Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 Máltíð dagsins, Þegar ég ætlaði að fara að elda máltíð dagsins, kveikti ég á útvarpinu. Þulur tilkynnti: „Nú heyrum við ítölsku sinfóníu Mend- elssohns.“ Gott, hugsaði ég, hún passar mjög vel við gúrkuréttinn, sem ég ætla að matreiða. Tíberíus keisari Rómaveldis borðaði gúrku á hvetjum degi. En síðan flaug hugurinn víðar. Hvað sagði þulur- inn? „Við heyrum sinfóníuna.“ Er það sama að heyra og hlusta? Ég hlusta ekki án þess að heyra, en ég get heyrt án þess að hlusta. Það að heyra tónlist er orðin málvenja, og er það nokkur furða? Tónverkin, misgóð, glymja í eyr- um okkar hvar sem við erum, á heimilum, á vinnustöðum, í versl- unum og svo mætti lengi telja. Grun hefí ég um, að fólk heyri tónlistina en hlusti ekki. Ég sett- ist niður, maturinn varð að bíða, ég hlustaði á sinfóníuna til enda, sneri mér síðan að matargerðinni, hafði útvarpið opið, ég heyrði en hlustaði ekki. Gúrka fyllt með hakki 4 frekar litlar gúrkur 750 g nauta- og lambahakk 1 tsk. salt í hakkið + % tsk. á gúrkumar 'k tsk. paprikuduft 14 tsk. brauðrasp 1 lítið egg rifínn börkur af hálfri sítrónu Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON nýmalaður pipar safí úr hálfri sítrónu álpappír 1. Þvoið gúrkurnar, kljúfíð síðan að endilöngu, skafið hluta af gúrkukjötinu úr þeim með te- skeið. Geymið það. Beitið skeið- inni þannig að þið skafíð úr gúr- kunni að endilöngu. 2. Kreistið safann úr sítrón- unni og penslið skoma hlutann af gúrkunni, stráið þar á salti. 3. Setjið hakk, rasp, papriku- duft, pipar, salt, egg og rifinn sítrónubörk í skál. Hrærið vel saman. Mótið síðan 4 aflangar pylsur. 4. Leggið kjötpylsurnar í gúrk- umar, leggið hinn gúrkuhelming- inn yfir. Vefjið síðan í álpappír. 5. Hitið bakarofn í 190°C, blástursofn í 170°C. Setjið í ofn- inn og bakið í 30—40 mínútur. 6. Takið álpappírinn utan af, setjið gúrkurnar á fat og berið fram. Meðlæti: Hrásalat með því sem þið tókuð úr gúrkunum. Salat með gúrku Það sem þið tókuð innan úr gúrkunum Smábiti hvítkál, kínakál eða nokkur salatblöð 14 paprika, rauð eða græn 14 grænt epli safí úr k sítrónu 3 msk. matarolía 2 tsk. þunnt hunang salt milli fingurgómanna 5 dropar tabaskósósa 1. Þvoið kál og papriku, af- hýðið eplið, takið safa úr sítrón- unni. 2. Saxið kál, takið steina úr paprikunni og skerið í smábita. Skerið eplið í smábita. 3. Blandið saman sítrónusafa, matarolíu, hunangi, salti og tab- askósósu. Hægt er að hrista þetta í hristiglasi. 4. Hellið leginum yfír græn- metið og blandið saman. 5. Berið strax á borð. Ef þið ætlið að geyma þetta eitthvað, þarf að leggja fílmu eða disk yfír skálina og geyma hana I kæliskáp. LÆKNIN G ABLOM PULMONARIA Blom vikunnar umsjón Ágústa Björnsdóttir 123.þáttur Öll þekkjum við vorlaukana sem blómstra nánast upp úr sjón- um og lyfta af okkur vetrarfarg- inu. En það eru fleiri jurtir snemma á ferðinni. Það hefur margoft hent mig að vera ekki farin að hreyfa við neinu í garð- inum þegar ég skyndilega er vakin til umhugsunar um suma- rið af rauðum og bláum blómkoll- um sem reyna að sperra sig upp úr visnum leggjum fyrra árs. Þetta eru lækningajurtirnar mínar, svo auðræktaðar, en þó held ég meira upp á þær en mörg önnur vandræktaðri blóm. LÆKNINGABLÓM - Pulm- onaria — eru af Munablómaætt, um það bil 40 sm á hæð. Venju- lega blómstra þau í endaðan apríl eða byijun maí og standa í blóma nokkuð lengi. Blómin eru mörg saman á stöngulendanum, oftast rauðbleik í fyrstu, en blána með aldrinum. Þetta eru blað- fallegar plöntur, nægjusamar og harðgerðar. Þær þola vel skugga en fúlsa ekki við sólinni. Oft stækka blöðin mikið að blómgun lokinni og margir rækta plönt- Nýrnajurt — Pulmonaria saccharata. umar einkum vegna fegurðar blaðanna. Lækningablómum er auðfjölgað með skiptingu og verða reyndar fallegri ef það er gert á nokkurra ára fresti. Hér skal aðeins getið tveggja teg- unda. ROÐALUNGNAJURT Pulmonaria rubra — er með fag- urgræn, hærð blöð og tígul- steinsrauð blóm sem breyta ekki lit. Hún þarf gott pláss án þess að vera frek við annan gróður og hún er ekki síður falleg á skuggsælum stað en sólríkum. Er ekki eins blómauðug og eftir- farandi planta en stendur þó lengi í blóma. NÝRNAJURT Pulmonaria saccharata — er að mínum dómi perlan í fjölskyldunni. Blómin eru trektlaga, fremur smá, en mörg saman á stöngli, rauðleit og blána með aldrinum. Og blöðin eiga fáa sína líka. Þau eru odd- baugótt og alsett silfurhvítum flekkjum. Að blómgun lokinni stækka þau mikið og setja þá geypifallegan svip á beðið sitt. Eg mundi aldrei hafa þessa plöntu á skuggsælum stað, en vel henni aftur á móti einn besta staðinn í garðinum. Og þar sem hún er mjög hæversk dregur hún sig í hlé fari að þrengja að henni. Hún drepst að vísu ekki, en blöðin verða aldrei eins stór og blómið allt hálf ræfílslegt. Leyfíð henni því að hafa pláss sitt í friði, gefíð henni blákoma- áburð einu sinni að vori og hún launar ríkulega fyrir sig allt sum- arið. Margrét Ólafsdóttir Brids Amór Ragnarsson Sumarbrids Fimmtudaginn 11. maí var Sumarbrids framhaldið í Drangey við Síðumúla. Spilað var í tveimur riðlum. Urslit urðu: A-riðill: Gunnar Guðmundsson — Heimir Guðmundsson 273 Eiður Guðjohnsen — Gunnar B. Kjartansson 260 Hjörtur Cýrusson — Ingvar Sigurðsson 245 Jón H. Elíasson — JóhannesJónsson 242 B-riðiU: Þórður Bjömsson — Úlfar Ö. Friðriksson 192 Guðmundur Karlsson — Gunnar Karlsson 180 Baldvin Valdimarsson — Ólafur H. Ólafsson 166 Jakob Kristinsson — Ólafur Lárusson 165 Guðlaug Jónsdóttir — Jacqui McGreal 165 Þriðjudaginn 16. maí var svo spilað í Sigtúni og mættu 43 pör til leiks. Spilað var í þremur riðlum. Orslit urðu: A-riðilI: Gunnar Guðmundsson — ÞórðurJónsson 262 Gunnþómnn Erlingsdóttir — Sigrún Pétursd. 256 Guðbrandur Guðjohnsen — Magnús Þorkelsson 253 Guðlaugur Sveinsson — Magnús Sverrisson 251 B-riðill: Magnús Ólafsson — Páll Valdimarsson 180 Jacqui McGreal — Jakob Kristinsson 176 Birgir Steingrímsson — Þórður Björnsson 176 Lúðvík Ólafsson — Sævar Lúðvíksson 175 C-riðiII: Anton Gunnarsson — Jón Þorvarðarson 215 Bragi Bjömsson — Guðjón Jóhannsson 188 Anna Þ. Jónsdóttir — Hjördís Eyþórsdóttir 186 Alfreð Alfreðsson — Björn Þorvaldsson 185 Friðgerður Benediktsdóttir — Friðgerður Friðgeirsdóttir 179 Meðalþátttaka eftir þrjú spilakvöld er um 38 pör á kvöldi. Sumarbrids var framhaldið i Drangey sl. fimmtudag, en hér eftir verð- ur spilað alla þriðjudaga og fimmtudaga í Sigtúni. Húsið opnar báða da^ana kl. 17.30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.