Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 60
Aukin þægindi ofar skýjum FLUGLEIÐIR LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. ; r Ríkisendurskoðun: Oheimilt að gefa eftir opinber gjöld Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Kennsla byrjuð á ný Kennsla hófst í nokkrum framhaldsskólum landsins í kjölfar- ið á verkfallslokum. Kennsla í öðrum hefst um helgina og fram undan eru próf í þeim öllum að Verslunarskólanum undanskildum, en' nemendur þar verða útskrifaðir án prófa, námsmat eitt látið gilda. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Menntaskólanum í Kópavogi í gærmorgun, fyrsta árs nem- endur voru þá að ganga til kennslustundar, en innfellda myndin var tekin í íslenskutíma hjá Ingu Karlsdóttur. Sjá frásagnir á blaðsiðum 2 og 34. RIKISENDURSKOÐUN telur Qármálaráðuneytið skorta heim- ildir til að gefa eftir opinber gjöld, þar með talda dráttarvexti og innheimtukostnað, eða breyta gjalddaga opinberra gjalda með þeim hætti sem gert hefur verið í málum 10 nafrigreindra lögaðila og 33 ónafrigreindra einstaklinga frá 1. janúar 1987 til 1. maí á þessu ári. Eftirgjöfin nemur alls rúmum 35 milíjónum króna en heildarskuld þessara aðila nam rúmum 78 miljónum króna. Af því sem á vantar voru rúmar 27 miljónir greiddar með skulda- bréfum. Þá hefur verið samið um að 18 aðrir lögaðilar greiði samtals 147,6 miljónir af 158,8 milljóna skuld með skuldabréfum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Ríkisendurskoðun hefur gert að beiðni Matthíasar Á. Mathiesen og 9 annarra þingmanna Sjálfstæðis- flokksins. í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að því aðeins megi víkja frá álögðum gjöldum að um sé að ræða nauðasamninga sem gerðir séu fyrir skiptarétti með samþykki tilskilins meirihluta kröfuhaf og einnig sé ríkissjóður bundinn við úthlutun skiptaréttar úr þrotabúi. Tap Flugleiða fyrstu Qóra mánuði nálgast 600 milliónir Flugmenn Flugleiða fljúga 450 til 500 tíma á ári, en starfsbræður þeirra í Bandaríkjunum um 800 tíma. TAP FLUGLEIÐA fyrstu Qóra samkvæmt heimildum Morgun- jaánuði ársins nemur tæplega blaðsins. Forsvarsmenn fyrir- enefu milljónum dollara, eða tækisins höfðu áætlað að tap- reksturinn fyrstu mánuðina yrði um 7,8 milljónir dollara, en nú liggur fyrir að tapið verður um þremur milljónum dollara meira en ráðgert hafði verið, sem svarar til 165 milljóna kröna. ’lefu milljónum dollara, eða tæpum 600 milljónum króna, Þinglausn- ir í dag Þinglausnir verða í dag og lýkur þar með 111. löggjafar- þingi Islands. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra mun um kl. 14 lesa upp forsetabréf um þinglausnir, en Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir 'dvelst um þessar mundir í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn Flugleiða munu hafa þungar áhyggjur af því hver afkoman er, en á það er á hinn bóginn bent, að mesta tekjutíma- bil ársins er nú að hefjast, og því sé afar brýnt að samningar við flugmenn félagsins náist hið fyrsta. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru ýmsar ástæður gefnar ur fyrir því að tapið fór fram áætlun í þeim mæli sem raun ber vitni. Samkeppnisstaða Flugleiða hafi farið stórlega versnandi í Atl- antshafsfluginu. Áhafnarkostnað- ur Flugleiða á flugleiðum yfir Atl- antshafið sé stórum hærri en ger- ist hjá bandarísku flugfélögunum, sem séu mjög virk á þessum mark- aði. Það sé ekki fyrst og fremst vegna launakostnaðar, heldur vegna takmarkandi ákvæða varð- andi hvíldartíma og fleira, sem flugmenn Flugleiða hafi komið inn í kjarasamninga sína. Það hafi leitt til þess að flugmenn Flugleiða fljúgi að meðaltali um 450 til 500 flugtíma á ári, á meðan bandarísk flugfélög geti nýtt sína flugmenn í allt að 800 flugtíma á ári. Aðrar ástæður fyrir slæmri af- komu félagsins nú eru sagðar þær að flutningar félagsins fyrstu mánuði ársins hafi dregist saman, erfitt veðurfar hafi sett strik í reikninginn, kostnaður innanlands hafi stóraukist og tekjur minnkað. Loks mun kyrrsetning nýju vélar- innar, Aldísar, vegna kjaradeilu flugmanna við Flugleiðir hafa auk- ið við tapið. Heimildir Morgunblaðsins herma að ekki sé fyrirhugaður frekari samdráttur í Átlantshafs- flugi Flugleiða, en félagið hefur þegar hætt áætlunarflugi til þriggja borga í Bandaríkjunum: Boston, Baltimore og Chicago. Bifreiðaskoðun * Islands hf: Bílgreinasam- bandið íhugar að slíta samstarfinu „í STJÓRN Bílgreinasam- bandsins hefúr alvarlega verið rætt um hvort ekki ætti að slíta því samstarfi sem lagt var út í síðastliðið sumar með tryggingafélögunum, FÍB og ríkinu um stofnun Bifreiða- skoðunar íslands, þvi að tillög- ur BGS hafa engan hljóm- grunn hlotið innan stjórnar BÍ sem stefhir blint á nýtt stórt bifreiðaeftirlit, margfalt dýrara en það sem fyrir var.