþynnta poppi sem heyrist giarnan á di- skótekum þar austra og hafa þeir líkt honum við meistara Bob Dylan og Roiling Stones. Sumir kalla hann jafnvel Bruce Springsteen Kína og segja hann eiga þá nafngift fyllilega skilið. « « v í H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.