Morgunblaðið - 20.05.1989, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
9
Opið hús hjá Kaupþingi
/------\
í TILEFNI AF
FJÖGURRA ÁRA AFMÆLI
EININGABRÉFA
BJÓÐA KAUPÞING HF.
OG KAUPÞING
NORÐURLANDS HF.
ÖLLUM EIGENDUM
EININGABRÉFA OG ÖÐRUM
ÁHUGAMÖNNUM
UM VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI
í AFMÆLISVEISLU
OG KYNNINGU
í DAG MILLI
KL. 13 OG 17.
Meöan á afmœlisveislunni stendur verða kynnt helstu atriði varðandi
rniðlun verðbréfa ogreksturverðbréfasjóða. Þanniggeta afmœlisgestir
meðal annars kynnt sér:
- hvemig afföU vebsktildabréfa eru reiknuð
- hvaða eignir standa að baki Einingabréfum ogSkammtímabréfum
- öryggismál varðandi geyms/u verðbréfa
- forrit sem notuð eru við útreikninga hjá verðbréfasjóðum sem
Kaupþing rekur
Sérfræðingar Kaupþings í verðbréfaviðskiptum verða til staðar til að
svara þeim spumingum, sem oft vilja g/eymast í dagsins önn.
Hveniig vœri að innbyrða bœða afmœlistertuna ogfróðleikskom um
verðbréfamarkaðinn samtímisP
Einnig gefst kostur á að taka þátt í verðlaunagetraun Kaupþings.
Að verja mál
staðinn
aju
Yfirmannaskipti hjá Varnarliðinu:
Sérhyggja kann að spilla fyr-
ir nauðsynlegum endurbótum
sagði Eric McVadon flotaforingi í kveðjuávarpi sínu
Ræða flotaforingjans
Eric McVadon flotaforingi kvaddi varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli fyrr í vikunni með ræðu, sem vakið hefur meiri athygli en
aðrar við skipti á yfirmönnum liðsins. Er óvenjulegt að við þetta
tækifæri sé tekið á pólitískum málefnum og þá sérstaklega
málum sem snerta íslensk stjórnmál. Yfirleitt hafa yfirmenn
varnarliðsins ekki farið inn á þann vettvang í málflutningi sínum.
McVadon hverfur nú til starfa í Kína, þar sem þjóðfélagsástand-
ið er flóknara og erfiðara að brjóta til mergjar en hér á landi,
þótt ýmsir útlendingar eigi að vísu fullt í fangi með að átta sig
á öllu því, sem hér er gert og sagt.
Eric McVadon sagðist
vijja tala af hreinskilni
við íslendinga þegar
hann kvaddi sem yfir-
maður vamarliðsins.
Hann sagði að þeir sem
styðja dvöl vamarliðsins
þyrftu að láta jafii mikið
og oft í sér heyra eins
og andstæðingar liðsins.
Þeir ættu að tryggja að
opinberar umræður
væm lifandi og kröftugar
en ekki leiðigjamar ein-
ræður vinstrisinna. F.kki
ætti að gera minni kröfur
til Sovétríkjanna en til
Bandaríkjanna og ann-
arra landa. Þeir sem
þekktu vamarliðið og
bandariska eða aðra leið-
toga NATO-landa best
ættu að láta meira og
oftar til sín heyra og fyll-
ast vandlætingu þegar
ferið væri rangt með
staðreyndir eða niðst á
skynsamlegum viðhorf-
um.
Tillögur um að endur-
skoða samskipti ríkis-
stjómar íslands og vam-
arliðsins ætti ekki að
vera einka-viðfángsefhi
rikisstjómar eins og
þeirrar sem nú situr með
þátttöku vinstrisinna. í
stjómarsáttmála sem
gerður yrði síðar á milli
flokka sem nær em miðju
eða lengra til hægri ættu
einnig að vera ákvæði
um þessi efhi en með
annarri áherslu. Segja
mætti að nauðsynlegt
væri að endurskoða
hvort afetaða íslendinga
sé hæfileg og viðunandi
gagnvart vamarliðinu og
hvort þeir veittu því
nægilegan stuðning. Em
íslendingar ánægðir með
þann stuðning, þá gest-
risni og samvinnu sem
hefur mótast í þau næst-
um fimmtiu ár, sem við
höfum verið saman i
bandalagi og búið á sömu
eyjunni? spurði flotafor-
inginn.
Þegar ýmislegt af því
sem hér er endursagt er
lesið, er ástæða til að
staldra við og spyija sig,
hvort þeir, sem fera með
yfirsljóm vamarliðsins
hafi nægilega þekkingu á
íslenskum málum til að
fella dóma af því tagi sem
hér er gert. Þeir virðast
ekki hafe þá yfirsýn sem
þarf til að átta sig á þró-
un umræðna um varnar-
og öryggismál i landinu.
