Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
20
Japan:
Tæplega áttræður alvörumað-
ur líklegur arftaki Takeshita
Nakasone skýrir frá hlutdeild sinni í Recruit-hneykslinu
Tókló. Reuter.
YASUHIRO Nakasone, fyrrum forsætisráðherra Japan, mun i næstu
viku gera þingheimi grein fyrir hlutdeiid sinni í Recruit-hneykslinu
svonefnda sem hleypt hefur öllu í bál og brand i japönskum sfjórn-
málum. Núverandi forsætisráðherra Japan, Noboru Takeshita, hefur
boðað afsögn sfna og er nú talið hugsanlegt að eftirmaður hans verði
Toshio Komoto, annálaður alvörumaður og fyrrum formaður gjald-
þrota skipafélags,
Gert er ráð fyrir því að Nakasone
skýri frá hlutdeild sinni í Recruit-
hneykslinu á fimmtudag í næstu
viku, að því er ónefndir heimildar-
menn Reuíers-fréttastofunnar sögðu
í gær. Fram til þessa hefur Naka-
sone neitað að svara spumingum
stjómarandstæðinga á þingi en þeir
hafa krafist þess að forsætisráð-
herrann fyrrverandi sverji þess dýran
eið að skýra satt og rétt frá tengslum
sínum við Recruit-fyrirtækið. Naka-
sone mun hins vegar aðeins svara
spumingum þingmanna í neðri deild
en samtök stuðningsmanna hans
fengu peninga og óskráð hlutabréf
að gjöf frá forráðamönnum fyrirtæk-
isins. Fullyrt hefur verið að Naka-
sone hafi veitt Recruit ýmsa fyrir-
greiðslu í staðinn en þær ásakanir
hafa enn ekki verið fyllilega rök-
studdar.
Hneyksli þetta hefur kostað fjölda
embættismanna starfið og 13 manns
em nú á bak við lás og slá vegna
málsins. Búist er við tveir til við-
bótar verði ákærðir í næstu viku.
Heimildarmenn innan Frjálslynda
lýðræðisflokksins sögðu í gær að
Toshio Komoto yrði að líkindum
næsti forsætisráðherra Japan. Kom-
oto fer fyrir einni af fimm fylkingum
stjómarflokksins og hefur ekkert
komið fram sem bendir til þess að
hann og undirsátar hans séu viðriðn-
ir Recruit-hneykslið. Komoto var for-
maður Sanko-skipafélagsins sem
varð gjaldþrota árið 1985 en stjóm-
málaferill hans þykir tiltölulega
flekklaus á japanskan mælikvarða.
Komoto, sem er 77 ára, er oftlega
nefndur „Alvömgefni prinsinn" þar
eð elstu menn rekur ekki minni til
þess að hann hafi sést brosa. Líklegt
Reuter
Líklegt er talið að Toshio Kom-
oto taki við embætti forsætisráð-
herra Japans. Komoto er 77 ára
en myndin var tekin árið 1983.
er talið að Takeshita forsætisráð-
herra fari frá í næstu viku er efri
deild þingsins hefur afgreitt flárlaga-
fmmvarp ríkisstjómar hans.
Mótmæli í Tævan
Reuter
Ungur Tævani framdi í gær sjálfsmorð með því
að kveikja í sér fyrir framan vírgirðingu við
forsetahöllina í Tævan. Girðingin var sett upp
til að koma í veg fyrir að þúsundir mótmælenda
kæmust á útför róttæks blaðamanns, sem framdi
sjálfsmorð í síðasta mánuði.
Reuter
Samrýndar mæðgur
Órangútan-ungi, Rósa að nafni, hjúfrar sig að móður sinni í Hagen-
beck-dýragarðinum i Hamborg. Móðirin, Bella, er frá Súmötru
og faðirinn, Sinjo, frá dýragarði í Berlín. Órangútan-mannapar
lifa í tijám í Bomeó og Súmötm.
Grænlensk þing-
neftid til Washington
Kaupmannahöth. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
UTANRÍKIS- og öryggismálanefiid grænlenska landsþingsins hélt
til Bandaríkjanna á miðvikudag. Er ferðinni heitið til Washington
og Colorado Springs. Á siðaraefnda staðnum em aðalstöðvar banda-
risku herstöðvanna í Syðri-Straumfirði og Thule.
Á heimleiðinni mun nefndin eiga
viðdvöl í herstöðinni í Thule, þar
sem nefndarmörinum verður kynnt-
ur varnarviðbúnaður stöðvarinnar.
Lars Emil Johansen þingmaður,
formaður nefndarinnar, sagði í við-
tali við grænlenska útvarpið um
síðastliðna helgi, að nefndinni yrðu
kynnt framtíðaráform um
bandarísk hemaðarmannvirki í
Grænlandi, þar á meðal ratsjár-
stöðvamar á Grænlandsjökli.
Bandaríkjamenn hafa þegar lagt
niður aðra tveggja Dew-2-ratsjár-
stöðvanna þar, og er heimastjórnin
uggandi um, að þeir hafi einnig í
hyggju að leggja aðrar ratsjárstöðv-
ar niður. Gangi það eftir, þurfa
Bandaríkjamenn ekki lengur á her-
stöðinni í Syðri-Straumfirði að
halda, en þar er flugbraut og
birgðastöð fyrir stöðvarnar á jöklin-
um.
Syðri-Straumfjörður er mikilvæg
miðstöð fyrir innanlandsflugið á
Grænlandi, svo og fyrir flugumferð
milli Grænlands og Danmerkur.
Nefndin á einnig að ræða um
mögleika á áætlunarflugi milli
Syðri-Straumíjarðar og Thule-her-
stöðvarinnar í framtíðinni. Eins og
er sjá bandarískar herflugvélar um
flug á milli þessara staða, og er
sveitarstjómin í Avanersuaq, þar
sem herstöðin er, ekki ánægð með
þá skipan. Þess vegna hefur heima-
stjómin áhuga á, að Grænlandsflug
fái að sjá um flugsamgðngur þarna
á milli.
Civic Shuttle 4wd sá kraftmesti
1.6i 116 Din hestöfl og verð aðeins
kr. 1.030.000,- stgr.
Athugiö!!!
Tökum vel meó farna notaóa bila upp i nýja.
Nú þarf ekki að velta fyrirsértökkum
og gírstöngum til að setja í fjórhjóladrifið.
Honda útbjó einfaldlega fjórhjóladrifið
þannig, að bíllinn sér sjálfur um valið
eftir aðstæðum og þörfum.
0HONDA Vatnagörðum 24, s. 689900. Bilasýning i dag kl. 13-16