“ Svo segir í greinargerð frá Bílgreinasambandinu, sem lögð verður fyrir vorfúnd sam- bandsins í dag. Bifreiðaskoð- un íslands er þar harðlega gagnrýnd fyrir ranga stefnu varðandi skoðun bifreiða og Qárfestingar langt umfram áætlanir, svo að nemur hundr- uðum milljóna króna. Bílgreinasambandið vill að almenn bifreiðaskoðun verði framkvæmd á verkstæðum, sem til þess hefðu leyfi og að Bif- reiðaskoðun íslands hf sjái um sérskoðanir og bifreiðaskrá. í greinargerðinni segir að allur nauðsynlegur búnaður sé þegar fyrir hendi á verkstæðunum, nema bremsuprófunartæki, því sé óþarft að fjárfesta í sérstök- um skoðunarstöðvum. „Ljóst er að ef ekki verður stefnubreyting varðandi rekstur þessa fyrirtækis þá mun Bílgreinasambandið og aðilar þess endurskoða afstöðu sína til fyrirtækisins," segir í greinar- gerðinni. Verðlækkun á mínka- og refa- skinnum í Kaupmannahöfti VERÐ á minka- og refaskinnum lækkaði enn á loðskinnauppboði sem nýlokið er frjá danska uppboðshúsinu í Kaupmannahöfn. Verð á minka- skinnum lækkaði um allt að tólf prósentum, blárefaskinn lækkuðu um átta prósent og silfúrrefaskinn um níu prósent, en mest varð verðlækk- u«in á hvftref, sem lækkaði um sextán prósent. Að sögn Jóns Ragnars Bjömsson- ar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra loðdýraræktenda, er niður- staða uppboðsins mikið áfall fyrir íslenska loðdýraræktendur, og mun hún leiða til þess að samdráttur í framleiðslunni verður mun hraðari en-útlit var fyrir. „Það eina sem hægt er að gera við þessar aðsfæður er að bíða eftir að framleiðslan kom- ist í jafnvægi við þarfir markaðarins á nýjan leik, en þetta lága verð ger- ir loðdýrabændum róðurinn ennþá erfíðari þar sem þess er ekki að vænta að verðið lagist fyrr en fram- leiðslan hefur dregist verulega sam- an.“ Verð á minkaskinnum á uppboðinu í Kaupmannahöfn var á bilinu frá 761 til 1.334 kr. eftir tegundum, og lækkaði það um allt að tólf prósent frá síðasta uppboði, sem var í mars. Rúmlega 80 prósent skinnanna seld- ust. Meðalverð blárefaskinna var 1.341 kr. og lækkaði það um átta prósent, og seldust aðeins 75 prósent skinnanna. Meðalverð skuggarefa- skinna var 1.276 kr. og er það sex prósent lækkun frá marsuppboðinu. Verð á hvítref lækkaði um sextán prósent og er það nú 1.044 kr. Meðal- verð silfurrefaskinna var 2.965 kr., sem er níu prósent lækkun frá síðasta uppboði, og meðalverð bláfrost- skinna var 2.545 kr., en það er fjög- ur prósent lækkun. Morgunblaðið yfir 50 þúsund eintök MORGUNBLAÐIÐ seldist í 50.130 eintökuin að meðaltali hvern útgáfúdag mánuðina desember 1988 til febrúar 1989, samkvæmt upplagseftirliti Verzlunarráðs íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem meðaltalssala Morgunblaðsins fer yfir 50 þúsund eintök síðan upplagseftirlitið var tekið upp. Alllangt er síðan sala blaðsins 5.809 eintök eða 13,1% fór yfir 50 þúsund eintök suma daga vikunnar. Þannig er sala sunnudagsblaðs Morgunblaðsins nú á bilinu 52-53 þúsund eintök í viku hverri. Fyrstu tölur upplagseftirlits Verzlunarráðs íslands voru birtar 17. maí 1985 og náðu yfír sex mánaða tímabil, 1. júlí 1984 til 31. desember 1984. Á þvf tíma- bili var Morgunblaðið selt í 44.321 eintaki að meðaltali hvern útgáfu- dag. Söluaukning blaðsins frá því fyrstu tölur birtust fyrir fjórum árum og til síðasta tímabils er Tímabilið desember 1987 til febrúar 1988 var Morgunblaðið selt í 49.590 eintökum að meðal- tali. Meðaltalssalan hefur aukist um 540 eintök á einu ári eða um 1,09%. Upplagstölur eru sann- reyndar af trúnaðarmanni upplag- seftirlits Verzlunarráðsins, Reyni Vigni, löggiltum endurskoðanda. Morgunblaðið er þessa stundina eina dagblaðið sem gengst undir upplagseftirlit Verzlunarráðs ís- lands. Dagur á Akureyri hefur nýlega dregið sig út úr eftirlitinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.