Þótt Eric McVadon hafi
dvalist hér lengur en
flestir forverar hans, er
augjjóst að hann áttar sig
ekki á þvi, að umræður
um dvöl vamarliðsins
hafe tekið stakkaskipt-
um. Nú er ekki lengur
deilt um það, hvort vöm-
um skuli haldið uppi í
landinu heldur einstök
framkvæmdaatriði stefti-
unnar. Þar hafe margvís-
legar framkvæmdir á
vegum vamarliðsins bor-
ið hæst. Þá er óliklegt
að flotaforinginn hafi
ekki áttað sig á þeirri
nýju stefiiu i samskiptum
við vamarliðið, sem var
mótuð af Geir Hallgríms-
syni, þegar hann var ut-
anríkisráðherra fyrir
fjórum til fimm árum, og
mælir fyrir um aukna
þátttöku íslendinga i
vömum landsins.
Nýjar
áherslur
í ræðu sinni sagði Eric
McVadon að endurskoð-
un vamarsamstarfeins
ætti fremur að taka mið
af ábyrgð íslendinga en
þvi hveraig unnt væri að
draga úr áhrifinn nokkur
þúsunda útlendinga sem
búa á einu homi landsins
eða hvers væri að vænta
af ríkisstjóm Banda-
ríkjanna að þvi er varðar
framkvæmdir, störf og
önnur Qárframlög. Mestu
skipti að kanna hlut ís-
lands i Atlantshafebanda-
laginu og sem gistilands
fyrir vamarliðið. Hafi Ís-
lendingar ekki efni á að
leggja til aðstöðu eða
aðra kostnaðarsama
þætti er fidla almennt á
gistiland í slíkum tilvik-
um, ættu þeir þá að huga
að veita stuðning gisti-
lands með öðrum hætd?
Erfitt er að átta sig á
þvi, hvað flotaforinginn á
við með þessum orðiun.
Er hann að ræða um
aðild íslands að mann-
virkjasjóði Atlantshafe-
bandalagsins, sem hefur
staðið straum af kostnaði
við stærstu framkvæmd-
imar hér á landi undan-
ferin ár? Umræður um
slíka aðild hafe komið á
dagskrá öðm hveiju
undanferin ár en litið
orðið úr framkvæmdum.
í þingræðu i lok um-
ræðna um skýrslu um
utanríkismál á dögunum
komst Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra þannig að orði,
að það gæti verið skyn-
samlegt að ísland gerðist
aðili að sjóðnum. Þar
með yrði hlutverk ís-
lands sem gistilands skil-
greint betur en er gert.
Flotaforinginn vék að
viðbúnaði íslenskra
stjóravalda á hættutím-
um og minntist á, að Al-
bert Jónsson, starfemað-
ur Óryggismálanefiidar,
hefði unnið að rannsókn-
um á þvi sviði, sem yrðu
prýðilegur efiiiviður fyrir
stjómvöld til að meta
ábyrgð sina gagnvart
vamarliðinu og við töku
ákvarðana á fiættutímum
og ef aðstæður breyttust
á þann veg að spenna á
alþjóðavettvangi minnk-
aði, sem við væntum öll
að væri nú að gerast. Það
er ómaklega ráðist að
Alberti Jónssyni vegna
þessara ummæla i helg-
arblaði Þjóðviþ'ans í gær
og látið i veðri vaka, að
orð flotaforingjans eigi
rætur að rekja til ágætra
sjónvarpsþátta, sem Al-
bert stjómaði um islensk
utanríkismál. Hafeþessir
þættir ferið i taugamar
á þeim sem hafe asklok
herstöðvaandstæðinga
fyrir himin og vijja ekki
lita á heiminn eins og
hann er. Hvað sem þvi
líður er það rangt þjá
Þjóðviijanum, að McVad-
on hafi verið að ræða um
sjónvarpsþætti Alberts.
Hann vísaði beinlínis til
rannsókna hans fyrir
Óryggismálanefiid.
KAÚPÞING HF
Húsi verslunarinnar, sírni 686988
GARÐEIGENDUR
- TRJÁRÆKTARFÓLK
Ný trjáplöntustöð
Sala hefst laugardaginn 20. maí. Yfir 100 tegundir trjáa og runna, ennfremur garðskála-
plöntur. Afar hagstætt verð og greiðslukjör. Sértilboð á fagurlaufamispli, birki o.fl.
Trjáplöntusalan Núpum öifusi,
við Hveragerði,
Opið um helgar frá kl. 10-20,
virka daga frá kl. 8-19,
símar: 985-20388 og 98-34388.
INNRÉTTINGAR
Seljum í dag frá kl. 10-16 og ámorgun frá kl. 13-17
örfáar sý/7//70ar-eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar og fataskápa.
Afsláttur 40%
LÁTIÐ EKKIHAPP ÚR HENDISLEPPA
JJ-faJi.
LÆKJARGÖTU 22, HAFNARFIRÐI
SÍMI: 50022