Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 20
ISllNSKA AUCl ÝSIUCASTOFAN HF 20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 Sumardagskráin á STÖÐ 2 er snjöll, stórskemmtileg og fræðandi. Engu er gleymt og fjölbreytnin fyrir alla aldurshópa situr í fyrirrúmi. Framhalds- myndaþættir - sem skemmta og spenna. Barnaefni - me$ því vandaðasta sem sést. Viðskiptalífið í brennidepli. Meistaraverk snillinga hvíta tjaldsins. Fræðsluþættir sem opna nýja heima. Og ef það færi nú að rigna er alltaf hægt að brosa að bráðsmellnum innlendum sem erlendum skemmtiþáttum. En kannski rignir ekkert. STÖÐ 2 er bjartsýn og framsækin sjónvarpsstöð. æri Jón - þáttaröðin um einhleypa fólkið sem er saman í meðferðarhópi. Það er hið besta mál - en ráðgjafinn truflar á ótrú- legustu tímum með spurningum sínum: „Og hvað með kynlífið? Hvernig vandamál eru þar?“ Þættir sem leiftra af kímni - en ósköp er gott að vera ekki í meðferð hjá henni þessari! J~\ ndabær og íbúar hans eru sérstakur heimur barnanna; heimur sem flestir for- eldrar njóta með þeim. Spennandi at- burðarás, grín og glens, klaufaskapur Andrésar og nískan í Jóakim frænda. Börnin vita fátt skemmtilegra. Og Stöð 2 hefur frá upphafi lagt metnað í talsetn- íngu barnaefnis síns. ^Bernskubrek - er ekki bara einstaklega hugljúfur þáttur þar sem söguhetjan rifjar upp æsku sína í myndum. Þetta eru þætt- ir sem fá börnin til að skemmta sér konung- lega og fullorðna til að skella upp úr, hvað eftir annað. Svona vorum við nefni- X iiands of a Stranger - Eins manns leit. Stórbrotin spennumynd í tveimur þáttum, með stórleikurunum Armand Assante, Blair Brown og Beverley D’Angelo í aðal- hlutverkum. Þessi myndröð er alls ekki við hæfi barna, enda spenna, átök og ástríð- ur túlkuð á áhrifamikinn hátt. Eiturlyf, ástarsambönd, margslungin örlög þar sem heimurinn ýmist rís eða hrynur til grunna. Ekki hefur heyrst um neinn áskrif- anda sem ætlar að missa af þessu frábæra verki, enda eru áskrifendur Stöðvar 2 - fólk sem kann að velja. Lady sings the Blues - Diana Ross stór- stjarna í heimi tónlistarinnar, snillingur í dramatískri túlkun leikur hlutverk Blues-söngkonunnar Billy Holliday í átaka- mikilli kvikmynd um ævi hennar. ÍVÍyndlykillinn, fæst nú á kostakjörum sem óvíst er hve lengi verður hægt að bjóða. En þeir sem nú þegar eru áskrifendur að Stöð 2 geta verið rólegir; þeir eiga alltaf val. Nú er engin ástæða til að draga það lengur að kaupa myndlykil. Dagskrá Stöðvar 2 þjónar allri fjölskyldunni, öllum aldurs- flokkum og öllum áhugasviðum. A Stöð 2 taka áskrifendumir þátt í mótun dagskrárinnar. „Það kemur í ljós . . .“ til dæmis í þáttunum hans Helga Pé og fé- laga! X_/agt í’ann með Sigmundi Emi og Guðjóni Amgrímssyni em nýir innlendir ferðaþættir þar sem þeir félagamir leiða áhorfendur á fallegar og athyglisverðar slóðir á löngum sem stuttum ferðalögum. Þeir kynna gönguleiðir, gljúfur, fjöll og fossa og staldra við á stöðum sem sumir hverjir eru duldar perlur náttúm landsins. Princess Daisy - Stórbrotin myndaröð gerð eftir metsölubók Judith Krantz. Átaka- mikil örlagasaga sem heldur áhorfendum við efnið löngu eftir að slökkt hefur verið á sjónvarpinu. Princess Daisy er engin venjuleg framhaldsmynd - heldur mannleg- ar ástríður, sorgir og gleði í frábærri Ieik- gerð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.